Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 56
KVIKMYNDIR/FÓLK
56 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!" ## # #$%&#% #'( #)* #+#, #- # #)./#-".01 .2#(
&( /22#3# . #2# # 4#%" #5 6#%" 6#7 06#&8 3 #(##&"6#) 3
9 6#: #(#3#).+6# #&+ #;#.#(#%!
$
$
$
94 *
?1 -
< #
'#(
(-#<(
=*/(
)+#- #<" #.3
> : #= , +
>..
< #!./
5#:
?-#)0
712 #!(
!5!@
'
) 2.
)02
'(0
# 1
%1#7" (
,# 1 .# 1 .
>..
) #A"
>(#B(-
=0
5(.*#9
=
#'
%
2 #9 (
99
C#7 '(.#5D#?-#&
)0#?-#B-(
)"#(#.+E#+# # /2
!-#&
&( 5# .#F# F
!-#>..#)-(D
<
:#B(
>0-
%.+
# .G-#$#!-#?(#:
:(#B(#% (#-
H#)"# 2
) 0# .#0 5#A -#C #%((#!(#!-#7
% #/8+
% #/12 #%1
,# 1 .# 1 .
#&
I#J
A(//
# (#B((
&K L((
B#A*-#C##!
C#:(
#)-
=3
)(
>&$
>&$
) 3
@
?
) 3
@
>&$
%&B
M:
>
@
@
)02
>&$
) 3
, #"
) 3
@
).
@
)0(
>&$
%&B
@
>&$
) 3
HANNIBAL notaði fílana
til að fara yfir Alpana en
„systkinin“ í White
Stripes, þau Meg og
Jack White, láta sér
nægja að ríða á einu
stykki inn á Tónlistann
okkar. Elephant er
fjórða breiðskífa White
Stripes en sú fyrsta, samnefnd sveitinni, kom
út á því herrans ári 1999. Í þessu nýjasta verk-
efni halda þau áfram að toga og teygja einstakt
suddarokk sitt og verður vel ágengt líkt og und-
anfarið. Það verður víst að fara að telja það vís-
indalega staðreynd að það er eitthvað í vatninu
þarna í rokkhöfuðborginni Detroit, þar sem
blessuð White börnin ólu manninn. Nú er það
bara spurningin: Eruð þið að „fíla“ White
Stripes?
„Fíla“ það!
Söngfuglinn
forkunnarfagri
Celine Dion,
sem á ættir
að rekja til
frönskumæl-
andi Kanada,
flýgur hátt inn
á Tónlistann
og tyllir sér á
efstu grein.
Platan sem er
í farteskinu heitir One Heart og fylgir plötunni
frá í fyrra, A New Day Has Come, eftir. Ekki
slæm afköst það en auk þess að reka nefið
inn í hljóðver er Dion að fylla sali Las Vegas um
þessar stundir með engilblíðri röddu sinni. Dív-
an hún Dion ferðast hátt og langt enn og á One
Heart má greinilega heyra fjölhæfni þá sem
þessi dáða söngkona býr yfir.
Dion er dáð!
FJÓRÐA plata nú-
tíma glysrokk-
aranna í Placebo
slær auðsjáan-
lega í takt við ís-
lensk rokkhjörtu.
Ekki amaleg inn-
koma hjá þeim
Brian, Steve og
Stefan. Þríeykið,
sem er víst farið
að kalla David
Bowie frænda sinn (hann hefur bæði hampað
þeim og unnið með þeim), hefur með plötunni
Sleeping with Ghosts dregið af sér slyðruna
sem mörgum gagnrýnendum þótti einkenna
síðasta verk, Black Market Music. Hin „þrosk-
aða“ Placebo virðist því til alls líkleg og smá-
skífulagið „The Bitter End“ er nú farið að
klingja í kollum. Ætli David viti af þessu?
Draugagangur!
Ó JÁ! Loksins,
loksins kunna ein-
hverjir að segja.
Eitt stærsta rokk-
band í heimi um
þessar mundir,
Linkin Park, er
loksins komið með
sína aðra breið-
skífu og kallast hún Meteora. Fyrsta platan,
Hybrid Theory, kom út árið 2000 og skaut
sveitinni upp á stjörnuhimininn og er nú búinn
að seljast í milljónum eintaka. Biðin er því búin
að vera nokkur en í fyrra kom reyndar út skífa
með endurhljóðblöndunum sem kallast Re-
animation, dável heppnað verk. Það verður hik-
laust spennandi að fylgjast með næstu mán-
uði hvernig Meteora á eftir að vegna. Eru alger
heimsyfirráð innan seilingar?
Vígahnettir!
NÚ eru þeir mættir
aftur félaganir furðu-
legu þeir Chon Wang
og Roy O’Bannon sem
slógu svo rækilega í
gegn í myndinni Há-
degi í Shanghai
(Shanghai Noon) hér
um árið. Þá áttu þeir
eftirminnilegt ævin-
týri í villtu vestri Am-
eríkunnar, en nú eru
þeir lentir hinum meg-
in Atlantshafsins til í
að hrella Bretann.
Árið er 1880 og mál-
um þannig háttað að
pabbi Chon Wang
(Jackie Chan) hefur
verið drepinn en hann
var gæslumaður inn-
siglis breska heims-
veldisins. Systir hans,
Chon Lin (Fann
Wong), varð vitni að
morðinu, en morðing-
inn er Rathbone, með-
limur bresku kon-
ungsfjölskyldunnar og
þjóðþingsins. Chon
Lin tekur málið í sínar
hendur og eltir Rathbone til London
til að drepa hann um leið og hún send-
ir Chon Wang bréf til að segja honum
frá morðinu. Chon Wang er fljótur til
New York að finna vin sinn Roy
O’Bannon (Owen Wilson) og saman
ferðast þeir til Englands til að aðstoða
Chon Lin við morðið á Rathbone og
endurheimta innsigli heimsveldisins.
Myndin hefur fengið fínustu við-
tökur enda láta þeir félagar Chan og
Owen sér greinilega ekki leiðast í
hlutverkunum. Líkt og í fyrri mynd-
inni rekur hver brandarinn annan svo
áhorfendur þurfa að hafa sig alla við.
Myndin þykir kraftmikil og fyndin á
flesta vegu og ekki skemmir fyrir að
Chan og systirin sæta, Fann Wong,
eru snillingar í austurlenskri bar-
dagalist.
Shanghai-riddararnir einu og sönnu lenda í ótrú-
legustu svaðilförum í nýjasta ævintýri sínu.
Línudans í
Lundúnum
Laugarásbíó, Smárabíó
og Borgarbíó á Akureyri
frumsýna kvikmyndina
Shanghai-riddararnir
(Shanghai Knights).
Leikstjórn: David Dobk-
in. Aðalhlutverk: Jackie
Chan og Owen Wilson.
Fjórar fjaðrir er byggð á skáld-
sögu A.E.W. Mason. Hún fjallar
um vináttu, um mann sem verður
að fórna öllu sem hann ann til að
bjarga besta vini sínum.
Kapur hefur fengið margar góð-
ar ungstjörnur til liðs við sig, sem
þykja standa sig vel og sýna vel
hvað í þeim býr, enda hlutverkin
mikil og dramatísk. Heath Ledger
er einn af aðalgæjunum í Holly-
wood sem greinilega ætlar að fara
sínar leiðir. Wes Benton hefur
varla sést eftir að hafa slegið í
gegn í Amerískri fegurð og hin
heillandi Kate Hudson er rísandi
stjarna sem gaman er fylgjast
með.
Árið er 1884 og breska heims-
veldið í fullum blóma. Myndin seg-
ir sögu bresks lið-
foringja Harry
Faversham sem af-
salar sér stöðu sinni
rétt áður en her-
sveitin hans leggur
af stað að berjast
við uppreisnarmenn
í Súdan. Vinur hans
Jack og unnustan
Ethne sjá hann
bara sem hugleys-
ingja og gefa honum
fjórar hvítar fjaðrir
sem tákn fyrir rag-
mennskuna. Seinna
meir ákveður hann
að fara til Afríku til
að reyna að losna
við óorðið. Í leit að endurlausn
dulbýr hann sig sem Arabi og
reynir að hjálpa Jack og hersveit-
inni hans.
Hann er nær dauða en lífi þegar
dularfullur Súdani, Abou Fatma
(Djimon Hounsou), bjargar lífi
hans og gerist verndari hans.
Hetjusaga
úr eyði-
mörkinni
Skötuhjúin Harry og Ethne á meðan allt lék í lyndi.
Regnboginn fumsýnir kvikmyndina Fjórar
fjaðrir (Four Feathers). Leikstjórn: Shek-
har Kapur. Aðalhlutverk: Heath Ledger,
Wes Bentley, Kate Hudson, Djimon
Hounsou og Michael Sheen.
ÞAÐ er allt saman kjarnafólk sem
stendur að þessum nýja vísindatrylli
Kjarnanum. Hinn breski Jon Amiel á
að baki margar ágætis myndir, en
seinasta mynd hans var Í gildru
(Entrapment) með Catherine Zetu-
Jones og Sean Connery. Í þetta sinn-
ið hefur hann fengið með sér einvala
lið leikara, skemmtilega ólíka, til að
takast á við það fróma verkefni að
bjarga jörðinni meiriháttar hamför-
um. Aaron Eckhart hefur hingað til
verið meira í listrænu myndunum, en
virðist vera að færa sig í hasarmynd-
irnar og það sama má segja um Ósk-
arsverðlaunahafann Hilary Swank.
Sagan er á þá leið að vísindamenn
uppötva að jörðin okkar er við það að
hætta að snúast.
Þetta mun auðvitað
hafa í för með sér
hræðilegar náttúru-
hamfarir og þurrka
út allt líf á jörðinni
einsog við þekkjum
það nú.
Lið einvala vís-
indamanna er því
sent af stað í skyndi,
og eiga þeir að fara
inn að miðju jarðar
og rétta af málin þar
áður en illa fer.
Gagnrýnendur segja
myndina fyrst og
fremst hina bestu
skemmtun sem taki
sig alls ekki alvarlega.
Persónurnar séu vel skrifaðar og
auðvelt að setja sig í þeirra spor,
enda í góðum höndum. Fyrir fólk
með ævintýraþrá er Kjarninn upp-
lögð mynd, hún er full af spennu og
stærstu sprengingum sem lengi hafa
sést á hvíta tjaldinu.
Inn að
miðju
jarðar
Hin snoppufríða Hilary Swank í Kjarnanum.
Háskólabíó, Sambíóin Álfabakka og Ak-
ureyri frumsýna kvikmyndina Kjarnann
(The Core). Leikstjórn: Jon Amiel. Aðal-
hlutverk: Aaron Eckhart, Hilary Swank,
Stanley Tucci, Delroy Lindo, Tchéky
Karyo og Richard Jenkins.