Morgunblaðið - 04.04.2003, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 49
DAGBÓK
Laugavegi 54, sími 552 5201
Gallabuxur
áður 6.990
nú 3.990
Gallapils
áður 5.990
nú 3.990
Hermanna-
buxur
áður 5.990
nú 3.990
Bolir
áður 1.990
nú 990
Kynningar- og skemmtifundur á vegum
bindindissamtakanna IOGT í leikhússal í Iðnó við Tjörnina
laugardaginn 5. apríl 2003 klukkan 13.30-15.30
Dagskrá:
1. Ávarp: Gunnar Þorláksson, formaður Bindindissamtakanna IOGT.
2. Ávarp: Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands.
3. Ávarp: Sveinn H. Skúlason, forstjóri Hrafnistu.
4. „Slegið á létta strengi“: Helgi Seljan, fyrrv. alþingismaður.
5. Nokkur orð: Svava Dóra Svavarsdóttir,
formaður Ungmenna hreyfingar IOGT- U.
6. Danssýning.
7. Lokaorð: Áhersluatriði IOGT: Einar Hannesson í Svæðisráði IOGT.
Árni Norðfjörð annast um tónlist milli dagskráratriða.
Fundarstjóri Aðalsteinn Gunnarsson,
formaður Barnahreyfingar IOGT-B.
Kaffiveitingar.
Opinn Gúttó-fundur
Breyttar áherslur - Betra líf
ÁRNAÐ HEILLA STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hlédrægur
einstaklingur, en í raun
ertu bæði raungóður og
ráðhollur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu draumórana ekki ná
þannig tökum á þér að þú
hafir ekki hugann við vinn-
una. Allt á sinn tíma og nú er
það vinnan sem þarf að hafa
forgang.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert eitthvað orkulaus og
illa fyrirkallaður og þarft að
gæta þín á að aðrir notfæri
sér það ekki. Láttu því engan
vaða yfir þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þeir eru margir sem líta til
þín í von um að geta lært
guðs ótta og góða siði. Vertu
bara þú sjálfur, því þannig
ertu besta fyrirmyndin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nú ert það þú sem átt að taka
frumkvæðið og laða svo aðra
til samstarfs við þig. Vertu
hvergi smeykur, því þú ert
með allt þitt á hreinu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Stórhuga áætlun þín gengur
ekki upp nema þú leitir þér
aðstoðar hjá öðrum því það
er ekki á eins manns færi að
hrinda henni í framkvæmd
svo vel sé.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Taktu það ekki illa upp þótt
vinir þínir séu þér ekki sam-
mála í öllu. Heilbrigð skoð-
anaskipti eru af hinu góða og
sá er vinur sem til vamms
segir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ýmis tækifæri standa þér op-
in og það er erfitt að velja.
Leitaðu ráða þér eldri og
reyndari manna og þá áttu
auðveldara með að taka af
skarið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Einhver óánægja hefur kom-
ið upp meðal starfsfélaga
þinna og það er á þínu færi að
koma á sáttum svo þú skalt
ekki slá því á frest.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Leyfðu félagsþörfinni að fá
útrás núna. Þetta er ekki tími
sem er best varið til einveru,
þvert á móti, þú hefur þörf
fyrir félagsskap annarra.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er ekki ólíklegt að vanda-
mál komi upp í nánum sam-
böndum þínum við aðra.
Reyndu að hemja skap þitt
og forðast rifrildi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er ekki nóg að fá hug-
myndir ef þú hrindir þeim
ekki í framkvæmd. Þú sérð
að þú hefur tækifæri til að
fara inn á nýjar brautir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er eitt og annað sem þú
átt ógert. Það er ekki eftir
neinu að bíða með að hefjast
handa svo drífðu þig af stað.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
TALAÐ er um tvöfalda
kastþröng þegar báðir
andstæðingarnir lenda í
vandræðum með afköst.
Hvor um sig þarf þá að
valda einn lit sérstaklega
og báðir þriðja litinn sam-
eiginlega. Á síðasta spila-
kvöldi Bridsfélags
Reykjavíkur kom upp
„kennslubókarspil“ í tvö-
faldri kastþröng.
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ KD1074
♥ 872
♦ ÁKD6
♣10
Vestur Austur
♠ Á2 ♠ 8653
♥ G10 ♥ 9643
♦ G9754 ♦ 8
♣K632 ♣DG74
Suður
♠ G9
♥ ÁKD5
♦ 1032
♣Á985
Hinn almenni samn-
ingur var þrjú grönd í
suður, oft eftir þessar
sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
– 1 spaði Pass 2 lauf
Pass 2 tíglar Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Allir pass
Vestur er ekki öfunds-
verður af útspilinu, því NS
hafa sagt í báðum litunum
hans. Hjarta er eini ósagði
liturinn og flestir komu
því út með hjartagosann.
Suður sótti spaðaásinn
og yfirleitt hélt vestur
sínu striki og spilaði
áfram hjarta. Þar með er
sviðið sett fyrir tvöfalda
þvingun. Sagnhafi tekur
einfaldlega háspilin í
rauðu litunum og alla
spaðana. Svona er staðan
þegar blindur spilar síð-
asta spaðanum:
Norður
♠ 7
♥ –
♦ 6
♣10
Vestur Austur
♠ – ♠ –
♥ – ♥ 9
♦ G ♦ –
♣K6 ♣DG
Suður
♠ –
♥ 5
♦ –
♣Á9
Austur á hæsta hjarta
og verður því að kasta
laufi í spaðasjöuna. Suður
hendir þá hjartafimmu og
lætur vestur kveljast.
Hann verður að hanga á
hæsta tíglinum og hendir
því líka laufi. Nían í laufi
verður þar með tólfti slag-
urinn.
Þetta er nánast sjálf-
spilandi, enda fengust tólf
slagir á 15 borðum af 25.
Með laufi út fær sagnhafi
aðeins 10 slagi, og vestur
getur haldið sagnhafa í 11
slögum með því að skipta
yfir í lauf þegar hann er
inni á spaðaás.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Bjargið alda
Bjargið alda, borgin mín,
byrg þú mig í skjóli þín.
Heilsubrunnur öld og ár
er þitt dýra hjartasár.
Þvo mig hreinan, líknarlind,
lauga mig af hverri synd.
Heilög boðin, Herra, þín
hefur brotið syndin mín.
Engin bót og engin tár
orka mín að græða sár.
Ónýt verk og ónýt trú,
enginn hjálpar nema þú.
Titrandi með tóma hönd
til þín, Guð, ég varpa önd,
nakinn kem ég, klæddu mig,
krankur er ég, græddu mig,
óhreinn kem ég, vei, ó, vei,
væg mér, Herra, deyð mig ei.
Þegar æviþrautin dvín,
þegar lokast augun mín,
þegar ég við sælli sól
sé þinn dóms- og veldisstól:
Bjargið alda, borgin mín,
byrg mig þá í skjóli þín.
Matthías Jochumsson
LJÓÐABROT
70 ÁRA afmæli. Sjötugverður hinn 6. apríl
Aðalborg Guttormsdóttir,
Skeljagranda 3, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum á
heimili sínu laugardaginn 5.
apríl milli kl. 17-21.
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag-
inn 5. apríl, er sextug Ólöf
Pálsdóttir, tónlistarkennari
og söngstjóri, Bessastöðum
í Húnaþingi. Karlakórinn
Lóuþrælar og Sönghóp-
urinn Sandlóur halda henni
veislu í Félagsheimili
Hvammstanga á laug-
ardagskvöld. Húsið opnað
kl. 20. Vinir og velunnarar
eru hjartanlega velkomnir.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4
cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3
e5 6. Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8.
Ra3 b5 9. Bxf6 gxf6 10.
Rd5 f5 11. c3 Bg7 12. exf5
Bxf5 13. Rc2 O-O 14.
Rce3 Be6 15. Bd3 f5 16.
Dh5 e4 17. Bc2 Re7 18.
Bb3 f4 19. Rxe7+ Dxe7
20. Rf5 Df6 21. g4 Kh8
22. Rxg7 Bxb3 23. axb3
Dxg7 24. O-O-O b4 25. c4
a5 26. Hxd6
a4 27. bxa4
Hxa4 28. Kb1
Hfa8 29. Dd5
Ha1+ 30. Kc2
Staðan kom
upp á Amber-
mótinu sem
lauk fyrir
skömmu í
Mónakó.
Alexei Shirov
(2.723) hafði
svart gegn
Ljubomir
Ljubojevic
(2.570). 30...
b3+! 31. Kxb3
Hb8+ og hvítur gafst
upp. Gamli refurinn
„Ljubo“ er góðvinur þess
sem fjármagnar og skipu-
leggur mótið og hefur
hann tekið þátt í þeim öll-
um. Hin síðari ári hafi
hann verið tugum stigum
lægri en næststigalægsti
þátttakandinn og hefur
nær undantekningarlaust
vermt neðsta sætið.
Skákirnar hans eru alltaf
mjög líflegar þótt hann sé
nú oftar öfugum megin
við borðið en áður fyrr.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
SMÆLKI
AÐALFUNDUR Samtaka náttúru-
stofa (SNS) var haldinn föstudaginn
28. mars síðastliðinn.
Aðilar að samtökunum eru starf-
andi náttúrustofur á landinu, þ.e.
Náttúrustofa Vesturlands (NSV),
Náttúrustofa Vestfjarða (NV), Nátt-
úrustofa Norðurlands vestra (NNV),
Náttúrustofa Austurlands (NA),
Náttúrustofa Suðurlands (NS) og
Náttúrustofa Reykjaness (NR).
Fulltrúum væntanlegrar náttúru-
stofu á Norðurlandi eystra var boðið á
fundinn og gerðu þeir grein fyrir upp-
byggingu stofu þar.
Í stjórn samtakanna voru kosnir
Ingvar Atli Sigurðsson (NS), formað-
ur, Róbert A. Stefánsson (NSV), rit-
ari og Þorleifur Eiríksson (NV),
gjaldkeri. Einnig var kosið í þrjár
nefndir til að kynna náttúrustofurnar
og auka samstarf þeirra við stofnanir
og fyrirtæki innan lands og utan.
Helstu markmið með Samtökum
náttúrustofa eru að efla starfsemi,
samstarf og kynningu náttúrustofa,
fjalla um sameiginleg málefni þeirra,
auka samstarf við stofnanir á sviði
náttúrufræða og umhverfisverndar
og fjölga störfum í náttúruvísindum á
landsbyggðinni. Þá er stefnt að auknu
samstarfi við umhverfisráðuneytið og
sveitarfélög á landinu, m.a. við gerð
fræðsluefnis um umhverfismál og
náttúrufar á landinu og þar með að
efla meðvitund almennings heima í
héraði um nánasta umhverfi sitt.
Sérstaklega var ályktað um að
náttúrustofurnar geta tengst upp-
byggingu háskólasetra á landsbyggð-
inni.
Samtök náttúrustofa
efla umhverfisvitund
FRÉTTIR
Menntamálaráðuneyti hafa
borist upplýsingar um nám í
ungverskri tungu, sögu Ung-
verjalands og menningu fyrir
erlenda námsmenn við Balassi
Bálint Institute í Búdapest.
Um er að ræða 10 mánaða nám
skólaárið 2003-2004.
Unnt er að sækja um styrki
fyrir námið til stofnunarinnar.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl
nk. Nánari upplýsingar og
eyðublöð fást hjá ráðuneytinu
og á heimasíðu Balassi Bálint
Institute: www.bbi.hu
Styrkir til náms
í Ungverjalandi