Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ                                           BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. NÚ AFPLÁNAR maður dóm fyrir að nýta sér aðstöðu sína til að greiða sjálfum sér vangoldin laun, að eigin mati. Þessi áhugaverði dugn- aðarforkur taldi sig lágt metinn og greip til ör- þrifaráða. En það er ekki sama hver er, þegar við lög og rétt er að eiga. Annar maður hafði, með óskiljanlegum en þó eiginlega lög- legum hætti, fengið úr opinberum sjóðum margfalda upphæð hins. Þar að auki lét hann fyrirtæki í eigu þjóðarinnar borga háa reikninga fyrir sig sem honum bar sjálfum að greiða. Hvernig honum tókst að komast hjá því að gjalda fyrir slíkt en ekki hinum er fleirum en mér hulið. Þessi snjalli samningamaður vafði ráðherrum og öðrum pólitík- usum um fingur sér eins og þroskuð kona barnungum friðlum. Á eftir var hann fenginn af ríkisstjórnini til að semja fyrir hennar hönd við þá sem hann hafði þvælst hvað mest fyrir í gegnum tíðina. Öldruðum, fyrrver- andi verkamönnum, gat ekki verið valinn verri kostur, enda uppskáru þeir eftir því. Enn er þessi maður í sviðsljósinu að semja um kaup og kjör og gengur svo vel að gamlir verkalýðspostular missa sjónir á hvaða málstaður umbjóðenda þeirra er fyrir bestu. Svo er það útaf fyrir sig þjóðfélagsleg ráðgáta að þessi bragðarefur blómstri í verkefnum fyrir þá sem vita að hann reynir að gera hlut þeirra sem minnstan. Bragðvísi á ekki að geta gengið endalaust upp ef hún veldur öllum öðrum vandræðum en refnum sjálf- um. Það er ekki sama í hverju snilld- in fellst og margir slíkir eru þjóðinni dýrari og gefa verra fordæmi en sá sem ég nefndi í byrjun, því þar er dæmið ljósara. Eigingirni virðist mörgum eðlilegri en sanngirni og réttlæti. Um þessar mundir blómstrar fjölbreytt misrétti og mis- ferli í samfélagi okkar af þvílíkum krafti að undrum sætir. Á Íslandi geta menn orðið auðugir af því að arðræna fyrirtæki, stofnanir og eig- inlega hvern sem er á löglegan hátt. Það virðist næstum enginn vandi. Þó þarf til þess algjört virðingarleysi fyrir öðrum og magnað siðleysi. Græðgin, undirrót næstum alls sem miður fer í samskiptum manna, hef- ur í gegnum tíðina verið þeirra helsta einkenni og ódauðlegur fylgi- nautur. Í gegnum lífsins ólgusjó, allt þar til dauðinn aðskilur þá frá gull- inu, skal græðgin fylgja þeim. Því miður eru dæmin óteljandi um vesa- linga komna að fótum fram fyrir ald- urs sakir og krankleika, sem halda dauðans hönd um milljónirnar sínar og vilja meira og meira. Svo skelfi- lega tilgangslausu og hugsjóna- snauðu lífi hlýtur að fylgja andleg martröð og sálarkvöl. Ég hef fylgst með hvernig einstaklingar kaupa banka og önnur fyrirtæki sem áhrif og peningar fylgja og öðlast þannig völd til góðs eða ills, allt eftir hvað hagnast þeim og hvernig þeir eru gerðir. Þegar auðmenn eru farnir að hafa afgerandi áhrif á þjóðþing og jafnvel farnir að koma í stað þjóð- kjörinna fulltrúa er mál að þjóð vakni. Þegar samherjamaður seldi hlut sinn í fyrirtækinu fyrir rúma þrjá milljarða (hlutur sem að mestu var sannanlega eign þjóðarinnar) skoraði ég á hann í blaðagrein, að gefa þriðjung í barnaspítala. Hann kaus frekar að byggja kaupmang- arahöll úr gleri. Það sorglega er, að þjóð mín á of marga sem skarta skrautfjöðrum á hennar kostnað. Þar skilur á milli gæfu og gjörvu- leika. En það eru ljós í tilverunni. Á Skjá einum voru framúrskarandi manneskjur ársins kosnar og var önnur þeirra Ingibjörg Ósk Óladótt- ir, starfskona hjá Grensási. Hjá henni skiptir manneskjan meira máli en peningar og skrautfjaðrir. Manneskjur eins og Inga gefa lífinu gildi. ALBERT JENSEN, Sléttuvegi 3, 103 Reykjavík. Löglegt en siðlaust Frá Alberti Jensen: ÉG LAS bréf Kristínar Michelsen til blaðsins 26. júní sl. þar sem hún fjallaði um reynslu sína af íslenska réttar- og heilbrigðiskerfinu. Vegna reynslu minnar af ýmsu í kerfinu dettur mér ekki í hug, Krist- ín, að efast um eitt einasta orð sem þú segir. Ég hvet þig til að láta ekki deigan síga og halda áfram að tjá þig um þessi mál opinberlega því margt má betur fara og ýmsir gætu notið góðs af. Ef við mæður á Íslandi berjumst ekki fyrir réttlæti handa börnum okkar sem ung hafa þurft að horfast í augu við alvarlega lífsreynslu, þá gerir enginn það. Stöndum saman, mæður, og látum ekki kerfiskarla valta yfir lögbundin mannréttindi barna okkar með fyr- irlitningu, eins og börnin séu einskis verð. AUÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR, Nesbala 56, Seltjarnarnesi. Stöndum saman, mæður Frá Auði Guðjónsdóttur:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.