Morgunblaðið - 28.06.2003, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 9
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–16.00.
Útsala
25% afsláttur
af öllum vörum í dag
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-14
Léttur sumarfatnaður
Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið
Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10–12 virka daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
Hvað fá þátttake
ndur út
úr slíkum námsk
eiðum?
Læra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi.
Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggilegan
hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
Læra að hjálpa öðrum til þess sama.
1. - 3. júlí 1. stig kvöldnámskeið
8. - 10. júlí 2. stig kvöldnámskeið
Ath.: Þeir, sem hafa áhuga á dagnámskeiði, hafi samband
Námskeið í Reykjavík
gott á meðan spilað er,“ segir Einar
Friðþjófsson, framkvæmdastjóri
mótsins. Samtals taka 1.150 dreng-
ir þátt í mótinu, en með for-
ráðamönnum, þjálfurum og aðstoð-
arfólki lætur nærri að íbúafjöldi í
Eyjum hafi aukist um 3.000 manns
SHELLMÓTIÐ í knattspyrnu hófst
í vikunni í Vestmannaeyjum. Þar
eigast við 98 lið frá 27 félögum í 6.
flokki, en í honum eru níu til tíu ára
drengir.
„Veðurspáin lofaði ekki góðu en
veðrið hefur engu að síður haldist
frá því að mótið hófst.
Einar segir fjölda þátttakenda
vera svipaðan og undanfarin ár.
„Þetta er komið í mjög fastar
skorður. Þetta eru alltaf sömu fé-
lögin sem koma og það dettur aldr-
ei neinn út.“
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
Það skortir ekki einbeitinguna í svip þessara ungu manna sem áttust við á Shellmótinu í Eyjum.
Yfir 1.100 drengir á
Shellmótinu í Eyjum
FRAMKVÆMDASTJÓRI Sam-
taka ferðaþjónustu, Erna Hauks-
dóttir, segir að fjölmargir ferða-
menn séu að koma til baka og skrá
sig í Íslandsferðir eftir að hafa ver-
ið afbókaðir í hópferðum. Stríðs-
ógnir og lungnabólgufaraldur hafi
fjölgað afbókunum verulega fram
eftir ári en nú sé fólk að hugsa sér
til hreyfings á ný. Tölur sýni einnig
aukinn fjölda ferðamanna til lands-
ins síðustu mánuði og fjölgun gisti-
nátta, miðað við sama tíma í fyrra.
„Ferðaskrifstofur bóka oft mikið
af hótelherbergjum fyrirfram og
láta taka þau frá. Síðan gengur
ekki nægjanlega vel að selja og á
meðan stríð og faraldrar geisa er
fólk ekki tilbúið að ákveða ferða-
lög. Því hafa ferðaskrifstofurnar
verið að afbóka herbergi í stríðum
straumum á hótelum um allt land.
Jafnvel þetta sama fólk hugsar
núna að best sé að drífa sig í ferða-
lag þar sem að stríðið sé búið og
faraldurinn í rénum. Það fer inn á
netið, finnur sér hótel og bókar sig
sjálft með skömmum fyrirvara.
Þetta hafa menn ekki séð áður í
ferðaþjónustunni og skapar dálitla
óvissu í skipulagningu og rekstri
hótelanna. Einnig kemur þetta
misjafnlega niður á fyrirtækjunum
og hvar þau eru stödd á landinu,“
segir Erna og bendir á að ferða-
menn séu í meira mæli að leita eft-
ir ódýrari leiðum í flugferðum og
gistingu, m.a. vegna þess hve gengi
krónunnar er hátt. Framboð hafi
einnig aukist af flugsætum og
skipaferðum og hótelherbergjum
með tilkomu Iceland Express,
stærri Norrænu og fleiri og stærri
hótelum. Þetta hafi skapað sam-
drátt í hótelnýtingu á sumum
svæðum, einkum í Reykjavík og á
Suðurlandi, en markaðurinn geti
átt eftir að jafna sig. Þannig geti
verið spennandi að sjá hvernig
júnímánuður komi út.
Ferðamenn skila
sér eftir afbókanir
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustu
„LÍFSLISTIN, námskeið í listum og
lífsleikni“ er forvarnarverkefni sem
hleypt verður af stokkunum í haust
en verkefninu er ætlað að vera vett-
vangur ungmenna til listrænnar
sköpunar og þjálfunar í samskiptum
og lífsleikni til mótvægis við áhættu-
sama hegðun, svo sem vímuefna-
neyslu og afbrot.
Verkefnið var kynnt í Hinu húsinu
en fyrirmyndin að því er sótt í for-
varnar- og meðferðarúrræði sem dr.
Harvey Milkman, prófessor við
Denver-háskóla í Bandaríkjunum,
hefur þróað en Milkman er staddur
hér á landi til þess að fylgja íslenska
verkefninu úr hlaði. Hann segir að
eitt af lykilhugtökum meðferðarinnar
sé vellíðan án vímuefna og að með
þátttöku í skapandi starfi, líkamlegri
áreynslu og slökun eigi að kynna ung-
mennum heilbrigðar leiðir til þess að
láta sér líða vel.
Þátttakendur dvelja heima
Fyrirtækið Ný leið, einstaklings-
og fjölskylduráðgjöf, sér um fram-
kvæmd verkefnisins á Íslandi og seg-
ir Hrafndís Tekla Pétursdóttir, sál-
fræðingur og framkvæmdastjóri
Nýrrar leiðar, að áherslan verði lögð
á að vinna með unglinginn í hans eigin
umhverfi. „Einn stærsti kosturinn er
að þátttakendur geta dvalið hjá fjöl-
skyldu sinni og stundað skóla ásamt
því að taka þátt í námskeiðinu,“ segir
Hrafndís Tekla. Hún segir að því mið-
ur fari oft þannig þegar vandamál
koma upp hjá unglingum að ekki sé
tekið á þeim fyrr en ástandið er orðið
mjög alvarlegt. „Þarna bjóðum við
áhrifaríkt úrræði í forvörnum og
meðferð sem gæti komið í stað kostn-
aðarsamrar meðferðar á stofnun,“
segir Kristín Tekla. Námskeiðið hefst
í haust og er ætlað unglingum á aldr-
inum 15 til 18 ára.
Listræn sköpun í stað vímuefna
Morgunblaðið/Jim Smart
Rafn M. Jónsson, Guðrún B. Ágústsdóttir, Jón K. Guðbergsson og Hrafndís
Tekla Pétursdóttir hjá Nýrri leið veita ungu fólki í vanda ráðgjöf.
Forvarnarverkefni fyrir ungmenni kynnt
SAMHÆFINGARSTÖÐ al-
mannavarnadeildar ríkislög-
reglustjóra hefur flutt flutt
frá lögreglustöðinni við
Hverfisgötu 113 í Skógarhlíð
14. Vaktsími almannavarna er
eftir flutninginn 112 en fax-
númer verða óbreytt fyrst um
sinn, segir í tilkynningu frá
ríkislögreglustjóra. Á næstu
vikum munu skrifstofur al-
mannavarnadeildar flytja á
sama stað og verða þær
breytingar kynntar sérstak-
lega.
Samhæf-
ingarstöð
flutt