Morgunblaðið - 04.04.2003, Qupperneq 44
FRÉTTIR
44 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKU menntasamtökin hafa
sent frá sér eftirfarandi fréttatil-
kynningu vegna málefna leikskól-
ans Tjarnaráss í Hafnarfirði:
„Enginn hefur skýrt frá því
hvaða sérstöku vandamál hafa
skyndilega komið fram sem verð-
skulda fjölmiðlaumræðu á þessum
tímapunkti. Uppsagnir stjórnend-
anna tveggja koma til fram-
kvæmda nærri lokum skólaársins,
en innan örfárra vikna hefðu samn-
ingar þeirra við samtökin hvort eð
er átt að renna út. Leikskólinn er
fremur vinsæll meðal foreldra, sem
finnst stöðugleiki eðlilega skipta
miklu máli, sem og friður á leik-
skólanum.
Starfsfólkið vill að sjálfsögðu
vinna áfram fyrir leikskólastjóra
sinn og aðstoðarleikskólastjóra.
Þeirra bíður heldur ekki hætta á
að missa starf sitt að lokinni yf-
irtöku, eins og sást í málum Ás-
landsskóla. ÍMS höfðu óttast að
bæjaryfirvöld stefndu að því að fá
fram uppgjöf, fremur en að af yf-
irtöku yrði. ÍMS óttuðust enn
fremur frekari uppsagnir til stuðn-
ings. Óöryggi segja ÍMS hafa verið
sitt helsta vandamál og að það sé
eins og að hendur manns og fætur
séu bundin, en um leið sé maður
beðinn um að dansa. Að okkar mati
er yfirlýsingin varðandi 10. apríl
engin lausn, því að áframhaldandi
óöryggi í rekstri á þessum tíma-
punkti er í raun dauðadómur, með
tilliti til ráðninga og áætlana fyrir
næsta ár.
Vandamálið er augljóslega orðið
mun stærra vegna fjölmiðlaum-
ræðu sem hófst án þess að málin
væru rædd við ÍMS fyrst. Þar af
leiðandi koma frekari uppsagnir
okkur ekki á óvart. Vilji bæjaryf-
irvöld nú ekki taka yfir reksturinn
eins og yfirlýsingar þeirra hinn 28.
mars sl. benda nú til er eina raun-
hæfa lausnin að þau gefi ÍMS vissu
um langtímaöryggi án hættu á yf-
irtöku á næsta ári þegar nýtt 5 ára
tímabil ætti að hefjast.
Hugmyndin um yfirtöku kom
fyrst fram í fjölmiðlum hinn 18.
mars sl. í Morgunblaðinu, þar sem
vitnað var í orð fræðslustjóra
Hafnarfjarðar: „Hann segir bæj-
aryfirvöld reiðubúin að taka yfir
reksturinn ef viðræður við ÍMS
þróist í þá veru.“ Yfirlýsingarnar
voru á þessum tíma eingöngu
byggðar á uppsögnunum tveimur.
Á fundi fræðsluráðs miðvikudaginn
26. mars, í kjölfar yfirlýsinganna í
fjölmiðlum, kom fram að „samtök-
unum verður gefinn frestur til 10.
apríl næstkomandi til að skýra
hvernig þau hyggjast tryggja
áframhaldandi rekstur leikskólans
þannig að ákvæði rekstrarsamn-
ings samtakanna við bæinn verði
uppfyllt.“
ÍMS kom þetta mjög á óvart,
þar sem enginn grundvöllur var
fyrir slíkri viðvörun. Í framhaldinu
kom fram í yfirlýsingu frá ÍMS
hinn 27. mars að ÍMS væru
reiðubúin til að semja við bæjaryf-
irvöld, og það sama kom fram í
bréfi til foreldra og starfsfólks. Í
kjölfar þessarar yfirlýsingar ÍMS
sendi skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
frá sér fréttatilkynningu, sem birt-
ist í Morgunblaðinu 28. mars, þar
sem sagði: „Bæjaryfirvöld hafa
aldrei gefið til kynna að þau hygð-
ust taka yfir rekstur Tjarnaráss.“
Enginn grundvöll-
ur fyrir viðvörun
Alltaf á
þriðjudögum
Dæmi um greiðslukjör:
3ja herb. frá 14,2 millj. 4ra herb. íb. frá 17,5 millj.
Naustabryggja 4 - nýjar glæsiíbúðir
Um er að ræða 3ja herbergja 93-
110 fm og 4ra herbergja 136 fm
endaíbúðir. 9 af 16 íbúðum eftir.
Vandaðar eikarinnréttingar frá HTH.
Flísalagt baðherbergi. Sérþvotta-
herbergi í hverri íbúð. Sérinngangur
af innbyggðum svalagangi í
helmingi íbúða. Lyfta. Stæði í
bílskýli fylgir öllum íbúðum.
Innangengt í sameign. Afhending
fyrstu íbúða svo til strax. Hús og
gluggar álklætt og því viðhaldslétt.
V. kaupsamn. m. pen. 800.000
V. afh. íb. m. pen. 1.000.000
4-6 mán. e. afh. m. pen. 800.000
8-10 mán. e. afh. m. pen. 800.000
*Lán. v. afh. Nb. ca 1.800.000
húsbréf 9.000.000
Samtals ca kr. 14.200.000
V. kaupsamn. m. pen. 1.200.000
V. afh. íb. m. pen. 1.400.000
4-6 mán. e. afh. m. pen. 1.400.000
8-10 mán. e. afh. m. pen. 1.000.000
*Lán. v. afh. Nb. ca 3.500.000
húsbréf 9.000.000
Samtals ca kr. 17.500.000
*lán til allt að 25 ára frá Nb (Netbankanum)
með veði í íbúðinni.
Frábær kostur rétt við höfnina
og torgið í Bryggjuhverfi!
Allar upplýsingar
á Valhöll, sími 588 4477
Glæsilegt 16 íbúða lyftuhús
- til afhendingar svo til strax
BÁTAR SKIP
Til sölu
Ferðamálasjóður auglýsir til sölu bátinn Móra,
sknr. 6665, sem er 5,3 brl. bátur, ætlaður til
ferðaþjónustu. Báturinn er Sómi 800, knúinn
165 ha. Volvo Penta díeselvél, smíðaður árið
1985.
Frekari upplýsingar eru veittar í Ferðamála-
sjóði, Borgartúni 21 í Reykjavík, eða í síma
540 7510.
Ferðamálasjóður.
Garðbæingar
„Opið hús“ laugardaginn 5. apríl með bæj-
arfulltrúum Sjálfstæðisflokksins milli
kl. 11.00 og 12.00 á Garðatorgi 7.
Komdu hugmyndum þínum á framfæri við
bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Heitt á könnunni.
VERUM BLÁTT - ÁFRAM
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ.
FÉLAGSSTARF
Verslunarmannafélag
Hafnarfjarðar auglýsir:
Umsóknarfrestur um orlofsdvöl í húsum fé-
lagsins er hafinn og stendur til 30. apríl.
Upplýsingar á skrifstofu VH — sími 565 1150
og heimasíðu — www.vhf.is .
Orlofsnefnd.
TIL SÖLU
Auglýsing um deiliskipu-
lag í Rangárþingi eystra
Forsæti 3 Vestur-Landeyjum, deiliskipu-
lag frístundahúsa.
Samkvæmt 25. grein skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 er hér með auglýst tillaga að
deiliskipulagi fyrir frístundahús í landi
Forsætis 3, Vestur-Landeyjum.
Í tillögunni er gert ráð fyrir byggingu 3 frí-
stundahúsa ásamt vegagerð að svæðinu.
Teikningar liggja frammi á skrifstofu Rangár-
þings eystra, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, frá og
með 4. apríl til og með 2. maí nk.
Athugasemdafrestur er til kl 16.00 föstudaginn
16. maí 2003. Athugasemdum, ef einhverjar
eru, skal skila skriflega á skrifstofu Rangárþings
eystra fyrir lok ofangreinds frests.
Þeir, sem gera ekki athugasemd við tillöguna
innan ofangreinds frests, teljast samþykkir
henni.
Byggingarfulltrúi Rangárþings eystra.
Mat á umhverfisáhrifum
— Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
allt að 8.000 t eldi á laxi, regnbogasilungi
og þorski í sjókvíum í Seyðisfirði skuli ekki
háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lög-
um nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana
er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofn-
unar: www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
2. maí 2003.
Skipulagsstofnun.
Lagersala á skóm
í Askalind 5, Kópavogi, að ofanverðu.
Opið frá kl. 13—17. Verð frá 200 kr.
Tökum ekki kort.
Veitingastaður til sölu
Til sölu er veitingahúsið Fimm Fiskar í Stykkis-
hólmi ásamt öllum búnaði, tækjum og rekstri.
Húsið er byggt árið 1991 og er 164 fm að stærð.
Húsið, sem er í fullum rekstri, er vel staðsett
í miðbæ Stykkishólms. Nánari upplýsingar
veitir undirritaður á skrifstofutíma.
Fasteigna- og skipasala Snæfellsness,
Pétur Kristinsson hdl.,
löggiltur fasteigna- og skipasali.
Sími 438 1199, fax 438 1152,
pk@simnet.is .
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 12 183448½ Sk.
I.O.O.F. 1 183448 8½.II.
Í kvöld kl. 21 heldur Jón Ellert
Benediktsson erindi: „Að vera
og gera“ í húsi félagsins, Ing-
ólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Emils Björns-
sonar Spjall.
Á sunnudögum kl. 17-18 er hug-
leiðingarstund með leiðbeining-
um fyrir almenning.
Á fimmtudögum kl. 16.30-
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta.
Hugræktarnámskeið Guðspeki-
félagsins verður framhaldið
fimmtudaginn 10. apríl kl. 20.30
í umsjá Bjarna Björgvinssonar:
„Kyrrðarinnar hljóði fögnuður
II“
Guðspekifélagið er 128 ára
alþjóðlegt félag um andleg mál,
hið fyrsta sem byggði á hug-
myndinni um algert frelsi, jafn-
rétti og bræðralagi meðal
mannkyns.
gudspekifelagid.is
mbl.is
ATVINNA