Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 43
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 43 FÓLK  KIM Magnús Nielsen, sterkasti skvassspilari landsins til margra ára, er einnig liðtækur kylfingur. Á meistaramóti Keilis á dögunum fór hann holu í höggi á sjöttu braut vallarins og er þetta í annað sinn sem hann leikur þann leik, hitt skiptið var reyndar óopinbert eins og hann orðaði það.  BLAKARAR sitja ekki auðum höndum um verslunarmannahelg- ina því þá verður strandblakmót á vegum blakdeildar Þróttar í Nes- kaupstað í tengslum við Neista- flug. Keppt verður í fjórum flokk- um og segja Þróttarar að þetta verði fín æfing fyrir næstu Smá- þjóðaleika því þá verður keppt í strandblaki.  PORTÚGALSKI knattspyrnu- maðurinn Sergio Conceicao hefur verið leystur undan samningi við ítalska liðið Inter Milano. Hector Cuper, þjálfari liðsins, taldi að Conceicao myndi ekki hafa hlut- verki að gegna hjá Inter og hann fær að fara frítt frá félaginu. Conc- eicao hefur verið bendlaður við Newcastle, AC Milan og Porto.  MICHAEL Stewart, leikmaður Englandsmeistara Manchester United, er genginn til liðs við 1. deildarliðið Nottingham Forest að láni. Stewart er afturliggjandi miðjumaður – leikur svipaða stöðu og Brynjar Björn Gunnarsson, sem hefur verið til reynslu hjá Forest.  ALEXANDER Zickler, sóknar- maður Bayern München, meiddist illa á fæti á æfingu í gær og verður frá keppni í að minnsta kosti sex mánuði.  FLAVIO Conceicao hefur ákveð- ið að ganga til liðs við Borussia Dortmund frá Real Madrid. Conc- eicao, sem er 29 ára brasilískur miðjumaður, verður í láni hjá þýska liðinu á næsta tímabili.  HORACE Grant mun leika með Los Angeles Lakers næsta vetur í NBA-deildinni í körfubolta. Grant er 38 ára gamall og var liðsmaður Lakers þegar liðið varð meistari árið 2001. Grant, sem leikur í stöðu framherja, var samningslaus en hann lék aðeins fimm leiki á síð- asta tímabili með Orlando Magic en hann hefur fjórum sinnum orðið NBA-meistari.  ÍTALSKI knattspyrnukappinn Roberto Baggio sagði í gær, að hann myndi leggja knattspyrnu- skóna á hilluna eftir þetta keppnis- tímabil á Ítalíu. Það er takmark hans að skora 200 deildarmörk, en til þess að ná þeim áfanga verður hann að skora sjö mörk fyrir Brescia á keppnistímabilinu.  BAGGIO er nú að jafna sig eftir fjórðu hnéaðgerðina, sem hann gekkst undir á dögunum. Hann hefur leikið 426 1. deildarleiki síð- an hann lék sinn fyrsta leik árið 1986. Gestirnir úr Mosfellsbænum byrj-uðu leikinn betur og voru meira með boltann á upphafsmínútunum en náðu ekki að skapa sér nein umtalsverð marktækifæri. Blikar náðu foruystunni þvert gegn gangi leiksins á 19. mínútu. Þá átti Hreiðar Bjarnason glæsilega sendingu inn fyrir á Vestmanneyinginn í liði Blika, Olgeir Sigurgeirsson, sem skoraði með hnitmiðuðu skoti framhjá Axel Gomez í marki gestanna. Það sem eft- ir lifði fyrri hálfleiks gerðist lítið sem ekkert nema á 24. mínútu var varn- arjaxlinn Þorsteinn Sveinsson í liði Blika borinn af velli og virtist mikið meiddur. Síðari hálfleikur hófst með miklu fjöri. Á 50 mínútu fengu Blikar sann- kallað dauðafæri en Kristján Óli Sig- urðsson fór illa að ráði sínu fyrir framan mark gestanna. Mínútu síðar sýndi hins vegar bróðir hans, Sigmar Ingi Sigurðarson, einhver glæsileg- ustu tilþrif sem sést hafa á Kópavogs- velli í háa herrans tíð er hann varði skalla Hennings E. Jónassonar á ein- hvern undraverðan hátt. Átta mínút- um síðar fengu Blikar vítaspyrnu eft- ir að varnarmaður Aftureldingar braut á Ívari Sigurjónssyni. Hreiðar Bjarnason tók spyrnuna og skoraði. Síðasta hálftímann lögðu Mosfell- ingar allt kapp á sóknarleikinn en sóknir þeirra strönduðu flestar á vörn Blika eða Sigmari Inga. Þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir af leikn- um fékk Gunnar B. Ólafsson að líta rauða spjaldið frá Gísla H. Jóhanns- syni, góðum dómara leiksins. Gunnar braut þá á Henning E. Jónassyni sem sloppinn var inn fyrir vörn Blika. Mosfellingar sem voru spútniklið 1. deildar í fyrra er nú komið í fallsæti. Albert Arason var duglegur á miðj- unni og Henning E. Jónasson var síógnandi í framlínunni. Sigur Blika var sanngjarn. Frænd- urnir Sævar Pétursson og Olgeir Sig- urgeirsson léku vel ásamt þeim Magnúsi Páli Gunnarssyni og Hreiðari Bjarnasyni en maður leiks- ins var án efa Sigmar Ingi Sigurðar- son markvörður, sem stóð vaktina vel í fjarveru Páls Gísla Jónssonar sem var í leikbanni. Maður leiksins: Sigmar Ingi Sig- urðarson, Breiðabliki. Hjörvar Hafliðason skrifar BREIÐABLIK sigraði Aftureldingu í 12. umferð 1. deildar karla 2:0 á Kópavogsvellinum í gær. Sigur Blika var langþráður því fyrir leikinn hafði Kópavogsliðið ekki fengið stig í rúman mánuð. Við sigur heimamanna höfðu liðin sætaskipti, Breiðablik er nú komið í 8. sæti en Afturelding í fallsæti og hefur nú tapað fjórum leikjum í röð. Ný- liði í liði Breiðabliks, Sigmar Ingi Sigurðarson markvörður, var senuþjófur í gær og varði eins og berserkur í sínum fyrsta leik í byrjunarliði í meistaraflokki. Nýliðinn í markinu hjá Breiðabliki stal senunni Stjarnan byrjaði af krafti og á 5.mínútu komst Brynjar Sverris- son einn inn fyrir vörn Hauka en hann skaut boltan- um í hliðarnetið úr þröngu færi. Næstu mínúturnar héldu heimamenn áfram að stjórna leiknum og gáfu Haukum engin færi á sér. Á 17.mínútu var Sveinn Magnússon nálægt því að skora fyrir Stjörnuna en skot hans fór yfir markið. Sex mínútum síðar komust heimamenn yfir. Bernharð- ur Guðmundsson skoraði eftir horn- spyrnu Vilhjálms Vilhjálmssonar en skot Bernharðs hafði viðkomu í varnarmanni Hauka áður en boltinn endaði í netinu. Eftir markið gerðist lítt markvert og Stjörnumenn höfðu forystu þeg- ar flautað var til hálfleiks. Stjarnan var miklu betri aðilinn í frekar tíð- indalitlum fyrri hálfleik en Haukar sköpuðu sér ekki eitt einasta mark- tækifæri og komust lítt áleiðis gegn sterkum varnarmönnum Stjörn- unnar. Það er ekki hægt að segja annað en að heimamenn hafi nýtt færin sín vel í síðari hálfleik. Stjarnan fékk þrjú marktækifæri og skoraði úr þeim öllum. Vilhjálmur Vilhjálms- son skoraði örugglega úr vítaspyrnu á 52. mínútu eftir að brotið hafði verið á Valdimar Kristóferssyni. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Hauka, var ekki sáttur við víta- spyrnudóminn og hann fékk að líta rauða spjaldið fyrir kjaftbrúk. Þriðja markið kom á 78. mínútu en það gerði Calum Þór Bett sem var að leika sinn fyrsta leik með Stjörn- unni eftir að hann kom frá FH. Markið hjá Bett var stórglæsilegt en hann tók boltann á lofti eftir fyr- irgjöf frá Birni Mássyni og þrumaði honum í netið af 13 metra færi. Síð- asta mark leiksins gerði Benedikt Árnason af stuttu færi eftir herfileg mistök hjá Jörundi Kristinssyni, markverði Hauka, sem missti knött- inn eftir hornspyrnu. Gestirnir fengu sitt fyrsta færi á 85. mínútu en þá skaut Davíð Logi Gunnarsson hátt yfir markið úr ágætu færi. Stjörnumenn léku ágætlega en þeir þurftu þó ekki að sýna neinn stjörnuleik til að leggja slakt lið Hauka að velli. Heimamenn gerðu það sem þeir þurftu en varnarmenn liðsins léku mjög vel. Miðjuspil heimamanna var oft með ágætum og í sóknarlínunni var Valdimar Kristófersson oft hættulegur. Hjá Haukum stóð enginn upp úr og gestirnir vilja örugglega gleyma þessum leik sem allra fyrst. Önnur lið mega fara að vara sig Vilhjálmur Vilhjálmsson, miðju- maður Stjörnunnar, var mjög ánægður með frammistöðu liðsins. „Við vorum miklu betri og þetta var frábær leikur hjá okkur. Við lékum varnarleikinn mjög vel og nýttum færin ágætlega. Við töpuðum í fyrra, 0:4, fyrir Haukum á Stjörnu- velli og við hefndum fyrir það tap í kvöld. Önnur lið mega fara að passa sig á okkur og nú er stefnan tekin á að ná öðru sætinu. Við vorum mjög nálægt því í fyrra að fara upp í efstu deild og ef við leikum áfram eins og við gerðum í kvöld eigum við mögu- leika á að lenda í öðru sæti,“ sagði Vilhjálmur í samtali við Morgun- blaðið. Maður leiksins:Vilhjálmur Vil- hjálmsson, Stjörnunni. Stjarnan á skriði í átt að toppnum STJARNAN sigraði Hauka, 4:0, í Garðabæ í 12. umferð 1. deildar karla í gærkvöldi. Sigur Stjörnumanna var mjög sanngjarn en þeir hafa verið á miklu skriði að undanförnu og eru komnir í toppbarátt- una eftir að hafa verið í basli framan af sumri. Haukar léku mjög illa og með sömu spilamennsku eiga þeir á hættu að lenda í bullandi fallbaráttu. Atli Sævarsson skrifar FRANSKI knattspyrnukappinn Zinedine Zidane hefur tilkynnt að hann muni leggja skóna á hilluna þegar samningur hans við Real Madrid renni út sumarið 2005, en þá verður hann 33 ára. „Ég ætla að gefa fjölskyldu minni meiri tíma,“ sagði Zidane, sem var keyptur frá Juventus 2001 fyrir metfé, 46,5 millj. punda. „Ég á tvö ár eftir af samningi mínum við Real Madrid og ég ætla að leika eins vel fyrir liðið og ég mögulega get, eins og ég hef gert hingað til,“ sagði Zidane, sem hefur ákveðið að leika sinn síðasta landsleik með franska landsliðinu á Evrópumeistaramótinu í Portúgal næsta sumar. Það hefur lengi verið draumur Zidane að leika við hlið Patricks Vieira hjá Real Madrid. Kannski rætist sá draumur hans síðasta keppnistímabilið með Real? Vieira hefur ekki skrifað undir nýjan samning við Ars- enal en núverandi samningur hans við liðið rennur út næsta sumar. Zidane ætlar að hætta 2005 ENSKA götublaðið Daily Star sagði frá því í gær að Manchester United vildi fá íslenska landsliðsmanninn Eið Smára Guðjohn- sen til sín frá Chelsea. Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United, er sagður hafa lengi haft augastað á Eiði Smára. Blaðið segir að ef svo færi að argentínski landsliðsmaðurin Juan Seb- astian Veron fari til Chelsea, en Lundúnaliðið hefur mikinn hug á að fá hann til sín, þá vilji Ferguson fá Eið Smára, sem blaðið segir að sé metinn á 760 millj. ísl. kr. Það getur verið að þónokkrar breytingar séu framundan hjá Chelsea. Tottenham er tilbúið að kaupa franska leikmanninn Emmanuel Petit, sem Chelsea keypti frá Barcelona á 7,5 millj. punda 2001, á 700 þúsund pund. Þá er sagt að Chelsea hafi boðið Real Mallorca 25 millj. pund í miðherjann Samuel Eto’o frá Kamerún. Ef hann kæmi til Chelsea opnaðist möguleiki á að selja Jimmy Floyd Hasselbaink til Real Betis. Þá er ljóst að hollenski landsliðsmaðurinn Winston Bogarde á litla framtíð fyrir sér hjá Lundúnaliðinu. Skipti á Eiði Smára og Juan Veron? Morgunblaðið/Kristinn Eiður Smári Það var mikill baráttuleikur í 1.deildinni í gærkvöldi þegar Njarðvíkingar tóku á móti HK. Fyrri leikur liðanna fór 3:1 fyrir HK en í gær- kvöld náðu Njarðvík- ingar að hefna ófar- anna með því að sigra, 2:1, og liðin höfðu sætaskipti í deildinni. Gestirnir úr Kópavogi hófu leikinn af miklum krafti og áttu nokkur hörkuskot á upphafsmínútunum. Á 5. mínútu skilaði sóknarþungi þeirra ár- angri. HK fékk nokkrar hornspyrnur í sömu sókninni. Heimamönnum tókst ekki að hreinsa og barst boltinn út til Jóhanns Inga Jóhannssonar sem skaut föstu skoti af um 30 metra færi. Boltinn lá í netinu eftir að hafa breytt um stefnu af varnarmanni Njarðvík- inga. HK-menn héldu áfram að sækja en þær sóknir skiluðu engum árangri. Sverrir Þór Sverrisson hóf seinni hálfleikinn með Njarðvík og við það varð sóknarleikur liðsins beittari. Strax á 48. mínútu lék Sverrir vörn gestanna grátt og sendi á Óskar Örn Hauksson sem var óvaldaður á mark- teig og skoraði. Aftur var Sverrir á ferðinni á 53. mínútu þegar hann sendi boltann á nærstöng. Þar kom Eyþór Guðnason aðvífandi og skoraði fallegt mark. Gestirnir vöknuðu við vondan draum og reyndu ákaft að jafna en tókst ekki. . Í liði heimamanna var Guðni Er- lendsson ódrepandi á miðjunni og var mikið í boltanum. Óskar sýndi oft skemmtilega takta og Sverrir Þór var einnig mjög sterkur eftir að hann kom inn á. Í liði HK var Guðbjartur Haraldsson sterkur í vörninni ásamt Ásgrími Albertssyni. Þá átti Zoran Panic ágætan leik á miðjunni. Maður leiksins: Guðni Erlendsson Njarðvík Njarðvík komst upp fyrir HK Atli Þorsteinsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.