Morgunblaðið - 05.05.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.05.2003, Blaðsíða 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 11 Framsóknarflokkurinn: Hvað: Lækka endur- greiðsluhlutfallið um 1 pró- sentustig, úr 4,75% í 3,75% af heildar- tekjum - einnig fyrir þann hóp sem tekið hefur lán frá lagabreytingunni 1992. Hvernig: Ekkert því til fyrir- stöðu að skipa nefnd með fulltrúum hlutaðeigandi hagsmunasamtaka. Hvenær: Á kjörtímabilinu. Frjálslyndi flokkurinn: Hvað: Endurgreiðslubyrðin verði lækkuð. Flokkurinn vill afnema verðtryggingu námslána. Hvernig: Æskilegt að ríkis- stjórnin skipi nefnd sem vinni tillögur til að létta endurgreiðslubyrði. Hvenær: Fljótlega eftir að ný stjórn tekur við völdum. Samfylkingin: Hvað: Fjórðungur endur- greiðslu verði frádráttarbær frá skatti í 7 ár eftir að námi lýkur, þ.e. 5 fyrstu endurgreiðsluárin. Hvernig: Í samráði við hlutaðeigandi hagsmuna- samtök. Hvenær: Á fyrsta ári nýrrar stjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn: Hvað: Sjálfstæðisflokkurinn er opinn fyrir því að ræða endurskoðun endur- greiðsluhlutfallsins. Hvernig: Í samstarfi við hagsmunasamtök. Hvenær: Á kjörtímabilinu. Vinstrihreyfingin- grænt framboð: Hvað: Fylgjandi lækkun endurgreiðslubyrði náms- lána og telur koma til greina að endurgreiðslur verði að hluta til frádráttar- bærar frá skatti. Hvernig: Í samstarfi við samráðshóp um léttari endurgreiðslubyrði. Hvenær: Strax DUGA ÞÉR LAUN 11 MÁNUÐI ÁRSINS? Samkvæmt gildandi reglum þurfa flestir sem tekið hafa lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna að greiða til baka sem nemur einum útborguðum mánaðarlaunum á ári til sjóðsins. • Bandalag háskólamanna (BHM) • Bandalag íslenskra sérskólanema (BÍSN) • BSRB • Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) • Félag prófessora • Félag unglækna • Iðnnemasamband Íslands (INSÍ) • Kennarasamband Íslands (KÍ) • Kjarafélag Tæknifræðingafélags Íslands (KTFÍ) • Lyfjafræðingafélag Íslands • Prestafélag Íslands • Samband íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) • Starfsmannafélag Ríkisendurskoðunar • Stéttarfélag verkfræðinga (SV) • Tannlæknafélag Íslands (TFÍ) • Vélstjórafélag Íslands (VSFÍ) HVAÐ ÆTLAR ÞINN FLOKKUR AÐ GERA Í MÁLINU? Eftirfarandi samtök hafa tekið höndum saman um að berjast fyrir léttari endurgreiðslubyrði námslána: SAMKEPPNISSTAÐA íslenskra sjávarafurða hefur versnað stöð- ugt síðustu misseri og ef fram heldur sem horfir gætu næstu fimm ár orðið greininni í heild mjög erfið. Þetta er mat Guð- mundar Ingasonar, fram- kvæmdastjóra fiskútflutningsfyr- irtæksins G. Ingasonar hf. Hann segir að vaxandi samkeppni frá fiskiðnaði í Kína og óhagstæð gengisþróun krónunnar valdi því að aldrei hafi verið eins erfitt að selja íslenskan fisk og einmitt nú. Guðmundur segir að staða ís- lensku krónunnar sé farin að valda útflutningsfyrirtækjunum verulegum erfiðleikum. „Fjár- magnsmarkaðurinn er orðinn svo sterkur, það flæðir inn gjaldeyrir og lækkar um leið í verði. Það hefur þó bjargað miklu hversu hagstæð gengisþróun evrunnar hefur verið. En mér sýnist að þró- unin hér sé með svipuðum hætti og verið hefur í Noregi, þar sem langvarandi hávaxtastefna hefur grafið undan öllum framleiðsluiðn- aði.“ Kínversk fiskvinnsla alvöruógn Guðmundur bendir á að Norð- menn hafi af þessum sökum selt sífellt meira af heilfrystum bolfiski til vinnslu í Kína og samkeppni við fiskvinnsluna þar í landi hafi vaxið mjög. „Lönd á borð við Kína og Rússland hafa verið að koma sterk inn á hefðbundna markaði fyrir frosinn bolfisk. Það er erfitt fyrir okkur að keppa við slík láglauna- svæði. Kínverjar hafa líka náð mjög góðum tökum á fiskvinnsl- unni, þeir framleiða mjög sam- keppnishæfa vöru sem hefur öðl- ast sífellt meiri viðurkenningu. Þeir selja fiskinn á mun lægra verði, bjóða ýsu í Bandaríkjunum á 1,95 dollara fyrir pundið á með- an ýsa héðan er seld á jafnvel helmingi hærra verði. Neytendur láta sig litlu varða hvort fiskur er tvífrystur eða ekki þegar efna- hagsástandið er slæmt, heldur kaupa ódýrustu vöruna. Gæðavit- und neytenda, sem Íslendingar hafa gert út á, virkar því ekki við slíkar aðstæður.“ Guðmundur telur töluvert vanta upp á að sjávarútvegurinn á Ís- landi geri sér fulla grein fyrir því að fiskvinnslan í Kína sé alvöru ógn. „Það þarf að viðurkenna þessa staðreynd. Hér er keypt mikið af fiski á mörkuðum á yfir- verði og það þarf að leiðrétta sem fyrst. Nú eru til dæmis allir ýsu- markaðir yfirfullir og þess vegna þarf að koma til leiðrétting á ýsu- verðinu strax. Það verður að taka á málunum, fiskurinn selur sig ekki sjálfur, jafnvel þó að hann sé íslenskur,“ segir Guðmundur. Fiskurinn selur sig ekki sjálfur Guðmundur Ingason fiskútflytjandi segir samkeppnisstöðu íslenskra sjávarafurða sjaldan verið verri FULLTRÚAR stærstu íslensku fisk- sölufyrirtækjanna segjast ekki merkja sérstaka sölutregðu á íslensk- um fiski á erlendum mörkuðum. Þeir segja jafnan deyfð yfir fiskmörkuðun- um fyrstu vikurnar eftir páskavikuna. Friðleifur Friðleifsson, deildar- stjóri sjófrystra afurða hjá SÍF hf., segist merkja örlítið tregari sölu fros- inna afurða nú en á sama tíma í fyrra en telur að hana megi rekja til bágara ástands almennt á mörkuðunum. Hann bendir á að styrkur stærri sölu- samtaka felist meðal annars í öflugu söluneti um allan heim og því komi tregða á mörkuðunum ekki jafn mikið fram hjá þeim og hjá smærri aðilum. Eins sé hefð fyrir því að sala á fiski sé tregari fyrstu vikurnar eftir páska eða föstutímabilið í Evrópu og Banda- ríkjunum. „En almennt talað sýnist mér að kaupendur séu varkárari í innkaup- um nú en á sama tíma í fyrra en það má jafnvel skýra með verra efnahags- ástandi í Evrópu og Bandaríkjunum. Hins vegar verður að gæta að því að á sama tíma í fyrra var mjög góð sala og því erfitt að bera ástandið nú saman við hana.“ Friðleifur segir að tvífrystur fiskur frá Kína hafi vissulega áhrif á afurða- verð íslenska fisksins. Hann segir að Kínverjar eigi hins vegar enn töluvert í land að ná sömu gæðaímynd og er á fiski úr Norður-Atlantshafi. „Menn hafa þó töluverðar áhyggjur af samkeppninni frá Kína, enda er ljóst að Kínverjar eiga eftir að ná sterkri stöðu á flestum fiskmörkuðum í heiminum.“ Mikið framboð af ýsu Gústaf Baldvinsson, framkvæmda- stjóri sölu- og markaðssviðs Sam- herja, segir ástand á mörkuðum mjög misjafnt eftir því hvaða tegund sé um að ræða. Þannig sé nú mikið framboð af ýsu á mörkuðunum, enda mikil veiði við Ísland, Færeyjar og Noreg. Ýsumarkaðurinn sé mjög staðbund- inn markaður og því hafi aukið fram- boð mikil áhrif. Gústaf segist hins vegar ekki merkja neina tregðu í sölu á frosnum fiski almennt. Þannig hafi verið mjög góð sala um páskana og mikil fisk- neysla í Bretlandi en vanalega dofni yfir sölunni eftir páskavikuna. Hann segir samt engan vafa leika á því að tvífrystur fiskur frá Kína og Rúss- landi sé farinn að hafa töluverð áhrif á markaðnum. Eins hafi samkeppni við annan hvítfisk, svo sem lýsing, vaxið mjög á undanförnum árum. Jón Jóhannesson, innkaupastjóri Coldwater USA, dótturfélags Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna, segist ekki merkja sölutregðu á íslenskum fiski á erlendum mörkuðum. Hann nefnir þó að nú sé mikið framboð af ýsu, mun meira en undanfarin ár, og hinir staðbundnu og þröngu ýsu- markaðir taki ekki við því magni sem nú er í boði. Það sé því varla hægt að tala um sölutregðu í því sambandi, heldur mun meira framboð en verið hefur. Jón segir að tvífrystur fiskur frá Kína hafi komið inn á Bandaríkja- markað fyrir nokkrum árum, á mun lægra verði en einfryst flök frá Ís- landi. Margir kaupendur hafi snúið sér að þessum ódýra fiski en flestir þeirra hafi snúið sér aftur að íslenska fiskinum, gæðanna vegna. „Að mínu mati hefur samkeppnis- staða íslensks fisks ekki versnað. Fiskeldi hefur reyndar vaxið fiskur um hrygg og afleiðingin er lægra fisk- verð, eins og reyndar er raunin með matvælaverð almennt. Væntanlega veldur hin sterka staða krónunnar framleiðendum miklu meiri áhyggj- um en markaðsstaðan. Ef krónan heldur áfram að styrkjast eða heldur stöðu sinni er hætta á að vinnslan flytjist í auknum mæli út á sjó. Það getur verið varasamt, því þar er sam- keppnin einnig harðnandi. Rússar eru til dæmis með mun lægri framleiðslu- kostnað í sjófrystingunni en við en hafa verið að bæta vinnslugæði sín verulega á síðustu árum, í tegundum sem keppa við okkur,“ segir Jón. Merkja ekki sölutregðu Morgunblaðið/Alfons Útflytjendur merkja örlítið tregari sölu sjávarafurða nú en á sama tíma í fyrra en telja að hana megi rekja til bágara ástands almennt á mörkuðunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.