Morgunblaðið - 28.04.2003, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 29
DAGBÓK
Sparisjóður Mýrasýslu - 500.000.000 kr. - 1. flokkur 2003
Nafnverð útgáfu:
Heildarfjárhæð skuldabréfaflokksins getur orðið allt að
1.000.000.000 kr. að nafnverði. Þegar hafa skuldabréf að
nafnverði 500.000.000 verið útgefin og seld í lokuðu útboði til
fagfjárfesta.
Skilmálar skuldabréfa:
Skuldabréf 1. flokks 2003 eru verðtryggð afborgunarbréf (jafnar
afborganir) til 7 ára og 6 mánaða. Útgáfudagur er 5. mars 2003.
Bréfin eru með 7 jöfnum afborgunum. Gjalddagi er einu sinni á ári
þann 5. ágúst ár hvert og í fyrsta sinn 5. ágúst 2004.
Lokagjalddagi bréfanna er 5. ágúst 2010. Skuldabréfin bera 5,5%
ársvexti sem greiddir eru af höfuðstól skuldarinnar eins og hann
er á hverjum tíma þann 5 ágúst ár hvert, fyrst 5. ágúst 2004 og
síðast 5. ágúst 2010.
Auðkenni skuldabréfaflokksins:
Auðkenni bréfanna í kerfi Kauphallar Íslands er SPM 03 1
Skráningardagur:
Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá þann 2. maí 2003.
Umsjón með sölu skuldabréfanna og skráningu í Kauphöll Íslands
hefur Verðbréfastofan hf., Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík.
Skráningarlýsingar og önnur gögn sem vitnað er til í þeim er hægt
að nálgast hjá Verðbréfastofunni hf. og á heimasíðu félagsins
www.vbs.is.
Skráning skuldabréfa
í Kauphöll Íslands
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hæfileikaríkur, en
þarft að sigrast á miklu ör-
yggisleysi, sem stendur þér
fyrir þrifum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú léttir á þínum eigin
áhyggjum ef þú gefur þér
tíma til að hjálpa öðrum í
neyð. Vertu staðfastur og
forðastu að falla í freistni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Verkefnin hrannast upp svo
þér finnst þú ekki sjá fram
úr hlutunum. Gakktu hik-
laust til verks og láttu ut-
anaðkomandi hluti ekki
trufla þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vinir þínir skipta þig miklu
máli svo þú skalt njóta ná-
vistar þeirra svo oft sem þú
hefur tækifæri til. Láttu
ekki aðra fara í taugarnar á
þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það gengur ekki að skella
skuldinni á kerfið því þú ert
einn af þegnunum. Gerðu
þér grein fyrir því hvert þú
vilt stefna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú finnur löngun hjá þér til
að gera eitthvað nýtt og
gætir fengið tækifæri til
þess fyrr en síðar. Hafðu
jafnvægi á öllum hlutum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Leitaðu leiða til þess að örva
huga og hönd því annars
áttu það á hættu að staðna.
Þú hefðir gott af því að hafa
samband við vinina.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Atburðarás dagsins mun
leiða þig á stað þar sem þú
hefur aldrei komið áður.
Hagaðu því orðum þínum
svo að þú þurfir ekki að sjá
eftir neinu, hvað sem gerist.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er engin ástæða til þess
að hlaupa upp til handa og
fóta, þótt einhverjir heimti
það. Þinn tími mun koma og
þá muna menn viðbrögð þín.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér finnst þú verða fyrir
miklum þrýstingi frá sam-
starfsmanni þínum. Það er
allt í lagi að segja meiningu
sína en þó þannig að það
særi engan sem í hlut á.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér finnst einhvernveginn
allt rekast á annars horn.
Enginn er fullkominn og þú
ekki heldur svo þú skalt
bara herða upp hugann og
halda áfram.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ekki hafa svo miklar
áhyggjur af öllum sköpuðum
hlutum að þú komir engu í
verk. Láttu verkin tala.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú getur átt von á töfum á
leið til og frá vinnu í dag.
Flýttu þér hægt því flas er
ekki til fagnaðar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
TÍMINN OG VATNIÐ
Tíminn er eins og vatnið,
og vatnið er kalt og djúpt
eins og vitund mín sjálfs.
Og tíminn er eins og mynd,
sem er máluð af vatninu
og mér til hálfs.
Og tíminn og vatnið
renna veglaust til þurrðar
inn í vitund mín sjálfs.
- - -
Steinn Steinarr
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 28. apr-
íl, er áttræður Jón Valdi-
mar Sævaldsson til heimilis
að Álfaskeiði 100 Hafn-
arfirði. Hann og kona hans,
Fanney Jónsdóttir, eru
stödd á Benidorm á Spáni.
ÞAÐ er góð regla í sagn-
baráttu að segja einum
meira þegar maður er í
vafa. Jón Baldursson orðar
sömu hugsun þannig:
„Segðu einum meira ef þú
heldur að annar eða báðir
samningar geti unnist.“ Lít-
um á dæmigert baráttuspil
frá Íslandsmótinu:
Vestur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ 10873
♥ ÁK74
♦ D8
♣KG4
Vestur Austur
♠ ÁK96 ♠ D52
♥ -- ♥ --
♦ KG96 ♦ Á07542
♣109652 ♣D873
Suður
♠ G4
♥ DG10986532
♦ 3
♣Á
Skiptingin er villt og spil-
ið býður því upp á harða
sagnbaráttu. Með réttri
vörn fá NS 10 slagi í hjarta-
samningi, en AV 11 slagi í
láglit. „Par skor“ er því
+200 í AV fyrir fimm hjörtu
dobluð. Og í reynd var það
algengasti samningurinn,
en hins vegar vannst hann á
fjórum borðum! Vestur kom
þá út með háspil í spaða og
skipti yfir í laufgosa í öðrum
slag. Sagnhafi gat skemmt
sér við að spila hjarta-
tvistinum yfir á fjarkann til
að henda tígli niður í lauf-
kóng. Hættan á slíkum
varnarmistökum er enn ein
ástæðan til að segja aftur
og „taka af sér höggið“. Það
gerði Ásmundur Pálsson,
liðsmaður Guðmundar Her-
mannssonar, í leiknum við
sveit Skeljungs. Ásmundur
og Guðm. P. Arnarson voru
í AV gegn Karli Sigurhjart-
arsyni og Snorra Karlssyni:
Vestur Norður Austur Suður
Guðm. Karl Ásm. Snorri
1 lauf Dobl 1 tígull 4 hjörtu
5 tíglar Dobl Pass 5 hjörtu
Pass Pass 6 tíglar Dobl
Pass Pass Pass
Bæði Snorri og Ásmund-
ur meta spilin sín skyn-
samlega og niðurstaðan var
vel við unandi fyrir báðar
hliðar: +100 í NS.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 c5 2. b3 d6 3. Bb2 e5 4.
Bb5+ Rd7 5. Re2 Rgf6 6. d3
Be7 7. O-O O-O 8. a4 Rb8 9.
Rbc3 a6 10. Bc4 Rc6 11. f4
Bg4 12. h3 Bxe2 13. Rxe2
Hb8 14. fxe5 Rxe5 15. a5 Rc6
16. Rg3 Rd7 17. Rf5 Bf6 18.
Bxf6 Dxf6 19. Dd2
Rde5 20. Bd5 Dd8 21.
Bxc6 Rxc6 22. Hf4
Re5 23. Haf1 Hc8 24.
Df2 Hc7 25. Dg3 f6
26. Re3 Hcf7 27. Rf5
Hd7 28. d4 Rg6 29.
Hg4 cxd4 30. h4 Dc7
31. Rxd4 Dxa5 32. c3
Hc8 33. b4 De5 34.
Dh3 De8 35. h5 Re5
36. Hg3 Hf7 37. Rf5
Hd7 38. Dh4 Kh8 39.
h6 g5 40. Dh2 Hc4
Staðan kom upp á
danska meist-
aramótinu sem er ný-
lokið í Horsens. Jens Ove
Fries-Nielsen (2448) hafði
hvítt gegn Steffen Pedersen
(2443). 41. Hxg5! Hxe4 41...
fxg5 gekk ekki upp vegna 42.
Rxd6 Hxd6 43. Dxe5+ og
hvítur vinnur. 42. Hg7 Rc4
43. Dg3 Re3 44. He1 Rxf5
45. Hxe4 Df8 46. Dg4 Hxg7
47. hxg7+ Rxg7 48. Dd7 b5
49. He7 og svartur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
www.snyrtistofa.is
MEÐ MORGUNKAFFINU
Úps!!
Allt hjúkrunarliðið er búið að skrifa undir kort með óskum
um skjótan bata!
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
www.solidea.com
mbl.is
STJÖRNUSPÁ