Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. – leiðandi í lausnum Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001 Áskriftarsími 881 2060 Í FORMI FÍKNIEFNAMEÐFERÐ hjá Krýsuvíkursamtökunum er um helmingi ódýrari en sambærileg meðferð í Svíþjóð en fimm Svíar dvelja nú á meðferðarheimilinu í Krýsuvík í langtímameðferð við fíkniefnaávana. Sænsk yfirvöld greiða um 1,8 milljónir króna fyrir sex mánaða meðferð en Lovísa Christiansen, framkvæmdastjóri Krýsuvíkursamtakanna, segir með- ferðina kosta enn minna fyrir Ís- lendinga. „Hér eru 15 Íslendingar og ríkið greiðir rúmar 1.200 þúsund krónur fyrir þeirra meðferð. Satt best að segja væri ekki mögulegt fyrir okk- ur að reka meðferðarheimilið í þeirri mynd sem nú er ef ekki væri fyrir sjúklinga sem við fáum frá Svíþjóð. Framlagið sem við fáum frá íslenska ríkinu dugir fyrir 10 meðferðarplássum fyrir Íslendinga en upphæðin sem við fáum frá Sví- þjóð gerir okkur kleift að bjóða 5 Íslendingum til viðbótar vistun,“ segir Lovísa en Krýsuvíkursamtök- in hafa í 8 ár verið í samstarfi við fé- lagsmálayfirvöld í Stokkhólmi sem senda árlega í kringum 10 fíkni- efnaneytendur til meðferðar í Krýsuvík. Svíar ánægðir með árangurinn Lovísa segir Svía mjög ánægða með árangurinn af Krýsuvíkurmeð- ferðinni, hún hafi gagnast sjúkling- unum mjög vel en þeir séu margir í miklum vanda þegar hingað til lands er komið og eigi jafnvel tugi meðferða að baki. Hún segir ólíklegt að þeim Svíum fjölgi, sem sækja meðferð til Krýsu- víkur, jafnvel þótt tíu meðferðar- pláss í Krýsuvík séu ónýtt vegna fjárskorts. „Við höfum viljað halda hlutfallinu þannig að Íslendingar séu í meirihluta þrátt fyrir að það sé mun dýrara fyrir okkur. En það komast fáir að og biðlistar eru lang- ir. Því miður getum við í dag ekki nýtt húsnæðið okkar til fulls, til þess eru fjárframlög frá ríkinu of lág,“ segir Lovísa. Davíð Gunnarsson, ráðuneytis- stjóri heilbrigðisráðuneytisins, seg- ir gott og virðingarvert starf hafa verið unnið í Krýsuvík og að ríkið hafi sýnt vilja til að styðja við þessa starfsemi. Hins vegar séu Krýsu- víkursamtökin grasrótarfélag en ekki heilbrigðisstofnun í strangasta skilningi þess orðs. Því sé erfitt að setja sömu mælikvarða á starfsemi þeirra og lagðir eru á aðra heil- brigðisþjónustu. Svíar borga til að komast í fíkniefnameðferð í Krýsuvík Greiða mun minna fyr- ir meðferð hérlendis BRUCE Dickinson, söngvari bresku þungarokkssveitarinnar Iron Maid- en, segir að hljómsveitin hafi mik- inn áhuga á að halda tónleika á Ís- landi en landið er í miklu uppáhaldi hjá honum. Dickinson er einnig flugmaður og flaug vél Iceland Express til Kaupmannahafnar í gær en Iron Maiden var aðalnúmerið á Hróarskelduhátíðinni í gærkvöldi. Ljósmynd/Teitur Jónasson Bruce Dickinson í faðmi aðdáenda á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Langar aftur til Íslands  Flug/50 HALLI hefur verið á vöruskiptum þrjá mán- uði í röð og fyrirtæki sem sérhæfa sig í inn- flutningi eru farin að finna fyrir mikilli aukn- ingu. Knútur Hauksson, forstjóri Samskipa, segist telja að aukningin sé á bilinu 20–25% síðustu tvo mánuði frá sama tímabili 2002. Gunnar Bachmann, framkvæmdastjóri Vöru- hótels Eimskips, segir að fyrirtækið sé að upp- lifa metvikur í flutningum. Vöruskipti í maí voru óhagstæð um 1,7 millj- arða króna, en í maí árið 2002 voru þau hag- stæð um 2,3 milljarða á sama gengi. Í mán- uðinum voru fluttar út vörur fyrir 15,1 milljarð króna og inn fyrir 16,8 milljarða. Afgangur er þó á vöruskiptajöfnuði á árinu; 2,5 milljarðar króna, en síðustu þrjá mánuði hefur hallinn verið 4,7 milljarðar. Samkvæmt upplýsingum frá Greiningu Ís- landsbanka hefur ekki mælst jafnmikill halli yfir þriggja mánaða tímabil síðan í lok ársins 2001. Greiningardeild Kaupþings Búnaðarbanka spáir því að innflutningur haldi áfram að aukast, en ýmsir hagvísar, eins og væntinga- vísitala Gallup og einkaneysla á fyrsta árs- fjórðungi, gefi það til kynna. Innflutningur eykst og vöru- skipti neikvæð  Mikil aukning/Halli/12 SAMKOMULAG náðist á fimmtudag milli landbúnaðarráð- herra Evrópusambandsríkjanna fimmtán um víðtækar umbætur á landbúnaðarkerfi Evrópusam- bandsins. Mesta breytingin felst í því að horfið verður að mestu frá því að tengja niðurgreiðslur til bænda við framleiðslu þeirra, í því skyni að draga úr offramleiðslu og gera kerfið markaðs- og neyt- endamiðaðra. Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra og formaður Framsókn- arflokksins, segir að þess megi verði gengið lengra í þessum efn- um. Það er því mjög líklegt að nið- urstaða ESB verði það stytzta sem kemur út úr þeim málum,“ sagði Halldór. Að hans mati verði Íslendingar því að vera undir breytingar búnir sem taki mið af því sem ESB hef- ur ákveðið í þessu efni. „Það gefur okkur svigrúm til þess að auka svokallaða „græna styrki“ og ég tel að það sé hægt að finna lausn sem er fullnægjandi fyrir íslenzkan landbúnað,“ sagði Halldór. Evrópusambandinu, þegar nýju WTO-reglurnar taka gildi. „Það liggur alveg ljóst fyrir að ESB mun sækja sitt mál mjög fast í WTO-viðræðunum,“ sagði Hall- dór í samtali við Morgunblaðið. Íslendingar verða að vera undir breytingar búnir „Það er ljóst að þessi niður- staða ESB getur orðið mjög leið- andi um þá niðurstöðu, því þeir aðilar sem eru sterkastir þar á móti, Bandaríkjamenn og fleiri, munu eflaust krefjast þess að það vænta að þessi niðurstaða ESB kunni að verða leiðbeinandi um þær breytingar sem gera verði á íslenzka landbúnaðarkerfinu í tengslum við alþjóðasamninga um aukið frjálsræði í viðskiptum með landbúnaðarafurðir, sem eru til umræðu á vettvangi Heimsvið- skiptastofnunarinnar, WTO. Hall- dór hefur áður sagt, að vegna WTO-viðræðnanna muni þurfa að breyta styrkjakerfi landbúnaðar- ins og hann muni að miklu leyti þurfa að laga sig að þeirri land- búnaðarstefnu, sem rekin er í Utanríkisráðherra um umbætur á landbúnaðarkerfi ESB Leiðbeinandi fyrir Ísland BYRJAÐ var í gærmorgun að leggja sæ- strenginn FARICE-1 frá ströndum Skot- lands en strengurinn á að liggja til Íslands um Færeyjar, alls 1.407 km vegalengd. símafélagið ForoyaTele og fleiri aðilar. Voru fulltrúar þeirra viðstaddir þegar lagning strengsins hófst í Casteltown í Skotlandi./4 Gert er ráð fyrir að strengurinn verði kominn til Seyðisfjarðar fyrir ágústlok og að hann verði kominn í gagnið í árslok. Að verkefninu standa íslenska ríkið, færeyska Ljósmynd/Kristján Bjartmarsson Byrjað að leggja 1.407 km sæstreng SÖLUVERÐMÆTI bólgueyðandi lyfja var 570 milljónir króna hér á landi á síðasta ári, samanborið við 194 milljónir tíu árum áður. Verðmæti nýrra bólgueyðandi lyfja, svo- nefndra coxíb-lyfja, nam 205 milljónum króna í fyrra. Á sama tíma dró ekki úr notkun eldri, bólgueyðandi lyfja. Þetta kemur fram í grein Björns Inga Hrafnssonar, varaþingmanns og skrifstofustjóra Framsóknarflokksins, í blaðinu í dag. Ennfremur segir í greininni að notkun cox- íb-lyfja annars staðar á Norðurlöndunum telj- ist vera um sjö til átta dagskammtar á hverja þúsund íbúa en hér hafi notkunin á tveimur ár- um komist yfir 18 dagskammta. „Hvernig má slíkt vera, þegar önnur bólgu- eyðandi lyf seljast enn grimmt? Eigum við að trúa því að bólgur séu almennt algengari hér? Hvaða skýringar hafa læknar á þessari gíf- urlegu notkun?“ spyr Björn Ingi í grein sinni. Bólgueyðandi lyf fyrir 570 milljónir  Bólgnandi lyfjaverð/28–29 ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.