Morgunblaðið - 30.06.2003, Qupperneq 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2003 21
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Félags- og
skólaþjónusta
Snæfellinga
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir
eftir starfsmanni. Leitað er að félagsráðgjafa,
sálfræðingi eða starfsmanni með hliðstæða
menntun til að sinna félagsþjónustu, barna-
vernd og afmörkuðum verkefnum skólaþjón-
ustu. Viðkomandi bíður spennandi starf við
áframhaldandi uppbyggingu félagsþjónustu
og samþættingu félags- og skólaþjónustu á
Snæfellsnesi. Á starfssvæði Félags- og
skólaþjónustu Snæfellinga búa tæplega 4000
manns og er mannlífið í takt við umhverfið,
fjölbreytt og kraftmikið.
Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Guð-
mundsdóttir forstöðumaður í síma 430 7800
en umsóknir skulu berast Félags- og skólaþjón-
ustu Snæfellinga, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ,
fyrir 15. júlí nk.
SMÁAUGLÝSINGAR
ÝMISLEGT
Mömmur athugið,
ef barnið pissar undir
Undraverður árangur með
óhefðbundnum aðferðum.
Sigurður Guðleifsson, sv.nuddk.
og reikim. S. 587 1164 og 895 8972.
FÉLAGSLÍF
Hvernig á að hugleiða?
Indverski yoga-
kennarinn Acarya
Shubhatmananda
heldur fyrirlestur
um hvernig iðkun
yoga og hugleiðslu
getur bætt heilsu og vellíðan í
annríki dagsins.
Þriðjudag og miðvikudag, 1. og
2. júlí kl. 19.30.
Ármúla 44, 3. h., inng. Grensás-
megin, sími 897 8190. ATVINNA
mbl.is
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
BRÁÐAMÓTTAKA fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni
eða ná ekki til hans opin kl. 8–17 v.d. S. 543 2000 eða
543 1000 um skiptiborð.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og
Hafnarfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl.
17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitj-
anabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólar-
hringinn um helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s.
1770.
SJÚKRAHÚS REYKJAVÍKUR: Slysa- og bráðamóttaka í
Fossvogi er opin allan sólarhringinn fyrir bráðveika og
slasaða s. 543 1000 um skiptiborð / 543 2000 beinn sími.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl.
10–16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma
821 5369.
LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin
læknisþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17.
Uppl. í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknal-
ind.is
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl.
8–24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
APÓTEKIÐ: LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl.
8–24. S. 533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
BORGARAPÓTEK: Opið alla daga til kl. 24, virka daga
kl. 9–24 og um helgar kl. 10–24. Sími 585 7700. Lækna-
sími 585 7710 og 568 1250. Fax: 568 7232.
Milli kl. 02 og 08 er lyfjaþjónusta á vegum læknavaktar.
NEYÐARÞJÓNUSTA
NEYÐARMÓTTAKA vegna nauðgunar er opin allan sól-
arhringinn, s. 525 1710 eða 525 1000.
EITRUNARUPPLÝSINGASTÖÐ er opin allan sólar-
hringinn. S. 525 1111 eða 525 1000.
ÁFALLAHJÁLP. Tekið er á móti beiðnum allan sólar-
hringinn. S. 525 1710 eða 525 1000 um skiptiborð.
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af
depurð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum sím-
um.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern
til að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430
tekur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan
skrifstofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sól-
arhringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
tekið þátt í sex samsýningum á ár-
unum 1993 til 2000.
Sýningin er opin á afgreiðslu-
tíma Café Nielsen og liggja
frammi upplýsingar um listakon-
una og á hvaða sýningu hvert verk
var málað. Sýningin er sölusýning
og rennur andvirði verkanna til
næstu uppfærslu Óperustúdíós
Austurlands.
OPNUÐ hefur verið sýning á Café
Nielsen á Egilsstöðum á mál-
verkum Ingibjargar Hauksdóttur,
sem máluð voru á sviðinu í upp-
færslu Óperustúdíós Austurlands á
Don Giovanni. Fjórar óperusýn-
ingar voru á Eiðum og tvær í
Reykjavík og því eru sex verk á
sýningunni.
„Myndirnar eru mjög ólíkar,“
sagði Ásta Bryndís Schram, fram-
kvæmdastjóri Óperustúdíósins, í
samtali við Morgunblaðið. „Inn-
blásturinn var mismunandi eftir
sýningum, sérstaklega fyrir sunn-
an og fyrir austan.“ Hún segir eig-
inmann sinn, Keith Reed, stofn-
anda og burðarás Óperustúdíósins,
hafa séð Ingibjörgu í Mósaíkþætti í
sjónvarpinu og haft samband við
hana. „Hann spurði hvort hún væri
til í að taka þátt í sýningunum sem
listmálari á sviði og hún sló til.
Hún kom til okkar á Eiða um svip-
að leyti og hljómsveitin, setti sig
inn í óperuna og æfði sig á sviðinu
við að mála. Útkoman var
skemmtileg.“
Skrítin upplifun
„Þetta var skrítin upplifun,“
segir Ingibjörg Hauksdóttir. „Þeg-
ar ég fór inn á sviðið þá var ég
með einhverja ákveðna hugmynd
til að halda mér í og svo gerðist
alltaf eitthvað allt annað. Ég held
að ég hafi náð að fanga upplifun
mína í hverri sýningu fyrir sig.
Enda eru litirnir í myndunum ólík-
ir þótt grundvallarformið sé svip-
að.
Þegar Keith kom með þessa
hugmynd var hún svo klikkuð að
ég varð að segja já, af því að mér
fannst þetta svo fráleitt. Að koma
út af vinnustofu þar sem maður er
alltaf og vera svo með tvö hundruð
manns á öxlunum sem fylgjast með
hverri pensilstroku er út í hött.
Svo komst ég svo lítið frá verkinu,
gat ekkert bakkað eins og maður
gerir á vinnustofunni til að virða
verkið fyrir mér. Þess vegna var
eins og ég réði ekki mjög miklu
um framvindu myndarinnar. Þetta
er algerlega einstök upplifun.“
Ingibjörg er menntuð í Otis-
listaskóla Parsons-hönnunarskól-
ans í Los Angeles og Laguna-
listaskólanum í Kaliforníu. Þá var
hún við nám í Myndlista- og hand-
íðaskólanum á árunum 1988–1992
og við Listaakademíuna í Þránd-
heimi. Að auki hefur hún lagt
stund á kennslufræði við HÍ og
margmiðlunarnám. Ingibjörg hef-
ur haldið fjórar einkasýningar og
Verk undir áhrifum Don Giovannis til sýnis á Egilsstöðum
Málað á óperusýningum
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Ingibjörg Hauksdóttir myndlistarmaður málaði eitt verk á hverri sýningu
Óperustúdíós Austurlands á Don Giovanni. Myndirnar eru nú til sýnis á
Café Nielsen á Egilsstöðum.
Austurland
AÐ morgni hins sautjánda júní var
undirritaður samningur á milli Hús-
næðissamvinnufélags Skagafjarðar,
HSFS, og Krókshúsa ehf. um bygg-
ingu sextán íbúða fjölbýlishúss við
Sauðármýri sunnan Ártorgs á
Sauðárkróki.
Fór athöfnin fram undir berum
himni í glampandi sól og blíðviðri,
þar sem hið nýja hús mun rísa.
Húsið er fjórar hæðir og fjórar
íbúðir á hverri hæð, tólf þriggja
herbergja og fjórar tveggja her-
bergja. Krókshús ehf. sér alfarið
um framkvæmd verksins og eru
verklok áætluð 10. júlí 2004 en þá
verður húsinu skilað fullbúnu með
frágenginni lóð.
Hönnun og teikningar hússins
voru í höndum Arkitekta- og verk-
fræðistofu Hauks ehf. á Akureyri.
Á lóðinni hefur verið gert ráð
fyrir þremur samskonar bygging-
um.
Hönnun hússins er gerð með til-
liti til þarfa eldri borgara meðal
annars með skerta hreyfigetu og
því er í húsinu lyfta og gott aðgengi
hjólastóla að öllum íbúðum.
Þegar eftir að aðilar höfðu und-
irritað samningana, tók Guðmundur
Márusson, formaður félags eldri
borgara í Skagafirði, fyrstu skóflu-
stunguna, og lét þess getið í stuttri
ræðu að sér væri þetta mikið
ánægjuverk á svo fögrum degi,
enda hefði orðið nokkur bið á að all-
ir endar væru hnýttir svo fram-
kvæmdir gætu hafist af fullum
krafti.
Þegar hafa verið seldar fjórtán af
sextán íbúðum hússins og voru
flestir hinna væntanlegu íbúa við-
staddir athöfnina.
Húsnæðissamvinnu-
félag Skagafjarðar
byggir fjölbýlishús
Sauðárkrókur
Guðmundur Márusson tekur fyrstu
skóflustunguna og ávarpar gesti.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
BÆJARRÁÐ Akraness samþykkti
á fundi nýverið viljayfirlýsingu þess
efnis að ganga til viðræðna við Akra-
torg ehf. um kaup bæjarins á hús-
eigninni Suðurgötu 57, þar sem
Landsbankinn hefur verið með útibú
sl. áratugi. Gísla Gíslasyni, bæjar-
stjóra Akraness, var falið að undir-
rita samkomulagið en einn fulltrúi
minnihlutans, Gunnar Sigurðsson af
D-lista, sat hjá við atkvæðagreiðsl-
una. Hugmyndin er að hluti kaup-
verðs verði greiddur með húseign-
inni Heiðarbraut 40 þar sem
bókasafn og héraðsskjalasafn eru,
en stefnt verður að því að söfnin
verði flutt í nýtt menningarhús við
Akratorg – ef samningar ganga eft-
ir.
Hins vegar hefur Landsbankinn
sett skilyrði fyrir því að fram-
kvæmdir hefjist við verslunar- og
þjónustuhús austan við Stillholt, en
þangað hyggst m.a. Landsbankinn
flytja starfsemi sína. Ef ekkert verð-
ur af þessum framkvæmdum mun
verða bið á því að menningarhúsið
við Akratorg verði að veruleika.
Menningarhús við
Akratorg gangi
samningar eftir
Akranes
Væntanlegt menningarhús verður við Akratorg þar sem Landsbankinn er
með starfssemi sína og er framkvæmdin háð samþykki bankans.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112