Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
SORPSAMLAG Eyjafjarðar leitar
enn að nýjum stað undir sorpurðun
fyrir Eyjafjarðarsvæðið. Að sögn
Guðmundar Guðlaugssonar, fram-
kvæmdastjóra Sorpsamlagsins, er
nú verið að skoða möguleika á sorp-
urðun í landi Skúta í Hörgárbyggð.
Hann sagði að hugsanlega yrði hægt
að ná sátt um þann stað fyrir sorp-
urðun en þó hefði ekkert verið
ákveðið í þeim efnum. Jörðin Skútar
er í eigu Hörgárbyggðar en er í leigu
að hluta.
„Þessi staður hefur komið áður
upp í umræðunni en hann er þó ekk-
ert sérstakur og helsti gallinn er
hversu langt er í þekjuefni. Einnig á
eftir að rannsaka hvernig grunn-
vatnið hreyfist og ómögulegt að
segja hvað kemur út úr þeirri rann-
sókn,“ sagði Guðmundur.
Eins og áður hefur komið fram
hafnaði sveitarstjórn Hörgárbyggð-
ar því að nýr urðunarstaður yrði á
Gásum, m.a. vegna nálægðar við
fornminjar og gróðursælan reit í
sveitarfélaginu. Helgi Steinsson,
oddviti Hörgárbyggðar, sagði að
þegar urðun á Gásum var hafnað
hefði sorpsamlaginu verið veitt
heimild til að skoða aðra hugsanlega
staði í sveitarfélaginu.
„Það er þó ekki þar með sagt að
aðrir staðir verði samþykktir undir
slíka starfsemi. Þingeyingar standa
frammi fyrir sömu vandamálum og
við og því ættu menn að velta því fyr-
ir sér að byggja eina öfluga sorp-
brennslu fyrir Norðurland. Ég veit
þó ekki hvar hún ætti að vera stað-
sett,“ sagði Helgi.
Leit að nýjum urðunarstað í Eyja-
firði hefur tekið mun lengri tíma en
menn ætluðu en starfsleyfi fyrir urð-
un sorps á Glerárdal ofan Akureyrar
rennur út á þessu ári.
Leitað að nýjum urðunarstað fyrir sorp
Urðun í landi
Skúta til skoðunar
STANGVEIÐI er vinsælt tóm-
stundagaman yfir sumartímann,
hvort sem er í ám eða vötnum.
Ásókn í veiðileyfi á þekktum veiði-
svæðum er mikil og yfirleitt komast
færri að en vilja. Nú geta áhuga-
samir veiðimenn komist í lax- og
silungsveiði í tjörnum við Ystu-Vík,
um 22 km frá Akureyri og þar er
veiðivonin góð, að sögn Gunnars
Blöndal staðarhaldara. Ekki er
greitt gjald á stöng, heldur aðeins
fyrir veiddan fisk, eða 450 krónur
fyrir kílóið. Gunnar sagði að fjöldi
fólks hefði lagt leið sína í Ystu-Vík
og að aðsóknin væri framar vonum.
Í tjörnunum er eldisfiskur frá
tveggja punda bleikju upp í 15
punda lax. Stærsta bleikjan sem
komið hefur á land síðustu daga var
9,5 pund. Gunnar sagði að hægt
væri að fá lánaðar veiðistangir á
staðnum og þar er opið alla daga
vikunnar frá kl. 12–21.
Morgunblaðið/Kristján
Gunnar Guðlaugsson með vænar
bleikjur úr tjörninni í Ystu-Vík.
Lax- og
bleikjuveiði
í Ystu-Vík
Miðvikudagur 30. júlí
Hlaðan, Litla Garði v/Drottning-
arbraut kl. 12.00. „Ellý, alltaf góð“.
Einleikur eftir Þorvald Þorsteinsson
í flutningi Ævars Þórs Benedikts-
sonar. Leikstjóri Skúli Gautason.
Aðgangur kr. 900.
Fimmtudagur 31. júlí
Deiglan, Heitur fimmtudagur kl.
21.30. Klezmer/balkan sveitin
„Schpilkas“. Hljómsveitina skipa:
Haukur Gröndal á klarínett, Nichol-
as Kingo á harmónikku, Peter Jørg-
ensen á kontrabassa og Helgi Svavar
Helgason á trommur og slagverk.
Föstudagur 1. ágúst
Víólutónleikar í föstudagshádegi í
Ketilhúsinu kl. 12.00. Þórunn Ósk
Marinósdóttir víóluleikari flytur
verk eftir Áskel Másson, J.S. Bach
og Paul Hindemith. Aðgangur kr.
1000.
Lokasýning 40 sýninga á 40 dög-
um. Aðalheiður S. Eysteinsdóttir í
samvinnu við Frúna í Hamborg.
Dagskráin hefst á Ráðhústorgi kl.
18.00 með brúðarkjólasýningu og
heldur áfram að og í vinnustofu Að-
alheiðar í Listagili. Hjálmar Brynj-
ólfsson, harmónikka, Arna Valsdótt-
ir, söngur, Þórunn Ólafsdóttir,
ljóðalestur og margt fleira. Allir vel-
komnir, aðgangur ókeypis.
Söngvaka í Minjasafnskirkjunni
kl. 20.30. Íslensk tónlist í tónum og
tali.
Laugardagur 2. ágúst
Jónas Viðar opnar sýningu á Café
Karólínu í Listagili.
Hlaðan, Litla Garði v/Drottning-
arbraut kl. 16.00. „Ellý, alltaf góð“.
Einleikur eftir Þorvald Þorsteinsson
í flutningi Ævars Þórs Benedikts-
sonar. Leikstjóri Skúli Gautason.
Aðgangur kr. 900.
Menningarvaka Karólínu á Café
Karólínu og í Deiglunni frá kl. 23.00.
Sunnudagur 3. ágúst
Sumartónleikar í Akureyrar-
kirkju kl. 17.00. Magnea Tómasdótt-
ir, sópran og Guðmundur Sigurðsson
orgelleikari.
Menningarvaka Karólínu á Café
Karólínu og í Deiglunni frá kl. 23.00.
KOMPANÍIÐ og Menningardeild
Akureyrarbæjar standa sameig-
inlega að verkefninu „Gestalæti
2003“, en það gengur út á það að
blása nýju lífi í miðbæinn með alls-
konar uppátækjum sem líkja mætti
við götuleikhús. Verkefni þetta er í
höndum hóps af ungu fólki og hafa
þau verið áberandi í miðbænum
síðustu vikur. Ferðamenn jafnt
sem heimamenn hafa skemmt sér
yfir söngnum, trúðslátunum og
öllu því sem þau hafa haft fram að
færa. Ungmennin hafa jafnframt
tekið á móti ferðamönnum sem
koma til Akureyrar með þeim fjöl-
mörgu skemmtiferðaskipum sem
leggjast hér að bryggju þetta sum-
arið. Á daginn halda þau til í mið-
bænum, en þegar ljósmyndari
Morgunblaðsins var á ferð sá hann
til þeirra þar sem þau sváfu vært á
torginu og varla hægt að segja að
mikið fjör hafi verið í gangi í það
skiptið. Hópurinn er undir dyggri
stjórn Skúla Gautasonar og hann
skipa: Íris Berglind Clausen, Rósa
Dröfn Guðgeirsdóttir, Elvar Guð-
mundsson, Brynjar Ólafsson, Fann-
ar Hólm Halldórsson, Sigrún Dóra
Bergsdóttir og Bjarney Inga Óla-
dóttir.
Morgunblaðið/Kristján
Fjör í miðbænum
– eða hvað?
Á Minjasafni Akureyrar standa yfir
þrjár sýningar: Eyjafjörður frá önd-
verðu, Akureyri – bærinn við Poll-
linn og Dansi, dansi dúkkan mín. Í
fyrrnefndu sýningunum tveimur er
leitast við að gera sögu fjarðarins og
bæjarins skil á sem bestan hátt.
Leikfangasýningin Dansi, dansi
dúkkan mín er sumarsýning Minja-
safnsins á brúðum og leikföngum í
eigu Guðbjargar Ringsted.
Laugardaginn 2. ágúst verður leið-
sögn um sýninguna Akureyri – bær-
inn við Pollinn. Sýningarvörður veit-
ir sýningargestum innsýn í líf
bæjarbúa fyrr á tíð og bregður upp
mynd af litríkum sögupersónum úr
bæjarlífi þess tíma. Leiðsögnin hefst
kl. 15 og er aðgangseyrir kr. 400.
Sunnudaginn 3. ágúst verður farið
í sögugöngu um Oddeyrina á Akur-
eyri. Skoðuð verða gömlu húsin í
suðurhluta Oddeyrarinnar milli
Strandgötu og Eiðsvallagötu. Leið-
sögumaður verður Guðrún María
Kristinsdóttir. Lagt verður upp frá
Gránufélagshúsunum, Strandgötu
49, kl. 14. Þátttökugjald er kr. 300.
Á NÆSTUNNI