Morgunblaðið - 28.06.2003, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2003 53
FYRIRSÖGNIN kann að hljóma
sem klisja en fyrir áhugafólk um
dægurtónlist – í hvaða formi sem er
– er þetta bara kórrétt. Það jafnast
ekkert á við Hróarskelduhátíðina
hvað fjölbreytt tónlistarval áhrærir
en þar fyrir utan er það stemningin,
andinn sem hefur markað henni
þann goðsagnakennda blæ sem far-
inn er að leika um hana. Þar fyrir ut-
an er skipulag hennar til hreinnar
fyrirmyndar og jafnvel smæstu at-
riði ganga eins og smurð vél. Aðsókn
á hátíðina er aukinheldur ávallt mikil
og jöfn og í ár er uppselt, 70.000 mið-
ar seldir. Hátíðin er þó umfram allt
miklu meira en samsafn af tónleik-
um; hún er vettvangur afslöppunar,
vinafunda og hreinnar og sálarnær-
andi gleði. Og það allt undir dynj-
andi tónlist, framleiddri af mörgum
af fremstu fulltrúum síns geira.
Hátíðin í ár er til muna fýsilegri
en síðasta hátíð og rokkkjötið á bein-
unum til muna feitara og safaríkara.
Risar eins og Metallica, Iron Maide-
n, Coldplay og Blur eru meðal þeirra
tuga listamanna sem fram koma frá
fimmtudegi til sunnudags á sex mis-
munandi sviðum. Umfang hátíðar-
innar og innra skipulag er þá í stöð-
ugri þróun og hér er leitast við að
bæta og breyta eftir kostum frá ári
til árs. Vefsíða hátíðarinnar er t.a.m.
orðin afar öflug og öryggisgæslan
verður sífellt betri. Góðu heilli hefur
þetta leitt af sér rólegra og þægi-
legra andrúmsloft og ég er ekki frá
því að bros starfsmanna séu breiðari
nú en þau voru í fyrra.
Metallica endurreist
Það er hefð fyrir því að dönsk
hljómsveit opni hátíðina og þetta ár-
ið kom það í hlut rokksveitarinnar
Baby Woodrose. Hófu þeir leikinn
kl. 18.30. En greinarhöfundur sá sér
engu að síður þann kost vænstan að
drífa sig að Arenasviðinu en þar,
hálftíma áður en hinir dönsku settu í
gang, var stórsveitin The Polyphonic
Spree búin að koma sér fyrir. Þessi
undraverða sveit er skipuð tuttugu
og sjö manns sem syngja kór; leika á
hörpu, theramin, blásturshljóðfæri,
fiðlu, selló, trommur, bassa, gítar, pí-
anó, hljómborð og fleira. Allir eru
meðlimir klæddir hvítum sloppum
þannig að að sjá er þetta eins og
trúarhópur. En tónlistin … hún er
hreint út sagt yndisleg. Stór, sinfón-
ísk og falleg popplög þar sem innlif-
unin drýpur af hverjum manni. Al-
gerlega frábært! Næst var þaðsvo
Interpol sem léku á þriðja stærsta
sviðinu, Pavilion. Þessi mjög svo
frambærilega nýrokksveit frá New
York er afar heit um þessar mundir
og ekki var smuga að komast inn í
tjaldið. Augun voru því hvíld og eyr-
un sperrt í staðinn.
Að endingu voru það bara kóng-
arnir, Metallica í Appelsínugula
tjaldinu kl. 22. Og þvílíkir tónleikar!
Nýr bassaleikari, ný plata, nýfengin
orka og glæný sveit. Fyrsta lag var
„Battery“, opnunarlag Master of
Puppets, og allt varð vitlaust. Næsta
lag var titillag sömu plötu. Og allir,
tugþúsundir manna, sungu með.
Load og Reload er leyft að safna
ryki sem betur fer en „Harvester of
Sorrow“ og „Blackened“ af ...And
Justice for All fengu að njóta sín.
Auk þess voru eldgamlir og löngu sí-
gildir slagarar hristir fram úr erm-
inni, „Creeping Death“, „Seek and
Destroy“ og „Sanitarium“. Tvö lög
af nýju plötunni voru spiluð, „Fran-
tic“ og „St. Anger“ og tónleikunum
lauk með „One“ og „Enter Sand-
man“. Húff! Metallica lönduðu þeim
stóra og stemningin var stórkostleg
á þessum endurreisnartónleikum.
Líkt og í fyrra var hátíðin hafin
með látum og margt að sjá og heyra.
Á föstudeginum og laugardeginum
er gírað aðeins niður enda stanslaus
dagskrá frá hádegi og fram á nótt. Á
sunnudeginum er svo aftur gefið í og
í ár slítur hún Björk okkar hátíðinni.
Þann dag er auk þess seldur dags-
miði og þá drífur gjarnan að fjöl-
skyldufólk. Þá eru gestir orðnir
þægilega lúnir og andrúmsloftið orð-
ið afar höfugt. Fólk sátt og mett eftir
vikudvöl í tónlistarlegri paradís.
Hróarskelda komin á skrið
Það jafnast ekkert
á við Skelduna!
Hin árlega tónlistarhátíð í Hróarskeldu
stendur nú yfir. Arnar Eggert Thoroddsen
er á staðnum og greinir frá stemningunni.
Reuters
Daninn Lars Ulrich var í miklum ham er hann lamdi húðirnar með hljóm-
sveit sinni Metallica í Hróarskeldu á fimmtudagskvöld.
arnart@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.roskilde-festival.dk
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.20.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Svalasta mynd sumarsins er komin.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2. Tilboð 300 kr
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2 og 3.45.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16.
X-IÐ 97.7
DV
KVIKMYNDIR.IS
Tilboð 300 kr
KEFLAVÍK
kl. 4, 6, 8 og 10. Bi. 12
AKUREYRI
kl. 6, 8 og 10. Bi. 12
ÁLFABAKKI
Kl. 5.50, 8 og 10.15. Bi. 12
KRINGLAN
Kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12
SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA
KL. 5.30, 8 OG 10.30.
ÁLFABAKKI
kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN
kl. 4 og 6.
KEFLAVÍK
kl. 4 og 6.
Lærðu spænsku
á Spáni!
www.idihoma.com