Morgunblaðið - 28.06.2003, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 11
AMSTEL Light Iceland Open-golfmótið hófst á mið-
vikudaginn en mótið er stærsta alþjóðlega golfmót
sem haldið hefur verið hér á landi. Spilað hefur verið
fram yfir miðnætti á hverju kvöldi, en mótið fer fram á
Keilisvellinum í Hafnarfirði og í Grafarholti. Hug-
myndin að mótinu hefur þróast undanfarin ár en sam-
bærilegt mót fór fyrst fram á Akureyri. Mótið vakti
hins vegar athygli erlendra fyrirtækja og fyrirtækið
Amstel Light tók keppnina upp á sína arma og hefur
staðið fyrir kynningu og auglýsingaherferð fyrir mót-
ið. Um 300 kylfingar komu til landsins í tilefni mótsins
auk fjölda fjölmiðlafólks en viðburðurinn hefur vakið
nokkra athygli erlendis. Mótinu lýkur í kvöld, laug-
ardagskvöld, með verðlaunaafhendingu á Nordica-hót-
eli. Ýmislegt annað en golfiðkun er í boði fyrir þátttak-
endur á mótinu, meðal annars skoðunarferðir um
Ísland.
Auk Amstel Light stendur tímaritaútgefandinn
Time4Media fyrir mótinu í samstarfi við Icelandair en
vinna við verkefnið hefur staðið í fjögur ár. Gerður
hefur verið samningur um að mótið verði haldið aftur
á næsta ári og er undirbúningur þegar hafinn.
Morgunblaðið/Arnaldur
Þeir Tom Cressman, Brad Jones, Gary Cand og Mike Campanelli eru staddir hér á landi til að spila miðnæturgolf.
300 manns í miðnæturgolfi
GABRIELLE Reece, eða Gabi eins
og hún er kölluð, er kynnir Amst-
el Light-golfmótsins sem stendur
yfir um þessar mundir. Gabi er
fyrrverandi atvinnumaður í blaki
enda hávaxin, yfir 190 cm á hæð,
en hefur einnig unnið fyrir sér
sem fyrirsæta þar sem hún gat
sér gott orð og prýddi forsíður
margra tímarita. Að undanförnu
hefur hún unnið sem þáttagerð-
armaður hjá Golf Channel í
Bandaríkjunum. Gabi mun gera
þátt um Íslandsævintýrið og festa
bæði á filmu golfmótið og náttúru
Íslands en hún hefur notað tæki-
færið og ferðast um landið milli
þess að hún er á golfvellinum.
Gabi spilar sjálf golf og hefur
gert af kappi í um þrjú ár eftir að
hún lagði blakið á hilluna og seg-
ist eiga sér þann draum að geta
orðið atvinnumaður í greininni
einn daginn.
„Golf er samt öðruvísi íþrótt en
flestar aðrar sem ég hef prófað,
krefst meiri einbeitingar en
margt annað,“ sagði hún í samtali
við Morgunblaðið. Gabi tók fram
að hún kynni vel við sig hér á
landi enda búi hún sjálf á eyju,
Hawaii, hluta ársins þar sem eig-
inmaður hennar stundar brim-
brettasiglingar af kappi, auk þess
að vera sjálf alin upp á Jómfrúr-
eyjum.
Að mati Gabi mun viðburður á
borð við Amstel Light-mótið og sú
umfjöllun sem það fær hafa góð
áhrif fyrir ferðamennsku í land-
inu. „Þegar áhorfendur sjá allt
þetta líf og allan þennan fjölda
fólks sem hingað er kominn til að
spila golf og skemmta sér áttar
það sig á því að Ísland er alls
ekki langt í burtu og það er alls
ekki fjarlægur möguleiki að koma
til landsins,“ sagði Gabi að lokum.
Ofurfyrirsæta og
sjónvarpsstjarna
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Gabrielle Reece gerir þátt um
Íslandsævintýrið.
SAMNINGUR milli menntamála-
ráðuneytisins og Snyrtiskóla Kópa-
vogs var undirritaður á dögunum um
að Snyrtiskólinn í Kópavogi tæki við
þeim 18 stúlkum sem þurftu að hætta
námi í Snyrtiskóla Íslands í vetur
vegna gjaldþrots skólans. Í samn-
ingnum kemur ennfremur fram að
menntamálaráðuneytið greiði skóla-
gjöld fyrir stúlkurnar í Snyrtiskólan-
um í Kópavogi. Stúlkurnar ljúka þeim
tveimur önnum sem þær áttu eftir á
einni önn í Snyrtiskóla Kópavogs.
Ósk Vilhjálmsdóttir er skólastjóri
skólans og Morgunblaðinu lék for-
vitni á að vita hvernig henni litist á að
taka við nýju nemendunum.
„Mér líst mjög vel á þetta allt sam-
an og það er gott að þessari löngu
baráttu er loks lokið. Skólinn kemur
eins mikið til móts við óskir nemenda
og hægt er og ég veit að þær eru mjög
sáttar við niðurstöðuna,“ sagði Ósk.
Af þeim átján stúlkum sem voru við
nám í Snyrtiskóla Íslands munu sex-
tán hefja nám við skólann í haust en
tvær úr hópnum eru þegar komnar á
verksamning.
Ákveðin hagræðing
nauðsynleg
Í skólanum eru fyrir 45 nemendur.
Ósk sagði að þurft hefði að hagræða
til að skapa rými handa þessum nýju
nemendum og væri það m.a. gert með
því að kenna um helgar. Átta kenn-
arar eru við skólann og var ákveðið að
ráða ekki fleiri kennara, en þeir sem
fyrir eru munu taka á sig aukavinnu.
„Það leggst á kennarana eitthvert
aukaálag en þó ekki svo mikið að það
geri neinn skaða,“ sagði Ósk sem
sagðist vera afar fegin að þessu máli
væri lokið og að það hefði verið far-
sællega til lykta leitt.
„Nú hættir þessi ruglingur um að
okkar skóli hafi orðið gjaldþrota og
nú er aðeins einn starfandi einkaskóli
í faginu, sem er Snyrtiskólinn í Kópa-
vogi,“ sagði Ósk að lokum.
Ósk Vilhjálmsdóttir, skólastjóri
Snyrtiskóla Kópavogs
„Gott að þessari
löngu baráttu
er lokið“
Eftir að samningurinn hafði verið undirritaður. F.v. Jónína Brynjólfs-
dóttir, Karl Kristjánsson, Ingibjörg Benediktsdóttir, Ósk Vilhjálmsdóttir,
Inga Þyrí Kjartansdóttir og Þórir Ólafsson.
JAKOBÍNA Jónasdóttir er
vinsæl hjá barnabörnunum
enda ekki allir krakkar sem
eiga ömmu sem er Íslands-
meistari í kleinubakstri. Tit-
ilinn fékk hún eftir að hafa
séð auglýsingu um landsmót í
kleinubakstri á Akranesi sl.
laugardag, drifið sig á stað-
inn og brætt bragðlauka dóm-
nefndarinnar.
„Þetta var svo óvænt. Ég
hef aldrei verið meistari í
neinu,“ segir Jakobína en
rekur svo minni til seinna í
samtalinu að hafa unnið
kökukeppni um árið og hlotið
verðlaun fyrir. Hún galdrar
því ekki bara fram einstakar
kleinur heldur bakar dýrindis
kökur og er hrifin af gam-
aldags mat.
„Við lifum upp á þennan
gamla góða máta hérna,“ seg-
ir hún. „Það er mjög vinsælt,
ekki síst hjá barnabörnunum,
að komast í svona mat hjá
ömmu sinni. Þá fá þau einnig
hrísgrjónagraut með rjóma
og bláberjaskyr.“
Uppskriftin ekkert
leyndarmál
Uppskrift að meistarakleinum
fæðist ekki á einum degi. Jakobína
segist hafa unnið við matreiðslu á
hóteli og fékk þá mikið lof fyrir
kleinurnar. „Gárungarnir sögðu að
kallinn sem átti hótelið hefði dáið
af kleinuáti, ég trúi því nú varla,“
segir hún hlæjandi og spyr svo:
„Veistu hvað ég er gömul? 76 ára
svo ég er búin að baka kleinur
lengi.“
Uppskrift Jakobínu er ekkert
leyndarmál og hún fús að gefa
hana upp svo sem flestir geti notið
kleinubaksturs. Nokkur atriði er
þar að finna fyrir tilviljun og
kannski óeðlileg miðað við aðrar
kleinuuppskriftir, en slíkt er ein-
mitt lykillinn að sérstöðu uppskrift-
arinnar. „Ég set tvær teskeiðar af
þurrgeri en það kom til af hend-
ingu. Mig vantaði lyftiduft og
nennti ekki að fara og fá það lánað.
Í staðinn notaði ég þurrger og það
var það besta,“ segir Jakobína.
Einnig sé ekki venjan að nota
rjóma.
Meistarakleinur Jakobínu
4 stórir bollar af hveiti
1 bolli af strásykri
2 dl rjómi
2 dl súrmjólk
2 tsk venjulegt lyftiduft
1 tsk matarsóti
1 tsk hjartasalt
2 tsk þurrger
2 egg
Kardimommudropar
Vanillusykur
„Þetta er nú ekkert erfitt eða
vandað,“ segir hún hógvær eftir
lesturinn, en fyrst komst upp-
skriftin á blað fyrir kleinukeppnina
„Svo er eitt enn sem á eig-
inlega að fylgja: Kleinur
eru mjög góðar með kaldri
mjólk og þær eru alveg
ómótstæðilegar ef þú dýfir
þeim ofan í rabarbara-
sultu.“ Það bragð notaði
hún á dómnefndina sem titl-
aði hana fyrir vikið Íslands-
meistara í kleinubakstri.
„Ég nota líka hrað-
suðupott sem hitnar upp í
200 gráður. Það er ekki
hægt á 180 gráðum. Ég
nota til helminga plöntufeiti
og íslenska tólg, til að fá
pínulítið tólgarbragð. Það
fylgdi alltaf kleinunum í
gamla daga,“ segir Jak-
obína og greinilegt að smá-
atriðin eru engin smá atriði
þegar allt kemur til alls.
Vildi taka hana
með heim
Það kemur líka fólk alls
staðar að til að leita uppi
bestu kleinur í heimi. Jak-
obína segir frá enskumæl-
andi manni sem hafi spurt
eftir henni að loknu landsmótinu.
„Hann var búinn að fara víða um
Ísland að eltast við góðar kleinur
og hélt að hann væri búinn að finna
þær bestu á Akureyri. Hann gafst
þó ekki upp og keyrði sérstaklega
á Akranes á keppnina. Hann sagð-
ist aldrei hafa smakkað annað eins
og spurði eina konuna hvort hann
gæti ekki fengið mig með sér heim
því hann vantaði bæði kleinugerð-
arkonu og ömmu.“ Hróður hennar
berst því víða.
Jakobína býr á Hvanneyri en fór
strax eftir keppnina í sumarbústað
undir Austur-Eyjafjöllum þar sem
afmæliskaffi verður á sunnudag-
inn. Og auðvitað ætlar hún að ná í
efni í góða kleinuuppskrift. Hún
hlýtur að vera vinsæl fyrir allan
sinn verðlaunabakstur. „Jájá. Ég
held að ég sé það bara á allan
hátt,“ segir Jakobína að lokum,
ánægð með titilinn.
Jakobína Jónasdóttir er Íslandsmeistari í kleinubakstri
Jakobínu Jónasdóttur er margt til lista lagt. Ekki
nóg með að hún baki bestu kleinur á Íslandi heldur
hefur hún einnig sigrað í kökukeppni.
Kleinurnar ómótstæðileg-
ar með rabarbarasultu