Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 11
væru, meðal annars hjá Reykjavíkurborg. Í tölvupóstinum segi ég. „Tvær leiðir: Stinga djúpt og ná viðskiptum, eiga þá á hættu að missa framlegð niður ef verð fréttist. Hin leið- in að skoða málið í samhengi. Ákveða þarf á næsta fundi verðpólitík miðað við þessar tvær leiðir og eiga báðar í vasanum fram á síðustu stundu.“ Næsti fundur í þessu samhengi er auðvitað innanhússfundur okkar hjá Olíufélaginu. Með fyrri leiðinni væri vitað að við gætum aldrei náð öllum viðskiptum til okkar á þessum verð- um en þetta væri ákveðin taktík til að ná aukn- um viðskiptum. Hin leiðin væri sú að hafa hóf- samari verðlagningu sem væri nær þeim afsláttarflokkum sem við vorum að móta fyrir stærð viðkomandi viðskipta og láta þá slag standa hvort við fengjum viðkomandi viðskipti eða ekki. Þegar maður undirbýr sig undir út- boð á maður að vera með báðar aðferðirnar til- búnar uppi í erminni alveg fram á síðustu stundu því svona lagað er ákvörðunartaka á síðustu stundu. Ég hef oft stillt upp tölum í til- boðum og gerði það margoft hjá Tali. Það er mjög mikilvægt gagnvart starfsmönnum að vinna ákveðna taktík. En maður verður jafn- framt að hafa einhver kort uppi í erminni og það má ekki ákveða taktíkina fyrr en á síðustu stundu. Það er mjög mikilvægt, líka út af hætt- unni á að eitthvað leki út úr fyrirtækinu. Minn tölvupóstur var mjög ákveðin sönnun þess að ég var með fullu markaðs- og samkeppnishug- arfari að tala um þátttöku í þessum útboðum sem framundan voru.“ Útboð Reykjavíkurborgar Meðal þeirra útboða sem í gangi voru á þess- um tíma var útboð Reykjavíkurborgar vegna sölu á gasolíu, bensíni og steinolíu til stræt- isvagna, malbikunarstöðvar og vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar. Munur á hæsta og lægsta verði í tilboðum olíufélaganna var 0,5% en Þór- ólfur undirritaði tilboð Olíufélagsins. „Þegar kemur að því að skila inn tilboði til Reykjavík- ur þá segir Geir Magnússon [þáverandi for- stjóri Olíufélagsins] mér hvaða einingaverð eigi að setja á bensín og olíu. Ef ég man rétt voru þetta afsláttartölur í kringum 30–40 aur- ar á lítra og það var í fullu samræmi við plan B samkvæmt fyrrnefndum tölvupósti, það er að stinga ekki djúpt heldur láta þennan viðskipta- vin njóta þeirra viðskiptakjara sem honum bar samkvæmt okkar afsláttarkerfi. Að auki var fyrirsjáanlegt að kostnaðarsamt yrði að yfir- taka þessi viðskipti vegna geyma í jörðu sem Skeljungur hafði haft í áratugi á þessum stað. Ég taldi samt að þarna væri tækifæri til að ná viðskiptum með því að „stinga djúpt“, sérstak- lega í ljósi þess að nýir menn voru teknir við hjá borginni eftir kosningarnar 1994. En ég fékk tölur um verð frá forstjóranum og lét fylla þær inn og síðan undirritaði ég tilboðið á venjulegan hátt. Auðvitað voru það mér von- brigði að fá ekki að „stinga djúpt“ en ég sætti mig við það. En viðurkenni að mig grunaði að þarna hefði verið um niðurstöðu fundar for- stjórans með hinum forstjórunum að ræða. En ég hafði ekkert í hendi og fékk ekki fulla yfir- sýn yfir málið fyrr en í samtali í Samkeppnis- stofnun í fyrra þegar mér voru sýnd gögn um málið, sem meðal annars voru haldlögð gögn úr húsrannsókn. Ég fullyrði þess vegna að ég plataði ekki Reykjavíkurborg. Henni voru boð- in með minni undirritun viðskiptakjör sem voru í fullu samræmi við þann afsláttarflokk sem borginni bar í viðskiptamannaflóru Olíufé- lagsins. Ef niðurstaða Samkeppnisstofnunar verður sú að sannað þyki að ólögmætt samráð hafi átt sér stað í þessu tilviki, kom ég að því með þessari undirritun minni. Það harma ég. En ég kom ekki nálægt ákvörðun um samráð, eða ákvörðun um verð.“ Markaðsstjórarnir hittust „Rétt eins og forstjórarnir þurftu stundum að hittast vegna sameiginlegra eigna, þurftu markaðsstjórar félaganna líka stundum að hittast vegna samrekinna bensínstöðva og vegna úrgangsolíumála. Ég hef til dæmis varla orðið eins hissa á ævinni og þegar ég var boð- aður í fyrsta skipti til slíks fundar uppi í Skelj- ungi nýkominn til starfa. Þá var fundarefnið ákvörðun um kvöldopnunartíma nokkurra bensínstöðva í Reykjavík. Á þessum tíma var það þannig að það var samningsbundið við launþegahreyfinguna hversu margar bensín- stöðvar mættu vera opnar til klukkan hálftólf á kvöldin. Þarna var það verkefni þriggja mark- aðsstjóra ásamt með tengslum til starfs- mannastjóra félaganna að raða niður hvaða bensínstöðvar væru opnar fram eftir til að Dagsbrúnarmenn væru ekki of margir að vinna á kvöldin. Svona glórulaus voru vinnu- brögðin að hluta til með vilja, aðstoð og frum- kvæði opinberra aðila, launþegahreyfingar og sáttasemjara. Sem betur fer var nú bara einn fundur um þetta og það kom upp mikil sam- keppni um hvenær stöðvar yrðu opnar og allt að sólarhringsopnun sums staðar. Sem betur fer sá maður á sínu samkeppnissviði töluverð- ar breytingar verða á þessum tíma. Það skal enginn segja mér að það hafi ekki verið sam- keppni þegar ég hrinti af stað Safnkortinu. Ennþá er fólk að njóta ávaxtanna af því. Svar hinna olíufélaganna var að koma með bætiefni í bensín. Olíufélagið brást við því mun seinna. Þarna var mjög hörð samkeppni um viðskipta- menn bensínsstöðvanna. Ég lét opna fyrstu sjálfsafgreiðslustöðina í bensíni á Geirsgötunni í miðborg Reykjavíkur. Þar var veittur afslátt- ur og ég er að reyna að muna hvort menn þorðu upp í krónu á lítra! Rýmið í álagningunni var svo lítið að ég man þegar verið var að ákveða afsláttinn í Safnkortinu var hann 40 aurar á lítra. Á slíkum fundum fór oft fram almenn um- ræða um verðlagningu, eins og kemur fyrir í viðskiptalífinu. Slík samtöl eru ekki ólögmæt, ef þau hafa ekki í för með sér samráð um verð eða viðskiptakjör. Í einu tilviki sem ég man eft- ir var mér falið af forstjóra að ræða við milli- stjórnendur hinna olíufélaganna um tillögu að tilboðsupphæðum fyrir forstjóra. Í því tilviki stillti ég upp niðurstöðu fundarins. Í þessu til- viki varð mér verðsamráð olíufélaganna ljóst þótt ákvörðunin væri ekki á mínu starfssviði og ábyrgð, en ég ber að sjálfsögðu þá ábyrgð sem að mér snýr vegna vitneskjunnar um þessa til- teknu ákvörðun. Mun aldrei verja þetta viðskiptaumhverfi Ég mun aldrei verja það viðskiptaumhverfi sem ríkt hefur um áratuga skeið í íslenskum ol- íuviðskiptum. Það var óheilbrigt og ég ætla heldur aldrei að verja það samráð sem átt hef- ur sér stað. Hugur minn hefur alltaf staðið til að vinna í samkeppnisrekstri, ekki opinberu skömmtunarkerfi. Þess vegna gerði ég það sem ég gat til að markaðsvæða viðskipti Olíu- félagsins á þeim sviðum sem ég hafði óskorað vald yfir. Og ég nýtti mér fyrsta tækifæri sem ég fékk til að ráðast annað, en það tók fjögur ár að fá áhugavert starfstilboð og það var for- stjórastarfið hjá Tali. Ég held að allir sann- gjarnir menn geti séð af rekstri Tals hvaða áherslur ég hafi viljað marka í samkeppnis- rekstri, þegar ég hef haft til þess fullt umboð. Sumir geta talið að það hafi verið leið að byggja sig upp í skjóli einokunarfyrirtækisins Landssímans með þægilegri verðlagningu og einhvers konar skiptingu á markaði. Það var aldrei inni í myndinni hjá okkur hjá Tali. Þann- ig að þegar ég fékk fullt og óskorað umboð til verka þá tel ég að mínar áherslur hafi komið mjög vel í ljós. Síðan verður að segjast eins og er að við mætum öll í lífinu krossgötum þar sem erfitt er að velja leið. Þegar ég horfi til baka þá dreg ég þann lærdóm af þessu að mað- ur á að spyrja spurninga, maður á að vera gagnrýninn og maður á ekki að venja sig á þær hefðir sem hafa gilt hingað til. Þetta hef ég mest lagt áherslu á gagnvart mínu starfsfólki þar sem ég hef haft mannaforráð, að menn spyrji spurninga og geti varið sínar gjörðir sjálfir. Ég reyndi að láta dropann hola steininn í þeim verkum sem ég var að vinna hjá Olíufé- laginu en það dugði greinilega ekki til.“ Hafði þrjá valkosti En sér Þórólfur eftir einhverju í tengslum við starfið hjá Olíufélaginu? „Ég átel sjálfan mig fyrir að hafa tekið að mér stöðu fram- kvæmdastjóra markaðssviðs Olíufélagsins án þess að hafa fullt og óskorað umboð til þess að fara með verðlagsmál á eldsneyti. Það gerði mér það skylt að þurfa að hafa milligöngu um verðtilboð í einstaka tilvikum og þurfa jafnvel að setja fram slík verðtilboð þegar ég vissi, eða gat grunað, að þau voru ákveðin af öðrum með samráði. Það er mjög slæm staða. Síðan má velta fyrir sér hverjir voru mínir valkostir. Maður gengur inn í störf á viðkomandi stað og það var enginn einn dagur sem var nákvæm- lega dagurinn sem réð úrslitum. Enginn einn tímapunktur þegar ég vissi nægilega mikið til að taka ákvörðun um að gera eitthvað. Ég lít svo á að ég hafi haft þrjá valkosti. Í fyrsta lagi hefði ég getað opinberað þessi mál. Nú, ég hefði getað gengið út. Hætt. Það er allt- af valkostur. En ég var 36 ára gamall í nýju starfi hjá stóru og virtu fyrirtæki. Ég sá bara ekki fyrir mér að fara í burtu örskömmu síðar án nokkurra skýringa. Þriðji valkosturinn var sá sem ég valdi. Það var að reyna að breyta eft- ir minni bestu getu á þeim sviðum þar sem ég hafði ábyrgð og völd. Ég notaði síðan gott tækifæri sem ég fékk þegar mér var boðin for- stjórastaðan hjá Tali til að komast í burtu. Ég átel mig fyrir að hafa tekið að mér starfið án þess að hafa óskorað vald yfir verðlagningu. Það er grunnurinn að því sem ég tel mig hafa gert rangt. Ég var sóttur í þessa stöðu og ég hefði örugglega haft sterkari stöðu til að setja skilyrði í tengslum við mína ráðningu. En ég var grunlaus um að slík skilyrði þyrfti til að koma málum í gegn með eðlilegum hætti.“ Gat engum sagt frá Þú nefndir þessa þrjá kosti sem þú stóðst frammi fyrir. Kom aldrei til greina, á einhverj- um tímapunkti, þegar þú fékkst fyrirmæli frá þínum yfirmönnum, að berja hnefanum í borð- ið og segja: Ég get ekki tekið þátt í þessu? „Oft kom ég við andmælum. En það var náttúrulega í lokuðum samtölum við mína samstarfsmenn. Ég hef ekkert mér til málsbóta í því. Það er engin skrifleg áminning eða athugasemd sem ég sendi til minna samstarfsmanna eða for- stjórans, nema þá í formi hvatningar, eins og í tölvupóstinum um að „stinga djúpt“. Ég gat engum sagt frá þessu á sínum tíma nema kon- unni minni og það voru oft þung og erfið sam- töl. Hún treysti minni dómgreind, hún vissi að ég var ekki sá sem tók ákvarðanirnar eða bar hina endanlegu ábyrgð. Ég held að hennar léttir hafi verið mestur þegar ég hvarf til ann- arra starfa, sem ég gerði strax og tækifæri bauðst. Prívat og persónulega verð ég líka að segja að ég hef blómstrað eftir að ég hætti og tókst á við ný og spennandi samkeppnisverk- efni hjá Tali gegn fyrrverandi einokunarfyr- irtæki í fjarskiptum á Íslandi.“ Þórólfur segir að hann telji sig ekki fara með neitt aðalhlutverk í þessu máli. „Ég ber hins vegar fulla ábyrgð á störfum mínum fyrir Olíu- félagið hf., líka þeim verkum sem snúa að framkvæmd þess samráðs sem augljóslega hefur farið fram. Óháð því hver niðurstaða rannsóknar verður um saknæmi einstakra at- vika eða þátta í þessu máli, þykir mér ljóst að þetta samráð var siðferðilega óviðunandi og mér þykir mjög miður að störf mín skuli hafa blandast í það.“ Verð að svara fyrir mig Þórólfur tók á fyrri hluta þessa árs við starfi borgarstjóra Reykjavíkur og hann segist gera sér grein fyrir því að hann verði að skýra þátt sinn í olíumálinu. „Starf mitt í dag er annars eðlis en flest önn- ur og ég verð því að svara fyrir mig með öðrum hætti en aðrir sem koma að þessu máli. Ég tók að mér starf borgarstjóra í byrjun þessa árs eftir mjög stuttan umhugsunartíma og þegar kom að þeirri ákvörðun að gefa kost á mér í þetta starf þá þaut allt líf mitt mér fyrir aug- um. Og auðvitað er ýmislegt þar sem ég hefði viljað geta gert betur. En það sem ég taldi styrk minn var að ég var engum háður. Ég hef aldrei átt neitt inni hjá neinum og enginn hefur átt neitt inni hjá mér. Ég hef reynt að vera ég sjálfur í mínum störfum og mínu lífi. Ég hug- leiddi hvort eitthvað væri þar í mínu lífi sem kæmi í veg fyrir að ég gæti tekið þetta að mér. Og ég er ennþá þeirrar skoðunar, þrátt fyrir aðild mína að þessu máli, að ég geti starfað af heilindum í þágu Reykvíkinga. Ég hef lagt mig fram um að sinna borgarstjórastarfinu vel. Samstarfið við starfsmenn og fulltrúa meiri- hlutans hefur verið með afbrigðum gott en það er vitanlega í trausti þeirra sem til mín leituðu sem ég sit í þessu starfi. Ég vona að störf mín hafi sýnt að ég sé traustsins verður. Mér finnst að með þessum skýringum sé ég að svara mínu stuðningsfólki, sem hefur eingöngu sýnt mér jákvæð viðbrögð. Það er hins vegar uggandi og hefur beðið mig um skýringar. Ég hef sagt að ég telji að ég geti varið mig og það er kominn tími til þess núna. Atburðirnir gerðust fyrir löngu og ég þurfti hreinlega tíma. Þetta var ekki efst í mínum huga. Það var mikið átak í fyrra þegar ég fór að rifja þetta upp í Sam- keppnisstofnun. Þegar lífið gengur hratt staldrar maður sjaldnast lengi við daginn í dag. Megnið af þeim atburðum sem við höfum rætt um hér gerðust fyrir sjö til tíu árum þeg- ar ég var nýkominn til starfa hjá Olíufélaginu.“ Tilbúinn að starfa áfram Líkt og þú minnist á sjálfur, gilda önnur lög- mál í því starfi sem þú ert í nú en flestum öðr- um. Er eitthvað í þessu máli sem gerir að verk- um að þú teljir að það geti orðið erfitt fyrir þig að sinna þínu starfi? Nú gæti það til dæmis gerst að hafin yrði lögreglurannsókn á málinu. „Ég held að það sem geri mér nú þegar erfitt fyrir er ef að mínir nánustu og mínir stuðn- ingsmenn ekki treysta mér til góðra verka. Ég er tilbúinn til að starfa áfram og geri það í trausti þess að þeir treysti mér. Ég verð að segja að ég hef farið í gegnum lífið án stór- áfalla. Ég er ekki fæddur inn í ákveðnar valda- fjölskyldur og hef aldrei þegið völd af öðrum. Ég hef ekki fengið neitt ókeypis. Ég hef þurft að vinna fyrir hlutunum en heldur aldrei lent í alvarlegu mótlæti. Þegar ég byrjaði í þessu starfi hér, var stokkið á mig á mínum fyrsta degi í starfi og mér þótti það sérkennilegt en sá fljótt að það var það sem tíðkast í stjórnmálum og í opinberri stjórnsýslu. Ég tek því og er tilbúinn að berjast fyrir mína menn, fyrir þá sem ég sit í umboði fyrir. Auðvitað tek ég mest mark á því sem mínir menn segja. Ég er 100% viss um að andstæðingar mínir munu aldrei taka neinar skýringar frá mér sem góðar og gildar ekki frekar en þeir tóku vel í fjármála- skýringar mínar í byrjun ársins sem ég taldi þó mun ígrundaðri en þeirra útleggingar. Þannig að ég er alveg viðbúinn því að ég muni aldrei geta sannfært alla. Það verða alltaf andstæð- ingar sem telja að ég sé ekki nógu góður borg- arstjóri. Það hefur verið þannig hingað til og það mun ekki breytast við þetta. Ég fer fram á að allt mitt líf sé metið af sanngirni þegar menn meta hvort ég sé traustsins verður að vinna fyrir Reykvíkinga.“ Þetta mál er stórmál Er ekki hætta á því að þetta mál fari að yf- irgnæfa önnur mál? „Það má gjarnan gera það en það á þá að færast yfir á þá sem ábyrgðina bera. Þetta mál er stórmál. En til þess bærir aðilar, sem réðu sínum ráðum, samkvæmt frumathugun Samkeppnisstofnunar, eiga að standa fyrir þessu máli. Ekki ég sem mun aldr- ei verja þetta. Sú málsvörn kemur mér ekki við. Hún má vera hver sú sem þeir kjósa sem að því koma. En ég mun ekki taka undir hana.“ Nú gæti sú staða komið upp að Reykjavík- urborg yrði að leita réttar síns gagnvart olíufé- lögunum. Væri fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Olíufélaginu ekki í erfiðri stöðu sem borg- arstjóri? „Reykjavíkurborg gæti lent í því að sækja rétt sinn gagnvart mínum skyldmenn- um eða einhverjum mér nátengdum í einhverj- um alls óskyldum málum. Við því er ekkert að gera annað en að borgarráð álykti um slíka réttarstöðu og formaður borgarráðs skrifi undir slíkt embættisbréf. Vanhæfi æðsta stjórnanda getur komið til með mjög misjöfn- um hætti og við því er ekkert nema mjög ein- falt úrræði. Þá verður hinn pólitískt kjörni for- maður borgarráðs að sækja þau mál sem borgarstjóri er vanhæfur í. En ég undirstrika að ég tel mig ekki hafa verið valdan að því að borgin hafi skaðast af tilboði Olíufélagsins í þessu máli.“ Engu svarað um framtíðina Telurðu líklegt að til slíkrar málsóknar muni koma og hvernig metur þú stöðu þína í því til- viki? „Það má spyrja hvað ef. Það eru svo margar „ef“ spurningar sem koma upp í mín- um huga í tengslum við þetta mál. Ég hef ekki ennþá kveðið uppúr með neitt við mína stuðn- ingsmenn og þá sem ég sit í umboði fyrir hvort ég muni vilja starfa áfram sem borgarstjóri eftir þetta kjörtímabil. Það hef ég aldrei viljað ræða. Þannig að sú óvissa er alveg jafnmikil í dag og hún hefur alltaf verið varðandi mína framtíð. Þar af leiðandi er ekki tímabært að hugsa sér allar þær breytingar sem upp geta komið. Það var varla við mig talað um annað fyrir síðustu alþingiskosningar en að það væri í gangi eitthvert leynisamkomulag þar sem borgin væri sett inn sem skiptimynt í stjórn- málatafli. Ég hlustaði ekki á það þá. Ef ég hefði átt að setja upp mikið af „hvað ef“-spurn- ingum, hefði hausinn á mér ekki rúmað þær pælingar. Ég er nýr í stjórnmálum og ég er smám saman að átta mig á hvað staðan getur breyst hratt. Sagt er að vika sé langur tími í stjórnmálum, hvað þá þrjú ár. Ég hef aldrei haft nein sérstök plön fyrir mig og mína per- sónu. Ég hef alltaf tekið að mér þau verkefni sem mér hafa boðist og ég talið rétt að taka og ég hef ekki sótt um störf síðustu áratugina. Þetta er ný lífsreynsla fyrir mig að fréttir snú- ist þetta mikið um mig og mína persónu. Ég er að reyna að finna mig sjálfan í þessu hlutverki og kann ekki annað en að vera ég sjálfur. Kominn tími til að taka á málum Ég vona að þessi rannsókn, sem ég hef tekið fullan þátt í eftir því sem óskað hefur verið eft- ir, hafi góð áhrif á íslenskt viðskiptalíf. Það var kominn tími til að taka á málum. Þótt gerðar hafi verið athugasemdir við húsrannsókn Sam- keppnisstofnunar hef ég fullan skilning á slík- um aðgerðum og tel að ómögulegt hefði verið fyrir stofnunina að ná í þessi gögn án þess að gera það snöggt. Ég gaf án umhugsunar fullt umboð til að allur minn tölvupóstur yrði skoð- aður þannig að ég vona að þessi rannsókn verði til góðs fyrir íslenskt viðskiptalíf.“ ’ Ég fullyrði þess vegna að ég plataði ekki Reykjavík-urborg. Henni voru boðin með minni undirritun viðskiptakjör sem voru í fullu samræmi við þann afsláttarflokk sem borginni bar í viðskiptamannaflóru Olíufélagsins. Ef niðurstaða Samkeppnisstofnunar verður sú að sannað þyki að ólögmætt samráð hafi átt sér stað í þessu tilviki, kom ég að því með þessari undirritun minni. Það harma ég. ‘ FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.