Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 49 „VIÐ munum auðvitað reyna að fá ekki á okkur mark en við getum ekki leyft okkur að mæta til leiks með það eitt að markmiði að leggjast í vörn. Það verður einnig sóknarleikur á okkar dagskrá gegn Sloboda Tusla,“ sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari og leikmaður KA frá Ak- ureyri, í gær en KA tekur á móti bosníska liðinu í Intertoto-keppninni í dag á Akureyri og hefst leikurinn kl. 15 á Akureyrarvelli. Fyrri leik lið- anna í Bosníu lauk með jafntefli, 1:1, þar sem Nusret Muslimovic, fyrirliði Sloboda Tusla, skoraði úr vítaspyrnu á 81. mínútu en Hreinn Hringsson skoraði gríðarlega mikilvægt mark fyrir KA er hann jafnaði leikinn skömmu eftir að heimamenn komust yfir. Þorvaldur sagði að Tusla væri sterkara lið en KA en sterkur varn- arleikur á útivelli hefði komið liðinu í góða stöðu fyrir síðari leikinn á Akureyri. „Við vissum ekk- ert um þetta lið er við fórum í fyrri leikinn og ég get ekki sagt að við höfum legið mikið yfir þeirra leikaðferðum í undirbúningi okkar fyrir leikinn sem fram fer í dag. Það er samt sem áð- ur ljóst að þetta er gott lið og við þurfum að leika vel ef við ætlum okkur að komast áfram í þessari keppni.“ Það eru 13 ár frá því að KA lék síðast í Evrópukeppni en þá mætti liðið CSKA frá Moskvu. „KA leikur ekki Evrópuleiki á hverju ári og því eru þessi verkefni ákaflega mikilvæg fyrir alla sem koma að þessu félagi. Ég vona að okkar stuðningsmenn sýni okkur stuðning með því að mæta á völlinn.“ Dean Martin verður í liði KA á ný eftir að hafa verið frá vegna meiðsla og Þorvaldur Makan Sig- björnsson verður einnig klár í slaginn en hann lék ekki með í 2:1 tapleik liðsins gegn Val á dög- unum vegna leikbanns. „Sóknarleikur verður einnig á okkar dagskrá“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Elmar Dan Sigþórsson, leikmaður KA, verður í eldlínunni með félögum sínum gegn Sloboda Tuzla. RÚNAR Sigtryggsson, landsliðs- maður í handknattleik, hefur ákveðið að ganga til liðs við þýska 1. deildarliðið Wallau Massenheim á næstu leiktíð, en Rúnar hefur sl. ár leikið með Ciudad Real á Spáni. Rúnar varð spænskur bikarmeist- ari, í sigurliði EHF-keppninnar og í öðru sæti í spænsku deildinni á ný- liðinni leiktíð. Rúnar, sem átti eitt ár eftir af samningi sínum við Ciudad, gerði eins árs samning við Wallau, en með félaginu leikur m.a. Einar Örn Jónsson, horna- og landsliðsmaður. Wallau er eitt af þekktari liðum í þýsku deildinni. Það hafnaði í 9. sæti í deildinni á síðustu leiktíð. Rúnar hefur áður leikið í Þýska- landi, lék þá með Göppingen. Rúnar til Wallau Í GÆRKVÖLD var dregið í riðla í Slóveníu fyrir úrslit Evr- ópukeppni landsliða í hand- knattleik karla, en keppnin fer fram þar í landi 22. janúar–1. febrúar á næsta ári. Ísland er í C-riðli en liðin sem komast upp úr þeim riðli mæta liðunum sem komast úr D-riðli í milliriðlum. A-riðill Sviss, Rússland, Svíþjóð og Úkraína. B-riðill Króatía, Spánn, Danmörk og Portúgal. C-riðill Ungverjaland, Tékkland, Ís- land og Slóvenía. D-riðill Pólland, Frakkland, Þýska- land og Júgóslavía. Íslend- ingar stál- heppnir Stórleikur átta liða úrslitabikar-keppni kvenna fór fram í Vest- mannaeyjum í gærkvöldi þegar bik- armeistaralið KR kom í heimsókn. Lið- in mættust í deild- inni á mánudag þar sem KR hafði mikla yfirburði og sigraði örugglega. Það var ljóst frá fyrstu mínútu að Eyja- liðið ætlaði ekki að láta það henda aftur og náði það tökum á leiknum strax í byrjun og vann leikinn 4:2. Þóra Helgadóttir, markvörður KR, átti skot í þverslána frá miðju á sjöundu mínútu en tveimur mínútum síðar skoraði Olga Færseth fyrsta mark leiksins. Hrefna Jóhannes- dóttir, KR, rak stóru tána í boltann á 26. mínútu og fór hann í fjærhornið, 1:1. Heimamenn tóku miðju, brunuðu fram, boltinn barst til Karen Burke sem lék sig í gegnum vörn KR og setti boltann yfir Þóru. Glæsilega gert. Þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka lentu Ásthildur Helgadótt- ir og Rachel Brown í harkalegu sam- stuði sem endaði með því að Ásthild- ur var flutt á sjúkrahúsið í Eyjum með stóran skurð á höfði. Á 77. mín- útu jók ÍBV svo forskot sitt þegar Olga Færseth var ekki í vandræðum með að skora og bætti við þriðja markinu. Það dró svo til tíðinda á 88. mínútu þegar Anna Berglind Jóns- dóttir minnkaði muninn fyrir KR þegar hún fylgdi eftir skoti Hrefnu í stöng Eyjamarksins. Gestirnir sáu nú von og lögðu allt kapp á að jafna metin og eftir eina slíka sókn barst knötturinn fram völlinn þar sem Olga var ein og yfirgefin, enginn varnarmaður KR nálægt og tók hún sér góðan tíma í að fullkomna þrenn- una gegn sínum gömlu félögum og gulltryggja sigur ÍBV. Olga Færseth, fyrrverandi leik- maður KR, var sínum gömlu fé- lögum erfið í gærkvöld, hún var kampakát að leikslokum og sagði leikinn algjör umskipti frá því á mánudag þegar KR sigraði ÍBV örugglega í deildinni 3:0. „Eftir frek- ar dapran síðasta leik, þar sem við vorum hreinlega ekki með, þá ákváðum við að spýta í lófana og gera betur. Tala nú ekki um mig per- sónulega, en ég átti ekki einu sinni skot á markið í Vesturbænum. Nú var annaðhvort að duga eða drepast og þú sást hversu vel stemmdar við vorum frá fyrstu mínútu.“ Olga Færseth afgreiddi KR Sigursveinn Þórðarson skrifar Íslenska liðið leikur leiki sína íCelje og verður fyrsti leikur liðs- ins gegn heimamönnum þann 22. janúar, þann 23. er leikið gegn Ungverj- um og 25. janúar gegn Tékkum. Þrjú efstu liðin úr riðlun- um fjórum komast áfram í milliriðla og gæti Ísland leikið í milliriðli gegn Frökkum, Þjóðverjum og Júgóslöv- um sem eru í D-riðli. „Við erum ekki búnir að setjast al- mennilega niður og fara í gegnum okkar möguleika gegn þessum liðum en við fyrstu sýn eru þessi lið mjög jöfn. Það er mjög erfitt að ráða í það hvaða möguleika við eigum gegn þessum liðum en ég veit að við getum unnið öll þessi lið en við getum líka átt í vandræðum gegn þeim. EM er erfitt mót,“ sagði Einar í gær þar sem hann var í sumarbústað á Norð- urlandi. Ísland var í fyrsta styrkleikaflokki þegar dregið var í riðla ásamt Evr- ópumeistaraliði Svía, Þjóðverjum og Dönum. Tékkar eru í öðrum styrk- leikaflokki, Slóvenar í þeim þriðja og Ungverjar í fjórða. Slóvenar fengu að velja sér riðil þegar búið var að draga úr 1., 2. og 4. styrkleikaflokk- unum og töldu forráðamenn liðsins C-riðilinn vera vænsta kostinn. Líkamsástandið kannað Einar sagði að undirbúningur liðs- ins fyrir EM yrði hefðbundinn og lít- ill tími gæfist til þess að koma lands- liðinu saman. „Við munum gera mælingar á líkamsástandi leikmanna í september, leikum gegn Pólverjum um mánaðamótin október-nóvember en landsliðshópurinn kemur saman rétt fyrir jólahátíðina. Þannig að þetta verður hefðbundið og byggt á gömlum grunni að venju,“ bætti Ein- ar við en leikmenn m.a. úr þýsku deildinni munu koma síðastir allra til móts við íslenska hópinn í desember. Tvö stórmót framundan Spurður um innri markmið þeirra sem standa að íslenska landsliðinu í handknattleik fyrir EM sagði Einar að tvö stórmót væru á næsta ári hjá íslenska liðinu. „Það verður erfitt að ná hámarksárangri hjá landsliðinu á tveimur stórmótum en þá er ég ekki að segja að það sé ekki hægt. Við mætum alltaf til leiks til þess að gera betur en á síðasta móti og verða betri sem landslið en ég held ég kjósi að tjá mig ekki um markmið okkar á þessari stundu – það kemur að því þegar nær dregur,“ sagði Einar Þor- varðarson í sumarblíðunni á Norður- landi. Einar Þorvarðarson telur möguleika Íslendinga ágæta á EM gegn Tékkum, Slóvenum og Ungverjum Morgunblaðið/RAXGuðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari, brosandi eftir viðureign við Júgóslavíu á EM, ásamt nokkrum leikmanna sinna – Guðjón Valur Sigurðsson, Dagur Sigurðssson, Sigurður Bjarnason og Ólafur Stefánsson. „Getum unnið öll þessi lið“ DREGIÐ var í riðla í gær fyrir úrslitakeppni Evrópumóts karlalands- liða í handknattleik sem fram fer í Slóveníu í janúar á næsta ári og er Ísland í C-riðli ásamt Tékkum, Slóvenum og Ungverjum. Einar Þorvarðarson, aðstoðarlandsliðsþjálfari og framkvæmdastjóri HSÍ, sagði í gær að menn þar á bæ væru sáttir við þessa niðurstöðu en hefðu þó kosið að fá Sviss í stað Ungverjalands úr fjórða styrk- leikaflokknum. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.