Morgunblaðið - 28.04.2003, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. APRÍL 2003 33
Mögnuð hrollvekja frá
Stephen King sem
engin má missa af!
. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 6 og 8. / Sýnd kl. 8.kl. 6, 8 og 10. B.i. 14. / kl. 5.20, 8 og 10.30. B.i. 14. / kl. 10. B.i. 14. / kl. 10. B.i. 14.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK ÁLFABAKKI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4.
ÁLFABAKKI
KRINGLAN
Sýnd kl. 6 og 10.10. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
Sýnd kl. 4. Tilboð 500 kr.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8. B.i. 12.
Sýnd kl. 6 og 8. B.i. 16.
kl. 4. ísl. tal / kl. 6. ísl. tal
Tilboðkr. 500
Radio X
Kvikmyndir.is
Alþjóðleg ferðaráðgjöf
Ferðamálaskóli Íslands er eini skólinn á Íslandi
sem hefur kennt alþjóðlegt IATA/UFTAA námsefni
samfleitt í 12 ár. Á hverju ári útskrifar skólinn
„ferðaráðgjafa“ til starfa á ferðaskrifstofum,
flugfélögum og við aðra ferðaþjónustu,
enda er í dag krafa ferðaþjónustuaðila
að starfsfólk hafi slíka menntun.
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
SNJÓBRETTAÆÐIÐ sem geng-
ur yfir heiminn hefur náð inn í kvik-
myndahúsin líkt og aðrar dellur sem
hertaka unglingana. Það er eina
ástæðan fyrir myndum á borð við
þessa, Breakdance, BMX og aðrar
slíkar sem púslað er saman í skyndi á
meðan málið er heitt.
Öfgagengið segir frá hópi auglýs-
ingagerðarmanna sem halda til aust-
urrísku Alpanna ásamt áhættuleik-
urunum sem eiga að sýna kúnstir
sínar frammi fyrir tökuvélunum. Það
er harðsnúið lið unglingstöffara sem
virðist ekkert ómögulegt á snjó-
brettum og fallhlífum og ein af-
burðakona í skíðaíþróttum fyllir hóp-
inn. Býr fólkið um sig á skíðahóteli
sem er í byggingu á fjallstoppi í
grennd við landamæri gömlu Júgó-
slavíu. Allt gengur að óskum uns þau
vekja athygli serbnesks stríðsglæpa-
manns sem þar er í felum og telur
þau útsendara CIA.
Svo sem ekki verri hugmynd að
meðalhasar en hver önnur, gallinn er
sá að handritið er alvont, leikararnir
jafnvel verri og spennan er í algjör-
um molum þrátt fyrir að innihaldið
bjóði upp á fjölmörg grundvallarat-
riði til spennusköpunar: Þyrlutökur,
brun á skíðum og brettum niður
hrikalegar fjallshlíðar, snjóflóð,
skyttirí, nefndu það. Öllu tekst Kan-
adamanninum Duguay að klúðra
með eftirminnilegum hætti með af-
leitri leikstjórn og klippingin er á
jafnhugmyndasnauðum nótum. Það
eina sem upp úr stendur eru nokkur,
frábær áhættuatriði og tilkomumikl-
ir tökustaðir, en hvort tveggja
drukknar í meðalmennskunni.
Fíflska og fífldirfska
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó
Leikstjóri: Christian Duguay. Handrit:
Michael Zaidan. Kvikmyndatökustjóri:
Hannes Hubach. Tónlist: Normand Cor-
beil. Aðalleikendur: Devon Sawa, Brid-
gette Wilson-Sampras, Rupert Graves,
Rufus Sewell, Heino Ferch, Klaus Lö-
witsch, Jana Pallaske, Joe Absolom, Lil-
iana Komorowska. 95 mín. Paramount.
Bretland 2002.
ÖFGAGENGIÐ/EXTREME OPS
„Harðsnúið lið unglingatöffara sem
virðist ekkert ómögulegt á snjó-
brettum og fallhlífum.“ Rufus Sew-
ell rýnir í snjóinn í Öfgagenginu.
Sæbjörn Valdimarsson
„FÖTIN skapa manninn“, segir
Terrence (John Neville), sjúklingur
á sambýli fyrir geðfatlaða, við ann-
an vistmann. Sá er Dennis (Ralph
Fiennes), aðalpersónan í Köngulló,
nýjasta rökkurverki Davids Cron-
enbergs. „Ef maðurinn er lítill“,
heldur Terrence áfram, „þarf hann
meira af fötum.“ Dennis er í fjórum
skyrtum, hverri utan yfir annarri.
Enda örsmá, þjökuð sál sem líður
fyrir geðklofa, freudíska hugaróra
og ofsóknaræði. Við erum stödd í
kunnuglegu landslagi Cronenbergs,
gjörsneyddu von, trú og lífsgleði.
Umhverfið, jafnt innan hælis sem
utan í möttum litum og grátónum.
Köngulló hefst er Dennis, sem kom-
in er um þrítugt, snýr aftur til
heimahaganna í útjaðri Lundúna.
Hann hefur dvalist frá unglings-
aldri á geðsjúkrahúsi en hefur feng-
ið tækifæri til að búa á sambýli til
reynslu. Því er stjórnað af frú Wilk-
inson (Lynn Redgrave), sem minnir
meira á fangelsisstjóra en fulltrúa
heilbrigðismála. Fljótlega eftir að
Dennis er kominn á æskuslóðirnar
fara atburðirnir sem hentu hann
fyrir einum tuttugu árum að ásækja
hann, framvindan sem leiddi til þess
að hann var vistaður á geðveikra-
hæli. Þar koma við sögu móðir hans
(Miranda Richardson), sem dreng-
urinn ann hugástum og faðir hans
(Gabriel Byrne), groddalegur og
drykkfelldur iðnaðarmaður sem
tekur samvistir við gleðikonur á
hverfiskránni fram yfir heimilislífið.
Þessar ógnvekjandi aðstæður eru
viðkvæmum huga drengsins um
megn, hann hverfur inn í eigin ver-
öld geðklofans þar sem atburða-
rásin er á annan veg, mæður og
kráarmellur renna saman í eitt með
átakanlegum afleiðingum. Cronen-
berg leiðir áhorfendur um einmana-
lega stigu hins fársjúka Dennis,
hægt en markvisst að sannleikanum
um ógæfuna í lífi þessarar glötuðu
sálar. Ástandi geðklofasjúklings er
lýst á sláandi raunsæislegum nótum
þar sem allt leggst á eitt svo úr
verður eftirminnilegt ferðalag inn í
lífvana og ógnþrunginn heim.
Fiennes tekst á við einstaklega
vandmeðfarið hlutverk hins þögula
Dennis sem tjáir sig að mestu í út-
krassaða minnisbók sem færir hon-
um loks heim sanninn um sviplegt
fráfall móðurinnar, sem markaði
þáttaskil í lífi hans. Fiennes hefur
óvenju breitt tjáningarsvið eins og
glöggt má sjá í þeim myndum hans
sem eru á boðstólum í borginni í
dag. Hann var á svipuðum slóðum í
Rauða drekanum, nú sekkur hann
gjörsamlega í hyldýpi geðsýkinnar
og grípur áhorfendur með sér. Að
venju er allt útlit og tónlist mynd-
arinnar óaðfinnanlegur þáttur í
köngullóarvef hins sérstaka Cron-
enbergs sem jafnframt nýtur að-
stoðar úrvalsleikara í minni hlut-
verkum. Sérstaklega ber að geta
Bradleys Hall sem er minnisstæður
í vandasömu hlutverki Dennis hins
unga. Köngulló er þrátt fyrir allt
aðgengilegri mynd en við eigum að
venjast frá hendi hins kanadíska
hrollvekjumeistara. Hún heldur
manni föngnum frá upphafi til enda
og skilur við áhorfandann úrvinda
en sáttan. Enn á ný sannar Cronen-
berg að hann er einn af athygl-
isverðustu og óvenjulegustu leik-
stjórum samtíðarinnar og fær um
að skapa hrollvekjandi ástand sem
á sér engan líka.
Fastur í vefnum
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjóri: David Cronenberg. Handrit:
Patrick McGrath. Kvikmyndatökustjóri:
Peter Suschitzky. Tónlist: Howard Shore.
Aðalleikendur: Ralph Fiennes, Miranda
Richardson, Gabriel Byrne, Lynn Red-
grave, John Neville, Gary Reineke,
Bradley Hall. 96 mín. Columbia.
Bandaríkin 2002.
Köngulló/Spider 1/2
Sláandi lýsing á geðklofasjúklingi:
Ralph Fiennes og John Neville í
hlutverkum sínum.
Sæbjörn Valdimarsson
ÞAÐ er aðdáunarvert að sjá kín-
verska leikarann Chow Yun-Fat
halda andlitinu og gefa sig 100% í
þessa annars fáránlegu og umfram
allt barnalegu kvikmynd. Skotheldi
munkurinn er nefnilega ekkert al-
leiðinleg sem kvikmynd en óþarflega
hroðvirknislega gerð og uppfull af til-
gerðarlegum bardagaatriðum. Með
ýktri tónlist og einfeldningslegum
frásagnarmáta virðst höfðað til barn-
ungra áhorfenda á meðan ofbeldis-
staðallinn er allt of hár til hægt sé að
líta á Skothelda munkinn sem barna-
mynd. Með ævintýralega langsóttum
söguþræði sínum bætir kvikmyndin
þónokkrum frumlegum lögum ofan á
hina dæmigerðu baradagaspennu-
mynd. Þar segir af nafnlausa munk-
inum (Chow Yun-Fat) sem valinn
hefur verið til að gæta leyndardóma
tíbetsks munkaklausturs sem nasist-
ar réðust á í heimsstyrjöldinni síðari.
Munkurinn ber með sér ofurmann-
lega krafta sem alls ekki mega kom-
ast í hendur illra manna. Hann hefur
því um árabil verið á flótta undan
fyrrum nasistaforingja sem ásælist
formúluna að leyndardómum klaust-
ursins. Munkurinn dvelur meðal
landa sinna í stórborginni San
Francisco og kemst þar í kynni við
ungan vasaþjóf sem jafnframt er
sjálflærður í bardagalistum. Munk-
urinn sér í piltinum mögulegan arf-
taka sinn og saman snúast þeir gegn
vondu nasistunum. Söguþráðurinn
er um það bil jafnfáránlegur og hann
hljómar og er hvergi hikað við að
beita langsóttum brögðum til að
knýja spennuframvinduna áfram.
Bardagaatriðin, sem stór hluti sögu-
þráðarins er afsökun fyrir, eru hins
vegar hvimleið eftiröpun á þeirri
tölvustýrðu bardagatækni sem kvik-
myndirnar The Matrix og Crouching
Tiger, Hidden Dragon kynntu til
sögunnar. Afþreyingargildi myndar-
innar er helst að finna í samskiptum
munksins og arftaka hans og er
sposkri túlkun áðurnefnds Chow
Yun-Fat þar mjög um að þakka.
Skotheldi munkurinn virkar þannig
betur sem ævintýramynd en bar-
dagamynd, en er þó ekki upp á
marga fiska.
Munkurinn fljúgandi
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjórn: Paul Hunter. Handrit: Ethan
Reiff, Cyprus Voris. Aðalhlutverk: Chow
Yun-Fat, Seann William Scott, Jamie
King. Lengd: 101 mín. Bandaríkin. MGM,
2003.
SKOTHELDI MUNKURINN/
BULLETPROOF MONK Seann William Scott kastar sér á
óvininn í Skothelda munknum.
Heiða Jóhannsdóttir