Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 32
✝ Birgir Garðars-son fæddist í Reykjavík 5. ágúst 1935. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 23. júlí síðastliðinn. Foreldrar Birgis voru Garðar Jónsson og Svava Jakobsdótt- ir. Bræður Birgis eru Baldur, Bragi og Bergur. Hinn 20. desember 1958 kvæntist Birgir Ingibjörgu Einars- dóttir ritara, f. 27.5. 1934, d. 16. sept. 1999. Þau eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Svava, hjúkrunarfræðingur í Ástralíu, f. 2.2. 1957, gift Sigurði Ásgeirssyni sölustjóra og eiga þau dæturnar Karenu og Kristínu Ingu; 2 ) Guðrún, tækniteiknari á Akranesi, f. 28.4. 1962, maður hennar er Guðlaugur Jakob Ragnarsson véla- maður. Dætur þeirra eru Inga Lára og Rakel Ýr; 3 ) Einar Björgvin, þjónustu- stjóri hjá Eimskipi, f. 16.9. 1966, kona hans er Ágústa Hugrún Bárudóttir matvæla- tæknir. Synir þeirra eru Daníel Örn og Jó- el Örn. Birgir starfaði sem bifvélavirki hjá Agli Vilhjálmssyni og síðar í yfir 30 ár sem verkstjóri á vélaverkstæði Eimskipafélagsins. Útför Birgis verður gerð frá Garðakirkju á Álftanesi í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku papus. Nú ertu farinn frá okkur, allt of snemma að okkar mati. Við sitjum hér og rifjum upp gömlu dagana. Sem krökkum þótti okkur þú sterkasti og klárasti maður í heimi. Þú gast lagað allt og búið til svo margt. Þegar mamma var búin að fá nóg af látunum í okkur krökkunum og sagði: „Bíddu þangað til pabbi þinn kemur heim,“ þá brostum við með sjálfum okkur, því við vissum að þú varst aldrei reiður. Þú vannst myrkranna á milli en öllum frístundum var eytt með okkur eða niðri í skúr að búa eitthvað til. Tölum nú ekki um þegar þið mamma ákváðuð að byggja ykkar eigin sum- arbústað á Litlu-Skógum i Norður- árdal, í landi sem hefur verið í fjöl- skyldu mömmu í langa tíð. Þá þurfti allt að vera gert rétt og nákvæmt. Sem fullorðið fólk gerum við okkur grein fyrir því, hvað við vorum hepp- in að eiga þig fyrir pabba og hversu góður maður þú varst. Enda hefur það verið það, sem oft- ast hefur verið sagt við okkur á und- anförnum dögum þegar fólk hefur frétt um andlát þitt. Við sáum líka hversu mikilvæg mamma var í lífi þínu og hvað þú dáðir hana. Þú hefðir vaðið eld og brennistein fyrir hana mömmu litlu. Enda hrundi heimur þinn í rúst þeg- ar hún lést óvænt í september 1999. En kannski kenndirðu okkur mest þegar þú fékkst heilablóðfall í febr- úar 2001, sem gerði tjáskipti erfið og þig svo líkamlega fatlaðan. Hvað þú tókst þessu öllu með ótrúlegu jafnaðargeði og hélst bara áfram að reyna þitt besta. Þú gerðir veröld okkar þriggja bjarta, skemmtilega og umfram allt örugga og fyrir það þökkum við þér, papus. Svava, Guðrún og Einar Björgvin. Það voru sorgleg tíðindi sem bár- ust mér hingað til Sydney miðviku- daginn 23. júlí þegar hringt var og sagt að tengdafaðir minn hefði látist eftir mikil veikindi. Birgir Garðarsson var ekki bara sá maður sem ég var svo heppinn að fá fyrir tengdaföður heldur var hann líka góður vinur. Ég naut samveru- stunda okkar og á eftir að sakna þeirra. Með konu sinni, tengdamóður minni, Ingu Einarsdóttir heitinni, byggði Biggi fallegt heimili í Hlíð- arbyggð 20 í Garðabæ, heimili sem var fullt af hlýju og gestrisni. Það er margra gleðistunda að minnast þaðan, ekki síst þegar „ástr- BIRGIR GARÐARSSON alski hópurinn“ kom í heimsókn. Báðum dætrum mínum var spillt af eftirlæti eins og hægt var, engin furða að þær dýrkuðu afa Bigga og ömmmu Ingu. Biggi eyddi flestum af vinnuárum sínum hjá Eimskipi sem verkstjóri og rak vélaviðgerðaverkstæði félags- ins. Hefði Eimskip ekki getað fengið heiðarlegri og vinnusamari starfs- mann en Bigga. Afa Bigga, eins og hann er alltaf kallaður á heimili okkar, verður sárt saknað og skilur hann eftir sig stórt skarð sem ekki er hægt að fylla. Það gladdi mig, Svava mín, að þér tókst að komast til Bigga áður en yfir lauk. Ég hugsa mikið til þín, Guðrúnar, Einars og fjölskyldna þeirra. Megi Guð vera með ykkur. Sigurður Ásgeirsson, Sydney í Ástralíu. Elsku afi. Ég veit að þér líður vel núna en ég á alltaf eftir að sakna þín og á aldrei eftir að gleyma þér. Sérstaklega man ég þegar ég var alltaf hjá þér niðri í bílskúr og þú varst að dunda eitthvað í bílskúrnum og ég var alltaf að renna mér niður brekkuna í bílskúr- inn og var alltaf næstum búin að keyra á þig og þú hlóst alltaf að þessu, svo man ég þegar verið var að steypa niðurfallið og ég steig ofan á steypuna og skildi skófarið mitt eftir og þú lagaðir það aldrei, heldur hafð- ir það alltaf þarna. Ég gleymi heldur aldrei Tomma og Jenna spólunum sem þú settir alltaf í videotækið handa okkur og það var alveg sama hversu oft við horfðum á sömu þætt- ina, þér fannst þetta alltaf jafnfyndið og þú varðst alltaf jafnhissa yfir því hvað þeir voru vitlausir. Takk fyrir allt, afi minn, og ég vona að þér líði vel hjá ömmu. Ég vildi óska að við hefðum fengið meiri tíma saman en ég er mjög þakklát fyrir þann tíma sem við fengum og við eigum eftir að hittast aftur. Ég sit hér og hugsa. Ég hugsa um hversu lítið ég þekkti þig og hversu lítið ég fékk að kynnast þér. Ég hugsa um þig á kvöldin og hversu sárt ég sakna þín. Ef þú heyrir og sérð er þetta það sem ég vildi segja þér. Kannski veistu það nú þegar en ég vildi að ég gæti hlaupið í faðm þinn og verið þar til eilífðar. Þín einlæg, Inga Lára. MINNINGAR 32 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Mig langar til að skrifa nokkrar línur til frænda míns sem kvaddi heiminn ungur að aldri, aðeins 16 ára gamall. Það eru aðeins þrjú ár síðan hann lét lífið, þessi þrjú ár eru búin að líða mjög fljótt, trúi ekki að það séu svona mörg ár síðan. Jóhann Ásgeir var skemmtilegur, ljúfur og yndislegur drengur. Fal- lega brosið hans var svo hlýlegt og skein daglega hjá honum. Á mínum yngri árum vorum við miklir vinir. Ég bað pabba oft að fara í heimsókn til Jóns og Ernu til að fá að leika við Jóhann. Það var oftast á þriðjudags- kvöldum sem við ákváðum að kíkja til þeirra. Við lékum okkur oft saman JÓHANN ÁSGEIR JÓNSSON ✝ Jóhann ÁsgeirJónsson fæddist á Ísafirði 4. apríl 1984. Hann lést á Landspítalanum 30. júlí 2000 og var útför hans gerð frá Ísa- fjarðarkirkju 5. ágúst. í alls konar leikjum en „mömmó“ eins og það var nú kallað var oftast í uppáhaldi hjá Jó- hanni. Hann vildi oftast fá að vera húsbóndinn eða hundurinn, sem gelti stanslaust. Jóhann hafði mikinn áhuga á fánum, enda átti hann heilt safn af þeim, í öllum regnbog- ans litum. Hann var mjög duglegur að flagga þeim daglega. Oftast þegar ég var að koma heim úr skólan- um stóð hann fyrir framan húsið að flagga fánum sínum og sagði við mig góðan daginn og svo skein brosið breitt. Sumarið 2000 var ég í ferðalagi ásamt fjölskyldu minni, þegar mér barst sú frétt að Jóhann Ásgeir væri látinn. Ég gat ekki trúað því, það var ótrúlega skrýtið. Mér leið illa því ég hafði misst elskulegan frænda, sem ég sakna sárt. En ég vona að honum líði vel núna uppi hjá Guði, við sjáumst svo seinna þegar minn tími kemur. Innilegustu samúðarkveðjur sendi ég fjölskyldu og vinum Jóhanns, og vil þakka fyrir að hafa kynnst þess- um yndislega dreng. Ég sakna þín, elsku Jóhann minn. Þín frænka, Ásgerður Friðbjarnardóttir. ✝ Lýður Bogasonfæddist á Akur- eyri 16. september 1925. Hann lést 22. júlí síðastliðinn. Lýð- ur var sonur hjónanna Boga Daní- elssonar trésmiðs og veitingamanns, f. 3. ágúst 1881, d. 10. september 1943, og Elínar Friðriksdótt- ur húsmóður, f. 23. febrúar 1886, d. 30. maí 1982. Alsystkini Lýðs eru: 1) Ásta, f. 1916, 2) Gunnar, f. 1919, d. 1989, 3) Björn Friðrik, f. 1921, d. 1922, 4) Jóhanna Margrét, Erla eignuðust tvær dætur. Þær eru: 1) Antonía Marsibil hjúkrun- arfræðingur, f. 1947, gift Sigurði Hermannssyni tæknifræðingi, f. 1945. Dætur þeirra eru: Kristín gjaldkeri, f. 1972 og Erla hjúkr- unarfræðingur, f. 1975, sambýlis- maður Jakob Yngvason verkfræð- ingur, f. 1971, sonur þeirra er Sigurður Yngvi, f. 2002. 2) Elín Margrét tölvunar- og rekstrarhag- fræðingur, f. 1960, gift Atla Sturlusyni tölvunarfræðingi, f. 1962. Dætur þeirra eru Steinunn, f. 1996 og Arndís, f. 2000. Lýður bjó á Akureyri allt sitt líf. Hann lærði húsasmíðar og vann við smíðar lengi hjá trésmíðaverk- stæðinu Skildi á Akureyri. Síðar vann hann hjá Fasteignamati rík- isins og við fasteignamat hjá tæknideild Akureyrarbæjar. Útför Lýðs verður gerð frá Ak- ureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. f. 1923, og 5) Björg, f. 1926. Hálfsystkini samfeðra: 1) Ingibjörg Dagný, f. 1902, d. 1954, 2) Margrjet Jón- ína, f. 1904, d. 1907, 3) Gunnhildur Halldóra, f. 1905, d 1927, og 4) Gunnlaugur Tryggvi, f. 1906, d. 1976. Lýður kvæntist 31. desember 1947 Erlu Guðlaugu Magnús- dóttur frá Siglunesi, f. 16. maí 1926. Foreldr- ar hennar voru Magn- ús Baldvinsson, f. 1895, d. 1956, og Antonía Erlends- dóttir, f. 1901, d. 1987. Lýður og Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Elsku afi. Okkur langar að þakka þér fyrir allar góðu stundirnar og allt sem þú gerðir fyrir okkur. Margar minning- ar koma upp í hugann á þessari stundu, allar sögurnar sem þú sagð- ir okkur og kvæðin sem þú söngst fyrir okkur. Það sem kemur fyrst upp í hugann eru sögurnar um Hans og Grétu og Litlu stúlkuna með eld- spýturnar og þegar þú dansaðir með okkur á tánum. Einnig eru minnis- stæðar 17. júní skrúðgöngurnar sem þú fórst með okkur í og ísbíltúrarnir. Það var alltaf jafngott að koma á Ásveginn til ykkar ömmu. Þið tókuð okkur alltaf fagnandi. Stundirnar við eldhúsborðið eru ógleymanlegar þar sem við sátum og spjölluðum og spiluðum. Þú varst sælkeri mikill, best þótti þér að fá tertu og súkku- laði með rjóma. Þú vildir alltaf hafa eitthvað fyrir stafni og tókst til hendinni þar sem verk var að vinna. Til minningar um það eigum við muni eftir þig. Þú bjóst yfir miklum fróðleik enda varstu bókaunnandi mikill og bækurnar sem þú áttir skipta hundruðum. Þú varst mikill unnandi Akureyrar. Í gegnum störf þín frá því í gamla daga þegar þú starfaðir á Trésmíðaverkstæðinu Skildi og síðar í störfum þínum fyrir Fasteignamat ríkisins og Akureyrar kynntistu mörgum og naut sín þá vel áhugi þinn á ættfræði. Þú varst óspar á að miðla þeim fróðleik, þótt skilningur okkar hafi ekki alltaf ver- ið mikill. Þú tókst ekki síður vel á móti langafabarninu þegar það fæddist og naut hann ekki síður en við kær- leika þíns þann stutta tíma sem þið áttuð saman. Við viljum biðja góðan Guð að geyma þig og veita ömmu og öðrum í fjölskyldu okkar styrk í sorg sinni. Í lokin kveðjum við þig með ljóðinu sem þú söngst oft fyrir okkur og minnir okkur á þig. Þú ert yndið mitt yngsta og besta, þú ert ástarhnossið mitt nýtt, þú ert sólrún á suðurhæðum, þú ert sumarblómið mitt frítt, þú ert ljósið sem lifnaðir síðast, þú ert löngunar minnar Hlín. Þú ert allt sem ég áður þráði, þú ert ósk, – þú ert óskin mín. (Gestur.) Þínar dótturdætur, Kristín og Erla. Mig langar með nokkrum orðum að minnast Lýðs Bogasonar. Ég kynntist þessum mæta manni þegar ég og dótturdóttir hans bundumst vinaböndum fyrir brátt um 19 árum. Fyrir mér, 9 ára stelputátu var hann alltaf nákvæmlega eins og öfum er lýst í barnabókum, hæglátur en ávallt geislaði af honum góðmennsk- an og stutt var í glettnina. Þegar við vinkonurnar urðum stórar og fórum báðar í hjúkrunarnám við Háskólann á Akureyri urðum við tíðir gestir hjá Erlu og Lýði í Ásveginum. Já, oft var skotist í hádeginu í kaffi til afa og ömmu. Ekki leiddist Lýði að fara nið- ur í kjallara til að sjá hvaða kræs- ingar væru til í búinu til að bera á borð fyrir yngismeyjarnar og oftar en ekki varð fyrir valinu bakkelsi sem nauðsynlegt var að hafa rjóma með. Já, afi er mikill sælkeri sagði Erla vinkona og hann vill helst hafa rjóma með öllu. Þessi hádegi eru mér líka mjög minnisstæð vegna allra þeirra frásagna sem þau hjónin leyfðu okkur að njóta. Í mínum huga lifði Lýður fyrir fjölskyldu sína og einlæg ást hann til eiginkonu sinnar var alltaf áberandi. En þessi fáu orð eru fátækleg og ná engan vegin að tjá það sem hjart- að býður mér að segja, því bregð ég á það ráð að fá að láni ljóð sem kemur því betur til skila. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez.) Elsku Lýður, það hafa verið mér forréttindi að þekkja þig og mun ég alltaf minnast þín með hlýju og vænt- umþykju. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Fjölskyldunni sendi ég mína inni- legustu samúðarkveðju. Helga Sif Friðjónsdóttir. LÝÐUR BOGASON Kæri tengdafaðir. Ég kveð þig nú, kæri vinur, um sinn, komin er kveðju- stundin. Þín sárt er saknað, það ég finn, það styttist í endurfundinn. Blessuð sé minning þín. Þinn tengdasonur, Sigurður Hermannsson. HINSTA KVEÐJA Elsku afi. Ég man eftir sögunum sem þú sagðir mér. Ég gleymi þér aldrei. Arndís er svo lítil að hún skilur ekki að þú kemur ekki aftur og heldur að þú sért úti að labba og stundum finnst mér það líka. Þú varst alltaf að syngja „Komdu og skoðaðu í kistuna mína“ með henni, það fannst henni skemmti- legt. Kannski man hún enn eftir því þegar hún verður stærri. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okk- ur. Steinunn og Arndís. AFMÆLIS- og minningargrein- um má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is) eða á disk- lingi. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfund- ar og/eða sendanda (vinnu- og heimasíma). Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri lengd á út- farardegi. Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú er- indi. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útför- in verður gerð og klukkan hvað. Frágangur minningargreina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.