Morgunblaðið - 05.05.2003, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 29
DAGBÓK
HUGARFARSÞJÁLFUN TIL BETRA LÍFS
EINKATÍMAR - NÁMSKEIÐ
Þú lærir að koma skilaboðum og jákvæðum huglægum hugmyndum og
viðhorfum inn í undirmeðvitundina. Þú lærir að upplifa tilfinningar þínar á
jákvæðan og uppbyggilegan hátt og að hafa betri stjórn á streitu og kvíða, auka
einbeitinguna og taka betri ákvarðanir. Þú byggir upp sjálfsöryggi og sterka
sjálfsmynd.
Leiðbeinandi Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur.
Upplýsingar í síma 694 54 94
LEIÐSÖGUNÁM
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og mynd-
um. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal að
leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.
Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
Mannleg samskipti. Skyndihjálp og skipulag.
Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum.
Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir.
Umsögn:
„Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands.
Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið
um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á
landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög
skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhalds-
nám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem
kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“.
FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS
Bíldshöfða 18, sími 567 1466,
Opið til kl. 22.00.
Heimasíða: www.menntun.is
Martha Jensdóttir
kennari.
Morgunverðarfundur miðvikudaginn 7. maí
kl. 8.30-9.30 í Víkingasal Hótels Loftleiða
Það er mikilvægt að viðskiptavinir séu ánægðir en...
Hvernig tryggjum við gæði þjónustunnar?
Er hægt að hafa áhrif á ánægju viðskiptavina?
Hvernig er það hægt og hvernig getum
við metið hversu ánægðir þeir eru?
• Ánægja viðskiptavina, af hverju skiptir hún máli
og hvernig er best að meta hana.
• Þorlákur Karlsson, framkvæmdastjóri
rannsóknar- og upplýsingasviðs IMG.
Reynslusögur:
• Gísli Jafetsson, markaðs- og fræðslustjóri Sambands íslenskra sparisjóða.
• Ingibjörg S. Ingjaldsdóttir, starfsmanna- og markaðsstjóri og
Guðmundur R. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Prentmets.
Verð fyrir félagsmenn Stjórnvísi er 2.000 kr. og 4.000 kr. fyrir aðra.
Skráning á heimasíðunni: www.stjornvisi.is eða í síma 533 5666.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert gáfuð manneskja og
býrð yfir innsæi. Þú átt gott
með að kenna og langar að
uppfræða heiminn. Þú held-
ur þig samt út af fyrir þig.
Komandi ár kann að verða
besta ári ævi þinnar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það gerist eitthvað óvænt
heimafyrir. Þetta gæti tengst
einhverjum sem þú vannst
áður með.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Metnaður þinn er vakinn!
Samt sem áður koma upp
gömul vandamál. Fyrrver-
andi maki skýtur upp koll-
inum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Skoðaðu hvað þú getur gert
til að auka tekjurnar.
Kannski felur það í sér að
læra meira um nýja tækni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vikan byrjar vel! Þér finnst
tilveran spennandi og þú
hlakkar til að takast á við
hana.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Farðu þér hægt í dag, kraft-
urinn eykst eftir því sem
líður á vikuna. Taktu
óhrædd(ur) við aukinni
ábyrgð.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Vinkona þín gæti gefið þér
góð ráð í dag. Þó svo að þú
sért fús til að vinna ötullega í
dag er samt óvenju mikil
uppreisn í þér.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Athygli yfirmanns, valda-
persónu, kennara eða for-
eldris kann að hvíla á þér í
dag. Það er gott því þú ert
sérstaklega aðlaðandi í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það ríkir spenna á heimilinu
og því þarftu að vera sér-
staklega þolinmóð(ur).
Mundu að neikvæðni er það
þegar maður vill að hlutirnir
séu öðruvísi en þeir eru.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú mátt búast við því að rek-
ast á einhvern sem þú hefur
unnið með. Það er ekki gott
að byrja á nýjum verkefnum í
vinnunni núna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ef þú kemst í frí núna skaltu
grípa tækifærið. Þú vilt
skemmta þér og það er engin
ástæða fyrir því að þú ættir
ekki að gera það. Þú þarft
samt að sýna börnum meiri
athygli en áður.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Aðgerðir þínar gera aðra
ringlaða. Þeir átta sig ekki á
því hvað það er sem þú sæk-
ist eftir. Komdu hlutunum á
hreint.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Sýndu öllum þeim sem á vegi
þínum verða í dag óvenju
mikla vinsemd og viðbrögðin
munu koma þér á óvart.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SPRETTUR
Ég berst á fáki fráum
fram um veg.
Mót fjallahlíðum háum
hleypi ég.
Og golan kyssir kinn.
Og á harða, harða spretti
hendist áfram klárinn minn.
Það er sem fjöllin fljúgi
móti mér,
sem kólfur loftið kljúfi
klárinn fer.
Og lund mín er svo létt,
eins og gæti eg gjörvallt lífið
geisað fram í einum sprett.
Hannes Hafstein
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. Í dag,5. maí, er fimmtugur
Óskar Guðjónsson, Sóltúni
9, Reykjavík. Eiginkona
hans er Hervör Lúðvíks-
dóttir. Af því tilefni eru vin-
ir og ættingjar hjartanlega
velkomnir í sumarbústað
þeirra í Jötnagarðsási,
Munaðarnesi, á kosninga-
daginn 10. maí, milli kl. 14
og 18.
Reykjanesúrvalið hafði
14 IMPa forystu þegar
einu spili var ólokið í ein-
vígisleiknum gegn lands-
liði opna flokksins. Minna
hefur dugað til sigurs, en
síðasta spilið reyndist ör-
lagaríkt.
Vestur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ D10932
♥ 4
♦ K7532
♣43
Suður
♠ Á
♥ K65
♦ D
♣ÁKDG10976
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta Pass 1 spaði 3 grönd
Pass Pass Pass
Þannig gengu sagnir í
lokaða salnum, þar sem
Bjarni H. Einarsson og
Þröstur Ingimarsson voru
í NS. Bjarni var í suður og
fékk fiðring í magann þeg-
ar út kom tígull, en
drottningin átti slaginn og
Bjarni gat lagt upp 10
slagi: 630.
Í opna salnum lentu NS
í hrapallegum misskilningi
og enduðu í 5 spöðum
dobluðum. Það kostaði
1400 og landsliðið fékk því
2030 út úr spilinu og 19
IMPa. En setjum nú upp
skemmtilega þraut: Segj-
um að suður spili 5 lauf
eftir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta Pass 1 spaði 3 grönd
4 hjörtu Pass Pass 5 lauf
Dobl Pass Pass Pass
Vestur trompar út.
Hvernig á að spila?
Norður
♠ D10932
♥ 4
♦ K7532
♣43
Vestur Austur
♠ K4 ♠ G8765
♥ ÁG9732 ♥ D108
♦ Á1086 ♦ G94
♣2 ♣85
Suður
♠ Á
♥ K65
♦ D
♣ÁKDG10976
Eigi vestur á tvö lauf er
ekkert til bjargar. En ef
hann á einspil horfir málið
öðruvísi við. Suður spilar
tíguldrottningu í öðrum
slag. Vestur drepur og
gerir best í því að spila
spaða. Þá spilar suður
hjartakóng og tryggir
þannig að austur komist
ekki inn til að trompa aft-
ur út. Síðan má trompa
hjarta og henda öðru nið-
ur í tígulkóng.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3
dxe4 4. Rxe4 Rd7 5. Rg5
Rgf6 6. Bd3 e6 7.
R1f3 Bd6 8. De2 h6
9. Re4 Rxe4 10.
Dxe4 Rf6 11. De2
c5 12. dxc5 Bxc5 13.
O-O O-O 14. c4 b6
15. b3 Bb7 16. Bb2
De7 17. Had1 Hfd8
18. Re5 Kf8
Staðan kom upp á
alþjóðlegu móti sem
lauk fyrir skömmu í
New York. Eugene
Perelshteyn (2461)
hafði hvítt gegn
Leonid Yudasin
(2558). 19. Bg6! Dc7
20. Bxf7 Hxd1 21. Hxd1
Hd8 22. Hxd8+ Dxd8 23.
Bxe6 De8 24. Bf5 Kg8 25.
Bg6 Da8 26. Rd7 Re4 27.
Bxe4 Bxe4 28. Dg4 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
KIRKJUSTARF
Langholtskirkja. Ævintýraklúbburinn,
starf fyrir 7-9 ára börn, sem eru öll velkom-
in.
Laugarneskirkja. Vinir í bata, opinn spora-
fundur kl. 18. Umsjón Linda og Arnheiður.
12 spora hópar koma saman í dag kl. 20.
Umsjón Margrét Scheving sálgæsluþjónn.
(Sjá síðu 650 í Textavarpi.)
Neskirkja. 6 ára starf kl. 13.50 10-12 ára
starf kl. 16.30. Litli kórinn, kór eldri borg-
ara, þriðjudag kl. 16.30. Stjórnandi Inga J.
Backmann. Allir velkomnir.
Árbæjarkirkja. Kl. 15.15 TTT (starf 10-12
ára) í safnaðarheimilinu.
Fella- og Hólakirkja. Kl. 13-15.30 opið
hús fyrir fullorðna í safnaðarheimili kirkj-
unnar. Spilað, fræðst, kaffi og spjall.
Bænastund kl. 15.15 í kirkjunni. Fyrir-
bænaefnum má koma til djákna í síma
557 3280. Þeir sem óska eftir akstri láti
vita í sama síma fyrir hádegi á mánudög-
um. Stúlknastarf fyrir 11-12 ára kl. 17-18.
Æskulýðsstarf fyrir 8.-10. bekk á mánu-
dagskvöldum kl. 20.30.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk
kl. 20. Prédikunarklúbbur presta í Reykja-
víkurprófastsdæmi eystra er í Hjallakirkju
þriðjudaga k. 9-10.30. Umsjón Sigurjón
Árni Eyjólfsson.
Bessastaðasókn. TTT-starf fyrir 10-12 ára
drengi og stúlkur kl. 17.30-18.30 í stofu
104 í Álftanesskóla. Rúta ekur börnunum
heim að loknum fundi. Skemmtileg dag-
skrá. Mætum öll.
Lágafellskirkja. Heimsóknarþjónusta
kirkjunnar er í umsjá Þórdísar djákna,
símatími mánudaga kl. 16-18 í síma 566-
7113. Opinn bænahópur í Lágafellskirkju
kl. 20. Umsjón hefur Þórdís djákni. Al-
Anon-fundur í Lágafellskirkju kl. 21.
Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30-
16.30.
Akureyrarkirkja. Kirkjusprellarar, 6-9 ára,
kl. 16. Heimsókn á Dominos Pizza. TTT-
starf kl. 16. Heimsókn á Dominos Pizza.
ÆFAK, yngri deild, kl. 20.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
MEÐ MORGUNKAFFINU
Nei, stopp! Ekki gera þennan skratta – aftur!
Geturðu gefið mér hugmynd um af
hverju þú ert svona reið?
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík