Morgunblaðið - 28.06.2003, Síða 44
DAGBÓK
44 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Á
morgun er Brúarfoss
væntanlegt.
Hafnarfjarðarhöfn: Á
morgun eru væntanleg
Barði NK, Kolo-
menskoe og Eridanus.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Morgunganga er frá
Hraunseli kl. 10. Rúta
frá Firðinum kl. 19.50.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Skrifstofa
félagsins er í Faxafeni
12. Sími 588 2111.
Dagsferð 12. júlí, sögu-
ferð í Borgarfjörð.
Hvanneyri, Deild-
artunguhver, Reyk-
holt, Hraunfossar,
Húsafell og fleira.
Kaffi og meðlæti í
Munaðarnesi. Leið-
sögn Sigurður Krist-
insson.
Félag aldraðra í Mos-
fellsbæ minnir á göng-
una í dag. Mæting við
Hlégarð kl. 11. Gengið
verður frá Hafravatns-
rétt. Skrifstofa félags-
ins verður lokuð í sum-
ar til 2. september.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Lokað vegna
sumarleyfa frá 30. júní
til 12. ágúst. Sund og
leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug á
mánudögum, mið-
vikudögum og föstu-
dögum kl. 9.30. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575 7720.
FEBK. Púttað á Lista-
túni kl. 10.30 á laug-
ardögum. Mætum öll
og reynum með okkur.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl.
10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka.
Krummakaffi kl. 9.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vik-
unnar. Létt leikfimi,
bakleikfimi karla,
vefjagigtarhópar, jóga,
vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði er
bent á fund í Gerðu-
bergi á þriðjudag kl.
17.30.
GA-fundir spilafíkla
kl. 18.15 á mánudögum
í Seltjarnarneskirkju
(kjallara) kl. 20.30 á
fimmtudögum í
fræðsludeild SÁA,
Síðumúla 3-5, og í
kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugardögum kl. 10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
á Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Oa samtökin. Átrösk-
un / Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga. Upp-
lýsingar á www.oa.is
og síma 878 1178.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga frá
kl. 14.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti,
Stangarhyl 2, er opinn
þriðjudaga og fimmtu-
daga frá kl. 14-17. Leið
10 og 110 ganga að
Kattholti.
Minningarkort
Barnaspítali Hrings-
ins. Upplýsingar um
minningarkort Barna-
spítalasjóðs Hringsins
fást hjá Kvenfélagi
Hringsins í síma 551-
4080. Kortin fást í
flestum apótekum á
höfuðborgarsvæðinu.
Bergmál, líknar og
vinafélag. Minning-
arkort til stuðnings or-
lofsvikna fyrir krabba-
meinssjúka og
langveika fást í síma
587-5566.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings
málefnum barna fást
afgreidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta alla
daga fyrir hádegi.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Thor-
valdsensfélagsins eru
til sölu á Thorvald-
sensbazar, Austur-
stræti 4, s. 551-3509.
Samúðar- og heilla-
óskakort Gídeon-
félagsins er að finna í
anddyrum eða safn-
aðarheimilum flestra
kirkna á landinu, í
Kirkjuhúsinu, á skrif-
stofu KFUM & K og
víðar. Þau eru einnig
afgreidd á skrifstofu
Gídeonfélagsins, Vest-
urgötu 40, alla virka
daga frá kl. 14-16 eða í
síma 562 1870. Allur
ágóði fer til kaupa á
Nýja testamentum
sem gefin verða 10 ára
skólabörnum eða kom-
ið fyrir á sjúkrahúsum,
hjúkrunarheimilum,
hótelum, fangelsum og
víðar.
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stang-
arhyl 1, 110 Reykjavík.
S. 570 5900. Fax: 570
5901. Netfang: slysa-
varnafelagid@lands-
bjorg.is
Í dag er laugardagur 28. júní,
179. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Nýtt boðorð gef ég
yður, að þér elskið hver annan.
Eins og ég hef elskað yður, skuluð
þér einnig elska hver annan.
(Jóh. 13,34).
Margar hagfræði-kenningar ganga út
á að einstaklingar séu sí-
fellt að leitast við að
gera það sem er skyn-
samlegast miðað við þær
upplýsingar sem fyrir
liggja hverju sinni. En
þrátt fyrir að þessi
grundvallarhugsun liggi
að baki margri fræði-
kenningunni þá virðist
það engu að síður ljóst
að hún stenst alls ekki í
daglegu lífi okkar
flestra,“ segir Benedikt
Jóhannesson í Öðrum
sálmum í nýjustu Vís-
bendingu.
Við vitum vel að þaðværi skynsamlegra
að fara út að hreyfa sig í
stað þess að hanga lang-
ar stundir yfir sjónvarp-
inu, en samt veljum við
sjónvarpsglápið. Ef við
horfum á sjónvarp á
annað borð væri skyn-
samlegra að horfa á eitt-
hvað fræðandi og upp-
byggilegt en kjánalega
afþreyingarþætti, en
samt veljum við létt-
metið. Auðvitað ekki
alltaf og ekki allir, en
þannig er þetta nú samt.
Fólk borðar alltof mikið
þó að allir viti að það er
skaðlegt heilsunni.
Margir reykja eða
drekka í óhófi, en aldrei
getum við kennt van-
kunnáttu um. Flestir
vinna að vísu langan
vinnudag og reyna að
gera það skammlaust.
En þegar heim er komið
finnst mönnum allt önn-
ur lögmál gilda.“
Í Vísbendingu segir aðokkur verði tíðrætt
um eyðslusemi fyr-
irtækja, svo ekki sé tal-
að um hið opinbera, sem
oft virðist kasta pening-
unum og jafnvel að yf-
irlögðu ráði. En svo er
spyr greinarhöfundur:
„Hversu skynsamlegt er
það að búa í húsum sem
eru alltof stór miðað við
brýnustu þarfir? Hvaða
vit er í því að aka á jepp-
um um malbikuð stræti
höfuðborgarinnar? Hvað
gætum við ferðast glæsi-
lega á hverju sumri af
vöxtunum af andvirði
sumarbústaðarins?
Við gætum öll veriðmiklu skynsamari ef
við nenntum að nýta
gráu sellurnar aðeins
oftar. En þá er komið að
kjarnanum. Væri lífið
jafnskemmtilegt? Hefð-
um við jafngaman af líf-
inu ef við fylgdumst allt-
af með þáttum um æxlun
mörgæsa og undursam-
lega sprettu túnfífilsins í
stað þess að horfa á
skrípakarlinn Jay Leno?
Þeirri spurningu getur
enginn svarað. Það er
hins vegar ljóst að kenn-
ingarnar eru ekki endi-
lega rangar, við gerum
frekar það sem hentar
okkur best til skamms
tíma en langs. Á morgun
ætlum við að hefja fjall-
göngur, skipuleggja
heimilisbókhaldið, taka
til í bílskúrnum og lesa
heimsbókmenntirnar,
eftir næstu helgi jafnvel
hætta að drekka,“ segir
í Öðrum sálmum.
STAKSTEINAR
Skynsamlegra að horfa
á æxlun mörgæsa
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI reynir nú alltaf aðforðast að koma út eins og ein-
hver fýlupúki en stundum verður
bara ekki hjá því komist ef ljóstra á
upp umbúðalaust því sem hvílir á
hjarta.
Eins og hann er nú skemmtilegur
söngleikur, lögin frábær og fyrri
kvikmyndin ógleymanleg þá þykir
Víkverja nú verið að bera í bakka-
fullan lækinn að setja sömu sýn-
inguna upp í þriðja sinn á níu árum
hér á landi. Fyrst til var Söng-
smiðjan árið 1994, svo var sýningin
sett upp í Borgarleikhúsinu fjórum
árum síðar og naut þá mikilla vin-
sælda og nú einungis fimm árum síð-
ar er enn búið að færa Grease upp á
íslenskar fjalir og það aftur Borg-
arleikhúsið.
Víkverji sér auðvitað hvað hefur
vakað fyrir framleiðendum. Að
hamra járnið meðan það er heitt,
keyra á ótrúlegum vinsældum að-
alstjarna sýningarinnar, Birgittu
Haukdal og Jóns Jóseps Snæbjörns-
sonar. En það verður að bíða og sjá
hvort það eitt réttlæti enn eina upp-
færsluna.
x x x
REYNDAR felst vonarneistinnum að uppfærslan sleppi fyrir
horn ekki í nærveru aðalstjarnanna
heldur er hugsanlegt að Gísli Rúnar
Jónsson þýðandi og Gunnar Helga-
son hafi náð að búa til eitthvað alveg
nýtt með því að stað- og tímafæra
Grease til Íslands, nánar tiltekið í
Grafarvog samtímans. Einkar vel til
fundið bragð til að hressa upp á
margtugginn efnivið og vonar Vík-
verji heitt og innilega að tilraunin
lánist. Í það minnsta eru bráð-
fyndnar þær breytingar sem sagt
hefur verið frá, eins og þær að
Danny Zuko heiti í sýningunni Daní-
el Zoëga og að töffararnir keyri ekki
lengur um á kádiljákum heldur á
Hyundai.
EITT fær Víkverji samt ekki skilið.Fyrst á annað borð verið er að
þýða og staðfæra nær allt í sýning-
unni, hvers vegna í ósköpunum heit-
ir verkið þá ennþá Grease, upp á
engilsaxneska vísu? Framleiðendur
gera því vafalítið skóna að það sé af
markaðslegum ástæðum, að það
nafn selji betur en eitthvert lummó
íslenskt nafn en það breytir því ekki
að smekklegra hefði verið að ganga
alla leið í að þýða og staðfæra verkið,
gefa verki sem leikið er á íslensku,
fyrir íslenska áhorfendur, íslenskt
nafn á borð Koppafeiti eða Klístur,
sem þegar hafa verið notuð um
Grease og hæfðu ágætlega. Hárið
gekk ágætlega þótt það hafi borið ís-
lenskt nafn, Söngvaseiður líka. Og
ekki veit Víkverji betur en að flestir
hafi vanið sig á að nota íslenska heit-
ið Litla hryllingsbúðin í stað hins
upprunalega Little Shop of Horror.
En slíkt gerist ekki nema framleið-
endur sýningarinnar taki af skarið
og gefi verki sem sýnt er á íslensku, í
íslensku leikhúsi, fyrir íslenska leik-
húsgesti, af íslenskum leikurum, ís-
lenskt nafn.
Annars ætlaði Víkverji ekkert að
vera með nein leiðindi og óskar öll-
um er að sýningunni koma góðs
gengis og áhorfendum góðrar
skemmtunar.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Úr Koppafeiti, Klístri eða bara Grís.
Varðandi grein
Sigrúnar
Thorarensen
ÞAÐ er ekki rétt að Sund-
deild Ægis beri enga
ábyrgð á börnunum, eins
og Sigrún lætur í veðri
vaka í grein sinni, sem birt-
ist 26. júní sl. í Velvakanda.
Sunddeildin ber þó ekki
ábyrgð á börnunum fyrr en
þau eru komin í hennar
umsjá, þ.e. á námskeið ofan
í laug.
Foreldrar eiga að fylgja
börnum sínum að laugar-
bakkanum, um það hafði
Sigrún, eins og aðrir for-
eldrar, fengið fyrirmæli. Ef
foreldrar fylgja ekki börn-
um sínum að laugarbakk-
anum geta orðið slys því að
börnin eru eftirlitslaus.
Sigrún segir enn fremur
að gjaldskrá hafi hækkað
um 90%. Það er ekki rétt.
Gjöldin eru þau sömu og í
fyrra og er það gert í sam-
ráði við ÍTR.
Hörður J. Oddfríðarson,
form. sundfélagsins Ægis.
Tapað/fundið
Gullarmband týndist
BREITT gullarmband, við
íslenska þjóðbúninginn,
týndist um miðjan maí.
Armbandið var nýuppgert
og týndist líklega í mið-
bænum eða á Laugavegi.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 697 6437.
Bolti tapaðist
MÁNUDAGINN 23. júní
sl. var drengur í afmæli hjá
ömmu sinni og týndi nýjum
Adidas-fótbolta. Boltinn
hefur annaðhvort tapast
inni á Hrafnistu eða fyrir
utan. Nafn eigandans,
Björgvin Már, var ritað á
boltann. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma
554 6767 eða 554 1662.
Taska tapaðist
SVÖRT tautaska með út-
saumuðum blómum og
steinum tapaðist mánu-
daginn 23. júní sl. á Soga-
vegi eða í nágrenni hans. Í
töskunni var seðlaveski
með skilríkjum og kortum
og er eigandanum því mikið
í mun að fá hana aftur.
Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 661 4052 eða 661 6075.
Fundarlaun í boði.
Lítill skór tapaðist
LÍTILL, rauður Nike-skór
með rennilás tapaðist sl.
föstudag einhvers staðar á
leiðinni Sogavegur–Glæsi-
bær. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 899 4904.
Dýrahald
Kettlingar
fást gefins
TVEIR yndislegir, kassa-
vanir kettlingar, annar með
hálft skott, fást gefins á
gott heimili. Upplýsingar í
síma 697 3761 eða 661 8019
eftir kl. 17.
Tvær læður
fást gefins
LÆÐUR fást gefins, þær
eru sjö vikna gamlar og
kassavanar. Upplýsingar í
síma 552 5886.
Kettlingar
fást gefins
FJÓRIR átta vikna gamlir
kettlingar fást gefins. Þeir
eru kassavanir. Upplýsing-
ar í síma 565 1418.
Gefins kettlingar
KETTLINGAR, tveggja
og hálfs mánaðar, fallegir
og skemmtilegir, fást gef-
ins. Upplýsingar í síma
893 2005.
Læða fannst
í Kópavoginum
LÍTILL kettlingur, e.t.v.
þriggja mánaða gamall,
fannst í Kópavoginum.
Þetta er læða og er hún
reykgrá að lit, ólarlaus og
ómerkt. Upplýsingar í síma
891 6191.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
LÁRÉTT
1 lund, 4 band, 7 sessum,
8 styrkir, 9 stúlka, 11
mannsnafn, 13 vætlar, 14
stefnan, 15 brúnþörung-
ar, 17 kropp, 20 flana, 22
varkár, 23 gisinn, 24
heift, 25 tek ákvörðun
um.
LÓÐRÉTT
1 vafasöm, 2 óhæfa,
3 sterk, 4 digur, 5 ráð-
vönd, 6 sér eftir, 10 kyn-
ið, 12 dæld, 13 elska, 15
talar ekki, 16 smágerði,
18 hagur, 19 dreitillinn,
20 grein, 21 bára.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 ættstórir, 8 rækta, 9 ætlar, 10 ríf, 11 seint,
13 annað, 15 hatts, 18 iðjan, 21 tíð, 22 kriki, 23 ræsið,
24 lingerður.
Lóðrétt: 2 tékki, 3 svart, 4 ógæfa, 5 illan, 6 hrós, 7 bráð,
12 nyt, 14 náð, 15 hökt, 16 teiti, 17 sting, 18 iðrar,
19 jussu, 20 níði.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16