Morgunblaðið - 05.05.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Getum við ekki treyst því að þú takir ekki sólina og boddy-stöffið með þér, hr. Davíð ??
Forsetaskipti í Skáksambandinu
Komið inn í
miðjum leik
STEFÁN Baldurssonvar kjörinn forsetiSkáksambandsins á
nýlegum aðalfundi sem
þótti fremur stormasamur.
M.a. var á fundinum lögð
fram og felld tillaga þess
efnis að ekkert lið skuli
beita fleiri erlendum ríkis-
borgurum en íslenskum í
hverjum leik. Fram kom í
fréttum að ekki hafi allir
verið á eitt sáttir um ágæti
tillögunnar og allir fulltrú-
ar skákfélagsins Hróksins
verið farnir úr salnum er
atkvæði voru greidd og
þeir hafi talið eðlilegt að
afgreiðsla málsins væri á
annan hátt, s.s. vísað til
nefndar og klárað á fram-
haldsaðalfundi. Stefán
hafði einmitt lagt slíkt til,
en tillagan var felld sem fyrr seg-
ir.
– Ekki verður sagt að forsetatíð
þín hafi farið af stað í logni og sól,
segðu okkur nánar frá þessari til-
lögu sem felld var …
„Fyrir fundinum lá tillaga um
að takmarka fjölda erlendra skák-
manna í Íslandskeppni skákfélaga
þannig að útlendir keppendur í
hverri sveit yrðu aldrei fleiri en
þeir íslensku. Slík takmörkun er
alþekkt í öðrum keppnisgreinum.
Í samtölum mínum við menn á
fundinum fann ég að margir voru
tilbúnir til þess að skoða málið
betur áður en gengið yrði til at-
kvæðagreiðslu um tillöguna og
lagði ég því fram þessa tillögu um
að setja málið í nefnd og afgreiða
það síðan á framhaldsaðalfundi
eigi síðar en 1. júní. Naumur
meirihluti taldi hins vegar að
ganga ætti strax til atkvæða-
greiðslu um málið.“
– Hvers vegna telur þú að til-
lagan hafi verið felld?
„Þeim sem felldu frestunartil-
löguna fannst augljóslega ekki
eftir neinu að bíða. Þetta mál hef-
ur verið þó nokkuð rætt innan ein-
stakra félaga og hefur áður komið
til umræðu á aðalfundi Skáksam-
bandsins án þess að til atkvæða-
greiðslu hafi komið um breytingar
á lögum Skáksambandsins.“
– Var eitthvað málum blandið
við málsmeðferðina, sbr. að
Hróksmenn voru ekki á fundinum
er gengið var til atkvæða, eins og
fram kom í fréttum?
„Nei, málsmeðferðin var eðlileg
að mínu mati.“
– Verða einhver eftirmál?
„Ég á ekki von á því. Hér er um
lýðræðislega niðurstöðu að ræða
sem menn verða að sætta sig við.
Hins vegar tel ég vera ástæðu til
að endurskoða fyrirkomulag
keppninar í heild sinni, m.a. vegna
síaukins umfangs hennar.“
– Er ekki óheppilegt að tíð nýs
forseta hefjist með deilum?
„Því miður er ekki hægt að núll-
setja klukkuna þegar skipt er um
forseta. Hann kemur ávallt inn í
miðjum leik og hvernig mál
standa á þeim tímapunkti er til-
viljun ein.“
– Er ekki annars
staða skákíþróttarinn-
ar á Íslandi góð?
„Í alþjóðlegum sam-
anburði er óhætt að
segja að staða skák-
íþróttarinnar á Íslandi
sé góð. Ég held hins
vegar að hún gæti verið enn betri.
Ég tel að við eigum að stefna að
því að tryggja stöðu okkar sem ein
allra sterkasta skákþjóð heims.“
– Hverjar verða þínar helstu
áherslur í formannsstóli?
„Eitt af því sem ég mun beita
mér fyrir í þessu embætti er að
færa undirbúning lagabreytinga í
formlegri farveg þar sem allir
helstu hagsmunaaðilar fá tæki-
færi til að koma að málinu á und-
irbúningsstigi. Þessi aðferðafræði
er vel þekkt við undirbúning
frumvarpa í stjórnarráðinu og
hefur gefist vel að mínu mati.
Menn fá þá tækifæri til að sann-
færa aðra um réttmæti skoðana
sinna í góðu tómi.
Ég held líka að þörf sé á að
treysta fjármögnun skákviðburða
og þátttöku íslenskra skákmanna
í skákmótum erlendis. Ég tel að
skákin hafi það víðtæka skírskot-
un að full ástæða sé til fyrir hið
opinbera og fyrirtæki að leggja
þessu málefni lið á myndarlegan
hátt. Ég vil gjarnan sjá öflug fyr-
irtæki fóstra einstaka skákvið-
burði í nokkur ár.
Þá tel ég mjög mikilvægt að
skákhreyfingin beiti sér enn frek-
ar fyrir aukinni skákþjálfun
stúlkna. Ég er ekki í nokkrum
vafa um að ef stúlkur fá hvatningu
og fleiri tækifæri þá muni það
skila sér í stóraukinni skákiðkun
þeirra og enn betri árangri.
En verkefni Skáksambandsins
hlýtur fyrst og fremst
að vera það að skapa
góð skilyrði fyrir starf-
semi skákfélaganna í
landinu ásamt því að
annast þau verkefni
sem sambandið getur
sinnt betur en hvert
skákfélag fyrir sig.“
– Er vitað hversu margir Ís-
lendingar tefla skák að jafnaði?
„Ég veit ekki til þess að það hafi
verið kannað með formlegum
hætti, en ég tel víst að mikill
meirihluti Íslendinga kunni
mannganginn og grípi endrum og
sinnum í tafl.“
Stefán Baldursson
Stefán Baldursson fæddist í
Reykjavík árið 1955. Stúdent frá
Menntaskólanum í Hamrahlíð
1976 og lauk BA-prófi í heim-
speki og félagsfræði frá Háskóla
Íslands 1981. Lauk meistaraprófi
í félagsfræði frá Háskólanum í
Alberta 1983 og doktorsprófi frá
sama skóla 1988. Stundakennari
við Háskóla Íslands 1985–1987
og aðstoðarmaður háskólarekt-
ors 1987–1990. Framkvæmda-
stjóri rannsóknarsviðs HÍ 1990–
1993 og frá 1993 til 2003 var
hann skrifstofustjóri mennta-
mála og vísinda í mennta-
málaráðuneytinu. Fyrr á árinu
tók hann við skrifstofu vísinda
innan ráðuneytisins. Stefán á tvo
uppkomna syni, Brynjar og Bald-
ur Frey. Sambýliskona er Bára
Baldursdóttir sagnfræðingur og
á hún þrjú börn, Friðfinn, Marín
Möndu og Melkorku Sjöfn.
…ég tel víst
að mikill
meirihluti Ís-
lendinga
kunni mann-
ganginn