Morgunblaðið - 28.06.2003, Síða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIÐ verður um dýrðir á Horna-
firði í næstu viku þegar haldið
verður fjórðungsmót hestamanna
og samhliða því verður haldin hum-
arhátíð á Höfn. Fjórðungsmótið
verður haldið á félagssvæði hesta-
mannafélagsins Hornfirðings,
Stekkhól og verður það með nokk-
uð hefðbundnu sniði en þó verður
nú boðið upp á opna gæðinga-
keppni stóðhesta þar sem keppt
verður bæði í A- og B-flokkum og
hefur skráningarfrestur í opnum
keppnum mótsins verið fram-
lengdur til klukkan 20 annað kvöld,
sunnudagskvöld. Er þar um að
ræða auk gæðingakeppninnar opna
töltkeppni, 250 metra skeið og 100
metra flugskeið. Boðið er upp á
vegleg verðlaun í þessum flokkum
og má þar nefna að fyrir sigur í
tölti er um að ræða flugmiða fyrir
tvo til Þýskalands og þar að auki 40
þúsund króna peningaverðlaun.
Fyrstu verðlaun í stóðhestaflokk-
unum eru krónur 50 þúsund. Sama
upphæð er fyrir fyrsta sætið í
skeiðinu en fyrir annað sætið eru
veittar 30 þúsund krónur og 15 þús-
und fyrir þriðja sæti. Skráning-
argjöld eru þrjú þúsund fyrir fyrstu
grein en eitt þúsund fyrir næstu
greinar. Önnur verðlaun mótsins
verða frá Álfasteini og munu þau
öll unnin úr íslensku hráefni að
mestu leyti.
Mótið hefst fimmtudaginn 3. júlí
með dómum kynbótahrossa en alls
hafa rétt rúmlega fjörutíu hross
áunnið sér rétt til að mæta á mótið.
Þá mun hvert þeirra hestamanna-
félaga á Austurlandi sem þátt taka í
mótinu senda sína fulltrúa í gæð-
ingakeppni mótsins og ræðst fjöldi
hestanna af félagafjölda hvers fé-
lags. Er þarna um að ræða flokk
fullorðinna eða opinn flokk sem
kalla má og síðan ungmenni, ung-
linga og börn.
Humarhátíðin á Höfn hefst einn-
ig á fimmtudag með dansleik um
kvöldið og í þrjá daga þar á eftir
verður boðið upp fjölbreytta dag-
skrá.
Frekari upplýsingar um þessa
tvo viðburði er hægt að fá á eft-
irfarandi vefslóðum: hestur.horna-
fjördur.is og humar.is.
Sannkölluð karnival-stemmning verður á Höfn í Hornafirði í næstu viku
Glæstir gæðing-
ar og humar í
aðalhlutverkum
Morgunblaðið/Vakri
Hjörtur frá Úlfsstöðum og Hans Kjerúlf verða meðal þeirra sem mæta til
leiks á fjórðungsmótið á Stekkhóli og má ætla að þeir komi til með að berj-
ast þar um verðlaunin. Myndin er tekin í Skautahöll Reykjavíkur þar sem
þeir unnu góðan sigur í vetur.
FRJÁLSLYNDI flokkurinn varði 13
milljónum króna til kosningabarátt-
unnar fyrir alþingiskosningarnar 10.
maí sl., að öllu meðtöldu. „Flokkur-
inn stóðst þar með þá fjárhagsáætl-
un sem hann gerði fyrir kosningar.
Um 2⁄3 hluti kostnaðarins liggja í aug-
lýsingum og prentun,“ segir í frétt
frá Frjálslynda flokknum.
„Frjálslyndi flokkurinn hefur
gætt aðhalds í rekstri á liðnu kjör-
tímabili og lagt til hliðar fyrir þess-
um útgjöldum, auk þess sem flokks-
félagar og velunnarar hafa lagt
flokknum til fjárframlög. Efstu
menn á listum gengu í persónulegar
ábyrgðir fyrir skammtímaláni.
Framlög frá fyrirtækjum og einstak-
lingum á móti námu um 3 milljónum.
Enginn einn aðili gaf hærri upphæð
en 500.000 krónur sem er sú upphæð
sem miðað er við þegar upplýst er
hverjir gefa. Frjálslyndi flokkurinn
sendir þeim einstaklingum og fyrir-
tækjum sem studdu flokksstarfið
með framlögum eða sjálfboðastarfi
innilegar þakkir.
Opið bókhald flokksins er unnt að
skoða á heimasíðu Frjálslynda
flokksins, www.xf.is.“
Frjálslyndi flokkurinn
13 milljónir
í kosninga-
baráttu
FIMMTÁN reiðhjól af
gerðinni Roadmaster
verða innkölluð af inn-
flytjanda vegna alvarlegs
galla í bremsum, sem
uppgötvaðist í kjölfar al-
varlegs slyss á barni fyrr í
þessum mánuði. Sölu hjól-
anna verður hætt.
Gallinn kom í ljós þegar
ungur Eskfirðingur, Sól-
rún Mjöll Jónsdóttir, lenti
í alvarlegu slysi á slíku
hjóli á Eskifirði, en hún
handleggsbrotnaði á báð-
um handleggjum og
skarst illa á enni. Hún var
með hjálm á höfði, sem
hefur að öllum líkindum
bjargað því að ekki fór
mun verr.
Gert var að sárum
hennar á Akureyri, m.a.
saumuð 18 spor í ennið, en
nú er Sólrún Mjöll á góð-
um batavegi. Lítið eftirlit
mun vera með innflutn-
ingi reiðhjóla og gæða-
staðli þeirra.
Galli í bremsu
veldur alvarlegu
reiðhjólaslysi
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Sólrún Mjöll Jónsdóttir.
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
EFTIR er að koma í ljós hvort það
hafi áhrif til hækkunar á verði ís-
lenskrar rækju að vart hefur orðið
við gula rækju á veiðisvæðum undan
austurströnd Kanada síðustu vikur.
Ástæðan er snigill sem rækjan nær-
ist á og veldur eyðingu líffæra. Að öll-
um líkindum verður rækjufram-
leiðsla minni en búist var við í
Kanada á þessu ári.
Að sögn Magna Þórs Geirssonar,
framkvæmdastjóra Icelandic UK í
Bretlandi, munu Kanadamenn beina
framleiðslu sinni á bandaríska mark-
aðinn í stað þess evrópska því þeir
geri minni kröfur um gæði þar.
– Mun þetta hafa áhrif á okkar
mörkuðum?
„Ef þetta ástand varir lengi munu
Kanadamenn ekki geta uppfyllt sína
samninga [á Bretlandsmarkaði] og
við höfum heyrt af einum eða tveim-
ur framleiðendum sem leita logandi
ljósi að ákveðnum stærðum af
rækju.“ Magni Þór segir að þetta
gerist orðið árlega og að of snemmt
sé að segja til um hvort þetta hafi
áhrif til hækkunar á verði íslenskrar
rækju.
Halldór Árnason hjá Barry Group
á Íslandi, sem m.a. selur kanada-
rækju til Evrópu, segir að þetta sé
staðbundið vandamál. Sjómenn reyni
að forðast svæði þar sem gula rækjan
finnist, þeir vilji ekki eyða kvótanum
í verðlausa afurð, og rækjuvinnslurn-
ar vilji ekki vinna hana vegna þess að
hún falli í B-flokk.
– Hver verða áhrifin?
„Ég held að þetta muni kannski
seinka vinnslunni eitthvað í Kanada
en ekkert verulega.“ Halldór segir að
búist hafi verið við miklu flóði af pill-
aðri rækju frá Kanada í ár en það
virðist ekki ætla að verða raunin.
„Ástæðurnar eru margar. Í fyrsta
lagi byrjaði vertíðin mun seinna en
reiknað hafði verið með, í öðru lagi
kom verkfall þegar hún var nýbyrj-
uð, í þriðja lagi kom þetta vandamál
upp og lækkað verð til sjómanna yfir
sumarmánuðina. Þannig er almennt
reiknað með því að framleiðslan í
Kanada verði í mesta lagi jafnmikil
og hún var í fyrra en að öllum lík-
indum verður hún minni. Staðan hef-
ur því breyst talsvert,“ segir Halldór.
Fyrst tók að bera á gulunni í rækj-
unni í byrjun þessa mánaðar og hefur
hún breiðst út norður með ströndinni
í átt til Labrador. Orsök vandans er
snigill sem rækjan nærist á. Svo virð-
ist sem efni í sniglinum hafi áhrif á
ensím í lifur og/eða maga. Afleiðing
þess verður að líffærin leysast upp í
fljótandi form, sem skýrir gula litinn.
Gul rækja veldur usla
á Kanadamiðum
alls 114 milljónum króna. Að sögn
Guðmundar Óla Björgvinssonar hdl.
skiptastjóra þrotabúsins, var ekki
tekin afstaða til almennra krafna
enda er búið nánast eignalaust.
Forgangskröfur
um 4 milljónir
Samþykktar forgangskröfur
námu um fjórum milljónum en eign-
ir, þ.m.t. óinnheimtar viðskiptakröf-
ur nema 3-4 milljónum. Kröfur
vegna fjárdráttarins voru um 40
milljónum og sú hæsta frá einstak-
lingi nam um níu milljónum. Ljóst
er að margir sem töldu sig hlunn-
farna sáu ekki ástæðu til að leggja
fram kröfu á hendur þrotabúinu.
RANNSÓKN efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra á auðgunarbrot-
um fyrrv. eiganda Fasteignasölunn-
ar Holts hefur leitt í ljós að meint
brot nema a.m.k. 130 milljónum
króna. Frá þessu er greint í árs-
skýrslu ríkislögreglustjóra fyrir ár-
ið 2002.
Þegar maðurinn gaf sig fram í
fyrrahaust játaði hann fjárdrátt og
lagði fram gögn sem bentu til þess
að hann hefði dregið sér um 80
milljónir króna. Þá var talið að
brotin beindust gegn 15 manns en
nú er ljóst að talsvert fleiri voru
sviknir.
Fasteignasalan var í kjölfarið úr-
skurðuð gjaldþrota og námu kröfur
Fasteignasalan Holt
Fjárdráttur nem-
ur 130 milljónum
Eignir þrotabúsins 3–4 milljónir
LÝÐHEILSUSTÖÐ
mun taka til starfa 1.
júlí nk. eins og ráðgert
hafði verið samkvæmt
lögum um stofnunina
frá Alþingi. Nýskipað-
ur forstjóri, Guðjón
Magnússon, sem hef-
ur starfað undanfarið
tæpt ár á Evrópu-
skrifstofu Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunar-
innar í Kaupmanna-
höfn, getur ekki hafið
störf á þeim tíma en
viðræður standa yfir
við hann um hvort og
hvenær það getur
orðið.
Ekki náðist í Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra í gær en aðstoðar-
maður hans, Sæunn Stefánsdóttir,
sagði að í raun væri ekkert því til fyr-
irstöðu að hefja starfsemina 1. júlí.
Búið væri að tryggja fjármagn til
starfseminnar og hún myndi hefjast í
samráði við þau ráð sem heyra undir
Lýðheilsustöð, þ.e. Manneldisráð,
Tóbaksvarnarráð, Áfengis- og vímu-
varnarráð og Slysavarnarráð. Það
væri síðan verkefni nýs forstjóra að
samþætta starfsemina og finna henni
húsnæði, ekki hefði staðið til að þau
mál yrðu frágengin um
þessi mánaðamót.
Á meðan viðræður
stæðu yfir við heilbrigð-
isráðuneytið sagðist
Guðjón Magnússon
ekki vilja tjá sig um
þetta mál í samtali við
Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að öðru leyti en
því að staðfesta að hon-
um hefði boðist fram-
kvæmdastjórastaða
sem hann sótti um í
desember sl. hjá Al-
þjóðaheilbrigðismála-
stofnuninni í Kaup-
mannahöfn, eða nokkru
áður en staða forstjóra Lýðheilsu-
stöðvar var auglýst hér á landi sl. vor.
Sagðist Guðjón þurfa að svara af eða
á um starfið í Kaupmannahöfn fyrir
mánaðamótin og því væri úr vöndu að
ráða.
Guðjón hefur verið í þessu sama
starfi að ósk forstjóra Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar frá því í
ágúst sl., en staðan var auglýst laus til
umsóknar í nóvember sl. Að sögn
Guðjóns sóttu 66 einstaklingar um
starf framkvæmdastjórans, sem er
yfir 130 manna deild er fjallar um lýð-
heilsu í 52 aðildarríkjum í Evrópu.
Lýðheilsustöð tekur
til starfa 1. júlí
Guðjón Magnússon
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt ungling í 40 daga
skilorðsbundið fangelsi fyrir fjölda
þjófnaða og innbrota sem voru framin
á Akureyri á tímabilinu frá október á
síðasta ári til janúar á þessu ári. Skil-
orðið er háð því að pilturinn sæti sér-
stakri umsjón á skilorðstímanum.
Hluta af innbrotunum framdi pilt-
urinn ásamt öðrum pilti sem fæddur
er 1988 og því ekki sakhæfur.
Fram kemur í dómnum að piltur-
inn hafi viðurkennt skýlaust þá
verknaði sem honum voru gefnir að
sök. Hann sýndi einbeittan brotavilja
og verðmæti þýfisins var talsvert. Á
hinn bóginn leit dómurinn til þess að
pilturinn hafði ekki áður sætt refs-
ingu og að hann var mjög ungur að ár-
um er hann framdi brot sín og var
samvinnufús við rannsókn málsins.
Einnig var hluta af þýfinu komið til
skila til eigenda fyrir tilstilli lögreglu.
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
dæmdi málið. Verjandi piltsins var
Arnar Sigfússon hdl. Málið sótti Ey-
þór Þorbergsson sýslumannsfulltrúi.
Dæmdur
fyrir
þjófnað