Morgunblaðið - 28.06.2003, Page 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
• Baðinnréttingar
• Eldhúsinnréttingar
• Fataskápar
• Innihurðir
I n n r é t t i n g a r
Borgartúni 28 • Sími 562 5000 • www.bjorninn.is
SKIPSTJÓRINN á Bjarma BA,
Níels Adolf Ársælsson, er ákærður
fyrir að láta henda að minnsta kosti
53 þorskum fyrir borð í tveimur
veiðiferðum í byrjun nóvember
2001. Fjöldi fiskana var fengin með
því að telja þá fiska sem sannarlega
sáust lenda í sjónum en tveir skip-
verjar hafa fyrir dómi borið að
brottkastið hafi numið nokkrum
tonnum og stærð hafi ráðið því að
fisknum var kastað fyrir borð. Skip-
stjórinn heldur því fram að fiskur-
inn hafi verið sýktur og því löglegt
að kasta honum fyrir borð. Aðrir
skipverjar bera ýmist að einungis
sýktum fiski hafi verið hent eða að
þeir hafi ekki séð brottkastið.
Loforðið var forsendan
Friðþjófur Helgason kvikmynda-
tökumaður tók fréttamyndirnar en
hann fór um borð í skipið fyrir til-
stuðlan Magnúsar Þórs Hafsteins-
sonar, alþingismanns Frjálslynda
flokksins og þáverandi fréttamanns.
Fyrir dómi sagði hann að forsendan
fyrir því að hann fékk að fara með í
veiðiferðina hefði verið loforð til
skipstjórans um að hann myndi
hvorki greina frá nafni skipsins né
sýna fleiri myndskeið en birtust í
Ríkissjónvarpinu. „Ég ætla mér að
standa við það loforð,“ sagði hann.
Aðspurður sagði Friðþjófur að allur
fiskur sem sást á færiböndunum
hefði verið á leið út í sjó og hið sama
sagði Magnús Þór þegar hann kom
fyrir dóminn. Friðþjófur gat þó ekki
sagt til um hversu miklu var hent.
Myndskeiðið sem birtist í sjón-
varpinu var aðeins nokkurra mín-
útna langt en upptökur úr veiðiferð-
unum tveimur voru alls 60–80
mínútur á tveimur spólum, að sögn
Friðþjófs. Hann kvaðst ekki vita
hvar spólurnar væru niðurkomnar
því hann hefði látið þær í hendur
ónafngreinds manns eftir að sýslu-
maðurinn á Ísafirði óskaði eftir
þeim. Aðspurður af Helga Magnúsi
Gunnarssyni, fulltrúa ríkislögreglu-
stjóra og sækjanda í málinu, sagðist
hann vera tilbúinn til að leggja spól-
urnar fyrir dóminn ef skipstjórinn
veitti leyfi sitt. Helgi Magnús þrá-
spurði síðar skipstjórann um hvort
hann veitti þetta leyfi og hvatti hann
eindregið til þess en skipstjórinn
vék sér undan því að svara með af-
dráttarlausum hætti. Sagðist ekki
muna eftir að hafa tekið slíkt loforð
af Friðþjófi og yrði að ræða við hann
einslega áður en hann svaraði. Við
það sat.
Mat á magni
hugsanlega skakkt
Líkt og Friðþjófur sagðist Magn-
ús Þór hafa lofað að gefa ekki upp í
hvaða skipi fréttamyndirnar um-
deildu voru teknar. Hann sagðist því
hvorki ætla að játa því né neita að
myndirnar hefðu verið teknar um
borð í Bjarma. Það er þó óumdeilt í
málinu.
Magnús Þór, sem er fiskifræðing-
ur að mennt, sagðist ekki hafa séð
betur en fiskurinn sem fór fyrir
borð hefði verið heill og óskemmdur.
Þá hefði skipstjórinn greint frá því
að hann hefði gefið fyrirmæli um að
henda smáum fiski, þ.e. 30–40 sm að
lengd og svonefndum aukategund-
um. Spurður um magn sem fór fyrir
borð sagðist hann eiga erfitt með að
leggja mat á það í tonnavís en nokk-
ur hundruð fiskar hefðu farið í sjó-
inn. Sækjandi vísaði þá í blaðagrein-
ar þar sem Magnús Þór segir
magnið mun meira, 20–30% aflans
hefði verið hent, allt að 14–21 tonni,
miðað við landaðan afla. Magnús
sagði hugsanlegt að hann hefði of-
metið það magn sem var landað og
mat hans á brottkasti gæti því verið
skakkt. Þetta hefði verið hans mat,
byggt á bestu vitund. Við nánari
umhugsun kæmi til greina að magn-
ið hefði verið mun minna og end-
urtók að hann hefði sjálfur séð
nokkuð hundruð fiska fara í sjóinn.
Hilmar Ingimundarson hrl., verj-
andi skipstjórans, innti Magnús Þór
eftir því hvernig á því stæði að hann
hefði bæði nefnt skipið og skipstjór-
ann á nafn, þrátt fyrir loforð um hið
gagnstæða. Magnús Þór sagði að
líta yrði á málið í samhengi. Þegar
greinarnar voru ritaðar hefði skip-
stjórinn verið búinn að viðurkenna
brottkast opinberlega og jafnframt
sagt að fréttamyndirnar væru svið-
settar. Kvaðst hann hafa orðið að
verja sig fyrir hörðum árásum.
Undir lok vitnisburðar síns hóf
Magnús Þór að lýsa því hvernig
myndbirtingarnar hefðu orðið til
þess að lögum var breytt og vegna
þess hefðu verðmæti fyrir hundruð
milljóna komið á land. Þetta væru
dýrmætar fréttamyndir. „Það er bú-
ið að kjósa,“ heyrðist þá í Hilmari
Ingimundarsyni.
Framdi skipverji meinsæri?
Í sóknarræðu sinni sagði Helgi
Magnús að mjög varlegt væri að
áætla að brottkastið hafi hafi numið
um 5-10 tonnum þó ákært sé fyrir
„að minnst kosti 53 þorska“. Að
hans mati var hæfileg refsing
tveggja milljón króna sekt og
þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi. Hann sagði framburð vitna
oft með ólíkindum og ljóst að vél-
stjóri Bjarma hafi framið meinsæri
þó að það yrði að rannsaka það mál
frekar. Í meiðyrðamáli gegn sjáv-
arútvegsráðherra hafi vélstjórinn
fullyrt að brottkastið hafi numið
nokkrum tonnum en í sakamálinu
gegn skipstjóranum talið 53 fiska
nær lagi.Verjandi skipstjórans,
Hilmar Ingimundarson hrl., krafðist
sýknu og sagði m.a. að lítið væri að
græða á framburði flestra skipvera
enda hefðu þeir breytt framburði
sínum frá því þeir gáfu skýrslu hjá
lögreglu.
Dóms er að vænta innan fjögurra
vikna.
„Ég ætla mér
að standa við
það loforð“
Þrjú dómsmál spruttu af umdeildum sjón-
varpsmyndum haustið 2001; sjávarútvegs-
ráðherra var dæmdur fyrir meiðyrði, skip-
stjóri Báru ÍS sýknaður í sakamáli og í gær
lauk málflutningi í „Bjarmamálinu“.
Morgunblaðið/RP
Dómsstjóri, sækjandi, verjandi og hinn ákærði fóru í vettvangsferð um borð í Bjarma í gær. Fulltrúi ríkislög-
reglustjóra stikar um borð en verjandi skipstjórans bíður átekta. Alþingismaður og vitni smeygir sér undir slá.
NÚVERANDI áhöfn á Bjarma BA
fylgdi skipstjóra sínum, Níelsi
Adolfi Ársælssyni, í Héraðsdóm
Vestfjarða í gærmorgun en hann er
ákærður fyrir brottkast. Meðferðis
höfðu þeir níu þorska sem þeir
sögðu að væru veiddir út af Kópa-
nesrifi.
Kópanesrif kemur talsvert við
sögu í réttarhöldunum en Níels ber
að Bjarmi hafi verið þar á veiðum
þegar brottkastsmyndir voru tekn-
ar en á rifinu sé afar algengt að
þorskur sé illa sýktur af hringormi
eða selbitinn. Fiskarnir sem kastað
var fyrir borð í umræddum veiði-
ferðum hafi flestir verið svo smit-
aðir af hringormi að það hafi sést
utan á þeim og þeim því kastað í
sjóinn af lögmætri ástæðu. Af
þorskunum níu, taldi Níels að utan
á sjö þorskum sæust glögg merki
um hringormasýkingu og tveir
væru selbitnir. Óskaði hann eftir
því að leggja þá fram í dómnum
sem sönnunargögn. Því hafnaði Er-
lingur Sigtryggsson héraðsdómari
tafarlaust og sagði að verjandi og
ákærði hefðu haft nægan tíma til að
afla gagna. Til að leggja mat á
þorska af tiltekinni veiðislóð yrði
auk þess að fá dómkvadda mats-
menn en sjálfur sagðist hann ekki
ætla að „skoða einhverja þorska
sem mér er sagt að hafi verið veidd-
ir einhvers staðar.“
Níels skipstjóri fékk ekki heldur
að leggja fram yfirlýsingu, und-
irritaða af áhöfninni um að þorsk-
arnir hefðu verið veiddir á fyrr-
nefndri veiðslóð 24. júní sl.
Þorskarnir eru nú í frystikistu hjá
útibúi Hafrannsóknarstofnunar á
Ísafirði
Vildi ekki skoða
„einhverja þorska“
ALÞJÓÐLEGRI vísindaráðstefnu
um nýæðamyndun í krabbameins-
æxlum lýkur í Reykjavík í dag. Með-
al fyrirlesara á ráðstefnunni er
Napoleone Ferrera, vísindamaður
hjá Genetech lífvísindafyrirtækinu í
Bandaríkjunum. Hann uppgötvaði
fyrir fimmtán árum að prótínið
VEGF hefur þau áhrif í myndun
krabbameinsæxla að nýæðamyndun
á sér stað. Ferrera og samstarfs-
menn hans hafa fundið mótefni gegn
virkni þessa prótíns og hafa tilraunir
á lyfinu Avastin, sem inniheldur
mótefnið, gefið góða raun bæði í til-
raunum á mönnum og dýrum.
Steve Libutti, sem starfar hjá
Krabbameinsstofnun Bandaríkj-
anna, segir að lengi hafi verið vitað
að æxli þurfi á næringu úr blóði að
halda: „Það er hægt að fara langt aft-
ur í tímann, allt til tíma Forn-
Grikkja, og sjá að menn áttuðu sig á
því að æðar gengju út úr krabba-
meinsæxlum.“ Sýnt var fram á
tengslin á milli blóðflæðis í æxli og
vaxtarhraða þess á miðjum áttunda
áratugnum.
„Á síðustu árum hefur vísinda-
mönnum tekist að sýna fram á að ef
hægt er að koma í veg fyrir blóðflæði
til æxla þá sé hægt að koma í veg fyr-
ir vöxt þeirra,“ segir Ferrara
Krabbamein verka þannig á lík-
amann að stærð þeirra dregur sjúk-
linginn á endanum til dauða þar sem
líffærin hætti að geta starfað eðli-
lega. Æxli sem ekki fær að stækka í
líkamanum veldur því líkamanum
ekki skaða. Þegar venjuleg fruma
stökkbreytist, t.d. í lunga eða nýrum,
skiptir hún sér og gúlpurinn af
skemmda vefnum stækkar í sífellu
og læknisfræðilegt úrlausnarefni
krabbameinslækna er fyrst og
fremst að tryggja að sá vöxtur valdi
ekki óbætanlegu tjóni á annars heil-
brigðum líkamsvefjum.
Hægari æxlisvöxtur
Avastin hefur verið í prófunum í
Bandaríkjunum í nokkur ár og nú
þegar liggja fyrir niðurstöður á próf-
unum í þriðja og síðasta fasa þess
ferlis sem fylgja þarf til þess að lyf
fáist samþykkt. Þetta skref felur í
sér að gerð er tilraun á raunveruleg-
um sjúklingum með þeim hætti að
helmingur hópsins fær lyfið, en svo-
kallaður samanburðarhópur fær efni
sem enga virkni hefur, svokallað
„placebo“-lyf. Við rannsókn á sjúk-
lingum með ristilkrabbamein kom í
ljós að virkni lyfsins er mikil og ný-
leg, óbirt, rannsókn á sjúklingum
með nýrnakrabbamein sýnir fram á
mun hægari æxlisvöxt hjá þeim sem
fengu lyfið heldur en hjá samanburð-
arhópnum. Libutti, sem er skurð-
læknir, bendir einnig á að lyf, sem
hindri nýæðamyndun í æxlum, sé
mikið skref fram á við. Í tilraunum
með Avastin hefur komið í ljós að
aukaverkanirnar eru mjög takmark-
aðar. Blóðþrýstingur í sjúklingum
hefur hækkað lítilllega en að sögn
Ferrera eru það einu aukaverkan-
irnar sem orð er á gerandi.
Ráðstefna um myndun nýrra æða í krabbameinsæxlum
Hafa þróað mótefni
gegn nýæðamyndun