Morgunblaðið - 05.05.2003, Qupperneq 32
32 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 3.45, 5.50, 8 OG 10.10. B.I. 16.
Kvikmyndir.is
kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i.14. / kl. 5.50, 8 og 10.10. b.I. 14. / kl. 10. B.i. 14. / kl. 10. B.i. 14.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI / KEFLAVÍK
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 5.55.Sýnd kl. 6 og 9.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.Sýnd kl. 5.50, 8, 10.10. B.i.14 ára.
Heimilda- og Stuttmyndahátíð
SV MBL
HK DV
SG Rás 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
Tvöfaldur
Óskarsverðlaunahafi,
Michael Caine í
stórbrotinni kvikmynd sem
byggð er á sígildri
skáldsögu Graham Greene.
Michael Caine var m.a.
tilnefndur til
Óskarsverðlauna fyrir
hlutverk sitt í myndinni.
Stevie
sýnd kl. 8
Biggie & Tupac
sýnd kl. 10
Ruthie & Connie
sýnd kl. 10.30
ÞAÐ eru hasarmyndirnar sem
best standa sig á Mynddiskalista
vikunnar. xXx er enn á toppi
listans yfir nýja útgáfu og pakk-
inn tvöfaldi með fyrstu Die Hard-
myndunum er að gera það gott í
hópi gullmola. Engin furða að
þær myndir skuli ganga vel á
mynddiski því þær lögðu um
margt línurnar í gerð hasar-
mynda samtímans.
Þar með er hasarinn á listunum
ekki upptalinn því gamli kóng-
urinn í þeirri deild, hann Arnold
Schwarzenegger, kemur askvað-
andi inn á listann með viðhafn-
arútgáfu á Rándýrinu, Predator,
og svo sjálfum Tortímandanum,
en eins og flestir ættu að vita
verður langþráð þriðja myndin í
þeim myndaflokki frumsýnd í
sumar.
Annars er tónlistin áberandi á
topplistanum. Moulin Rouge
stekkur hæst allra, Bítlasafnið
stóra selst enn mjög vel og vönd-
uð útgáfa af Rocky Horror Pict-
ure Show rennur jafnt og þétt út.
Heitar hasarmyndir
Arnold Schwarzenegger hnyklar vöðvana í Rándýrinu.
!"
#
#%
#%
"
#%
#%
#%
"
#%
#%
#%
& "
#'()
*
% " +,+
-+
#%
+
#
. + +#
.
. + +#
.
+
* !
/
"
"
"
"0
*/
*
#%
#%
#%
#%
#%
#%
#%
#%
#%
#%
&
'(
)*
+ ,
skarpi@mbl.is
HINIR stökkbreyttu hafa snú-
ið aftur og það með látum. Önnur
myndin um þá X2, eins og hún
kallast vestra, var heimsfrum-
sýnd hér á landi á miðvikudaginn
var við mikla eftirvæntingu. Fyrr
í vikunni, eða á mánudeginum,
kom, sumpartinn af því tilefni, í
verslanir ný sérstök viðhafnarút-
gáfa af fyrstu myndinni á mynd-
diski, útgáfa sem kallast X-Men
1.5.
Eðlilega vakna spurningar
vegna þessa titils. Hefur hann
eitthvað með
einhverja enn
eina nýtísku
hljóðrásina að
gera eða þá
það sem maður
er að vona,
nýja útgáfu af
fyrstu mynd-
inni, sem brúar
bilið milli
hennar og X2?
Seinna svarið er rétt, næstum
því. Þannig er að það stóð alltaf
til að á þessari nýju viðhafnarút-
gáfu yrði breytt útgáfa á mynd-
inni frá því í bíó, sem myndi eyða
meiri tíma í að kynna hina stökk-
breyttu til sögunnar, rifja upp
þegar þeir uppgötvuðu fyrst of-
urkrafta sína á unga aldri. Þess-
ar upptökur eru reyndar ekki til,
heldur ætlaði Bryan Singer leik-
stjóri myndanna að gera þær um
leið og hann gerði X2. Á síðustu
stundu var síðan hætt við allt
saman, af fjárhagsástæðum, Sin-
ger til töluverðrar gremja að tal-
ið er en honum hafði einmitt
fundist það stærsti gallinn á
fyrstu myndinni hversu lítinn
tíma hann gaf sér í kynningu á
ofurhetjunum.
En þeir hjá mynddiskadeild
Fox héldu samt nafni, fannst það
svo svalt, og réttlæta það nú með
þeim rökum að allt aukaefnið
sem fylgi með sé sannarlega góð-
ur einn og hálfur skammtur af X-
mennum. Ekki skal alveg gengið
svo langt að taka undir þá skýr-
inguna en það breytir því ekki að
aukaefnið er sannarlega ríflegt,
og í raun eitthvert það áhuga-
verðasta sem boðið hefur verið
uppá á mynddiski. Hann leynir
sér nefnilega ekki metnaðurinn
að baki útgáfunni og er skýringin
einföld. Bryan Singer var og hef-
ur alltaf verið einlægur bíóunn-
andi og hefur engan veginn
gleymt rótum sínum. Þannig hef-
ur hann lýst yfir að ekkert fari
meira í hans fínustu taugar en
þegar framleiðendur misnota
veikleika þessa hóps, t.d. þannig
að féfletta hann með því að reyna
að pranga upp á hann efni sem
hann þegar á. Eðlilega er Singer
því mjög umhugað að allar
mynddiskaútgáfur sínar sé í
hæsta gæðaflokki, að kaupand-
inn, bíóunnandinn, fái sem mest
fyrir peninginn. Þegar honum
tókst ekki að landa nýrri útgáfu
af myndinni lagði hann enn frek-
ari áherslu á þetta, að ef gefa
ætti út aðra útgáfu af mynd sem
þegar hefði komið út á mynd-
diski, fyrir ekki lengra síðan, þá
yrði hún að innihalda eitthvert
bitastætt efni. Hann lét hóa í
framleiðandann sem gerði Góð-
kunningja lögreglunnar (The
Usual Suspects) að einum eftir-
tektarverðasta mynddiski sem út
hefur komið, vin sinn Rob Meyer
Burnett, og saman tóku þeir
saman feitan pakka af efni sem
fyllir tvo diska.
Á þeim fyrri er efnið sem
aðdáendur myndarinnar söknuðu
svo sárt á fyrstu útgáfu hennar á
mynddiski – sem vel að merkja
var frekar hroðvirknislega unn-
inn og efnisrýr. Við erum að tala
um frábæra lýsingu Bryans Sing-
ers á gerð myndarinnar. Á fyrri
diskinum eru einnig afgangsat-
riði sem hægt er að horfa á sér,
eitt og eitt eða í einum rykk, eða
þá inni í myndinni sjálfri, er
reyndar klunnalega skeytt inn,
með góðri pásu á milli. Áhuga-
verðar senur samt sem áður og
græða mjög á lýsingum Singers,
sem ekki voru á fyrri útgáfunni.
Seinni diskinn er hægt að
horfa á í heild sem eina langa og
ítarlega heimildarmynd um gerð
myndarinar – mikið til eins og
fluga á vegg á tökustað – eða þá í
köflum. The Uncanny Suspect
inniheldur viðtöl við leikara en
þar kemur á daginn að nær eng-
inn þeirra hefur almennan áhuga
eða þekkingu á heimi mynda-
sagnanna. Einnig er athyglisverð
leikprufan með Hugh Jackman,
sem á endanum fékk hlutverk
náttúrlega Wolverine. Því næst
fær maður að kynnast hvernig
X-mennin voru færð af síðum
myndablaðsins upp á hvíta tjald-
ið, með hjálp förðunarsérfræð-
inga og brellumeistara.
Hápunktur seinni disksins er
svo Production Scrapbook, 64
mínútna „úrklippibók“, sem unn-
in er upp úr 60 klukkustundum
af efni sem höfundur sögunnar
og einn aðalframleiðandinn Tom
DeSanto tók á meðan gerð
myndarinnar stóð. Þarna fær
maður sanna mynd af því sem
gekk á, og gengur almennt á, á
tökstað. Allur hasarinn, rifrildið,
tilfinningaflæðið, ringulreiðin og
leiðindin – allt kemst til skila,
svolítið í anda Heart of Dark-
ness-myndar Eleanor Coppola,
sem fjallaði um martröðina sem
var gerð Apocalypse Now,
mannsins hennar. (Singer fannst
reyndar sjálfum of mikið klippt
burtu af neikvæðum atvikum).
Auðvitað er svo margt fleira á
diskinum, sem ekki er unnt að
gera skil hér, enda af nógu að
taka. Það má því svo sem vel
taka undir að hér sé á ferð einn
og hálfur skammtur af X-menn-
um.
Einn og hálfur
skammtur af X-mennum
Skarphéðinn Guðmundsson
X-Men 1.5, sérútgáfa af fyrstu myndinni
um ofurmennin, hefur verið gefin út á
mynddiski, og brúar að nokkru bilið milli
fyrri myndarinnar og hinnar seinni, sem
nú er sýnd í kvikmyndahúsum.
Með stjórn á veðuröflunum: Neistarnir fljúga frá óskarsverðlauna-
leikkonunni Halle Berry sem ofurmennið stökkbreytta, Storm.