Morgunblaðið - 05.05.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.05.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ „VERJANDI verður að fá að flytja þetta. Þú færð þitt tækifæri á eftir,“ sagði Pétur Guðgeirsson dómsfor- maður við Jónas Freydal Þorsteins- son, annan ákærða í stóra málverka- fölsunarmálinu, en Jónas hafði þá nokkrum sinnum komið með ábend- ingar eða bætt við varnarræðu verj- anda síns og virtist dómarinn hafa talið að nóg væri komið af slíku. Þriggja vikna aðalmeðferð lauk á laugardaginn með því að báðir ákærðu ávörpuðu dóminn en þeir hafa ávallt haldið fram sakleysi sínu. Áður höfðu föst skeyti gengið á milli saksóknara og verjanda. Karl Georg Sigurbjörnsson hrl., verjandi Jónasar Freydal, gagn- rýndi rannsókn lögreglu og sérfræð- inga hennar harkalega og sagði rannsóknina á köflum líkjast hálf- gerðum nornaveiðum. Lögregla hefði frá upphafi gefið sér að Jónas Freydal væri sekur og rannsóknin beinst að því að sanna sekt en horft fram hjá þeim atriðum sem bentu til sýknu. Karl varði drjúgum tíma í að fjalla um álitamál sem varða alkýð enda mikilvægt atriði í málinu. Lögregla byggir m.a. á að listmálararnir hafi ekki getað notað alkýðefni sem sér- fræðingar hafa fundið í flestum hinna kærðu verka. Karl sagði sterk- ar vísbendingar um að listamennirn- ir gætu hafa notað alkýð fljótlega eftir að það var fundið upp árið 1927. Það væri a.m.k. skynsamlegur vafi um þá fullyrðingu ákæruvaldsins að miða yrði við 1968 og 1976 þegar efn- ið var notað í svokallaða listamanna- liti. Þess vafa ættu hinir ákærðu að njóta. Í málinu er tekist á um sannleiks- gildi eigendasagna myndanna en Karl Georg sagði lögreglu ekki hafa tekist að hrekja eigendasögur Jón- asar. Það væri t.d. ekki skrítið þó eigendur uppboðshúsa könnuðust ekki við að hafa selt honum mynd- irnar enda færu þúsundir slíkra verka þar um. Það væri einnig hæpið að byggja á fullyrðingum vitna um að látnir ættingjar þeirra gætu alls ekki hafa átt myndir sem Jónas segir að þeir hafi selt honum. Hvað vissu þeir t.d. um það sem leyndist í geymslum? Og jafnvel þó að myndirnar yrðu dæmdar falsaðar væri ekki búið að sanna ásetning. Karl minnti á að margar myndanna hefðu verið keyptar af listasöfnum. „Hvernig átti minn maður að sjá að þær voru falsanir úr því þær fóru fram hjá sér- fræðingunum?“ spurði hann. Skeyti á báða bóga Jón H. Snorrason, saksóknari rík- islögreglulstjóra, var ómyrkur í máli þegar röðin kom að andsvörum hans. Hann sagði málflutning verjanda um að gert hefði verið „sameiginlegt átak um að sanna falsanir“ og um „nornaveiðar“ í besta falli óviður- kvæmilegan og um leið ótrúverðug- an. Ýjað væri að tengslum milli sér- fræðinga og kærenda sem ekki væru fyrir hendi og hringlað með stað- reyndir. Verjendur höfnuðu þessu og sagði Sigríður Rut Júlíusdóttir hdl., verjandi Péturs, margt beinlínis rangt í ræðu saksóknarans og gagn- rýni hans væri ómálefnaleg. Samkvæmt lögum skal að jafnaði kveða upp dóm innan þriggja vikna frá því aðalmeðferð lýkur og mál er tekið til dóms. Aðalmeðferð í héraðsdómi lokið í stóra málverkafölsunarmálinu Skynsamlegan vafa á að túlka ákærðu í vil Mynd sem eignuð er Jóhannesi S. Kjarval. Saksóknari byggir m.a. á því að pappírinn hafi ekki verið framleiddur fyrr en eftir 1960 en Jónas Freydal Þorsteinsson hafi haldið því fram að hann hafi keypt myndina af ættingja fólks sem fékk myndina í brúðkaupsgjöf árið 1918. Þessu hafnaði verjandi Jónasar og sagði að Jónas hefði sagt mynd- ina eina fimm sem keyptar voru af ættingjanum en þrjár þeirra verið brúðkaupsgjöf. Segir lögreglu hafa verið beitta pólitísk- um þrýstingi UM SJÖ ára löng rannsókn, dómsmeðferð og gríðarleg um- fjöllun í fjölmiðlum telur Pétur Þór Gunnarsson að sé meira en nægileg refsing fyrir þær meintu falsanir sem hann er ákærður fyrir. Málið hafi haft gríðarleg áhrif á líf sitt og fjölskyldu sinn- ar og þeir sex mánuðir sem hann sat á Kvíabryggju vegna fyrra fölsunarmálsins hafi alls ekki verið versti tíminn. Pétur Þór sagði að í rekstri Gallerís Borgar hafi hann ekki haft vaðið fyrir neðan sig varð- andi varðveislu ýmissa gagna. Ef myndirnar væru falsaðar, sem hann taldi ekki sannað, þá hefði hann verið blekktur af óprúttnum aðilum. En það gerði hann ekki að málverkafalsara. Þá hlytu menn að velta því fyrir sér hvað hafi orðið um hinn meinta gróða, ekki hefði hann borist á og ætti hann falinn sjóð hefði hann vænt- anlega notað hann til að forða sér frá gjaldþroti. Pétur Þór gerði hina löngu og dýru rannsókn að umtalsefni og sagði að lögregla hefði tjáð sér að rannsakendur hefðu verið undir pólitískri pressu um að ljúka rannsókninni sem fyrst. Það yrði enda gríðarlegt áfall fyrir ákæruvaldið ef ekki fengist sú niðurstaða sem lögregla vonaðist til. Jónas Freydal Þorsteinsson kom víða við í sinni ræðu og bætti ýmsu við sem hann taldi að ekki hefði komið fram í aðal- meðferðinni s.s. um rannsókn á alkýði og um hæfni sérfræðing- anna. Kvaðst hann hafa kynnt sér gögnin til hlítar og borið rann- sóknir undir erlenda sérfræðinga sem hefði talið sumar þeirra frá- leitar. Hann kvaðst ekki enn skilja hví hann hefði verið ákærð- ur enda bentu gögnin ekki til sektar. „Skiptir meira máli að réttlæta 100 milljóna króna rann- sókn rétt fyrir kosningar en að finna sannleikann?“ spurði hann. Könnun Gallup í Suðvesturkjördæmi Samfylking tapar – D-listi vinnur á SAMFYLKING tapar fylgi og Sjálfstæðisflokkur vinnur á samkvæmt nýrri könnun Gallup í Suðvesturkjördæmi, borið saman við fylgistölur flokkanna í könnun Gallup í apríl. Fylgi annarra flokka breytist lítið. Samkvæmt henni fengi Sjálf- stæðisflokkur 42,4% og 5 þing- menn og Samfylking 32,8% og 4 þingmenn kjörna. Framsóknar- flokkurinn mælist með 9,4% og fengi 1 þingmann, frjálslyndir eru með 8,3% fylgi og fengju eitt þingsæti. Vinstri grænir fengju 6,2% og engan mann kjörinn. Nýtt afl fengi 0,8%. Helstu breytingar frá því í Þjóðarpúlsi Gallup 1. maí sl. eru að fylgi Sjálfstæðisflokks hækk- ar um rúmlega prósentustig en Samfylking tapar um fimm pró- sentustigum. Könnunin var gerð dagana 28. apríl – 3. maí. Úrtakið var 800 manns, 18 ára og eldri, valið af handahófi úr þjóðskránni. Svarhlutfall var 67,9%. Rösk- lega 86% gáfu upp hvað þau myndu kjósa í dag, 2% ætluðu að skila auðu eða ekki kjósa, 3% neituðu að gefa upp afstöðu sína og 8% sögðust óákveðin. „ÉG hef alltaf haft mikinn áhuga á tækjum eins og bíl- um, vélsleðum og vinnuvélum svo þegar ég sá nám- skeiðið auglýst ákvað ég að skella mér,“ segir Berglind Guttormsdóttir en hún fór á vinnuvélanámskeið sem haldið var fyrir skömmu á Egilsstöðum. Þar var hún ásamt vinkonu sinni í hópi 30 stráka. Berglind tók námið með skóla en hún er að ljúka námi í Hússtjórnarskólanum í Hallormsstað. Hún segir nám- skeiðið hafa verið bæði skemmtilegt og gagnlegt, prófið gefi hærri laun og auðveldara sé að fá vinnu. Hún segist vera nokkuð viss um að vera búin að fá sumarvinnu á valtara út á námskeiðið. „Við fórum tvær vinkonur sem vorum á námskeiðinu og töluðum við nokkra karla í leit að svona vinnu. Þeir virtust varla nenna að tala við okk- ur fyrst en þegar við sögðum að við værum með vinnu- vélapróf tóku þeir okkur mjög vel. Ég tel bara mjög lík- legt að við fáum vinnuna.“ Hún segir að í framtíðinni hafi hún mikinn áhuga á að vinna við vinnuvélar af ein- hverju tagi. „Þegar ég á nógan pening ætla ég mér að halda áfram og taka líka meiraprófið.“ Mikil aðsókn á námskeiðin Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins heldur mörg námskeið fyrir atvinnulausa og undanfarnar vikur hef- ur verið mikil aðsókn á vinnuvélanámskeið, en í kjölfar- ið sjá menn aukin atvinnutækifæri, að sögn Hugrúnar Jóhannesdóttur, forstöðumanns Vinnumiðlunarinnar. Iðntæknistofnun sér um þessi vinnuvélanámskeið. Um 80 stunda réttindanám er að ræða, sem kostar venjulega 49.900 kr., en atvinnulausir fá þau ókeypis. Hugrún segir að almenna reglan sé sú að því lengur sem viðkomandi hafi verið atvinnulaus því meiri aðgang hafi hann að námskeiðum. Vinnuvélanámskeiðið hafi verið auglýst fyrir um einum og hálfum mánuði. Sumir hefðu lokið því og aðrir væru enn að, en samtals hefðu 60 manns tekið þátt í því á vegum Vinnumiðlunarinnar. Markmið námskeiðsins er að búa nemendur undir bóklegt próf og verkþjálfun til að öðlast réttindi til að stjórna vinnuvélum. Hugrún segir ljóst að umræða um fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir hafi haft mikil áhrif á aðsókn að þessum vinnuvélanámskeiðum. Eins séu margir úr byggingariðnaðinum á atvinnuleysisskrá, ófaglærðir og tiltölulega ungir karlmenn, og þetta nám- skeið höfði til þeirra. Mikil aðsókn var á vinnuvélanámskeiði á Egilsstöðum Tók vinnuvélanámskeið með hússtjórnarskólanum Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Berglind Guttormsdóttir lauk nýlega vinnuvéla- námskeiði sem haldið var á Egilsstöðum. Áfrýjar kynferðisbrota- dómi til Hæstaréttar Segir rann- sóknina ófull- nægjandi FYRRVERANDI rannsóknarlög- reglumaður sem vikið var úr starfi vegna dóms fyrir kynferðisbrot telur að brottvikningin hafi verið algjör- lega ótímabær enda hafi dómnum verið áfrýjað til Hæstaréttar. Að sögn Sveins Andra Sveinsson- ar hrl., verjanda mannsins, byggist áfrýjunin m.a. á því að rannsókn málsins hafi verið algjörlega ófull- nægjandi. Rannsakendur hafi t.a.m. neitað að taka skýrslu af vitnum sem upplifað hafi málsatvik með öðrum hætti en kærendur og ekki kannað til hlítar vísbendingar um sýknu. Maðurinn var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot tveimur hálfsystrum sambýliskonu hans og þriðju stúlkunni sem einnig er tengd honum fjölskylduböndum. TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunn- ar, var væntanleg til Reykjavíkur eftir miðnætti með þýskan sjómann sem talið var að hefði höfuðkúpu- brotnað þegar verið var að hífa troll- ið í gærkvöldi. Skip hans er að veið- um á Reykjaneshrygg, um 240 sjómílur frá landi. Sjúkraflug á Reykjanes- hrygg ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.