Morgunblaðið - 05.05.2003, Blaðsíða 2
2003 MÁNUDAGUR 5. MAÍ BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
EFNIHÉR KEMUR TEXTI
AUSTURRÍSKU landsliðskon-
urnar í handknattleik, Sylvia
Strass og Birgit Engl, munu leika
áfram með Íslandsmeisturum ÍBV
á næstu leiktíð en þær gengu frá
nýjum eins árs samningi við meist-
arana um helgina. Anna Yakova
og Alla Gorkorian verða sömuleið-
is báðar um kyrrt í Eyjum en þær
eiga tvö ár eftir af samningum sín-
um við liðið. Einu breytingarnar
sem fyrirséðar á Eyjaliðinu á
næstu leiktíð eru þær að fyrirlið-
Strass og
Engl áfram
með ÍBV
ÍSLENDINGAR unnu til tvennra
gullverðlauna á Norðurlanda-
mótinu í júdó sem fram fór í
Stokkhólmi í Svíþjóð og lauk í
gær.
Bjarni Skúlason sigraði í -90
kg. flokki og Anna Soffía Vík-
ingsdóttir gerði slíkt hið sama í
-78 kg. flokki.
Gígja Guðbrandsdóttir keppti í
-70 kg. flokki og vann til brons-
verðlauna líkt og Þormóður Jóns-
son en hann tók þátt í +100 kg.
flokki.
Í opnum flokki kvenna bætti
Gígja um betur og krækti í silfrið
en Anna Soffía varð þriðja í þeim
flokki.
Íslensku keppendurnir fengu
því tvenn gullverðlaun, ein silf-
urverðlaun og þrenn brons-
verðlaun.
Svíar, Norðmenn, Finnar, Dan-
ir og Íslendingar tóku þátt í liða-
keppni samhliða einstaklings-
keppninni og þar stóðu Finnar
sig best. Svíar fengu silfur og ís-
lenska sveitin fékk bronsið. Danir
enduðu í fjórða sæti og Norð-
menn í fimmta og neðsta sæti.
Bjarni og
Anna Soffía
með gull
Reuters
Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United gat leyft sér að fagna í gær en með sigri
Leeds á Arsenal urðu hans menn Englandsmeistarar í 15. sinn. Ferguson sprautar hér kampavíni
í höfuðstöðvum Manchester United á Old Trafford í gær. Kampavínsflöskurnar eru átta eða jafn-
margar og liðið hefur unnið titilinn undir hans stjórn á síðustu 11 árum.
Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari
íslenska karlalandsliðsins í
körfuknattleik mun á þriðjudag
tilkynna landsliðshóp sinn sem
tekur þátt í undirbúningi liðsins
fyrir Smáþjóðaleikana sem
fram fara á Möltu í byrjun júní.
Friðrik Ingi sagði í gær að
nokkrir leikmenn sem hann
hafði hug á að velja í hópinn
hefðu helst úr lestinni og má
þar nefna besta leikmann Ís-
landsmótsins í vetur, Helga
Jónas Guðfinnsson, sem ætlar
sér að leika knattspyrnu í sum-
ar með Grindvíkingum líkt og í
fyrra.
„Ég virði ákvörðun Helga
Jónasar en ég er ekki ánægður
með hans val og vildi geta valið
hann í liðið sem fer til Möltu,“
sagði Friðrik í gær en auk
Helga Jónasar er ljóst að Sæv-
ar Sigmundsson, Ingvaldur
Magni Hafsteinsson, Hreggvið-
ur Magnússon og Jakob Sig-
urðarson munu ekki verða í
leikmannhópi Íslands að þessu
sinni. „Það eru ýmsar ástæður
fyrir því að þessir leikmenn
geta ekki gefið kost á sér,“
bætti Friðrik við.
Reglur fyrir Smáþjóðaleik-
ana eru rýmri hvað varðar leik-
menn sem eru með tvöfalt rík-
isfang og þar með getur Friðrik
Ingi valið alla þá leikmenn sem
hann telur eiga heima í liðinu og
fræðilega séð má hann velja þá
Damon Johnson, Brenton
Birmingham, Keith Vassell,
Kevin Grandberg og Leon
Purdue. Hinsvegar er ljóst að
Keith Vassell mun ekki gefa
kost á sér í verkefnið og allt
eins gæti farið svo að Brenton
væri enn að leika með liði sínu
Rueil í frönsku 2. deildinni.
Eins og áður segir verður leik-
mannahópurinn tilkynntur á
Helgi Jónas gefur
ekki kost á sér
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS
LANDSLIÐSMAÐURINN Jón Arnór Stef-
ánsson sem leikið hefur með þýska 1. deild-
arliðinu Trier í vetur mun ekki leika fleiri
leiki með liðinu í umspili sex liða um fjögur
laus sæti í 1. deild. Jón Arnór er meiddur á
hné og mun fara í speglun af þeim sökum á
næstu dögum, annað hvort hér á Íslandi eða í
Þýskalandi.
Trier á enn eftir að leika sex leiki í um-
spilinu en Jón Arnór lék í tvær mínútur í tap-
leik liðsins s.l. föstudag en var ekki með í sig-
urleik þess í gær.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
ætlar Jón Arnór að reyna að ná sér góðum af
meiðslunum áður en Smáþjóðaleikarnir hefj-
ast á Möltu sem hefjast í byrjun júní. Samn-
ingur hans við Trier gildir aðeins út leiktíð-
ina í Þýskalandi og mun Jón Arnór leita fyrir
sér á öðrum vígstöðvum í atvinnumennsk-
unni og verða án vafa margir útsendarar er-
lendra liða á Möltu.
Frá Möltu til Dallas
Þess má geta að Jón Arnór og Helgi Magn-
ússon fyrrverandi félagi hans úr KR sem nú
Jón Arnór í
aðgerð á hné
Ljósmyndari/Hér kemur texti
Myndatexti hér
SKATTUR JAFNAÐUR Í 20%
BSRB leggur til að skattar á laun,
fjármagn og fyrirtæki verði jafnaðir
út og að þeir verði 20%, samkvæmt
skattahugmyndum sem hagfræð-
ingur BSRB hefur útfært og unnið
að síðastliðið ár. Markmiðið er að
auka ráðstöfunartekjur láglauna- og
millitekjufólks. Samkvæmt hug-
myndum BSRB er m.a. lagt til að
skattleysismörk verði lækkuð niður í
allt að 50 þúsund krónur.
Samningi við ÍMS sagt upp
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar
samþykkti í gær að segja upp samn-
ingi við Íslensku menntasamtökin
um rekstur leikskólans Tjarnaráss.
og tekur bærinn við rekstri leikskól-
ans í dag. Bæjarstjóri segist sáttur
við að geta uppfyllt kröfur foreldra.
Hópar verða afvopnaðir
Forsætisráðherra Palestínu-
stjórnar, Mahmud Abbas, hvetur
ísraelskan starfsbróður sinn, Ariel
Sharon, til eiga með sér fund sem
fyrst. Abbas heitir að afvopna
herská samtök og hópa úr röðum
Palestínumanna.
GE-forstjóri til Íslands
Jack Welch, fyrrverandi forstjóri
General Electric, er væntanlegur til
landsins á næstu dögum til að ræða
hugmyndir sínar um rekstur fyr-
irtækja. Welch var forstjóri GE í 20
ár og jók markaðsvirði fyrirtækisins
úr 12 milljörðum dala í 280 milljarða.
Kaupþing og Baugur standa að
komu hans hingað.
HABL smitast með saur
Vísindamenn hafa komist að því
að veira bráðalungnabólgunnar
HABL getur lifað utan mannslíkam-
ans í a.m.k. sólarhring. Hún er ekki
síst talin smitast með saur og er því
fólki ráðlagt að þvo hendur sínar oft.
Um 450 manns hafa látist af völdum
veirunnar í heiminum.
Aðalmeðferð lokið
Aðalmeðferð er lokið í héraðsdómi
í stóra málverkafölsunarmálinu.
Samkvæmt lögum skal að jafnaði
kveða upp dóm innan þriggja vikna
frá því dómsmeðferð lýkur. Sak-
sóknari krefst tveggja og hálfs árs
fangelsis yfir Pétri Þór Gunnarssyni
en sex mánaða fangelsisdóms yfir
Jónasi Freydal Þorsteinssyni fyrir
þátt þeirra í málinu.
Y f i r l i t
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í dag
Sigmund 8 Bréf 26
Viðskipti 11 Þjónusta 27
Erlent 12 Dagbók 28/29
Listir 14 Fólk 30/33
Umræðan 15/16 Bíó 30/33
Forystugrein 18 Ljósvakar 34
Minningar 20/24 Veður 35
* * *
Mikill reykur frá
þvottaherberginu
NOKKRAR skemmdir urðu vegna sóts og
reyks í íbúð á þriðju hæð fjölbýlishúss við
Krummahóla þegar eldur kviknaði í þvotta-
herbergi.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins stefndi
miklu liði á staðinn enda var tilkynnt um
mikinn eld og reyk og að fólk væri komið út
á svalir. Fólkið hafði sjálft náð að færa sig
yfir á næstu svalir þegar slökkvilið kom á
vettvang en alls voru átta manns í íbúðinni.
Vel gekk að slökkva eldinn. Einn var flutt-
ur með sjúkrabifreið vegna gruns um reyk-
eitrun.
FÁMENNUR hópur fólks safn-
aðist saman við klettinn Einbúa
á Hellnum að kvöldi þess 30.
apríl. Tilefnið var að hlýða á
hörpuleik Austurríkismannsins
Norberts Maier. Norbert er
bæði hörpuleikari og hörpu-
smiður og er sú harpa sem hann
spilaði á smíðuð af honum úr
perutrjáviði og aski. Að auki er
hann mikill áhugamaður um
sögu víkingatímans og allt það
efni sem Tolkien hefur ritað og
er í stjórn nýstofnaðs áhuga-
mannafélags um Tolkien í Aust-
urríki. Vegna áhuga síns á
Hringadróttinssögu og Miðgarði
og þeirra álfasagna sem hann
hafði heyrt frá Íslandi var hann
ekki seinn á sér að þekkjast boð
myndlistakonunnar Ellu Magg
þegar hún bauð honum að spila
við opnun sýningar sinnar í
Reykjavík þann 1. maí.
Elín beindi honum síðan vest-
ur á Snæfellsnes til að finna þar
álfastaði svo hann gæti spilað
fyrir álfana aðfaranótt 1. maí,
en á miðöldum var sá dagur
haldinn hátíðlegur með Beltaine
hátíðarhöldum á Írlandi. Nor-
bert spilar einmitt á keltneska
hörpu og er eini íbúi meginlands
Evrópu sem sækir árlega Hátíð
keltnesku hörpunnar í Edin-
borg, en þar hittast hörpuleik-
arar frá Englandi, Skotlandi og
Írlandi. Þótt Norbert sæti í
skjóli undir álfaklettinum Ein-
búa náði vindurinn að sveigja í
kringum klettinn og slá á
strengi hörpunnar með honum.
Sagði Norbert að þetta væri í
fyrsta sinn sem vindurinn hefði
spilað með honum tvíleik á hörp-
una, þótt hann hefði áður spilað
utandyra. Eftir tónleikana við
Einbúa færði Norbert sig um set
inn í Gistiheimilið Brekkubæ á
Hellnum, spilaði þar fleiri lög og
fræddi áheyrendur um sögu
hörpunnar.
Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann
Norbert Maier spilaði fyrir álfana í Einbúa á Hellnum.
Spilað
fyrir
álfana
STEFNT er að því að gera endurbætur á for-
sal Alþingis í sumar og færa hann í sem næst
upprunalegt horf. Þá er áætlað að ráðast í ut-
anhússviðgerðir á suðurhlið gamla þinghúss-
ins upp úr miðjum maí.
Að sögn Karls M. Kristjánssonar, fjár-
málastjóra Alþingis, hefur aldrei verið gert
við steinveggi þinghússins frá því lokið var
við byggingu þess árið 1881. Gera á við fúgur
milli grágrýtissteina þar sem þess er þörf og
skipta út steinum sem kunna að hafa veðrast
mikið. Stefnt er að því að gera við allt húsið
að utan og að því verki ljúki á 2-3 árum en í
sumar verður eingöngu unnið við suðurhlið
hússins. Heildarkostnaður er áætlaður ríflega
30 milljónir króna. Auglýst hefur verið eftir
verktökum til að annast framkvæmdina og
hafa þegar nokkrir gefið sig fram, að sögn
Karls.
Hálfsúlur á veggi og bekkir í forsal
Um helgina var auglýst eftir verktökum til
að taka þátt í útboði vegna endurbóta á forsal
gamla þinghússins. Rífa á eikarklæðningu í
anddyri, skipta um gólfefni og salerni og
smíða hálfsúlur á veggi og bekki í forsal.
Kostnaðaráætlun liggur ekki fyrir en gera má
ráð fyrir að verkið kosti 8-10 milljónir, að
sögn Karls. Stefnt er að því að hefjast handa
við framkvæmdir innanhúss að loknu sum-
arþingi og á endurbótum að verða lokið fyrir
þingsetningu í október.
Karl segir ýmsar breytingar hafa verið
gerðar á forsal Alþingishússins í gegnum ár-
in, t.d. hafi anddyri og fatahengi það sem nú
er við aðaldyr ekki verið í húsinu í upphafi en
til stendur að rífa það niður.
Hann bendir á að með tilkomu nýja þjón-
ustuskálans hafi leiðir um Alþingishúsið
breyst nokkuð. Framvegis sé gert ráð fyrir að
aðalinngangur í gamla þinghúsið verði not-
aður sem viðhafnarinngangur, svo sem við
setningu Alþingis, móttöku erlendra gesta,
o.s.frv.
Fyrsta utanhússviðgerð
á grágrýtishleðslunni
frá 1881 hefst í maí
Forsalur Alþingishússins færður
í upprunalegt horf í sumar
SUÐURLEIÐIR, sem annast hafa
fólksflutninga milli Reykjavíkur og
Siglufjarðar í um 50 ár, hafa ekki
fengið sérleyfi til flutninga endur-
nýjað. Samgönguráðuneytið gerði
fyrirtækinu að hætta fólksflutning-
um mánuði áður en leyfið rann út í
september í fyrra.
Suðurleiðir hafa verið með þrjár
ferðir í viku fjóra mánuði yfir sum-
artímann. Á ársgrundvelli starfa 7-8
manns hjá fyrirtækinu.
Jón Sigurðsson á Sleitustöðum,
sem rekur Suðurleiðir, er ekki
ánægður með afstöðu samgöngu-
ráðuneytisins. „Skýringin sem þeir
gefa er sú að það eigi ekki að vera
tveir sérleyfishafar á sömu leið. Í
þessu tilfelli ökum við sömu leið og
Akureyrarrútan frá Varmahlíð til
Reykjavíkur,“ sagði Jón. Hann benti
jafnframt á að á Suðurnesjum aka
þrír sérleyfishafar sömu leið og aðrir
tveir sömu leið í gegnum Borgarnes.
„Kannski eru önnur sjónarmið
sem liggja að baki hjá samgöngu-
ráðuneytinu. Maður rennir alveg
blint í sjóinn með framhaldið. Þetta
er afar mikilvægt fyrir ferðaþjón-
ustu í Austur-Skagafirði og til Siglu-
fjarðar,“ sagði Jón og benti á að sér
þætti óvissan verst.
Í dag eru 32 sérleyfi til fólksflutn-
inga í gildi. Sérleyfunum fylgir nokk-
ur styrkur úr ríkissjóði til að tryggja
þjónustuna. Stefnt er að heildar-
endurskipulagningu á fólksflutning-
um með áætlunarbílum árið 2005.
Akstur Suðurleiða til Reykjavíkur
Fá sérleyfið
ekki endurnýjað
Sýslumaðurinn í Reykjavík
3 þúsund
greitt at-
kvæði utan
kjörfundar
TÆPLEGA 3.000 manns hafa kosið utan
kjörfundar hjá embætti sýslumannsins í
Reykjavík. Samkvæmt reynslu af fyrri
kosningum má búast við að allt að tíu þús-
und manns greiði atkvæði utan kjörfundar
hjá embættinu fram að kosningum.
Að sögn Þóris Hallgrímssonar, aðstoð-
ardeildarstjóra hjá sýslumanninum í
Reykjavík, höfðu 2.915 greitt atkvæði um
miðjan dag í gær.
Skrifstofa sýslumanns að Skógarhlíð 6 er
opin frá 10-22 alla daga og á kjördag, fyrir
þá sem eru á kjörskrá annars staðar en í
Reykjavík, frá 10-18. Þórir hvetur fólk sem
sér fram á að verða í burtu á kjördag til að
mæta sem fyrst því jafnan sé örtröð síðustu
dagana. Einnig hafi þess misskilnings
stundum gætt að íbúar Reykjavíkur geti
kosið utan kjörfundar á kosningadag en
svo sé ekki.
♦ ♦ ♦