Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 47 Golfklúbbur Sandgerðis Kirkjubólsvöllur Minningarmót Sigurðar Bjarnasonar sunnudaginn 29. júní Ræst verður út frá kl. 09.00 til 11.00 og frá kl. 13.20 til 15.20 Skráning er á www.golf.is/gsg eða í síma 423 7802 Hl. m/án. Hámarks forgj.: Ka. 24 - Ko. 28 „Glæsileg verðlaun“ Styrktaraðilar mótsins eru: Útisport Keflavík - Óskin KE - Sjáfarmál ehf. Láttu sjá þig - Mótanefnd GSG ALÞJÓÐA knattspyrnusambandið, FIFA, ákvað í gær að höfðu samráði við forvíg- ismenn knattspyrnumála í Kamerún að úr- slitaleikur Frakklands og Kamerún í Álfu- keppninni í knattspyrnu fari fram í París á sunnudaginn þrátt fyrir andlát Marc Viviens Foes, landsliðsmanns Kamerún. Foe var úrskurðaður látinn síðdegis í fyrra- dag skömmu eftir viðureign Kamerún og Kól- umbíu í undanúrslitum, en hann missti skyndi- lega meðvitund á 72. mínútu leiksins þar sem hann stóð á miðjum leikvellinum. Í fyrrakvöld var talið að ekkert yrði af úrslitaleiknum vegna fráfalls Foes en nú hefur verið ákveðið að halda óbreyttri áætlun. Sepp Blatter, forseti FIFA, heimsótti leik- menn Kamerún í gær á hótel þeirra í Lyon, þar sem leikurinn í gær fór fram. Hann vottaði þjálfurum, leikmönnum og öðrum aðstand- endum landsliðs Kamerún samúð sína. Áður hafði hann haft samband við fjölskyldu Foes í sömu erindagjörðum. Vegna fráfalls Foes verða fánar Kamerún og FIFA í hálfa stöng í Lyon í dag. Þá var þeirri hugmynd velt upp í gær að í framtíðinni verði Álfukeppnin nefnd eftir leik- manninum. Númer 23 ekki notað framar Leikmenn Manchester City leika ekki í treyju númer 23 í framtíðinni. Verður það gert til þess að minnast Marc Viviens Foes, leik- manns liðsins, en hann klæddist treyju númer 23 í leikjum liðsins á síðustu leiktíð. Foe var í leigu hjá Manchester City á síðustu keppnistíð og þótti standa sig vel, skoraði m.a. níu mörk, þar á meðal það síðasta sem það skoraði á sín- um fornfræga Maine Road-leikvangi. Frá því snemma í gærmorgun var stöðugur straumur stuðningsmanna Manchester City að höfuðstöðvum félagsins þar sem þeir minntust Foe með því að skilja eftir blóm, keppn- ispeysur, myndir, kort og ýmsa hluti í minn- ingu hans. Úrslitaleikurinn fer fram Reuters Sepp Blatter, forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins, heimsótti leikmenn Kamerún í gær þar sem haldin var stutt athöfn til minningar um Marc Vivien Foe. PÉTUR Marteinsson, leikmaður Stoke City, er undir smásjánni hjá sænsku úrvalsdeildarlið- unum Hammarby og Djurgården samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Pétur sagði í samtali í gær að hann hefði heyrt af áhuga þessara liða en vissi ekk- ert frekar þar sem hann hefur verið í sumarfríi og ekki sett sig í samband við forráðamenn Stoke City eða umboðsmann sinn. Pét- ur er öllum hnútum kunnugur hjá Hammarby því hann lék með liðinu á árunum 1996–1998 við góðan orðstír. Leikmaðurinn heldur út til Englands til æfinga hjá Stoke City eftir helgi. Pétur undir smásjá sænskra félaga  ALEKSANDAR Linta sem samdi við knattspyrnulið ÍA þann 31. maí sl. mun koma til Íslands á mánudag en umsókn hans um atvinnuleyfi hér á landi tók töluverðan tíma en nú hefur leikmaðurinn fengið atvinnu- leyfi hér á landi. Ólafur Þórðarson, þjálfari Skagamanna, sagði í gær að Linta kæmi til landsins á mánudag- inn en ekki væri víst að hann yrði í leikmannahópi liðsins á þriðjudag er ÍA mætir liði Keflavíkur í 16-liða úr- slitum VISA-bikarkeppninnar.  LINTA hefur beðið í Júgóslavíu á meðan umsókn hans um atvinnuleyf- ið var enn í vinnslu en hann lék áður með ÍA árið 1997 og hann var einnig í herbúðum Skallagríms árið 1999.  SAMKVÆMT frétt norska staðar- blaðsins Romerikes Blad er allt útlit fyrir að leikmenn norska úrvals- deildarliðsins Lilleström verði að taka á sig töluverða launalækkun að loknum sumarleyfum knattspyrnu- manna í júlí. Rekstraráætlanir fé- lagsins hafa ekki gengið eftir og nú er ljóst að um 44 milljónir ísl. kr. vantar upp á að endar nái saman á yfirstandandi rekstrarári. Með Lille- ström leika fjórir íslenskir leikmenn, Ríkharður Daðason, Davíð Viðars- son, Indriði Sigurðsson og Gylfi Einarsson.  SLITNAÐ hefur upp úr samninga- viðræðum umboðsmanns Pauls Rob- insons, markvarðar Leeds, og for- svarsmanna Aston Villa. Kaup Aston Villa á markverðinum eru þar með í óvissu þrátt fyrir að félögin hafi komist að samkomulagi um kaupverð, þ.e. 3 millj. punda, nærri 400 millj. króna.  VAHID Halilhodzic, þjálfari Paris SG, hefur svo gott sem staðfest að Ronaldinho verði ekki í herbúðum félagsins á næstu leiktíð. Fjárhagur Parísar-liðsins er ekki upp á marga fiska og m.a. á þeim forsendum get- ur félagið ekki vísað á bug tilboðum í Brasilíumanninn. Manchester Unit- ed og Barcelona þykja líklegir kaup- endur. FÓLK Það er svipað ástand hjá Cleve-land og var árið 1984 er Bulls fengu Jordan í sínar raðir. Cavaliers vann aðeins 17 leiki af 82 leikjum liðsins á síðustu leiktíð líkt og Denv- er Nuggets en þessi tvö lið voru án vafa slökustu lið deildarinnar en 29 lið eru í NBA. LeBron James hefur aldrei leikið sem atvinnumaður, hann hefur aldr- ei farið í háskóla né leikið með há- skólaliði enda er drengurinn aðeins 18 ára gamall, fæddur 30. desember árið 1984, og lauk námi við miðskóla í byjun sumars. Hann er rétt rúmir 2 metrar á hæð, líkamlega sterkur, stekkur hátt, hittir vel og íþrótta- maður af bestu gerð. Undanfarin tvö ár hefur mikið verið fjallað um Le- Bron í Bandaríkjunum þar sem út- sendarar NBA-liða fylgdust með hverri hreyfingu hans þegar hann lék með St. Vincent-St. Mary-skóla- liðinu. Aldrei áður hefur leikmaður sem kemur beint úr miðskóla vakið eins mikla athygli, en áður höfðu leik- menn á borð við Kobe Bryant (Lak- ers), Kevin Garnett (Minnesota) og Tracy McGrady (Orlando) farið beint úr miðskóla í „alvöruna“ í NBA. Nú þegar er LeBron James vell- auðugur þrátt fyrir að reglur NBA kveði á um að hann geti „aðeins“ fengið rúmar 260 milljónir ísl. kr. í laun á ári frá Cavaliers fyrstu þrjú árin. Nike hefur þegar samið við Le- Bron James þar sem hann fær 6,5 milljarða ísl. kr. fyrir að nota skó frá fyrirtækinu og þeir sem best þekkja til segja að ekki verði langt þangað til LeBron James fái andvirði 7,3 milljarða ísl. kr. á ári í formi auglýs- ingasamninga – líkt og kylfingurinn Tiger Woods. LeBron James er nú þegar á allra vörum í Bandaríkjun- um án þess að hafa glímt við erfitt keppnistímabil í atvinnumannadeil í mjög slöku liði. „Táningarnir“ áberandi LeBron virðist samt sem áður vera jarðbundinn enn sem komið er en skömmu eftir valið sagði hann að umstangið vegna komu hans í NBA væri að vissu marki ágætt en hann benti á að hann hefði enn ekki leikið eina mínútu gegn bestu leikmönnum heims. „Ég veit að ég á eftir að sanna mig í NBA og ég get ekki beðið eftir því að leiktímabilið hefjist þar sem ég mun aðstoða við að ná Cleveland á flug á ný,“ sagði LeBron James m.a. Það voru táningar sem einokuðu efstu sætin í nýliðavalinu þar sem Darko Milicic fer til Detroit Pistons, Carmelo Anthony til Denver Nug- gets og Chris Bosh til Toronto Rapt- ors. Þetta er í annað sinn á sl. þremur árum sem leikmaður er valinn fyrst- ur beint úr miðskóla, árið 2001 var það Kwame Brown sem leikur með Washington Wizards en hann hefur enn ekki látið mikið að sér kveða í deildinni. Jón Arnór komst ekki að Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson var á meðal þeirra sem gáfu kost á sér í nýliðavalið en hann var ekki í hópi þeirra sem kom- ust að í þessu vali. Jón Arnór lék með TBB Trier á sl. leiktíð. Jón Arnór getur því ekki gefið kost á sér aftur í nýliðavalið en hann getur hins vegar komist að sem leikmaður í NBA- deildinni með öðrum hætti í framtíð- inni, sem samningslaus leikmaður eins og það kallast. LeBron á að verða „kóngur“ FYRSTI valréttur í nýliðavali NBA-deildarinnar árið 2003 er eign Cleveland Cavaliers sem velja leikmanninn LeBron James,“ sagði David Stern, framkvæmdastjóri NBA-deildarinnar, af mikilli innlifun aðfaranótt föstudags. Ákvörðun forráðamanna Cavaliers kom fáum á óvart þar sem James „kóngur“ eins og hann er nefndur vestan- hafs er talinn vera eitt mesta efni sem hefur stigið inn í kastljós NBA-deildarinnar frá því árið 1984 er maður að nafni Michael Jord- an var valinn þriðji í röðinni af Chicago Bulls, á eftir þeim Sam Bow- ie og Hakeem Olajuwon sem Houston Rockets valdi fyrst allra liða. Reuters LeBron James brosti breitt þegar honum varð ljóst að hann væri leikmaður NBA-liðsins Cleveland Cavaliers næstu árin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.