Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ GYLTURNAR Embla og Eyrún tóku sig saman og gutu ellefu grís- um hvor á föstudagskvöldi og aðfaranótt laugardags. Nú má því sjá tuttugu og tvo hrausta gríslinga lúra undir hitaperum í Húsdýra- garðinum. Gyltur ganga venjulega með grísina í þrjá mánuði, þrjár vikur og þrjá daga eða 114 daga í allt. Báðar gyltur voru sæddar í apríl og því hittist svo á að þær gutu báðar á sama tíma. Í meðalgoti eru á bilinu tíu til fjórtán grísir, þannig að hér er um að ræða afar heilbrigt got. Þrátt fyrir að grísirnir séu spennandi og falleg kríli er vert að brýna fyrir gestum Húsdýragarðs- ins að bæði grísir og gyltur eru afar viðkvæm fyrstu dagana eftir got og því er mikilvægt að sýna hvorum tveggja ýtrustu tillitssemi þegar krílin eru heimsótt. TRAMPÓLÍNIÐ hefur jafnan mikið aðráttarafl fyrir yngri kynslóðina og sú var raunin á Fjölskylduhátíð íþrótta- og leikjanámskeiðanna í Hafnar- firði sem haldin var á Thorsplani í síðustu viku. Fjölmenni mætti á staðinn og skemmtu ungir og aldnir sér saman. Meðal annars var farið í kassabílarall, rappað og breikað en íbúar Latabæjar sáu til þess að hita mannskap- inn upp. Morgunblaðið/Arnaldur Fjölskylduhátíð á Thorsplani Hafnarfjörður Í NÝLEGRI könnun sem Gallup gerði á viðhorfum íbúa höfuðborgarsvæðisins til bílastæðamála í miðborginni kom meðal annars fram að 58 prósent aðspurðra töldu gjöld fyrir notkun bílastæða í miðborginni vera há. 41 prósent töldu þau vera sann- gjörn og 1 prósent lág. Þá sögðust 72 pró- sent telja stöðumælasektir of háar, 27 pró- sent að þær væru sanngjarnar og 1 prósent lágar. Nær tveir þriðju aðspurðra sögðust ekki hafa fengið stöðumælasekt á árinu. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar sækja nær þrír fjórðu aðspurðra verslun eða aðra þjónustu í miðborg Reykjavíkur á hefðbundnum verslunartíma. 80,4 prósent aðspurðra sögðust aldrei fara á bíl sínum og skilja hann eftir í miðborginni til næsta dags þegar þeir færu út að skemmta sér í miðborginni. Könnunin var gerð að frumkvæði Þróun- arfélags miðborgarinnar. Skoðanakönnun Gallup Meirihluti borgarbúa tel- ur stöðumæla- gjöld of há Reykjavík UNDANFARIN misseri hefur verið mikil fjölgun á nýjum leiktækjum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þörf fyrir dagpassa hefur aukist jafnt og þétt samfara þessari fjölgun leiktækja og hefur Fjölskyldugarð- urinn nú hafið útgáfu slíkra passa sem eru valkostur við skemmtimiða sem áður voru eina leiðin til að borga fyrir að leika í tækj- unum. Gildir dagpassinn í öll leiktæki Fjöl- skyldugarðsins í einn dag, hafi viðkomandi aldur og hæð til. Dagpassinn kostar 1.500 krónur. Einar Þór Karlsson, markaðsstjóri Fjöl- skyldu- og húsdýragarðsins, segir dagpassa hafa selst afar vel og fólk mjög forvitið um þá. „Þess má geta að tíu miðar í leiktæki kosta 1.300 krónur, svo þetta er fljótt að borga sig upp, sérstaklega ef farið er í dýr- ari tækin eins og skemmtiferðaskipið Krakkafoss og Fallturninn.“ Dagpassar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn Reykjavík Stella Kristjánsdóttir var ljósmóðir og aðstoðaði krílin við að koma sér fyrir við spenana. Svínslætin leyna sér ekki í öru ungviðinu. Grísagot hjá Emblu og Eyrúnu Reykjavík Dobermanhundurinn Seifur sýnir föðurlega umhyggju. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.