Morgunblaðið - 04.04.2003, Síða 48
DAGBÓK
48 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Árni Friðriksson
kemur í dag. Mána-
foss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Arklow Day og
Green Artic koma í
dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó
í dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofan.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–
16 handavinna, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 13–
16 spilað í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9
bað, og opin handa-
vinnustofa.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 op-
in handavinnustofan,
kl. 9–12 applikering,
kl. 10–13 opin versl-
unin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12
bað, kl. 9–16.30 opin
vinnustofa, myndlist,
gifs o.fl., kl. 9.30
gönguhópurinn Gönu-
hlaup leggur af stað,
kaffi á eftir göngunni,
kl. 14 brids og almenn
spilamennska. Kl.14
verður tískusýning,
kynnt verður vortísk-
an frá tískuverslun
Hrafnhildar, og
herrafataversluninni
Adam nemendur og
gestir stöðvarinnar
sýna, stjórnandi Unn-
ur Arngrímsdóttir,
listastofan verður lok-
uð eftir hádegið af
þessum sökum.
Korpúlfar, Graf-
arvogi, samtök eldri
borgara.Vatnsleikfimi
er í Grafarvogslaug á
föstudögum kl. 14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl.
10 hárgreiðsla, kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
11 leikfimi, kl. 13 „op-
ið hús“spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 9.30
Glerbræðsla, kl. 14
spænska. Ath. fé-
lagsvistinni sem vera
átti í Garðabergi í dag
er frestað. Nánar
auglýst síðar.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Pútt og brids kl 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Útvarp
Saga 94,3 kl. 12.20
þáttur um málefni
aldraðra.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf, Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, frá
hádegi spilasalur op-
inn, kl. 14 kóræfing,
kl. 20 dansleikur, hús-
ið opnað kl. 19.30.
Gjábakki, Fannborg
8. Kl. 9.30 málm- og
silfursmíði, kl. 9.15
vefnaður, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlist-
arhópur, kl. 10 ganga.
Kl. 14–15 söngur,
Gleðigjafarnir syngja.
Hraunbær 105. Kl. 9
bað, handavinna, út-
skurður, fótaaðgerð
og hárgreiðsla, kl. 11
spurt og spjallað, kl.
14 verður spilað
páskabingó. Kaffiveit-
ingar. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
13 tréskurður, kl. 9–
17, hárgreiðsla, kl.
10–11 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–
16 fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–
14.30 handavinna, kl.
10–11 kántrídans, kl.
11–12 stepp, kl.
13.30–14.30 Sungið
við flygilinn, kl.
14.30–16 dansað í að-
alsal.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hár-
greiðsla og myndlist,
kl. 9.30 bókband og
morgunstund, kl. leik-
fimi og 10 fótaðgerð,
kl. 12. 30 leirmótun,
kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK,
Gjábakka. Brids kl.
13.15 í dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laugard.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl.
21 í Konnakoti,
Hverfisgötu 105,
ganga mánu- og
fimmtud.
Ungt fólk með ung-
ana sína. Hitt húsið
býður ungum for-
eldrum með börnin
sín á fimmtud. kl.13–
15 á Loftinu í Hinu
húsinu, Pósthússtræti
3–5.
Frá Félagi kennara á
eftirlaunum.
Skemmtifundur í
Húnabúð, Skeifunni
11, laugard. 5. apríl
kl. 13.30. Félagsvist,
veislukaffi.
Kvenfélagið Heima-
ey. Hátíðafundur í
Skíðaskálanum 7. apr-
íl. þátttaka tilkynnist
í síma 586 2174 Gyða
eða síma 552 1153,
Sirrý.
Framsóknarfélagið í
Mosfellsbæ, félagsvist
kl. 20.30 í kvöld í
Framsóknarsalnum
Háholti 14, 2. hæð.
Í dag er föstudagur 4. apríl, 94.
dagur ársins 2003, Ambrósíus-
messa. Orð dagsins: Þetta býð ég
yður, að þér elskið hver annan.
(Jóh. 15, 17.)
Páll H. Hannesson,starfsmaður BSRB,
skrifaði grein hér í blað-
ið 11. marz sl. undir fyr-
irsögninni „Kranavatnið
í boði kóka-kóla?“ Þar
segir m.a.: „Ríkisstjórnin
hefur enn á ný lagt fram
frumvarp um vatnsveitur
sveitarfélaga þar sem
þeim er í sjálfsvald sett
að hlutafélagavæða
vatnsveitur landsins. Í
umsögn BSRB um laga-
frumvarpið er andstaða
samtakanna við hluta-
félagavæðingu ítrekuð
og bent á að Sameinuðu
þjóðirnar hafa nýverið
skilgreint vatn sem
grunnmannréttindi og að
ekki beri að líta á það
sem verslunarvöru.“
Páll segir ennfremur:
„Í dag eru vatnsveitur
skylduverkefni sveitarfé-
laga. Einkafyrirtæki í
vatnsiðnaði sem rekin
eru í gróðaskyni hafa að-
eins skyldum að gegna
við hluthafa. Það er
kominn tími til að stjórn-
völd setji almannahags-
muni í fyrirrúm í stað
þess að ráfa eftir blind-
götum markaðs-
hyggjunnar.“
Það er engu líkara enleiðarahöfundur
brezka tímaritsins The
Economist 22. marz hafi
ekki lesið grein Páls,
a.m.k. er hann á allt ann-
arri skoðun og telur að
einkavæðing vatnsveitna,
ekki sízt í þriðja heim-
inum, sé af hinu góða.
Blaðið bendir á að víða
um heim hafi opinberar
vatnsveitur brugðizt fá-
tækum viðskiptavinum
sínum. Stjórn þeirra sé
spillt, þær séu óskilvirk-
ar og skorti fé til fjár-
festinga. Oft komist
vatnið ekki á leiðarenda
vegna leka, eða þá að
það endi bara hjá ríka
fólkinu en fátæka fólkið
þurfi að borga vatns-
berum háar fjárhæðir til
að fá vatn.
Vitnar blaðið m.a. til
nýlegrar rannsóknar,
sem sýnir að einkavæð-
ing vatnsveitna í Argent-
ínu hafi aukið gæði
vatns, bætt aðgang al-
mennings að hreinu
vatni og þannig dregið
úr ungbarnadauða.
Efasemdamenn ættu aðminnast þess að eitt
ríkt land hefur haft
einkavædda vatnsveitu
öldum saman. Það eru
ekki Bandaríki hins
frjálsa markaðar, heldur
Frakkland ríkislausn-
anna. Raunar eru tvö
stærstu einkareknu
vatnsfyrirtæki heims
frönsk,“ segir The
Economist. „Jafnathygl-
isvert er að þeir, sem
fjandskapast við einka-
væðingu vatnsveitna,
koma flestir frá ríkum
löndum. Mörg fátæk lönd
fagna henni; þau hafa
miklu meiri áhyggjur af
því hvort yfirleitt kemur
vatn úr krananum en
hvort það kemur frá op-
inberum eða einkaað-
ilum. Eins og Deng
Xiaoping sagði eitt sinn:
Það skiptir ekki máli
hvort köttur er svartur
eða hvítur, svo lengi sem
hann veiðir mýs.“
STAKSTEINAR
Eru einkavæddar vatns-
veitur vondar?
Víkverji skrifar...
MARGT breytist í henni veröld.Nú les Víkverji að Staðarskáli
og Brúarskáli í Hrútafirði hafi sam-
einazt, undir merkjum Staðarskála.
Víkverji getur ekki annað en glaðzt
yfir þessu, því að hann og hans fjöl-
skylda héldu alltaf með Staðarskála
í gamla daga, þegar þessir tveir án-
ingarstaðir í Hrútafirði voru með
vissum hætti fulltrúar stríðandi
fylkinga í viðskiptalífinu. Einka-
framtaksfólk áði í Staðarskála, sem
var í einkaeigu, samvinnufólk í Brú-
arskála, sem var á vegum Kaup-
félags Hrútfirðinga. Þannig
brunuðu íhaldsmenn framhjá Brú-
arskála þegar komið var ofan af
Holtavörðuheiðinni, jafnvel þótt öll
fjölskyldan væri komin í spreng, en
framsóknarmenn á leiðinni suður
óku Hrútafjörðinn á sprungnu
dekki fremur en að stoppa í Stað-
arskála.
x x x
MORGUNBLAÐIÐ hefur stutteinkaframtakið í meira en 90
ár og það var ekki alltaf vel séð hjá
samvinnumönnum. Það er ekki
lengra síðan en á níunda áratug síð-
ustu aldar, að Víkverji kom í Kaup-
félag Skagfirðinga í Varmahlíð og
bað um Morgunblaðið, en fékk þau
svör að sá snepill væri ekki seldur
þar. Hann gæti hins vegar fengið
Tímann. Eftir þetta kom Víkverji
við í Varmahlíð á báðum leiðum í
hvert einasta skipti sem hann fór
norður í land og bað um Morg-
unblaðið. Ekki veit Víkverji hvort
þessar fyrirspurnir hans höfðu ein-
hver áhrif á það að eftir nokkur ár
byrjaði Kaupfélagið að selja Morg-
unblaðið. Kannski byrjaði það ekki
fyrr en hætt var að gefa út Tímann.
x x x
VÍKVERJI kann sögu af því þeg-ar Heimdellingar úr Reykjavík
fóru í rútuferðalag um Suðurland.
Stanzað var á Hellu og einn stutt-
buxnadrengurinn ætlaði að fara að
kaupa sér eitthvað í svanginn, stefn-
ir á næstu verzlun en rekur í roga-
stanz þegar hann sér að hún er
merkt Kaupfélaginu Þór. Heimdell-
ingurinn horfir á skiltið og fer með
einhverjar formælingar, en verður
þá var við að hönd er lögð á öxl hon-
um. Þar er kominn heimamaður á
efri árum, sem segir hughreystandi:
„Þér er óhætt að verzla hér, vinur,
þetta er sjálfstæðiskaupfélag.“ Ing-
ólfur Jónsson, lengi þingmaður og
ráðherra Sjálfstæðisflokksins,
stofnaði Kaupfélagið Þór árið 1935.
Nú er það reyndar liðið undir lok
eins og svo mörg önnur kaupfélög.
„Sjálfstæðiskaupfélagið“ Þór á Hellu á meðan það var og hét.
ÞAKKA ber góða fræðslu-
þætti sem hafa verið í sjón-
varpinu það sem af er vetri,
en hvernig væri nú að við
fengjum að sjá aftur þáttinn
„Þjóð í hlekkjum hugarfars-
ins“ eftir Baldur Her-
mannsson, það væri góð við-
bót við þáttinn „20. öldin“
sem var jú að mestu úr bæj-
arlífinu.
Einnig var hér fyrir
nokkrum árum sýndur frá-
bær þáttur, „Krossferðirn-
ar“, sem tímabært væri að
sýna nú í viðsjárverðum
heimi.
Vinsamlega með fyrir-
fram þakklæti.
Sjónvarpsáhugamaður.
Hlaupabóluáburður
ÉG las í Morgunblaðinu
laugardaginn 29. mars sl. að
allur hlaupabóluáburður
væri uppurinn vegna mikils
faraldurs hlaupabólunnar.
Ég veit alveg hvað það er að
vera með veikt barn sem
getur ekki borið af sér
vegna vanlíðunar og kláða.
Mig langar til að benda á
krem sem Volare framleiðir,
en það heitir Forte, og hefur
verið notað með frábærum
árangri á hlaupabólu, of-
næmi og hvers kyns vanlíð-
an en það róar og kælir.
Lesandi.
Ég hrópa
ÉG er ein þeirra sem einatt
hrópa „Þjóðgarð, ekki
Kárahnjúkavirkjun“. Núna
hrópa ég líka „Ekkert blóð
fyrir olíu“. Samt er það ekki
vegna ofreynslu við þessi og
önnur ámóta hróp, sem
hjarta mitt skelfist og verkj-
ar, eins og trampað hafi ver-
ið á því, heldur vegna verka
óbilgjarnra og vondra ráða-
manna.
Bush-stjórnin var frá
byrjun staðráðin í að beita
hervaldi og hunsaði þar af
leiðandi öll góð ráð. Á sama
hátt er það með ráðamenn
okkar lands hvað snertir
Kárahnjúkavirkjun. Stað-
reyndum er sópað undir
mottu og anað út í mestu og
áhættusömustu eyðilegg-
ingu Íslandssögunnar.
Miskunnarlaust eru mik-
ilfenglegustu gljúfur lands-
ins, Dimmugljúfur, tætt nið-
ur, á sama frumstæða hátt
og viðhafður var þegar tal-
ibanarnir skemmdu Búdda-
líkneskin. Gjörðir þeirra,
eins og ráðamanna hérlend-
is, eru samviskulaus og
óþarfur eyðileggingarhern-
aður gegn ómetanlegum
dýrgripum þjóða sinna, sem
þeir þar með brjóta á, í nútíð
og um framtíð.
Í bernsku var mér kennt
að meta hið fagra, sanna,
göfga og góða.
Hvað hafa ungmennin
fyrir augunum í dag og
hvernig geta þau eignast
von um bjarta framtíð? Er
hún kannski fólgin í því að
bræða hráál til stríðsvopna
sem limlesta og myrða lítil
börn fyrir olíu?
Frá sjúkraliða.
Okurverð
ÉG fór á veitingastaðinn
Pítuna í Skipholti á laugar-
daginn sl. og blöskrar mér
að píta með kjúklingabringu
án meðlætis skuli kosta 820
kr. Þvílíkt okur! Þar sem
kjúklingur er nú á svo góðu
verði í dag, þá finnst mér
þetta ekki hægt.
Ég er sammála því sem
Víkverji sagði 31. mars, að
nú sé kominn tími á að veit-
ingastaðir fari að endur-
skoða verðið á kjúklingi á
matseðli sínum!
Anna Sig.
Hver tók upp
myndina?
NÝLEGA var sýnd mynd í
sjónvarpinu um taílenskar
stúlkur sem giftust íslensk-
um strákum. Ég ætlaði að
sjá þessa mynd en missti af
henni. Ef einhver hefur tek-
ið þessa mynd upp á spólu
vinsamlega hafið samband
við Gunnlaug í síma
698 9910.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Góðir
fræðsluþættir
Morgunblaðið/Kristinn
LÁRÉTT
1 mikill snjór, 8 hreinar,
9 kliður, 10 fara til fiskj-
ar, 11 lúra, 13 glæsileiki,
15 kút, 18 rithöfundur,
21 títt, 22 ófullkomið, 23
eldstæði, 24 skipshlið.
LÓÐRÉTT
2 mánuður, 3 gabba, 4
lýkur, 5 farsæld, 6 bak-
hluti, 7 hugboð, 12
þreyta, 14 tré, 15 amboð,
16 grámóða, 17 bogin, 18
framendi, 19 héldu, 20
látni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 áfall, 4 frost, 7 andóf, 8 úlfúð, 9 nær, 11 inni, 13
enda, 14 látún, 15 spöl, 17 nekt, 20 ári, 22 rílum, 23
lukka, 24 kamar, 25 tunga.
Lóðrétt: 1 ávani, 2 aldin, 3 Lofn, 4 frúr, 5 orfin, 6 tuðra,
10 æstur, 12 ill, 13 enn, 15 sprek, 16 öflum, 18 eikin, 19
trana, 20 ámur, 21 illt.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16