Morgunblaðið - 05.05.2003, Side 10

Morgunblaðið - 05.05.2003, Side 10
FRÉTTIR 10 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ BANDALAG starfsmanna ríkis og bæja, BSRB, er með hugmyndir um að lækka skattprósentu tekjuskatts á einstaklinga veru- lega, jafnvel allt niður í 20% og sama prósenta yrði þá á fjármagnstekjuskatti, sem nú er 10%, og tekjuskatti fyrirtækja, sem nú er 18%. Myndi lækkun sem þessi á tekjuskatti ein- staklinga nema 18,55 prósentustigum. Sömu hugmyndir ganga út á að hæstu jaðarskattar fari ekki upp fyrir 40% en þeir eru nú 58,55%. Útfærsla þessara hugmynda liggur í öllum aðalatriðum fyrir að sögn Gunnars Gunn- arssonar, hagfræðings BSRB, en höfuðmark- mið samtakanna er að auka ráðstöfunartekjur láglauna- og millitekjufólks. Yrði þessi leið farin gæti það þýtt aukin útgjöld fyrir hið opinbera upp á 6–8 milljarða sem að mestu féllu á ríkið en 500–1.000 milljónir á sveitarfélögin. Gunnar segir að afleidd áhrif myndu að hluta til jafna þetta út en hins vegar séu aðrar útfærslur til skoðunar til að ná því markmiði BSRB að treysta tekjustofna ríkis og sveitarfélaga. Stefnt sé að heildstæðri lausn. Gunnar hefur undanfarið ár verið að vinna að ítarlegum tillögum í skattamálum. Hann segir að byrjað hafi verið á að taka út skattkerfið eins og það er í dag, kostir og gallar þess hafi verið metnir. BSRB hafi sett sér tíu markmið í upp- hafi sem hafi átt að stuðla að því að auka kosti núgildandi staðgreiðslukerfis skatta og draga úr göllum þess. Ætlunin sé að markmiðin nái öll samtímis fram að ganga og sérstök áhersla sé lögð á að auka ráðstöfunartekjur láglauna- og millitekjufólks. Gunnar hefur einnig útfært hugmyndir um að lægstu jaðarskattar fari ekki niður fyrir 26% og þeir hæstu ekki upp fyrir 46%. Ekki er þá reiknað með að breyta núgildandi fjármagns- tekjuskatti. Hefur ríkisskattstjóri að beiðni BSRB reiknað út áhrif þessara breytinga á stöðu ríkissjóðs og komist að þeirri niðurstöðu að útgjöldin aukist um 3 milljarða króna á ári. Að sögn Gunnars hefur stjórn BSRB sannfærst um að þessi leið geti verið fær en menn séu að athuga hvort hægt sé að ganga lengra og fá meiri samræmingu með einu skatthlutfalli, 20%, fyrir tekjuskatt einstaklinga, fyrirtækja og á fjármagnstekjur. En áhrif á tekjur og gjöld hins opinbera nemi þá um 6–8 milljörðum í upp- hafi en eftir því sem lengra líður dragi úr áhrif- unum. Á ríkið þarna stærstan hluta en áhrifin á sveitarfélögin eru sögð 500–1.000 milljónir í aukin útgjöld og minnir Gunnar á að það sé langt undir þeim tölum sem flestir stjórn- málaflokkarnir hafi talað um að þeirra skatta- aðgerðir kosti. Inni í þessu mati samtakanna séu ekki afleidd áhrif á tekjur ríkissjóðs, s.s. virðisaukaskattur og tekjur vegna aukinnar neyslu. Forsendan sé einnig sú að afgangur sé á fjárlögum ríkisins. „Hugsunin hjá okkur er að stýra skattbyrð- inni í gegnum persónuafsláttinn og lækka skatt- hlutfallið niður í allt að 20%. Við 100 þúsund króna mánaðarlaun er svo ætlunin að persónu- afsláttur byrji að skerðast um 2%. Tekjuteng- ingin mun svo aukast og ná toppi í 200 þúsund króna mánaðarlaunum,“ segir Gunnar en þetta sést nánar á meðfylgjandi skýringarmynd. „Með því að taka upp tekjutengingu á per- sónuafslættinum vinnst fjölmargt. Í fyrsta lagi næðist fram full staðgreiðsla á tekjuskatti og í öðru lagi gerir það mögulegt að færa inn í stað- greiðsluna tekjutengdar bótagreiðslur. Þannig væri hægt að gera samtímis upp skatt- og bóta- greiðslur og draga þannig verulega úr sveiflum í ráðstöfunartekjum. Í þriðja lagi gerir hún það mögulegt að lækka jaðarskatta umtalsvert en há jaðarskattbyrði er helsti galli núgildandi kerfis og er fylgifiskur tekju- og aðstöðujöfn- unar innan kerfisins. Hugmyndir BSRB um að tekjutengja persónuafsláttinn gerir hins vegar mögulegt að auka tekju- og aðstöðujöfnun á sama tíma og jaðarskattar er lækkaðir umtals- vert,“ segir Gunnar. Öfugt við tekjutengingu persónuafsláttarins þá byrjar tekjutenging á bótagreiðslum í há- marki, eða 20%, og fellur síðan samhliða vexti á tekjuskerðingu persónuafsláttar. Samanlögð skerðing fer því aldrei yfir 20%. Gunnar segir að með því að hafa skerðingu bóta svo mikla í byrjun sé hægt að hækka grunnfjárhæðir bóta mikið án þess að sú hækkun gangi til allra. Hann leggur áherslu á að lykillinn að því að lágmarka áhrif á fjárhag hins opinbera sé að auka ráðstöfunartekjur sértækt: Auka verulega bótarétt láglaunafólks, en lækka sérstaklega og umtalsvert skattbyrði millitekjufólks. „Þegar BSRB horfir til hagsmuna launa- manna almennt og þá láglaunafólks sérstaklega höfum við tvennt í huga. Í fyrsta lagi að til stað- ar sé öryggisnet sem taki mið af fram- færslubyrði og að það sé til staðar þegar á þarf að halda. Því náum við fram með því að hækka umtalsvert grunnfjárhæðir bóta og koma á staðgreiðslu þeirra. Í öðru lagi að fólk hafi raun- hæfa möguleika á að bæta sína stöðu og festist ekki í viðjum úrræðaleysis og fátæktar. Því náum við fram með því að lækka jaðarskatta um allt að 18,55 prósentustig til að umsamdar kjarabætur og aukin vinna skili sér mun betur til fólks en áður. Auk þess horfum við til veru- legra breytinga á aðstoð við kaup og leigu á húsnæði,“ segir Gunnar. Auknar tekjur um þúsundir en ekki hundruð króna Markmið BSRB er að auka tekju- og að- stöðujöfnun og hækka sérstaklega ráðstöf- unartekjur láglauna- og millitekjufólks. Gunnar segir að þetta sé hægt án þess að hafa umtals- verð áhrif á tekjur og útgjöld ríkis og sveitarfé- laga. „Þegar við skoðum núgildandi kerfi þá kem- ur í ljós að allt sem gert er fyrir lágtekjufólk gengur að jöfnu, eða í ríkara mæli, til fólks sem er með hærri laun. Ef skattleysismörkin eru hækkuð þá gengur það að jöfnu til allra. Sé skatthlutfallið lækkað þá hefur það mest áhrif á ráðstöfunartekjur þeirra sem hæst hafa launin og sé skerðingarhlutfall bóta lækkað þá hagn- ast þeir einnig mest. Þess vegna er mjög erfitt að auka ráðstöfunartekjur lágtekjufólks í nú- verandi kerfi án þess að hafa umtalsverð áhrif á tekjur og gjöld ríkissjóðs. Við vildum ná fram markvissari aðgerðum. Með því að hækka skattleysismörk um þúsund krónur á mánuði þá aukast ráðstöfunartekjur allra um 385 krónur. Það kostar ríkið um milljarð króna. Okkur næg- ir ekki að auka ráðstöfunartekjur lágtekjufólks um hundruð króna heldur auka þær um þús- undir króna og jafnvel í vissum tilvikum tugi þúsunda. Við fórum því að horfa í skattleys- ismörkin og skoða aðrar leiðir,“ segir Gunnar. Með upptöku heimiliskorts og samtímis upp- gjöri á sköttum og bótum koma aðeins álagðir skattar umfram bótarétt til innheimtu. Gunnar segir að því sé óhætt að draga úr vægi skatt- leysismarka og færa það yfir í bótaréttinn. „Með því að ákvarða lágmarks bótarétt, óháð almennum rétti, þeirra hópa sem ekki mega verða fyrir skerðingu af þessum sökum, eins og t.d. öryrkja, ellilífeyrsisþega og atvinnulausra, auk þess sem grunnfjárhæðir bóta hækka um- talsvert á að vera tryggt að ráðstöfunartekjur láglaunafólks aukist með hliðsjón af fram- færslubyrði þeirra. Jafnframt drægi verulega úr sveiflum í ráðstöfunartekjum. Í núverandi kerfi kæmi þessi leið ekki til álita,“ segir Gunn- ar, en hugmyndir BSRB miðast við að lækka megi skattleysismörkin, sem eru í dag um 72 þúsund krónur, niður í allt að 50 þúsund krónur. Slík lækkun myndi losa um mikla fjármuni sem nú er ráðstafað almennt en væri hægt að nýta sértækt. „Einnig er nauðsynlegt að menn átti sig á að með því að lækka almennt skatthlutfall um allt að helming lækkar kostnaður ríkissjóðs af því að hækka skattleysismörk einnig um allt að helming. Það ætti að auka möguleika ríkissjóðs á að láta skattleysismörk fylgja verðlagsþróun,“ segir hann. Dregið úr sveiflum í ráðstöfunartekjum Gunnar segir að markmið um aukna stað- greiðslu kalli á tvennt, annars vegar eitt al- mennt skatthlutfall á alla, 26 eða 20%, og hins vegar útgáfu á heimiliskorti auk núverandi skattkorts. Gunnar segir að eitt skatthlutfall þýði að afnema þurfi hátekjuskatt í þeirri mynd sem hann er í í dag. Hugmynd BSRB um sér- stakt heimiliskort gengur út á að setja á einn stað samanlagðan rétt til barna- og húsnæð- isbóta þannig að staðgreiðsla á bótagreiðslum verði möguleg. Ef launamaður fullnýtir ekki heimiliskort sitt þá segir Gunnar að það komi í hlut ríkissjóðs að greiða jákvæðan mismun með að hámarki þriggja mánaða töf. Bendir hann á að töfin í dag geti verið allt upp í tólf mánuði. Launamaður héldi því eftir heildarlaunum sín- um að frádregnu iðgjaldi í lífeyrissjóð og stétt- arfélagsgjaldi. Með þessu móti verði skattleys- ismörk gagnvart hinu opinbera virk innan staðgreiðslukerfisins. Þarna séu kallaðir fram kostir kerfisins. Hugmyndir BSRB ganga jafn- framt út á það að atvinnulausir, öryrkjar og elli- lífeyrisþegar fái vannýttan bótarétt sinn sam- kvæmt heimiliskorti og kæmi þannig allur réttur þeirra til staðgreiðslu í hverjum mánuði. Þannig megi draga úr sveiflum sem geti verið í ráðstöfunartekjum fólks, t.d. í kjölfar atvinnu- leysis, og óþarfa hringrás peninga til og frá ein- staklingum og ríkissjóði heyri sögunni til. Samræming húsnæðisbóta Hugmyndir BSRB ganga einnig út á að sam- ræma stuðning við kaupendur og leigjendur íbúðarhúsnæðis. Hámarks húsaleigubætur, þegar tekið hefur verið tillit til fjölda barna og leiguverðs, eru í dag um 31 þúsund kr. á mán- uði. Hámarks vaxtabætur á mánuði í dag eru rúmar 22 þúsund kr. til hjóna, rúmar 18 þús. kr. til einstæðra foreldra og rúmar 13 þús. kr. til einhleypra. Að sögn Gunnars ganga hugmyndir BSRB út á að samræmdar húsnæðisbætur verði 31 þús. kr. á mánuði að hámarki, óháð hjú- skaparstöðu, fjölda barna, skuldum og leigu- verði. Horfa verði þó til þess að eignamyndun eigi sér stað við kaup á húsnæði en ekki við leigu. Gunnar segir að réttur til húsnæðisbóta leigjenda sé hámarksréttur án tímamarka. Þeir sem kaupi eigið húsnæði fái húsnæðisbætur í 40 ár. Fyrsta árið sé hámarksréttur óskertur en skerðist síðan lítillega á hverju ári þar til að bæturnar verði engar eftir 40 ár. Gunnar segir að markmiðið með þessum breytingum sé að auka möguleika lágtekjufólks á að komast í öruggt húsnæði og eyða skuldahvata vaxtabóta- kerfisins. Húsnæðisbætur verði háðari tekjum en áður og mun hærri fyrstu árin. „Þetta er enn á vinnslustigi en við teljum okkur hafa fundið leið til að nýta skattféð á markvissari hátt til að bæta stöðu lágtekju- og millitekjuhópa. Það er úrslitaatriði af hálfu samtakanna,“ segir Gunnar en hugmyndirn- arverða kynntar nánar á ráðstefnu BSRB í haust. Hagfræðingur BSRB segir að með breyttri skattastefnu sé stefnt að heildstæðri lausn Skattprósenta verði 20% á laun, fjár- magn og fyrirtæki                                            !  "  #  $#     $ #    "  #  Morgunblaðið/Jón Svavarsson Gunnar Gunnarsson, hagfræðingur BSRB. Hugmyndir BSRB um breytingar í skattamálum hafa í för með sér 6–8 millj- arða króna útgjaldaaukningu fyrir ríki og sveitarfélög. Björn Jóhann Björns- son ræddi við Gunnar Gunnarsson, hagfræðing BSRB, og kom þá m.a. í ljós að samtökin leggja til að skattleysismörk lækki í allt að 50 þúsund krónur. bjb@mbl.is JÚLÍUS Hafstein, fyrrum nefndarmaður í Heimssambandi ólympíunefnda, hefur kært Ellert B. Schram, forseta Íþrótta- og ólympíu- sambands Íslands, til dómstóls ÍSÍ fyrir að hafa með „blekkingum og villandi upplýsing- um“ í bréfum til forseta Heimssambands ólympíunefnda, ANOC, reynt að fá kæranda leystan frá störfum innan Heimssambandsins. Krefst hann þess að Ellert verði sviptur rétti til að gegna embætti forseta sambandsins og öðrum trúnaðarstörfum innan íþróttahreyfing- arinnar en til vara að hann verði víttur eða áminntur. Þá telur kærandi stjórn ÍSÍ skylt að afhenda bréf sem rituð eru af forseta sam- bandsins fyrir hönd þess og fjalla um persónu kæranda og trúnaðarstörf hans fyrir Heims- samband ólympíunefnda. Kærandi starfaði á vegum Heimssambands ólympíunefnda í nefnd innan Alþjóðaólympíu- nefndarinnar, IOC, sem fjallar um íþróttir og umhverfismál frá 1995 þar til hann lét af störf- um um áramót 2001/2002. Í bréfi lögmanns kæranda til dómstóls ÍSÍ segir að kærandi hafi haft spurnir af því Ellert hafi á árinu 2000 ritað forseta Heimssam- bandsins bréf og þrýst á að kærandi yrði leyst- ur frá störfum í áðurnefndri nefnd og hann eða aðrir sem hann tilnefndi í bréfum sínum tækju við starfinu. Forseti ÍSÍ hafi reynt að blekkja forseta Heimssambandsins með röngum og villandi upplýsingum og m.a. gefið í skyn að kærandi væri ekki starfandi innan íþrótta- hreyfingarinnar. Kærandi fékk tvö bréf afhent eftir að hann óskaði eftir þeim frá ÍSÍ. Síðar hafi hann frétt að bréfin væru fleiri, a.m.k. sex og óskað eftir að fá þau afhent einnig en þeirri beiðni var hafnað. Dómstóllinn komi saman í vikunni Lögmaður kæranda, Brynjar Níelsson hrl., á von á að einum dómara dómstólsins verði fal- ið að taka málið að sér en hann getur síðan kvatt tvo dómara með sér. Brynjar á von á að dómstóllinn komi saman strax í vikunni og hér- aðsdómsstigið eigi að ganga vel fyrir og að nið- urstaða fáist hugsanlega að hálfum mánuði liðnum. Unnt er að áfrýja úrskurði dómstólsins til áfrýjunardómstóls ÍSÍ. Forseti ÍSÍ kærður til dómstóls ÍSÍ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.