Morgunblaðið - 05.05.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.05.2003, Blaðsíða 21
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 21 ✝ Grétar Árnasonfæddist í Reykja- vík 12. nóv. 1926. Hann lést á Landspítalanum í Landakoti 27. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Ing- unn Ófeigsdóttir hús- móðir í Reykjavík, f. í Miðhúsum í Gnúp- verjahreppi 20. júlí 1905, d. 24. sept. 1995, og Árni Ámundason verkamaður hjá Reykjavíkurhöfn, f. á Kambi í Villingaholts- hreppi 29. maí 1901, d. 29. maí 1986. Grétar var elstur þriggja systkina. Systkini hans eru Haraldur og Guðrún Anna, bæði búsett í Reykjavík. Hinn 5. júlí 1952 kvæntist Grétar eftirlifandi eigin- konu sinni Sigríði Sigurðardóttur, f. 25. nóv. 1929. Þau bjuggu öll sín hjúskaparár í Reykjavík, lengst af í Fossvoginum. Foreldrar Sigríðar voru hjónin Gróa Halldórsdóttir og Sigurður Viggó Pálmason, sem bæði eru látin. Börn Sigríðar og Grétars eru: Sigurður Viggó, f. 1952, maki Erna Björnsdóttir. Börn hans eru Grétar Örn, f. 1977, Pálmi, f. 1980, Fjóla, f. 1983, og barnabarn Kolbrún Kara Pálmadóttir, f. 2000. Árni, f. 1955, maki Lene Salling. Börn hans eru Elfar Hrafn, f. 1983, Sigríð- ur, f. 1986, Jens Óli, f. 1989, Helga Elísabet, f. 1992, og Anna Ing- unn, f. 1995. Bjarni, f. 1957. Börn hans eru Bjarni Grétar, f. 1980, Unnar Þór, f. 1982, Torfi Björn, f. 1990, Tinna og Bjarki, f. 1992. Gróa Ingibjörg, f. 1961, maki Kristján Egill Halldórsson. Börn þeirra eru Arna Þórey og Gréta Björk, f. 1986 og Sigríður Dóra, f. 1993. Grétar var alla tíð mikill áhuga- maður um íþróttir og útiveru og var á sínum yngri árum framar- lega í röðum skíða- og hnefaleika- manna. Megnið af sinni starfsævi rak Grétar í samstarfi við aðra vélaverkstæðið Þ. Jónsson & Co og bifreiðaumboðið Svein Egils- son hf. Hann hafði átt í baráttu við Alzheimerssjúkdóminn um árabil. Útför Grétars verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Pabbi ólst upp í tryggum foreldra- húsum á Ljósvallagötu 30 í Reykja- vík, sem faðir hans hafði byggt. Er pabbi og systkini hans stofnuðu fjöl- skyldur bjuggu þau öll samtímis í húsinu sem ávallt var rammi um óvenju sterk fjölskyldubönd. Hreysti og líkamlegur styrkur voru einkenn- andi fyrir pabba, enda áttu íþróttir, útivera og ævintýri hvers konar hug hans. Á yngri árum var hann í Flug- björgunarsveitinni, og tók þátt í leit- inni að Geysi á Vatnajökli. Hann ferð- aðist um Norður-Ameríku, var einn af bestu hnefaleikamönnum landsins og keppnismaður í alpa- og norræn- um skíðagreinum. Eignaðist hann á þessum árum fjölda góðra vina úr hópi íþróttafélaga, sem haldið hafa saman alla tíð síðan. Árið 1951 gerðist pabbi meðeigandi að vélaverkstæðinu Þ. Jónsson og co., og síðar hluthafi i Ford-umboðinu Sveini Egilssyni HF. Starfaði hann við Þ. Jónsson og co., nú Vélaland HF. til ársins 1996. Oft á tíðum voru vinnutímarnir margir og reksturinn erfiður, en með einstakri samheldni og dugnaði eigenda og starfsmanna varð fyrirtækið brautryðjandi á sínu sviði. Margir starfsmannanna urðu að góðum persónulegum vinum enda meira og minna fast starfslið í ára- tugi. Pabbi giftist eftirlifandi eiginkonu sinni Sigríði Sigurðardóttur árið 1952. Gagnkvæm virðing, kærleikur og samheldni einkenndi hjónaband þeirra allt til síðasta dags þótt ólík væru að eðlisfari. Heimili þeirra var alltaf trygg bækistöð fyrir börn, tengdabörn, barnabörn, vini og ætt- ingja, einskonar miðstöð þar sem allt- af var pláss fyrir smáa og stóra i gleði og sorg. Stórar fjölskyldur og vina- hópur, ferðalög og sumarbústaðurinn við Þingvallavatn voru fastir þættir í þeirra lífi. Dvöl í sumarbústaðnum var kannski táknræn fyrir verka- skiptinguna á heimilinu, mamma sá um félagslegu hliðina og pabbi kenndi okkur börnunum að veiða og reri með okkur um vatnið þvert og endilangt. Pabbi var ekki margorður, talaði ekki um sjálfan sig, og hallmælti aldr- ei nokkrum manni. Hann var hinsvegar gæddur ein- stökum hæfileika til að tjá sig án orða. Mér eru einkum minnistæðar margar dagsferðir á skíði, þar sem við nutum samverunnar og fórum í gegnum ým- is mál nánast án þess að segja auka- tekið orð allan daginn. Barnabörnin hændust líka öll að honum, hans blíða, áhugi og innri ró gerði hann að eft- irsóttum leikfélaga og virtum afa. Pabbi veiktist af Alzheimers sjúk- dómi fyrir allmörgum árum, og var sárt að sjá þá hnignun og niðurlæg- ingu sem hann þurfti að ganga í gegn- um af völdum sjúkdómsins. Baráttu- andann missti hann þó aldrei og alltaf stóð mamma sem klettur við hlið hans. Ég vil þakka öllum vinum og fjölskyldumeðlimum fyrir veittan stuðning og sérlega þakka alla þá ein- stöku alúð og kærleik sem pabbi fékk frá starfsfólkinu deild 4-L á Land- spítalanum í Landakoti. Elsku pabbi, takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur Lene og börnunum mínum í veganesti sem faðir, tengda- faðir og afi. Árni. Takk drottinn að fá að sitja hjá pabba síðustu nóttina hans. Elsku pabbi minn þú varst mér góður faðir og kenndir mér margt um ævina. Þessi nótt er dagsverkinu var að ljúka hjá þér var hljóðlát, vorið fyr- ir utan gluggann þinn. Á sólbekknum var rósin frá mömmu, klukkan fyrir ofan hurðina og Biblían á borðinu. Ritað er: Vér horfum ekki á það sýnilega, heldur það ósýnilega. Hið sýnilega er stundlegt, en hið ósýnilega eilíft. Samvera okkar eins og lífið hér á jörð er stundleg. Er þú hvílist í þinni gröf og ert horfin mér, verður það ósýnilega eilíft. Minningin um þig. Þetta segir mér að lífsgangan er stutt. Fyrir þig fékk ég að kynnast sjúkdómi og ekki get ég gert mér í hugarlund þína innri baráttu í veik- indunum, því tár í augnkrók voru þín tjáning í lokin. Elsku pabbi minn, eitt veit ég að heiðarleiki og samviskusemi voru þér gefin í vöggugjöf og alltaf varstu tilbúinn að hjálpa. Fyrir mig varst þú hógvær og af hjarta lítillátur. Góður drengur. Bjarni Grétar, Unnar Þór, Torfi Björn, Tinna og Bjarki eiga margar góðar minningar um traustan og góð- an afa. Þau biðja Guð um að blessa þig og varðveita. Elsku mamma mín. Ég bið Guð um að styrkja þig í sorginni. Þú er hetja. Ég vil þakka sérstaklega allan þann kærleika og hlýju frá öllu því ómetanlega fólki sem annaðist pabba í veikindum hans. Pabbi minn, drottinn blessi þig og varðveiti. Drottin láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur. Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið. Bjarni. Það er ekki laust við að ég hafi ver- ið hálfundrandi þegar ég sá tengda- föður minn fyrst úti í sjoppu á Háa- leitisbraut en þá vorum við farin að draga okkur saman, ég og elsti sonur hans. Bílinn þekkti ég og út úr honum kom kaffibrúnn, silfurgráhærður, myndarlegur maður. Síðar komst ég að því að sólin og Grétar áttu vel sam- an og þær voru ófáar ferðir þeirra hjóna til Kanarí-eyja eða á Litlu- Mallorku, sem er sumarbústaðapall- urinn þeirra við Þingvallavatn, en þar áttum við öll góðar stundir saman í sveitasælunni. Tengdafaðir minn var traustur maður og gott til hans að leita. Ég veit ekki hvernig ég hefði farið að þau tíu ár sem Siggi var til sjós, þegar bíll- inn bilaði, ef ég hefði ekki getað hringt í Grétar sem alltaf kom og bjargaði málum í snarhasti, en hann var einn af eigendum Þ. Jónsson & Co. og starfaði þar sem verkstjóri í 40 ár. Síðan var það árið 1988 sem við Siggi fórum með Grétari í rekstur á Vélalandi ehf., Þ. Jónsson & Co. og fékk ég þá að kynnast honum í vinnunni. Hann var góður fagmaður og menn leituðu mikið til hans eink- um með vélavandamál, þar sem yf- irleitt var nóg fyrir hann að heyra lýs- ingu á vandamálinu eða hlusta vélina til þess að vita hvað að var. Ekki er hægt að minnast tengda- föður míns án þess að nefna Sissu, tengdamóður mína, en saman hafa þau gengið farsællega í rúm 50 ár. Hann bar hana á höndum sér og hún launaði honum vel, ekki síst í veik- indum hans síðastliðin ár. Starfsfólki á deild 4L á Landakots- spítala þökkum við frábæra umönn- un. Elsku Sissa mín. Mínar innilegustu samúðarkveðjur vegna fráfalls góðs manns. Erna Björnsdóttir. GRÉTAR ÁRNASON  Fleiri minningargreinar um Grét- ar Árnason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Elín Jónsdóttirfæddist á Bala í Gnúpverjahreppi 12. september 1909. Hún lést á St. Jósefsspít- alanum í Hafnarfirði 25. apríl síðastliðinn. Foreldrar Elínar voru Jón Eiríksson, bóndi og síðar múr- ari í Reykjavík, f. á Sólheimum í Hruna- mannahreppi 6. júlí 1885, d. 7. maí 1970, og kona hans, Kristín Jónsdóttir, f. á Bala í Gnúpverjahreppi 4. sept 1879, d. 1. sept 1969. Systkini Elínar eru, Guðrún, f. 18. júní 1911, Aðalheiður, f. 6. febrúar 1914, Sigurlaug, f. 12. janúar 1922, og Eiríkur, f. 3. ágúst 1923. Elín giftist 16. júní 1934 Sigurði Árna Bjarnasyni frá Grund á Kjalarnesi, d. 17. sept 1992. Fyrst bjuggu þau í Reykjavík, en flutt- ust til Hafnarfjarðar 1940 og bjuggu þar síðan. Sonur Elínar er Ásgeir Kr. Sören- sen, f. 10. nóvember 1931, kona hans er Renate Sörensen. Fóstursonur Elínar er Jón Aðalsteins- son, f. 21. nóvember 1943, kona hans er Guðbjörg Jóna Eyjólfsdóttir. Útför Elínar verður gerð frá Víðistaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Langri ævi er lokið. Í dag kveðjum við móðursystur okkar Elínu Jóns- dóttur, eða Ellu frænku eins og við systurnar kölluðum hana. Ella frænka dó á öðrum degi þessa sumars á 94. aldursári. Eiginmaður hennar var Sigurður Á. Bjarnason sem við systurnar kölluðum aldrei annað en Sigga hennar Ellu, Siggi lést fyrir ell- efu árum. Ella átti tvo drengi, Ásgeir og Jón, sem hún alla tíð bar á örmum sér og dekraði við. Þeir kunnu það vel að meta og endurguldu henni það alla tíð. Ella var alltaf uppáhalds frænkan okkar systra, og var heimili þeirra hjóna okkar annað heimili. Á okkar yngri árum leið ekki sá dagur án þess að við kæmum við hjá þeim hjónum, enda stutt á milli heimila okkar. Ella lét sér annt um allt og alla, hún fylgd- ist sérstaklega vel með uppvexti allra systkinabarna sinna. Þegar við hugsum til baka kemur fljótt upp í hugann umstangið í kring- um kindur þeirra hjóna og heyskap- inn á Jófríðarstaðartúni. Það var ógleymanlegt fyrir okkur systur að fá að fara upp í Stykki, en þar var fjár- húsið þeirra. Þó er það allt í kringum heyskapinn sem er eftirminnilegt fyr- ir okkur. Þar naut Ella frænka sín sér einstaklega vel. Áhugi hennar fyrir heyskapnum var ávallt það mikill að oft gleymdi hún sér í sólinni og brann illa. Þó eru það kaffitímarnir við heyannirnar sem eru ógleymanlegir í okkar huga. Þar naut Ella frænka sín vel með mjólk á flösku og smurt brauð í heysátunum, enginn fékk að standa upp fyrr en hann hafði gert nestinu góð skil. Heilt ævintýri var þegar farið var í Ölfusréttir með Ellu og Sigga. Ferðamátinn var þannig að boddí var sett á vörubílspallinn þeirra þannig að við gætum komist með. Þetta er eitt af því sem stendur uppúr í minningunni og sýnir að alltaf voru þau hjón tilbúin að taka okkur systur með. Ella og Siggi voru dugleg að ferðast um landið á árum áður. Einn- ig voru þau mikið í sumarhúsi í Mun- aðarnesi á haustin, þar naut Ella frænka sín vel. Eftir að Siggi dó fór Ella lítið að heiman. Þó fylgdist hún áfram vel með öllum sem tengdust hennar fjöl- skyldu, þar kom síminn að góðum notum. Minni Ellu frænku var alla tíð mjög gott allt fram á síðasta dag. Oft segjum við systur „ef við hefðum bara minnið hennar Ellu frænku“. Hún var lánsöm og þakklát að geta búið í húsinu sínu fram að þeim tíma að hún fór á sjúkrahúsið, fyrir þrem vikum. Ásgeir og Renate tengdadótt- ir hennar bjuggu í húsinu sem gerði henni þetta kleift. Ásgeir hugsaði ávallt vel um mömmu sína og erum við systur honum ákaflega þakklátar fyrir. Við kveðjum þig Ella frænka og þökkum þér fyrir allt sem þú gafst okkur og við fengum að upplifa með þér. Björg, Kristín og Eygló Aðalsteinsdætur. Í afmæli ömmu minnar fyrr á þessu ári sýndi hún mér á ljósmynd sem tekin var fyrir áreiðanlega sautján árum. Þarna var öll stórfjöl- skyldan samankomin; afi, sem nú er látinn, amma, börnin þeirra og barna- börnin. Ég veitti því sérstaka athygli að á þessu augnabliki sem myndin hefur varðveitt í öll þessi ár var ég ekki aðeins með hár heldur er það svo hræðilega uppblásið að framanverð- unni, eins og tíska þess tíma krafðist, og einnig svo þykkt og snúið einhvern veginn að ég gat ekki annað en sagt: „Það er eins og ég sé með fjögurra lítra vatnshöfuð.“ Amma fussaði auðvitað yfir þess- um viðbrögðum mínum en Ella frænka, elsta systir ömmu, er sat mér á vinstri hönd, tók andköf af hlátri. Hún hristist og skókst öll í sætinu, lét hönd fyrir munninn og tók munn- þurrku til að þerra tárin, sem runnu niður hrukkóttar kinnar hennar sem tíminn hafði markað í öll hennar níu- tíu og þrjú ár. Hún sagði, að þarna hefði munað litlu að þetta yrði hennar síðasta, en að ég gæti sem betur fer verið ánægður með að vera ekki svona mikið lengur, því hárið sem ég hefði nú, væri svotil gufað upp. Ég gat tekið undir það. Ella frænka hló áreiðanlega mikið eftir þetta, jafn hláturmild og glöð kona sem hún var. Þetta er síðasta minning mín um hana Ellu, hún kvaddi þennan heim á Sankti Jóseps- spítala í Hafnarfirði hinn 25. apríl síð- astliðinn. Í mínum augum var Ella frænka alltaf gömul kona enda bar hún með sér næstum alla atburði liðinnar ald- ar; hún var 5 ára þegar fyrri heims- styrjöldin skall á, fagnaði þrítugasta árinu þegar nasistar Hitlers hófu seinni heimsstyrjöldina, þrjátíu og fjögurra ára þegar Ísland varð sjálf- stætt ríki og Sveinn Björnsson tók við forsetaembættinu á Þingvöllum, sex- tug þegar Neil Armstrong steig fyrstu skrefin á tunglinu. Hún var sextíu og þriggja ára þegar hún hélt á mér á skírnarmyndunum mínum. Og þetta var nítugasta og fjórða árið hennar Ellu. Tíminn gaf og tíminn tók. Ella frænka tók á honum með jafnaðar- geði eins og öllu sem að höndum bar. Hún var vinkona allra, hún Ella, og virðist hafa gert tímann að svo nánum vini að aldrei beygði hann beinin hennar og sveigði eins og hann gerir við allar góðar konur né tók hann heldur frá henni húmorinn sem ein- kenndi Ellu alla tíð. Ég minnist þeirra óteljandi bernskustunda er ég sat með mjólk- urglas og Frónkex fast upp við gömlu þurrkskápana sem ávallt geymdu silfrið og kökuhnífana í stóra hvítmál- aða eldhúsinu í Köldukinninni. Þetta var alvöru, ekta. Ég hélt að svona yrði þetta um alla eilífð. Þannig sé ég Ellu frænku fyrir mér nú; hún stendur í eldhúsinu og hrærir pönnukökudeig við gamla eldavél frá Rafha á meðan jólakökurnar bakast í ofninum. Úti- hurðin opnast með tilheyrandi bægslagangi og inn kemur maðurinn hennar, hann Siggi Bjarna – það skiptir engu fyrir minninguna að hann varð bráðkvaddur meir en tíu árum fyrr, nýbúinn að fara í frakkann og kyssa Ellu sína kveðjukoss á kinn- ina og loka á eftir sér hurðinni. Ég veit ekki hvernig það bar að, en mér fannst alltaf gott að hans síðasta verk í þessu lifanda lífi hefði verið að kveðja hana Ellu. Hann fer úr frakkanum, tekur fagnandi á móti Ellu með kossi, en sest síðan í eldhúskrókinn undir þurrkskápunum, hellir nýlöguðu kaffi í bolla og hlustar á nýjustu fréttirnar af okkur hinum sem nú yljum okkur við minningar um liðna tíma. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson. ELÍN JÓNSDÓTTIR Elsku pabbi minn, þakka þér sam- fylgdina gegnum árin. Með þinni styrku hönd kenndir þú mér svo margt gott og varst mér og mín- um svo mikils virði. Ég minnist þín með þakklæti og stolti í huga. Hvíldu í friði elsku pabbi minn. Þín dóttir. HINSTA KVEÐJA Guð sá að þú varst þreytt og þrótt var ekki að fá, því setti hann þig í faðm sér og sagði: „Dvel mér hjá“. Harmþrungin við horfðum þig hverfa á annan stað, hve heitt sem við þér unnum ei hindrað gátum það. Hjarta, úr gulli hannað, hætt var nú að slá og vinnulúnar hendur verki horfnar frá. Guð sundur hjörtu kremur því sanna okkur vill hann til sín hann aðeins nemur sinn allra besta mann. (Höf. ók.) Blessuð sé minning Elínar Jónsdóttur. Guðný, Jónas og fjölskylda. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.