Morgunblaðið - 28.06.2003, Side 14
ERLENT
14 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRESKI Íhaldsflokkurinn nýtur nú
meira fylgis en Verkamannaflokkur-
inn í fyrsta skipti í ellefu ár, ef marka
má skoðanakönn-
un sem The Daily
Telegraph birti í
gær.
Samkvæmt
könnuninni er
Íhaldsflokkurinn
með 37% fylgi,
einu prósentu-
stigi meira en í
lok maí. Stuðn-
ingurinn við Verkamannaflokkinn
hefur hins vegar minnkað um tvö
prósentustig, er nú 35%. Um 21% að-
spurðra sögðust myndu kjósa
Frjálslynda demókrata ef kosið væri
nú.
Verkamannaflokkurinn komst til
valda árið 1997 og hefur haft forskot
á Íhaldsflokkinn í skoðanakönnun-
um frá haustinu 1992 að undanskil-
inni skammvinnri fylgislægð stjórn-
arinnar í september 2000 þegar fylgi
flokkanna var jafnmikið.
Rakið til Íraksmálsins
The Daily Telegraph rekur
minnkandi fylgi Verkamannaflokks-
ins í síðustu skoðanakönnunum til
deilunnar um hvort stjórn Tonys
Blairs forsætisráðherra hafi gert of
mikið úr hættunni sem stafaði af
stjórn Saddams Husseins og vopna-
búri hennar til að réttlæta stríðið í
Írak. Blair hefur einnig átt undir
högg að sækja vegna annarra mála,
svo sem fjárskorts skóla, óákveðni í
evru-málinu og óvissu um hvort
hækka eigi skatta hinna efnameiri,
að sögn The Daily Telegraph. Þá
hefur forsætisráðherrann verið
gagnrýndur fyrir uppstokkun á
stjórninni nýlega.
Fylgi Blairs sjálfs hefur einnig
minnkað mjög og 63% aðspurðra
sögðust telja að hann hefði ekki
reynst áreiðanlegur.
Bretland
Íhalds-
flokkur-
inn með
mest fylgi
London. AFP.
Tony Blair
STROM Thurmond, sem sat lengst
allra í öldungadeild Bandaríkja-
þings, lést í heimabæ sínum í Suð-
ur-Karólínu í fyrrakvöld, 100 ára að
aldri. Hann sat í öldungadeildinni í
tæpa hálfa öld þar til hann settist í
helgan stein í janúar síðastliðnum.
Thurmond bauð sig m.a. fram í
forsetakosningunum í Bandaríkj-
unum árið 1948 og barðist fyrir að-
skilnaði kynþátta. Hann var þá
demókrati en gekk síðar í Repú-
blikanaflokkinn.
Thurmond hóf stjórnmálaferil-
inn árið 1929 þegar hann var kjör-
inn í menntamálanefnd Suður-Kar-
ólínu. Hann var síðan kjörinn á
þing Suður-Karólínu og varð rík-
isstjóri áður en hann náði kjöri í
öldungadeild Bandaríkjaþings árið
1954.
Met í málþófi
Pólitískt og líkamlegt úthald
Thurmonds var frægt og hann á
enn met í málþófi á Bandaríkja-
þingi. Það setti hann á sjöunda ára-
tugnum þegar hann talaði samfellt í
sólarhring og 18 mínútur í umræðu
um frumvarp sem miðaði að því að
binda enda á kynþáttamismunun í
húsnæðismálum.
Afstaða Thurmonds í kynþátta-
málum mildaðist með árunum.
Hann varð fyrsti öldungadeildar-
þingmaðurinn frá Suðurríkjunum
til að ráða svarta aðstoðarmenn,
studdi tilnefningu fyrsta blökku-
mannsins í embætti dómara í Suð-
urríkjunum og greiddi atkvæði með
því að fæðingardagur Martins Lut-
hers Kings Jr. yrði almennur frí-
dagur.
Aldurinn setti mark sitt á Thur-
mond og síðustu misserin var hon-
um ekið um ganga þinghússins í
hjólastól. Hann hafði þó enn mikil
pólitísk áhrif og fékk George W.
Bush forseta m.a. til að skipa 29 ára
gamlan son sinn í embætti ríkissak-
sóknara Suður-Karólínu.
Thurmond lætur eftir sig eigin-
konu, tvo syni og dóttur. Fyrsta
barnabarn hans fæddist nú í júní.
Í framboði gegn Truman
Thurmond fæddist 5. desember
árið 1902 í bænum Edgefield í Suð-
ur-Karólínu. Hann starfaði sem
lögmaður og síðan dómari en eftir
að hafa gegnt herþjónustu í síðari
heimsstyrjöldinni var hann kjörinn
ríkisstjóri í Suður-Karólínu árið
1947. Gegndi hann því embætti til
1951. Í millitíðinni var hann í fram-
boði til forsetaembættisins en
Thurmond bauð sig fram gegn sitj-
andi forseta, demókratanum Harry
S. Truman, árið 1948.
Átti framboð Thurmonds rætur
að rekja til óánægju meðal demó-
krata frá Suðurríkjunum, svo-
nefndra „dixíkrata“, með forset-
ann. Voru hinir íhaldssömu
„dixíkratar“ hlynntir aðskilnaði
svartra manna og hvítra og and-
snúnir réttindabaráttu blökku-
manna.
Sem óháður frambjóðandi í for-
setakosningunum tókst Thurmond
að tryggja sér sigur í fjórum ríkj-
um; Alabama, Louisiana, Mississ-
ippi og Suður-Karólínu, en Truman
náði engu að síður kjöri sem forseti.
Rúmri hálfri öld síðar, þegar
Thurmond hélt upp á hundrað ára
afmæli sitt, sagði Trent Lott, þá-
verandi leiðtogi meirihlutans í öld-
ungadeildinni, að kjósendur í Miss-
issippi væru stoltir af því að hafa
stutt hann í forsetakosningunum.
„Ef aðrir landsmenn hefðu farið að
dæmi þeirra hefðum við ekki átt við
öll þessi vandamál að stríða í öll
þessi ár,“ sagði Trott. Ummælin
urðu til þess að hann neyddist til að
segja af sér þar sem hann þótti gefa
til kynna að hann styddi viðhorf
Thurmonds á þessum tíma í kyn-
þáttamálunum.
Thurmond bauð sig fyrst fram til
öldungadeildarinnar árið 1950 en
hafði ekki erindi sem erfiði þá.
Fjórum árum síðar tókst honum
hins vegar að tryggja sér sigur og
hann sat á þingi í rúm 48 ár.
Gekk til liðs við
repúblikana
Árið 1964 sagði Thurmond skilið
við Demókrataflokkinn og gekk til
liðs við repúblikana en hann var
það ár dyggur stuðningsmaður
forsetaframboðs íhaldsmannsins
Barrys Goldwaters. Goldwater
tapaði fyrir demókratanum
Lyndon B. Johnson í kosningum
það ár.
Fjórum árum síðar lagði Thur-
mond sín lóð á vogarskálarnar til að
tryggja Richard M. Nixon sigur en
honum er að hluta til þakkað gott
fylgi Nixons í Suðurríkjunum. Á
seinni árum barðist Thurmond á
vettvangi Bandaríkjaþings gegn
lögleiðingu fóstureyðinga, var and-
vígur lagasetningu um byssueign
og öflugur stuðningsmaður hug-
mynda um „stjörnustríðsáætlun“,
þ.e. sérstakt eldflaugavarnakerfi.
Bandaríski þingmaðurinn Strom Thurmond látinn
Sat í tæpa hálfa öld í
öldungadeild þingsins
Washington. AFP, AP.
Reuters
Strom Thurmond slær á létta strengi með starfskonum öldungadeildar
Bandaríkjaþings 24. september síðastliðinn.
MJÖG heitt hefur verið á Ítalíu að undanförnu, 35
gráður á celsíus og meira, og fólk grípur til ýmissa
ráða til að svala sér. Þessar stúlkur voru í gær að kæla
sig í Triton-gosbrunninum við Barberini-torg í Róm.
AP
Stúlkur svala sér í hitabylgjunni
KUNNUR þingmaður
á Evrópuþinginu sagði
í gær, að ítalska
stjórnin væri ekki
undir það búin að vera
í forsæti innan Evr-
ópusambandsins og
bætti við, að væru
Ítalir nú í hópi um-
sóknarþjóða, hefði um-
sókn þeirra verið hafn-
að og þeim sagt að
taka fyrst til í eigin
ranni.
„Almenningur í
Evrópu veit varla
hvaðan á hann stendur
veðrið þegar forsætis-
ráðherra lætur breyta lögum til að
ónýta spillingarréttarhöld yfir sér
og innanríkisráðherra talar um að
láta herinn skjóta niður báta með
ólöglegum innflytjendum,“ sagði
Graham Watson, en hann er leið-
togi sameinaðs þingflokks frjáls-
lyndra demókrata á Evrópuþing-
inu. Með ummælum sínum átti
hann við Silvio Berlusconi, for-
sætisráðherra Ítalíu, og Umberto
Bossi, innanríksráðherra landsins.
Sagði hann einnig að Ítalíu hefði
verið hafnað sem um-
sóknarríki nú „vegna
þess að við gerum
meiri siðferðiskröfur
en þessi dæmi sýna“.
Watson lét þesi orð
falla í ræðu, sem hann
flutti í Róm, en í henni
gagnrýndi hann einnig
leiðtoga Evrópusam-
bandsríkjanna fyrir að
horfa framhjá rann-
sóknum á meintum af-
brotum Berlusconis.
„Sumir láta sér
sæma að hafa sam-
skipti við Berlusconi,
pólitísk og önnur, rétt
eins og framferði hans komi engum
við nema Ítölum,“ sagði Watson,
„en gleymum því ekki, að sem eins
konar forseti ESB mun hann koma
fram fyrir okkar hönd.“
Höfðað hefur verið mál gegn
Berlusconi fyrir misferli á Ítalíu og
Spáni en fyrir skömmu samþykkti
ítalska þingið lög um friðhelgi hans
og fjögurra annarra æðstu manna
ríkisins. Berlusconi verður í forsæti
fyrir ESB í hálft ár frá og með 1.
júlí.
Hneykslast á
forsæti Berl-
usconis í ESB
Brussel. AP.
Silvio Berlusconi