Morgunblaðið - 28.06.2003, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.06.2003, Qupperneq 2
Fjögur fyrirtæki segja upp 45 starfsmönnum sínum FJÖGUR fyrirtæki og stofnanir, auk Norðurljósa segja upp alls 45 starfsmönnum nú um mánaðamót- in, að því er tilkynnt var í gær. Þetta eru Landspít- alinn – háskólasjúkrahús, Íslensk erfðagreining, Íslenskir aðalverktakar og Flugleiðir. Starfsmönnum á vistheimili Landspítala – há- skólasjúkrahúss í Gunnarsholti verður öllum sagt upp en boðin sambærileg vinna innan Landspít- alans. Að Gunnarsholti hefur verið hluti af end- urhæfingu á vímuefnahluta spítalans og hefur verið þar til margra ára. Átta starfsmenn eru í Gunn- arsholti, en starfsemin þar leggst af og flyst að hluta til í Arnarholt. Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landspítalans, segir að formsins vegna verði að segja starfsmönnunum upp. „Starfsmönnunum verður boðið annað starf innan spítalans. Starfsemin er í rauninni að flytjast til þannig að þeim verður væntanlega boðið svipað starf,“ sagði Anna Lilja í samtali við Morgunblaðið. Hún sagðist reikna með að starfseminni í Gunn- arsholti yrði hætt í haust. „Það er mjög óhagkvæmt að vera með litla starfsemi svona langt í burtu. Það hefur verið ákveðið að það sem eftir er af starfsem- inni í Gunnarsholti verði sameinað innan geð- sviðsins og mun væntanlega flytjast í Arnarholt. Með þessu er verið að bæta þjónustuna og hagræða í rekstri,“ segir Anna. Fjórtán sagt upp hjá Íslenskri erfðagreiningu Fjórtán starfsmönnum Íslenskrar erfðagrein- ingar var sagt upp í gærdag en uppsagnirnar gilda frá og með næstu mánaðamótum og taka til starfs- manna í mörgum deildum fyrirtækisins. Páll Magnússon, framkvæmdastjóri samskipta- og upplýsingasviðs, segir að þar með sé þeim upp- sögnum lokið, sem boðaðar voru í fyrrahaust sem liður í endurskipulagi og kostnaðarlækkun fyrir- tækisins, en frá þeim tíma hefur starfsmönnum fyrirtækisins á Íslandi fækkað um tvö hundruð manns. „Við greindum frá því í september að tvö hundr- uð starfsmönnum yrði sagt upp. Það tók af ýmsum ástæðum lengri tíma en gert var ráð fyrir í fyrstu en nú er þessu ferli lokið,“ segir Páll. Starfsmenn fyrirtækisins verða um 420 eftir að uppsagnirnar hafa tekið gildi, þar af um 300 á Íslandi. Uppsagnir hjá ÍAV vegna færri verkefna Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) sögðu í gær upp um tug starfsmanna hjá fyrirtækinu á Keflavík- urflugvelli. Árni Ingi Stefánsson starfsmannastjóri segir meginástæðuna þá að fyrirtækið sjái fram á samdrátt í verkefnum á svæðinu. Uppsagnirnar hafi verið nauðsynlegar, ekki síst til að tryggja áframhaldandi vinnu fyrir enn reyndari menn sem starfa hjá ÍAV á Keflavíkurflugvelli, en þar starfa um 270 af alls um 500 starfsmönnum Íslenskra að- alverktaka. Árni Ingi segir uppsagnirnar öðlast gildi um mánaðamótin og að viðkomandi starfsmenn hafi flestir þriggja til sex mánaða uppsagnarfrest. Mest sé um að ræða járniðnaðarmenn en einnig trésmiði og skrifstofumenn. Fækkað um 18 stöður hjá Flugleiðum Fækkað verður um átján stöðugildi á sölu- og markaðssviði Flugleiða á Íslandi með haustinu. Sagt verður upp þrettán starfsmönnum og fimm hætta af öðrum orsökum. Alls starfa um 140 manns á sölu- og markaðssviðinu og liðlega þúsund manns í fyrirtækinu öllu. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flug- leiða, segir að fækka þurfi fólki á söluskrifstofum félagsins í Kringlunni og Keflavík og um nokkur stöðugildi í Skútuvogi þar sem fjarsalan er m.a. til húsa. Hann segir ástæður fækkunar starfsmanna á þessu sviði einkum vera aukna sjálfvirkni í farmiða- sölu sem fari fram á netinu í síauknum mæli. Landspítalinn býður átta starfsmönnum í Gunnarsholti sambærileg störf innan spítalans FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ SKREF Í RÉTTA ÁTT Gert er ráð fyrir því að Ísraelar byrji eftir helgi að kalla herlið sitt frá Gaza-svæðinu og Vesturbakk- anum í samræmi við samkomulag sem náðist í gær milli ísraelskra og palestínskra embættismanna. Þá hafa leiðtogar Hamas, herskárra samtaka Palestínumanna, tilkynnt að þeir hyggist gera hlé á árásum á skotmörk í Ísrael. Vonir bundnar við nýtt lyf Miklar vonir eru bundnar við nýtt krabbameinslyf, Avastin, en sá vís- indamaður er þróað hefur lyfið er meðal fyrirlesara á ráðstefnu í Reykjavík um þessar mundir. Sig- urður Björnsson krabbameins- læknir segir að lyfið sé án efa eitt af stóru, nýju tíðindunum í heimi krabbameinslækninga í dag og geti átt eftir að gagnast mörgum. Ráðist á Bandaríkjamenn Bandaríkjamenn leituðu í gær tveggja bandarískra hermanna sem talið er að hafi verið rænt norður af Bagdad, höfuðborg Íraks. Einn bandarískur hermaður til viðbótar var felldur í gær og annar særður al- varlega. Mikil notkun bólgulyfja Söluverðmæti bólgueyðandi lyfja nam 570 milljónum króna hér á landi á síðasta ári, en var 194 milljónir ár- ið 1992. Aukin notkun á þessu sviði á jafnt við um ný og gömul lyf. Þannig er ríflega tvöfalt meiri notkun hér á svonefndum coxíb-lyfjum en annars staðar á Norðurlöndunum. Á sjötta tug uppsagna Kunngerðar voru í gær uppsagnir hjá nokkrum fyrirtækjum og stofn- unum sem alls snertu nærri 60 manns. Um var ræða 14 manns hjá Íslenskri erfðagreiningu, 13 hjá Norðurljósum, 13 hjá Flugleiðum, um tug hjá Íslenskum aðalverktök- um og átta á vistheimili Landspít- alans í Gunnarsholti. Thurmond látinn Bandaríski öldungadeild- arþingmaðurinn fyrrverandi, Strom Thurmond, lést í fyrrakvöld, 100 ára að aldri. Thurmond sat í öld- ungadeildinni í tæpa hálfa öld, leng- ur en nokkur annar maður. Hann bauð sig fram til forseta í kosning- unum sem haldnar voru 1948. L a u g a r d a g u r 28. j ú n í ˜ 2 0 0 3 Yf ir l i t Í dag Viðskipti 12 Menntun 32 Erlent 14/18 Umræðan 33 Höfuðborgin 18 Úr Vesturheimi 34 Akureyri 20 Minningar 36/39 Suðurnes 21 Myndasögur 42 Árborg 22 Bréf 42 Landið 22 Dagbók 44/45 Neytendur 23 Íþróttir 46/49 Heilsa 24 Fólk 50/53 Listir 25/26 Bíó 50/53 Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54 Viðhorf 32 Veður 55 * * * LEIKSKÓLINN Rjúpnahæð var vígður við hátíðlega athöfn í gær, en skólinn stendur við Rjúpnasali í Kópavogi. Við vígsluna sungu leikskólabörnin úr Rjúpnahæð, auk þess sem Halla Halldórsdóttir, for- maður leikskólanefndar, og Hrönn Valentínusdóttir leikskólastjóri héldu ávörp. Þá blessaði séra Guð- mundur Karl Ágústsson húsið og starfið. Bæjarsjóður Kópavogs er framkvæmdaaðili að verkinu. Húsið er á einni hæð, leikrýmið er 445 fer- metrar og stærð lóðar er 5.164 fermetrar. Heild- arkostnaður við húsið er áætlaður 130 milljónir króna og heildarkostnaður við lóðina 25 milljónir króna. Í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að í leikskól- anum Rjúpnahæð séu sex deildir, tvær fyrir tveggja og þriggja ára börn og tvær fyrir fjögurra og fimm ára börn. Alls dvelja í leikskólanum um 130 börn í 119 rýmum, en leikskólastjóri er Hrönn Valentínusdóttir. Stöðugildi leikskólakennara eru 19,75, en í eldhúsi eru 1,75 stöðugildi. Auk þess eru starfsmenn við ræst- ingar Leikskólinn tók til starfa vorið 2002 og fyrstu börn- in komu í skólann 1. júlí 2002, þótt formleg vígsla hafi verið í gær. Leikskólinn Rjúpnahæð er í Salahverfi og stendur í útjaðri Kópavogsbæjar. „Umhverfið býður upp á mikla fjölbreytni. Annars vegar er ósnortin náttúra með miklu fuglalífi og hins vegar miklar byggingaframkvæmdir stórra háhýsa sem eru að rísa. Við eina hlið leikskólans liggur reiðvegur þar sem börn og starfsfólk njóta þess að sjá hesta þjóta hjá,“ segir í tilkynningunni. Þá segir jafnframt að deildir skólans beri allar fuglanöfn. Yngri deildirnar heita Þrastarhreiður, Lóuhreiður og Spóahreiður, en eldri deildirnar Krummahreiður, Álftahreiður og Arnarhreiður. Ein- kunnarorð leikskólans eru „náttúra og listir“, en í leikskólanum er unnið út frá sjálfræði barnanna. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Leikskólinn Rjúpnahæð vígður Davíð Oddsson til Svíþjóðar DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra fer utan til Svíþjóðar í dag þar sem hann mun sitja fund forsæt- isráðherra Norður- landa, sem stendur yfir á morgun og mánudag í bænum Harpsund. Með Dav- íð í för verða eiginkona hans, frú Ástríður Thoraren- sen, Ólafur Davíðsson, ráðu- neytisstjóri í forsætisráðuneyt- inu, og Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður Davíðs. Að sögn Illuga verða ýmis sameiginleg hagsmunamál Norðurlandanna rædd á fund- inum, m.a. samstarf við önnur Evrópulönd og samskiptin við Rússa, og þá mun Davíð eiga framsögu í umræðum um sam- skipti Norðurlandanna og Bandaríkjanna. Davíð Oddsson 13 sagt upp hjá Norðurljósum ÞRETTÁN manns var sagt upp störfum hjá Norðurljósum í gær en að sögn Sigurðar G. Guðjónssonar forstjóra eru uppsagnirnar tilkomnar vegna skipulagsbreytinga. Sex þeirra sem sagt var upp voru tæknimenn við fyrirtækið og sjö störfuðu við frétta- stofu, þar af fimm sem eru í Blaðamanna- félagi Íslands. Róbert Marshall, formaður Blaðamannafélagsins, segir þetta mikið reiðarslag fyrir félagið. Allir starfsmennirnir sem sagt var upp á fréttastofu eru konur. „Því miður er þetta niðurstaðan,“ segir Sigurður. „Hlutfall kvenna á fréttastofunni mætti vera betra. Svona lágu uppsagnirnar í dag. Það er bara verið að búa til nýja verkferla, ekkert verið að dæma neinn úr leik.“ Uppsagnirnar áhyggjuefni Róbert Marshall segir það mikið áhyggju- efni að einungis konum sé sagt upp á vinnu- stað þar sem hallar á konur. „Það er gagnstætt öllu því sem við þekkj- um í okkar samfélagi árið 2003 að segja ein- göngu konum upp. Það er einnig áhyggju- efni að bæði DV og Stöð 2 hafa verið að segja upp okkar félagsmönnum. Sem vinnu- félagi þessa fólks segi ég að það er af- skaplega sárt að horfa á eftir því. Blaða- mannafélagið er boðið og búið að aðstoða þetta fólk. Í fljótu bragði virðist mér hafa verið staðið löglega að þessum uppsögnum. Maður hlýtur að spyrja hvort íslenska ríkið ætli að halda áfram að vera í samkeppni við frjálsa ljósvakamiðla á auglýsingamarkaði,“ segir Róbert. LÖGREGLAN í Reykjavík handtók í gær mann sem grunaður er um fjögur innbrot í heimahús í vesturbæ og miðbæ Reykjavíkur. Að sögn lög- reglu fannst þýfi úr innbrotunum á ýmsum stöðum í bænum þar sem hann hafði falið það en þetta voru að- allega skartgripir og ýmislegt annað lauslegt. Braust inn í fjórar íbúðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.