Morgunblaðið - 28.06.2003, Page 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KAUPÞING Búnaðarbanki til-
kynnti í gær að bankinn hefði gengið
frá erlendri fjármögnun til tveggja
ára að upphæð 500 milljónir evra,
eða sem nemur rúmum 43,5 milljörð-
um króna. Útgáfan, sem er sú lang-
stærsta sem íslenskt fyrirtæki hefur
staðið að til þessa, er liður í endur-
fjármögnun bankans.
Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri
segir að með henni sparist fjármögn-
unarkostnaður sem mælist í hundr-
uðum milljóna króna árlega. „Vaxta-
álag er u.þ.b. 40% lægra en
Kaupþing og Búnaðarbanki höfðu
áður,“ segir hann.
Hreiðar segir að gjarnan hafi ver-
ið talað um samruna Kaupþings og
Búnaðarbanka sem ákjósanlegan
samruna. „Nú má segja að alþjóð-
legur skuldabréfamarkaður hafi
staðfest það,“ segir hann.
Um er að ræða útgáfu skuldabréfa
á alþjóðlegum markaði innan svo-
kallaðs EMTN-fjármögnunar-
ramma Kaupþings Búnaðarbanka
(„Euro Medium Term Note Pro-
gramme“). Í tilkynningu frá bankan-
um segir að upphaflega hafi staðið til
að gefa út skuldabréf fyrir 250 millj-
ónir evra, en vegna mikils áhuga er-
lendra fjárfesta hafi verið ákveðið að
stækka útgáfuna í 500 milljónir. „Út-
gáfan gekk hratt fyrir sig og skiptist
á milli hátt í 50 fjárfesta víðs vegar
um Evrópu,“ segir í tilkynningunni.
Stærsta skuldabréfaút-
gáfa íslensks fyrirtækis
Sparar Kaupþingi Búnaðarbanka hundruð milljóna árlega
VÖRUSKIPTIN í maí voru óhag-
stæð um 1,7 milljarða króna en í maí í
fyrra voru þau hagstæð um 2,3 millj-
arða á sama gengi. Í maímánuði voru
fluttar út vörur fyrir 15,1 milljarð
króna og inn fyrir 16,8 milljarða
króna fob.
Fyrstu fimm mánuði ársins voru
fluttar út vörur fyrir 78,5 milljarða
króna en inn fyrir 76 milljarða króna
fob. Afgangur var því á vöruskiptun-
um við útlönd sem nam 2,5 milljörð-
um króna en á sama tíma árið áður
voru þau hagstæð um 9,6 milljarða á
sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn
var því 7,1 milljarði lakari en á sama
tíma árið áður.
Samkvæmt upplýsingum frá
Greiningu Íslandsbanka hafa vöru-
skiptin verið neikvæð um 4,7 millj-
arða króna síðustu þrjá mánuði og
ekki mælst jafn mikill halli yfir
þriggja mánaða tímabil síðan í lok árs
2001.
Ef vöruskiptin eru skoðuð án
óreglulegra liða eins og skipa og flug-
véla koma enn meiri umskipti í ljós.
Vöruskiptajöfnuður án skipa og flug-
véla var jákvæður um 4,2 milljarða
króna á fyrstu fimm mánuðum ársins
en í fyrra nam afgangurinn 18,5 millj-
örðum, að því er segir í Hálf fimm
fréttum Kaupþings Búnaðarbanka.
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu
fimm mánuði ársins var 5,2 milljörð-
um eða 6% minna á föstu gengi en á
sama tíma árið áður. Sjávarafurðir
voru 61% alls útflutnings og var verð-
mæti þeirra 11% minna en á sama
tíma árið áður. Mestur samdráttur
varð í verðmæti fiskimjöls og salt-
fisks. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara
var 2% meira en á sama tíma 2002.
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu
fimm mánuði ársins var 1,9 milljörð-
um eða 3% meira en á sama tíma árið
áður. Aukning varð í innflutningi á
fjárfestingarvörum, neysluvörum,
hrávörum og rekstrarvörum og fólks-
bílum en á móti kemur minni inn-
flutningur á skipum og flugvélum.
Greiningardeild Kaupþings Bún-
aðarbanka spáir því að innflutningur
haldi áfram að aukast en ýmsir hag-
vísar eins og væntingavísitala Gallup
og einkaneysla á fyrsta ársfjórðungi
gefi það til kynna. „Á sama tíma er
allt útlit fyrir að verðmæti útflutnings
dragist saman frá fyrra ári, bæði
vegna minni fiskafla og sterkari
krónu. Greiningardeild spáir því
áframhaldandi neikvæðum afgangi á
vöruskiptum á næstu mánuðum,“ að
því er segir í Hálf fimm fréttum.
!!"
#
!
"!#
! " # !
$
$!
%
$%
"
$
&
'
$
&! ' (
() **+(
, ,-,(
../)
( *0/(
,0 -+/.
*0+)
( (*-.
. /-((
, 10/+
1,0,
, .)/-
+ --0*
(+ +-*-
, -+(-
/01(
( ,.01
,0 0(1(
(11+
( *)+)
. )(01
. /)10
( */(+
( *00/
( 0+/,
! "
2(,3
4*).3
4(-3
4.113
"
4..3
4++3
2,-*3
4*,-3
4(0/3
4)/13
4/,/3
2.,*3
2-0*3
#$%&'
()
*
+
),#*-
&5!% !
% 6
Halli á vöru-
skiptum þriðja
mánuðinn í röð
FYRIRTÆKI sem sérhæfa sig í
flutningi hingað til lands eru farin
að finna fyrir mikilli aukningu í inn-
flutningi. Knútur Hauksson, for-
stjóri Samskipa, segist telja að
aukningin sé á bilinu 20–25% frá síð-
asta ári.
Að sögn Gunnars Bachmann,
framkvæmdastjóra Vöruhótels Eim-
skips, hafa starfsmenn hótelsins
sannarlega fundið fyrir auknum
innflutningi að undanförnu.
„Auðvitað er það ánægjulegt þeg-
ar allt er brjálað að gera. Ef við
horfum til Eimskips þá eru þeir að
upplifa metvikur í flutningum.“
Gunnar segir marga nýja við-
skiptavini hafa bæst við að und-
anförnu. „Við tökum ekki við fleiri
viðskiptavinum fyrr en í haust.
Núna eru um tíu fyrirtæki á bið-
lista.“
Að sögn Gunnars er nóg pláss í
Vöruhótelinu en þar sem starfsem-
in, húsið og allt tölvukerfi sé nýtt af
nálinni taki það tíma að þjálfa upp
starfsfólk auk þess sem margir séu í
sumarfríi. Af þeim sökum vilji þeir
ekki fara of geyst af stað. „Við vilj-
um stjórna dansinum en ekki láta
stjórna okkur. Ætlum þess vegna
ekki að taka inn fleiri fyrr en í
haust. Þeir viðskiptavinir sem hafa
komið hingað inn hafa aukið magnið
sitt meira en við gerðum ráð fyrir í
fyrstu,“ segir Gunnar.
Auðvelt að bregðast við
Knútur Hauksson, forstjóri Sam-
skipa, segir að fyrirtækið sé farið að
finna fyrir mikilli aukningu í inn-
flutningi. „Mun meiri en áætlanir
okkar gerðu ráð fyrir. Skipin eru
full og við höfum kallað inn fimm
eða sex aukaskip vegna innflutn-
ings. Við erum með sveigjanlegt
kerfi, sem gengur út á að kalla inn
aukaskip ef óvenju mikið er að gera.
Við eigum mjög auðvelt með að
bregðast við þessari auknu eft-
irspurn,“ segir hann. Knútur segist
geta ímyndað sér að aukningin frá
sama tíma í fyrra sé á bilinu 20–25%.
Ekki aukning í flugi
Róbert Tómasson, markaðs- og
sölustjóri Icelandair Cargo, segir að
félagið sé ekki farið að finna fyrir
auknum innflutningi. „Það má segja
að hann sé svipaður og í fyrra, ef lit-
ið er til maí og júní. Sennilega kem-
ur aukningin vegna aukinna um-
svifa, m.a. vegna
virkjanaframkvæmda, seinna í flug-
flutningum en sjóflutningum,“ segir
hann.
Mikil aukning í inn-
flutningi með skipum
LÍF hf., áður Lyfjaverslun Íslands
hf., hefur gert 1,7 milljarða króna
samning við Landsbanka Íslands hf.
um endurfjármögnun lána félagsins.
Samningurinn snýr að fjármögnun
rekstrar félagsins til langs tíma.
Markmið breytinganna var að ná
hagkvæmri langtímafjármögnun á
skuldum félagsins, að því er fram
kemur í tilkynningu.
Líf var áður í viðskiptum við Bún-
aðarbanka Íslands, nú Kaupþing
Búnaðarbanka. „Það var kominn tími
fyrir okkur að endurfjármagna okkar
lán. Við fengum Ráðgjöf og efnahags-
spár til að fara með okkur í útboð á
endurfjármögnun lánanna. Þessi
samningur er árangur af því. Við
treystum báðum bönkum, en þetta
var einfaldlega spurning um kjör og
hagsmuni hluthafa félagsins,“ segir
Sturla Geirsson, forstjóri Lífs.
„Áður en við fórum í viðskipti við
Búnaðarbankann vorum við hjá
Landsbankanum. Okkar hlutverk á
hverjum tíma er að leita hagkvæm-
ustu leiða til fjármögnunar félagsins
fyrir eigendur þess. Í þessu tilfelli er
okkar hagkvæmasti kostur að eiga
viðskipti við Landsbankann og við
treystum þeim mönnum sem þar
vinna, þannig að þetta fer saman. Við
leituðum til allra banka á Íslandi en
það tilboð sem við fengum frá Lands-
bankanum var best,“ segir Sturla.
Gagnkvæmt traust skiptir máli
Sigurjón Þ. Árnason, annar banka-
stjóra Landsbanka Íslands, skrifaði
undir samninginn fyrir hönd bank-
ans. Hann segir það ánægjuefni að fá
Líf í hóp viðskiptavina bankans. Sig-
urjón var áður framkvæmdastjóri hjá
Búnaðarbankanum en kom yfir til
Landsbankans í kjölfar sameiningar
bankans við Kaupþing banka.
„Í öllum viðskiptum skiptir þrennt
máli. Þjónusta, þau kjör sem í boði
eru og traust manna á millli. Af þessu
þrennu þá ætli við höfum ekki byggt
þennan samning á því að við þekktum
og treystum hvorir öðrum. Vonandi
getum við líka boðið betri kjör og
þjónustu. Ég held að það gildi um öll
fyrirtæki að þau leita þangað sem þau
fá best samræmi á milli þjónustu og
verðs,“ segir Sigurjón.
Hann segist vona að margir af
þeim viðskiptavinum sem hann og
fleiri starfsmenn Landsbankans sem
komu frá Búnaðarbankanum hafa
kynnst í gegnum tíðina séu tilbúnir að
versla við Landsbankann. „Ég vona
að við getum sýnt okkar ágætu fé-
lögum í Búnaðarbankanum sam-
keppni. Það er alls ekki þannig að
hægt sé að gera ráð fyrir að viðskipta-
vinir úr Búnaðarbankanum komi yfir
í Landsbankann. Þótt persónutengsl
og trúnaður milli manna séu mikil-
væg þá eru menn ekki tilbúnir til að
borga óhemju fjárhæðir fyrir það.“
Starfsemi Lífs hf. felur í sér miðlun
vöru, þjónustu og þekkingar á heil-
brigðismarkaði. Líf hf. er stærsti
dreifingaraðili lyfja, lækningavara og
annarra heilbrigðistengdra vara á Ís-
landi. Líf hf. á nú níu dótturfyrirtæki
á Íslandi og tvö í Eystrasaltslöndun-
um. Hluthafar í félaginu eru 668 tals-
ins.
Líf flytur viðskipti til Lands-
banka frá Búnaðarbanka
SNEMMA í gærmorgun tilkynnti
Baugur að hann hefði hækkað tilboð
sitt í bresku leikfangaverslunina
Hamleys úr 205 pensum á hlut í 226
pens og greint var frá því að tilgang-
urinn með hækkun tilboðsins væri að
ná sem fyrst niðurstöðu í málinu.
Seinnipartinn í gær kom svo fram til-
boð frá Tim Waterstone upp á 230
pens á hlut, en Waterstone hafði til-
kynnt fyrir nokkru að hann væri að
undirbúa yfirtökutilboð.
Að sögn talsmanns Baugs er
Baugur að skoða tilboð Waterstones
og íhuga næstu skref.
Eftir að hafa sett fram tilboð sitt
hefur Waterstone, sem rekur leik-
fangaverslunina Daisy & Tom, 12
daga til að leggja fram formlegt til-
boðsyfirlit. Eftir það hafa hluthafar
um tvo mánuði til að taka afstöðu til
tilboðanna, auk þess sem möguleiki
er á framlengingu frests. Það getur
því liðið nokkur tími þar til endanleg
niðurstaða fæst.
Í tilboðinu frá Waterstone kemur
fram að tilboðið er að fullu fjármagn-
að staðgreiðslutilboð og að tilboðs-
gjafi hafi, ýmist með ákveðnum skil-
yrðum eða óafturkræft, tryggt sér
21,4% hlutafjár í Hamleys. Ekki
tókst að ná tali af Waterstone í gær,
en í tilboðinu er haft eftir honum að
með kaupum á Hamleys megi ná
fram umtalsverðum samlegðaráhrif-
um milli Hamleys og Daisy & Tom,
sem geti hjálpað Hamleys við að
vaxa og dafna.
Tilboðið upp á
52,2 milljónir punda
Tim Waterstone er stofnandi Wat-
erstone bókaverslananna, sem nú
eru í eigu HMV. Vangaveltur hafa
verið uppi í nokkurn tíma um að
hann kynni að leggja fram tilboð í
Hamleys, en ekkert lá fyrir um það
fyrr en í gær og fram að þeim tíma
var Baugur einn um hituna.
Samkvæmt fyrra tilboði Baugs
var Hamleys í heild sinni verðlagt á
47 milljónir punda en seinna tilboð
Baugs var rúmum 10% hærra, eða
52,2 milljónir punda, sem jafngildir
6,6 milljörðum króna. Eftir þá hækk-
un er yfirtökutilboð Baugs 79% yfir
lokaverði Hamleys 14. mars síðast-
liðinn, síðasta viðskiptadag áður en
Baugur tilkynnti að ætlunin væri að
gera yfirtökutilboð í félagið.
Waterstone býður hærra í Hamleys
Kaldbakur
seldi Bústólpa
Rangt var farið með í frétt
í Viðskiptablaði Morgun-
blaðsins á fimmtudag að
Kaldbakur hefði selt hlut sinn
í Fóðurblöndunni. Hið rétta
er að Kaldbakur seldi Fóð-
urblöndunni fóður- og áburð-
arsölufyrirtækið Bústólpa
sem var að fullu í eigu
Kaldbaks.
Beðist er velvirðingar á
þessum leiðu mistökum.
LEIÐRÉTT