Morgunblaðið - 05.05.2003, Page 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Mannamót
Norðurbrún 1, Furu-
gerði 1, Hvassaleiti
56-8 og Hæðargarður
31. Ferðalag 8. maí.
Bláa lónið skoðað og
síðan farið til Grinda-
víkur og Saltfisksetrið
skoðað. Kaffiveitingar í
Sjávarperlunni. Eftir
kaffi verður farið um
Hafnirnar að brúnni
milli heimsálfanna.
Lagt af stað frá Norð-
urbrún 1 kl. 12.30 og
síðan teknir farþegar á
hinum stöðunum.
Skráning í Norðurbrún
í s. 568 6960, í Furu-
gerði í s. 553 6040, í
Hæðargarði í s.
568 3132 og í Hvassa-
leiti í s. 535 2720.
Aflagranda 40. Vinnu-
stofa kl. 9 og kl. 13. og
leikfimi kl. 9, boccia kl.
10.
Árskógar 4. Kl. 9
handavinna, kl. 11
boccia, kl.13 smíði/
útskurður, kl. 13.30, kl.
16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9
handavinna, kl. 9 og kl.
13 bútasaumur, kl. 10
samverustund, kl. 13.30
söngur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13, kl. 20.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 9 myndlist, kl.
10 verslun, kl. 13
handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18-20. Kl. 10, leikfimi,
kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 9 handavinna, kl.
9 myndlist, kl. 13 körfu-
gerð, kl. 11 leikfimi, kl.
13 spilað, kl. 10 verslun.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Handavinna
kl. 9, vist kl. 14.
Félag eldri borgara,
Garðabæ. Æfing hjá
Garðakórnum kl. 17.30 í
Kirkjuhvoli.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 9.30,
10.15 og 11.10 leikfimi,
kl. 13 tréskurður.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, pútt kl. 10,
kóræfingar kl. 10.30
tréskurður kl. 13, fé-
lagsvist kl. 13.30.
Orlofsferð verður 10. til
15. ágúst: Ísafjarð-
ardjúp og Ísafjörður.
Skráning í s. 555 0142.
Félag eldri borgara,
Glæsibæ. Brids kl. 13.
Gerðuberg, félagsstarf.
kl. 9 vinnusst., frá há-
degi spilasalur. Dans-
kennsla fellur niður.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handav. kl. 9.30, kl.
10.50 leikfimi, kl. 13
skák og lomber, kl. 20
skapandi skrif. Vorsýn-
ingar verða í Gjábakka
og Gullsmára 10. og 11.
maí kl. 14 til 18. Gjá-
bakki býður í fjöl-
skyldukaffi á tíu ára af-
mælinu 11. maí, kl.
14-17. Tekið við sýning-
armunum 8. og 9. maí.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
stólaleikfimi, kl. 10
ganga, kl. 13 brids, kl.
20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
perlusaumur, kl. 10
bænastund, kl. 13.30
sögustund og spjall, kl.
13 postulínsmálun.
Hvassaleiti 56-58. Kl. 9
föndur, kl. 9 og kl. 10
jóga, kl. 13 spilað, kl.
14.15 spænska.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 ganga, kl. 9 mynd-
list, kl. 13 handavinna.
Vesturgata 7. Kl. 9.15-
12 postulín, kl. 9.15
handavinna, kl. 9.30
boccia, kl.11 leikfimi, kl.
12.15 danskennsla, kl.
13 kóræfing. Flóamark-
aður og handverkssala
verður 8. og 9. maí kl.
13-16.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morgun-
stund, kl. 10 boccia, kl.
13 handmennt, gler-
bræðsla og spilað, kl.
15.30 jóga.
Gullsmárabrids. Brids í
Gullsmára kl. 13.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu, Vallarbraut 4,
Njarðvík í kvöld kl. 20.
Kvenfélag Lágafells-
sóknar. Gönguferð
verður farin í Grasa-
garðinn í kvöld, mæting
við Nóatún kl. 19.30.
Kvenfélag Kópavogs.
Farið verður út að
borða 15. maí. Mæting
Hamraborg 10, kl. 19.10
(rúta). Skráning í síð-
asta lagi 9. maí hjá:
Ólöfu, s. 554 0388, og
Rannveigu, s. 554 3386.
Vopnfirðingafélagið.
Lausar vikur í Garðs-
horni, sumarhúsi fé-
lagsins á Vopnafirði, í
sumar. Uppl. í s.
552 0480.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar. Vorfundurinn
verður í Skálholti
þriðjud. 6. maí, farið frá
Setrinu kl. 18.
Kvenfélagið Fjallkon-
urnar vorfundur (hatta-
fundur ) 6. maí kl. 20 í
Safnaðarheimili Fella-
og Hólakirkju. Uppl í
s.557 3240, Binna.
Aglow, Reykjavík.
Fundur í Skipholti 70,
kl. 20 Gestur Ingunn
Björnsdóttir.
Kvenfélag Laug-
arnessóknar. Síðasti
fundur vetrarins er í
kvöld kl. 20 í safn-
aðarheimilinu.
Í dag er mánudagur 5. maí, 125.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Á því munu allir þekkja, að þér
eruð mínir lærisveinar, ef þér
berið elsku hver til annars.“
(Jóh. 13, 35.)
Halldór Ásgrímsson,utanríkisráðherra og
formaður Framsókn-
arflokksins, var í yfir-
heyrslu hjá Ólafi Teiti
Guðnasyni, blaðamanni
DV, síðasta föstudag.
Halldór var spurður aðþví, hvort styrkir til
landbúnaðar yrðu lækk-
aðir, vegna samninga hjá
Heimsviðskiptastofn-
uninni (WTO), sem gerðu
ráð fyrir því að styrk-
irnir fengju nýtt nafn,
„grænar greiðslur“.
Í svari sínu sagði Hall-dór: „Þegar menn
horfa til þeirrar lotu sem
nú er í gangi eru annars
vegar þjóðir sem krefjast
algjörs frjálsræðis í við-
skiptum með landbún-
aðarafurðir og hins veg-
ar þjóðir sem vilja
vernda sinn landbúnað.
Við erum í þeim hópi
þjóða sem telur að vegna
okkar einangrunar og
menningar sé mikilvægt
að hér sé rekinn sjálf-
stæður, öflugur landbún-
aður sem skaffi okkur
hollar og heilnæmar
vörur.“
Áfram hélt hann: „Þaðer ekki ólíklegt að
niðurstaðan verði ekkert
langt frá því sem Evr-
ópusambandið er að tala
um; það leggur mikið
upp úr stuðningi við
landbúnað en þó ekki
framleiðsluhvetjandi
stuðningi. Ég tel allar
líkur á að við getum
breytt okkar stuðningi
að einhverju marki innan
slíkra reglna. Íslenskur
landbúnaður verður hins
vegar að búa sig undir
aukið frjálsræði og
aukna samkeppni og þar
með lægra verð á mark-
aði til neytenda. Ég tel
að þetta þurfi ekki að
veikja íslenskan land-
búnað því að í þessu fel-
ast líka ákveðin tæki-
færi.“
Þessi orð formannsFramsóknarflokksins
eru gleðileg. Þau benda
til þess að loksins geti
aukið frjálsræði í ís-
lenskum landbúnaði ver-
ið í sjónmáli.
Það er hárrétt hjáHalldóri, að breyt-
ingar í átt til aukins
frjálsræðis þurfa ekki að
veikja landbúnað hér á
landi. Íslenskur landbún-
aður hefur þrátt fyrir
allt mikla sérstöðu.
Framleiðslan er fyrsta
flokks; hreinleikinn óvið-
jafnanlegur eins og ís-
lensk náttúra.
Það er því alveg ljóst,að íslenskur land-
búnaður myndi halda
velli ef dregið yrði úr
styrkjum til hans. Raun-
ar má ætla að hann komi
tvíefldur til leiks, eftir
nauðsynlega hagræðingu
í greininni. Um leið
myndi vöruverð til
neytenda að öllum lík-
indum lækka stórum, al-
menningi til mikilla
kjarabóta.
STAKSTEINAR
Samkeppnin styrkir
landbúnaðinn
Víkverji skrifar...
ÓVÆNTUR „glaðningur“ fylgdiað þessu sinni reikningi sem
Víkverji fær mánaðarlega frá VISA-
greiðslukortafyrirtækinu. Um er að
ræða einhvers konar „tilboð“ til
VISA-korthafa og hljóðar það svona:
„VISA korthöfum gefst kostur á að
kaupa miða á Matrix Reloaded í for-
sölu sem hefst í Sambíóunum og Há-
skólabíó 2. maí … engum öðrum!“
Svo mörg voru þau orð.
Fyrir þá sem það ekki vita þá er
Matrix Reloaded framhald bíómynd-
arinnar The Matrix sem var býsna
vinsæl fyrir fjórum árum eða svo.
En hvers konar tilboð er nú þetta?!
Gott og vel ef verið væri að bjóða
Víkverja bíómiða … en í reynd er
aðeins verið að bjóða honum að
koma og standa í biðröð!
Víkverji veit ekki hvort hann á að
hlæja eða gráta. Þeir hjá VISA telja
viðskipti hans greinilega ekki mikils
virði, fyrst þeir leggja svona „gylli-
boð“ fyrir hann. Þetta er svona eins
og að vera boðið á deit – en þurfa svo
að borga allt sjálfur, bæði fyrir sig
og hinn aðilann!
Þó er rétt að Víkverji upplýsi að
hann hefur svosem alveg áhuga á að
sjá Matrix Reloaded. En til hvers í
ósköpunum ætti hann að hafa sér-
stakan áhuga á að kaupa miða á
myndina í forsölu – verður myndin
bara sýnd í eitt skipti?
FYRIR viku var Víkverji að kvartayfir því að miðbær Reykjavíkur
skuli vera meira og minna uppgraf-
inn um þessar mundir, en fram-
kvæmdir standa yfir í Bankastræti
og víðar. Einn lesandi Morgunblaðs-
ins, sem titlar sig „innfæddan Reyk-
víking í Keldnaholti“, sá ástæðu til
að rita Víkverja bréf og setja ofan í
við hann fyrir nöldrið. Spyr bréfrit-
ari, sem segist vera 79 ára gömul,
hvernig hægt sé að ætlast til að göt-
ur borgarinnar séu fegraðar án
framkvæmda.
„Í guðanna bænum – unga mann-
eskja – brostu og hlakkaðu til að sjá
Bankastrætið eins fallegt og Lauga-
veg og Skólavörðustíg. Það er alltaf
verið að fegra borgina okkar, og allt
er það svo smekklega gert, hvort
sem það er gert með grjóti eða
gróðri,“ segir bréfritari síðan og lýs-
ir ánægju með það hversu framsýnt
fólk sé að störfum hjá borginni.
„Brostu, taktu gleði þína, pakkaðu
niður ósanngjörnu nöldri. Gleðilegt
sumar,“ segir bréfritari að endingu.
Víkverji þakkar bréfið og heitir
því að gera sitt besta til að bæta ráð
sitt og hætta nú öllu nöldri. Það er jú
komið vor!
Sannkallað gylliboð fyrir VISA-
korthafa: að fá að kaupa miða á
Matrix Reloaded á undan öðrum!
MIÐVIKUDAGSKV. 30.
apríl sl. fór ég á heimildar-
myndina Bowling for Col-
umbine með mínum betri
helmingi.
Ég viðurkenni nú að ég
fór á þessa mynd með dá-
litlum hálfkæringi því að
hingað til hef ég sjaldnast
verið af því hrifin að fara á
„myndina sem allir eru að
tala um“. Það er eins og það
geri mig afhuga hlutum
þegar allir tala um að ég
verði að sjá þá eða gera. En
af því að mig langaði mikið
til að eiga stund með áður
nefndum betri helmingi,
féllst ég á að láta draga mig
á þessa mynd. Og ég við-
urkenni líka hér með að því
mun ég aldrei sjá eftir.
Þvílík og önnur eins
snilld! Það er samt sorglegt
að nota þau orð til að lýsa
þessu meistaraverki því að
það sem hún fjallar um er
engin snilld.
Eftir að hafa undanfarn-
ar vikur fylgst með Banda-
ríkjunum murka lífið úr
Írökum, meirihlutinn af
þessum Írökum verandi
óbreyttir borgarar og þar
með talin börn hefur álit
mitt á þeim dvínað mjög.
Ég hef aldrei verið neinn
sérstakur Ameríku-aðdá-
andi svo að það þurfti lítið
til en ég hef notið afurða
þeirra eins og svo margir.
En þegar ég gekk útúr
bíósalnum á miðvikudags-
kvöldið hafði margt í mínu
hugarfari breyst. Það er
reyndar kaldhæðni að það
sem loksins lætur mann sjá
Bandaríkin í réttu ljósi er í
raun þegn þeirra, þ.e. Mich-
ael Moore, höfundur Bowl-
ing for Columbine sem er
auðvitað bandarískur í húð
og hár. En það skiptir
sosum ekki öllu þar sem að
hann er greinilega meðvit-
aður um úrkynjun landa
sinna. Og úrkynjun er það!
Ég ætla ekki að lýsa
myndinni í neinum atriðum
og flest ykkar hafa líklega
séð hana en þið sem hafið
það ekki, ég mæli eindregið
með því. Þessi kvikmynd
mun komast eins nálægt
því og hægt er að breyta lífi
ykkar ef hún þá gerir það
ekki. Og svo sannarlega
mun hún opna augu ykkar.
Ég grét, ég hló, ég bölvaði
og ég hugsaði. Það eru eng-
in orð sem geta lýst því sem
fer um mann eftir þessa
mynd, hjarta mitt er fullt af
öskrum sem mig langar til
að láta dynja á Bandaríkj-
unum en það mun ekki af
því verða því frá og með
miðvikudeginum hef ég
ákveðið að ég mun aldrei í
mínu lífi stíga fæti inn í
þetta land og ætla ég nú eft-
ir bestu getu að hætta alfar-
ið að neyta alls sem á upp-
runa sinn í þessu afbakaða
og sorglega landi.
Ég gat ekki á mér setið
en ég vona að þið sem hafið
séð þessa mynd deilið með
mér þessu áliti. Þessi mynd
er ekki afþreying, hún er
sannleikur.
Bandaríkin eru geðsjúk
þjóð og það er mér næstum
óbærilegt að hugsa til þess
ef okkar litla land fer að
dragast inn í þessa hringiðu
af viðbjóði, ótta, spillingu
og úrkynjun. Og ráðamenn
þjóðarinnar hafa svo sann-
arlega lagt sitt af mörkum
til að við verðum dregin inn
í þennan viðbjóð. Þið sem
lýstuð yfir stuðningi okkar í
stríði Bandaríkjanna án
þess að bera það nokkurn
tímann undir okkur, þegna
landsins sem ég var svo
barnaleg að halda að hefði
eitthvað um þetta að segja.
Ég hvet ykkur sérstaklega
til að sjá þessa mynd svo
þið getið skammast ykkar.
En hvað getum við gert?
Það er enn óhuggulegri
vangavelta og svarið langar
mig ekki til að heyra. Ég
hvet ykkur öll til að sjá
Bowling for Columbine.
Tinna Ævarsdóttir.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Hrein snilld
Morgunblaðið/Jim Smart
Beðið eftir strætó.
LÁRÉTT
1 hraustmenni, 8 útgerð,
9 skjálfa, 10 forskeyti, 11
tígrisdýr, 13 líkamshlut-
ann, 15 karlfugl, 18 ólm-
ur, 21 blóm, 22 andvarps,
23 gleðin, 24 álf.
LÓÐRÉTT
2 alfarið, 3 eldar, 4 stóð
við, 5 notaði, 6 ójafna, 7
skora á, 12 ekki gömul,
14 aðstoð, 15 sæti, 16
voru í vafa, 17 grasflöt,
18 biðjum um, 19 rak-
lendið, 20 bráðum.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hnáta, 4 hnupl, 7 ýlfur, 8 afnám, 9 ill, 11 ilma,
13 erja, 14 súpum, 15 hopi, 17 meis, 20 ósk, 22 úðinn, 23
refur, 24 ansar, 25 tuðra.
Lóðrétt: 1 hlýri, 2 álfum, 3 akri, 4 hjal, 5 unnur, 6 lemja,
10 lepps, 12 asi, 13 emm, 15 hnúta, 16 prins, 18 erfið, 19
sárna, 20 ónar, 21 kryt.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16