Morgunblaðið - 28.04.2003, Blaðsíða 14
LISTIR
14 MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
áfram Ísland
Til fundar vi› flig
Daví› Oddsson Geir H. Haarde
Egilssta›ir
Mánudagur 28. apríl
Hótel Héra› kl. 20.00
Vopnafjör›ur
Mánudagur 28. apríl
Mikligar›ur kl. 20.00
Á næstu dögum og vikum munu Daví› Oddsson, forsætisrá›herra og forma›ur Sjálfstæ›isflokksins, og Geir H. Haarde,
fjármálará›herra og varaforma›ur Sjálfstæ›isflokksins, ásamt ö›rum flingmönnum og frambjó›endum Sjálfstæ›isflokksins
halda fundi um land allt og heimsækja vinnusta›i.
Vi› hlökkum til a› fá tækifæri til a› kynnast sjónarmi›um flínum, ræ›a vi› flig um flann mikla árangur sem vi› Íslendingar
höfum í sameiningu ná› og hvernig vi› getum best tryggt a› Ísland ver›i áfram í fremstu rö›.
fylgstu me› beinni útsendingu
af fundinum frá Egilsstö›um á xd.is
VIÐFANGSEFNI Kristins H.
Árnasonar voru: 1) Fjórir pavan-
dansar eftir Luis de Milán (1500–
1561), 2) Partíta nr. 3 í E-dúr fyrir
einleiksfiðlu eftir J.S. Bach, í umritun
fyrir gítar, 3) Drei Tientos eftir Hans
Werner Henze (1926–), 4) Grand
Overture eftir Mauro Giuliani (1781–
1829), 5) þrjú þjóðlög frá Katalóníu,
útsett af Miguel Llobet (1878–1938),
6) La Maja de Goya eftir Enrique
Granados, 7) Un sueno en la Floresta
eftir Agustin Barrios (1885–1944).
Kristinn ræður yfir fágaðri og mik-
illi tækni, er hann beitir af sérstæðu
listfengi og birtist í einstaklega fal-
legri tónmyndun, þar sem aldrei er
ofgert í styrk en andstæður fengnar
með sérlega veikum en undarlega
skýrum leik. Mótun tónhendinga var
frábærlega útfærð og niðurlag þeirra
eins og hann legði eitthvað mjúklega
frá sér. Það er sama hvert litið er til
viðfangsefna; fyrir fallegan leik í pav-
an-dönsum Miláns, glæsileg tilþrif í
partítu Bachs, einkennileg blæbrigði í
verki Henzes, „virtúósískan“ tækni-
leik í „óvertúrunni“ eftir Giuliani, óm-
blíða hljóman í útsetningum Llobets,
dulúðuga túlkun í La Maja de Goya
eftir Granados og tremóluleikinn í
lokaverkinu eftir Barrios; allt útfærði
Kristinn af listfengi og kunnáttu, með
einstaklega ómblíðum gítarleik.
Lagræn innlifun æskunnar
Á efnisskrá Kórs MR voru fleiri
verk en sungin voru á tónleikunum og
ef rétt er munað voru eftirtalin lög
flutt: 1) Ísland ögrum skorið eftir Sig-
valda Kaldalóns, 2) Úr útsæ rísa Ís-
lands fjöll eftir Pál Ísólfsson, 3) Þið
stúdentsárin æskuglöð, 4) Skólaminni
eftir Atla Heimi Sveinsson, 5) Breið-
firðingavísur, ísl. þjóðlag, 6) Siglinga-
vísur, ísl. þjóðlag, tvö síðastnefndu í
útsetningu söngstjórans, 7) Draum-
urinn um Adam, þjóðlag frá Ung-
verjalandi, 8) Hallelúja, dýrð sé
drottni, sálmalag eftir J.S. Bach, 9) Ó
undur lífs eftir Jakob Hallgrímsson,
10) Gefðu að móðurmálið mitt, ísl.
þjóðlag, útsett af Róbert A. Ott-
óssyni, 11) Vegsamið Drottin, mótetta
fyrir tvo kóra eftir Heinrich Schütz.
Eftir hlé var frumflutt rappverkið
Maður og vegur eftir Atla Heimi
Sveinsson og eftir einleik á píanó, þar
sem Heiða Njóla Guðbrandsdóttir lék
þátt úr „Microcosmos“ eftir Bartók
og Lækjarnið úr Lýrískum verkum
eftir Grieg, flutti kórinn dægurlagið
Oh happy day eftir Hawkins og lauk
tónleikunum með syrpu laga eftir
Andrew Lloyd-Webber.
Flutningur kórsins í heild var
öruggur og hreinn, nokkuð gott jafn-
vægi á milli radda, þótt sópraninn
væri helst til hljómlítill, sem einkum
kom fram í lagi Páls, Úr útsæ rísa Ís-
landsfjöll. Draumurinn um Adam og
Ó undur lífs eftir Jakob Hallgrímsson
og Gefðu að móðurmálið mitt voru
sérlega fallega sungin. Mótettan Veg-
samið Drottin eftir Schütz er berg-
málsverk, þar sem leikið er með þá
miklu enduróman sem er í sumum
stórkirkjum Evrópu og var líklega
eitt því sem Schütz lærði í Feneyjum
hjá Giovanni Gabrieli. Þessi berg-
málsleikur var sunginn af öryggi en
það vantaði hið rétta bergmálsum-
hverfi. Rappverkið Maður og vegir
eftir Atla Heimi Sveinsson er að
mörgu leyti sniðugt, en það vantaði
þéttleikann í flutninginn, þ.e. kaflarn-
ir hefðu mátt vera nánast án þagn-
arbils og flutningurinn í heild hraðari.
Þetta gamansama verk Atla vakti
mikla hrifningu hjá áheyrendum og
var því endurtekið.
Lokaviðfangsefnin, sem voru dæg-
urlög, flest eftir Andrew Lloyd-Web-
ber, þar sem sjá mátti að unga söng-
fólkið lifði sig inn í laglínurnar, vekja
þá spurningu, hvort flest svokölluð
klassísk tónskáld hafi ekki brugðist
æskunni, verið of upptekin við að gera
alls konar tilraunir og þar með afhent
dægurlagahöfundum laga-akurinn
óplægðan og ósáinn og eru þess
vegna að missa af uppskerunni, án
eignar í lagrænni innlifun æskunnar.
Lögin voru sungin af innileika en það
er svolítð einkennilegt, að í útsetning-
arnar vantar skilning á möguleikum
kórhljómsins og raddfærslan er ann-
aðhvort einrödduð með hljómaundir-
leik eða í stirðnuðum samstígum tón-
bilum, þannig að samhljómanin
verður nær öll eins.
Ómblíður
gítarleikur
TÓNLIST
Salurinn
Kristinn H. Árnason flutti gítartónlist er
spannaði fimm aldir.
Miðvikudagurinn 23. apríl.
GÍTARTÓNLEIKAR
Jón Ásgeirsson
Salurinn
Kór Menntaskólans í Reykjavík
flutti íslensk og erlend tónverk.
Hljóðfæraleikarar voru Ingileif Bryndís
Þórsdóttir, Sigurjón Bergþór Daðason,
Björn Önundur Arnarsson, Heiða Njóla
Guðbrandsdóttir, er einnig lék einleik í
verkum eftir Bartók og Grieg, og stjórn-
andinn Marteinn H. Friðriksson. Fimmtu-
dagurinn 24. apríl.
KÓRTÓNLEIKAR
NÚ standa yfir æfingar hjá Nem-
endaleikhúsinu á síðasta verkefni
vetrarins. Um er að ræða nýja leik-
gerð eftir Kjartan Ragnarsson og
Magnús Þór Þorbergsson unna upp
úr tveimur af frægustu leikritum
García Lorca, Húsi Bernhörðu Alba
og Blóðbrullaupi. Leikritið kallast
Tvö Hús og er áætluð frumsýning
um miðjan maí. Leikstjóri er Kjart-
an Ragnarsson. Útskriftarárgang-
inn skipa að þessu sinni: Björn
Thors, Bryndís Ásmundsdóttir,
Davíð Guðbrandsson, Esther Talia
Casey, Ilmur Kristjánsdóttir, María
Heba Þorkelsdóttir, Maríanna
Clara Lúthersdóttir og Þorleifur
Örn Arnarsson.
Í húsi í spænsku þorpi hefur
Bernharða Alba lokað sig af ásamt
dætrum sínum til að syrgja hús-
bóndann. Á öðrum stað er brúð-
kaup í undirbúningi, en brúðurin
ber ástarhug til annars manns.
Federico Garcia Lorca fæddist
1898 í Fuente Vaqueros nálægt
Granada á Spáni. Hann er þekkt-
asta leikskáld Spánar á 20. öld og
einkennast verk hans af heitum og
forboðnum ástríðum andspænis
þrúgandi yfirvaldi kaþólsks sið-
gæðis.
Hann var myrtur af hermönnum
Francos árið 1936.
Leikmynd og búninga gerir Grét-
ar Reynisson. Um ljósahönnun sér
Ögmundur Þór Jóhannesson og
dramatúrg er Magnús Þór Þor-
bergsson.
Morgunblaðið/Árni Torfason
María Heba Þorkelsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Bryndís Ásmundsdóttir í leikritinu Tveimur húsum.
Ástríður í Nemendaleikhúsinu
FYRSTI þáttur
leikgerðar
Hjálmars Hjálm-
arssonar að sög-
unni Bláa hnett-
inum eftir Andra
Snæ Magnason
verður fluttur í
Vitanum útvarpi
barnanna í kvöld,
mánudagskvöld,
kl. 19. Þættirnir eru 12 talsins og
verða á dagskrá fjórum sinnum í
viku næstu þrjár vikurnar.
„Leikgerðin fylgir bókinni mjög
nákvæmlega hvað söguþráð varðar
en sögumaður er Brimir önnur að-
alpersónan,“ segir Hjálmar.
Sagan af Bláa hnettinum gerist á
hnetti þar sem búa eingöngu börn
þar til kemur geimskip með full-
orðna geimryksugusölumanninn
Glaum Geimmundsson. Hann reyn-
ist svo skemmtilegur að börnin kalla
hann Gleði-Glaum. Hann selur börn-
unum alls kyns hugmyndir um
skemmtanir svo áður en lýkur hefur
saklaust líf þeirra spillst og þeim
reynist erfitt að snúa til baka.
Eingöngu börn taka þátt í flutn-
ingnum að einum leikara undan-
skildum en Hjálmar Hjálmarsson
leikur Glaum.
Óskar Völundarson leikur Brimi
og Ólöf Jara Valgeirsdóttir leikur
Huldu. Alls eru það 10 börn sem
leika nafngreind hlutverk og enn
fleiri sem taka þátt í hópatriðum.
Frumsamin tónlist er eftir Hall Ing-
ólfsson.
Verkefnið er styrkt af Menning-
arsjóði útvarpsstöðva og framleitt af
Hjálmari Hjálmarssyni í samvinnu
við Útvarpsleikhúsið. Georg Magn-
ússon stjórnaði upptöku og hljóð-
vinnslu.
Blái hnötturinn
leikinn í Vitanum
Hjálmar
Hjálmarsson
SIGURJÓN Alexandersson rafgít-
arleikari heldur burtfarartónleika
frá jazzbraut Tónlistarskóla FÍH
þriðjudaginn 29. apríl. Flutt verður
frumsamin tónlist í bland við þekkta
jazzópusa. Sigurjón lauk námi af
kennaradeild skólans vorið 2001 og
starfar sem tónlistarkennari við
Tónlistarskóla Árbæjar og Tónlist-
arskóla Grindavíkur. Hann hefur
unnið ýmis störf sem tónlistarmaður
og leikið með ýmsum jazz- og rokk-
hljómsveitum, á síðustu misserum
m.a. með tríóinu Jazzandi og hljóm-
sveitinni Bax.
Meðleikarar á tónleikunum eru
Sigurdór Guðmundsson bassaleik-
ari, Kristinn Snær Agnarsson
trommuleikari og Snorri Sigurðar-
son trompetleikari. Tónleikarnir eru
í tónleikasal FÍH, Rauðagerði 27, og
hefjast þeir klukkan 20:00. Aðgang-
ur er ókeypis.
Burtfarar-
tónleikar