Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 21
NÝVERIÐ lauk fyrsta áfanga í
endurgerð Hafnargötu, sem er að-
alverslunargata bæjarins. Í þessum
fyrsta áfanga var tekinn götukafl-
inn frá horni Tjarnargötu að horni
Aðalgötu. Skipt var um jarðveg,
lagnir endurnýjaðar og gatan
hellulögð, auk þess sem ljósastaur-
ar voru endurnýjaðir og blóma-
kerjum komið fyrir. Gatan hefur
fengið nýtt og glæsilegt útlit en
áætlað er að endurgerð götunnar
verði að fullu lokið fyrir ljósanótt
á næsta ári. Hins vegar er stefnt
að því að ljúka næstu tveimur
áföngum fyrir komandi ljósanótt í
septemberbyrjun, en það er kafl-
inn frá horni Aðalgötu og norður
fyrir Duus-hús, að Gróf.
„Ég er mjög ánægð með þessar
breytingar á Hafnargötunni og ég
gat ekki betur heyrt á fundi kaup-
manna í Reykjanesbæ fyrir
skömmu en þeir væru sama sinn-
is,“ sagði Sirrý Þorsteinsdóttir,
verslunarstjóri og eigandi Útivist-
ar og sports í samtali við Morg-
unblaðið.
Aukin umferð og
miðbæjarstemning
Endurnýjun Hafnargötu er
óneytanlega mikið rask fyrir fyr-
irtækjaeigendur en að sögn Sirrý-
ar hafa menn einblínt á jákvæðu
hliðina. „Þetta er búið að vera erf-
iður tími og framkvæmdirnar hafa
bitnað illa á mörgum. Fyr-
irtækjaeigendur eru hins vegar
mjög sáttir því gatan er orðin
mjög skemmtileg og á eftir að
verða glæsileg þegar þessu verður
lokið.“
Sirrý sagðist merkja aukna um-
ferð við götuna, enda væru bæj-
arbúar ekki síður ánægðir með
þessar breytingar. „Þetta er mikill
meðbyr og nú erum við fyr-
irtækjaeigendur með í bígerð að
stofna miðbæjarsamtök, þar sem
m.a. verður rætt að hafa reglulega
uppákomur í miðbænum,“ sagði
Sirrý að lokum en þess má geta að
stofnfundur samtakanna verður á
Ránni n.k. mánudagskvöld kl. 20.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Ný og falleg umgjörð Hafnargötunnar gæðir miðbæ Keflavíkur sannkölluðum miðbæjarblæ.
Stefnt er að
stofnun mið-
bæjarsamtaka
Keflavík
MIKILL erill hefur verið í
framkvæmdum í Garði undan-
farið og sér ekki fyrir endann
á því. Verið er að byggja tíu
íbúðir fyrir aldraða við hjúkr-
unarheimilið Garðvang í Garði.
Þær verða brátt auglýstar
lausar til umsóknar og ganga
íbúar sextíu og sjö ára og eldri
fyrir. Tekið verður á móti
formlegum umsóknum frá og
með mánudeginum 14. júlí nk.
og reiknað með að íbúðirnar
verði afhentar fullfrágengnar
fyrsta nóvember næstkom-
andi.
Sigurður Jónsson, sveitar-
stjóri Gerðahrepps, segir mik-
inn framkvæmdaanda vera í
fólki og hraða uppbyggingu
eiga sér stað í Garði. „Búmenn
eru að byggja nýjar íbúðir fyr-
ir fimmtíu ára og eldri. Þegar
hefur verið flutt inn í tíu
þeirra, fjórar verða afhentar
um miðjan júlí en sex í febrúar
á næsta ári. Auk þess er allt á
fullu í stórátaki við lagningu
gangstétta og malbikun gatna.
Einnig er mikið um að bæði
einstaklingar og verktakar séu
að byggja sér íbúðarhús hér
og eru nú í byggingu um 40
einkaíbúðir.“
Fram-
kvæmda-
gleði og
uppbygging
Garður