Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla,
Landsbankadeild
Fylkir – ÍBV ............................................ 3:0
Ólafur Páll Snorrason 9., Haukur Ingi
Guðnason 38., Björn Viðar Ásbjörnsson
90.
Staðan:
Fylkir 12 7 2 3 19:9 23
KR 11 6 2 3 15:13 20
Grindavík 11 6 1 4 17:17 19
Þróttur R. 11 6 0 5 19:16 18
FH 12 5 3 4 20:19 18
ÍBV 12 5 1 6 18:19 16
KA 11 4 2 5 18:17 14
ÍA 11 3 5 3 14:13 14
Valur 12 4 0 8 16:22 12
Fram 11 2 2 7 14:25 8
1. deild karla
Njarðvík – HK......................................... 2:1
Óskar Örn Hauksson 48., Eyþór Guðna-
son 53. - Jóhann Ingi Jóhannsson 5.
Stjarnan – Haukar ................................. 4:0
Bernharður M. Guðmundsson 23., Vil-
hjálmur R. Vilhjálmsson 52. (víti), Calum
Þór Bett 78., Benedikt Egill Árnason 83.
Þór – Keflavík......................................... 2:2
Þórður Halldórsson 63., Pétur Kristjáns-
son 80. - Þórarinn Kristjánsson 45., 71.
Breiðablik – Afturelding....................... 2:0
Olgeir Sigurgeirsson 19., Hreiðar Bjarna-
son 58. (víti). Rautt spjald: Gunnar B.
Ólafsson (Breiðabliki) 71.
Staðan:
Keflavík 12 8 3 1 31:14 27
Þór 12 6 4 2 28:20 22
Víkingur R. 11 5 5 1 14:7 20
Stjarnan 12 4 5 3 19:16 17
Njarðvík 12 4 3 5 24:25 15
Haukar 12 4 3 5 15:19 15
HK 12 4 2 6 15:18 14
Breiðablik 12 4 1 7 12:16 13
Afturelding 12 3 2 7 13:24 11
Leiftur/Dalvík 11 2 2 7 16:28 8
2. deild karla
Selfoss – Fjölnir...................................... 1:1
Jón Steindór Sveinsson - Andri Andrés-
son.
Staðan:
Völsungur 12 9 1 2 45:19 28
Fjölnir 13 8 3 2 37:18 27
Selfoss 13 7 2 4 28:17 23
KS 12 5 4 3 22:19 19
Tindastóll 12 6 1 5 22:22 19
Víðir 12 5 2 5 15:16 17
ÍR 12 5 1 6 22:21 16
KFS 12 4 2 6 27:33 14
Léttir 12 2 1 9 10:48 7
Sindri 12 0 3 9 16:31 3
3. deild karla A
Skallagrímur – Deiglan ........................ 11:2
Staðan:
Víkingur Ó 11 9 2 0 37:10 29
Númi 11 7 3 1 32:21 24
Skallagr. 12 7 2 3 38:20 23
BÍ 12 5 2 5 23:27 17
Grótta 11 3 2 6 14:15 11
Drangur 10 3 1 6 19:29 10
Bolungarvík 11 2 1 8 22:37 7
Deiglan 12 2 1 9 18:44 7
3. deild karla B
Hamar – Afríka ....................................... 7:1
1. deild kvenna A
RKV – ÍR ................................................. 4:4
Fjölnir – Breiðablik 2 ............................. 2:1
Staðan:
Breiðablik 2 9 8 0 1 51:10 24
Fjölnir 9 7 0 2 25:15 21
RKV 10 6 2 2 39:24 20
HK/Víkingur 10 4 1 5 21:13 13
ÍR 10 3 1 6 31:29 10
Þróttur/Haukar 2 9 2 0 7 10:40 6
HSH 9 1 0 8 11:57 3
Fjölnir og RKV tryggðu sér í gærkvöld
sæti í úrslitakeppninni um úrvalsdeild-
arsæti. Breiðablik 2 getur ekki farið í þá
keppni.
1. deild kvenna B
Leiknir F. – Sindri.................................. 1:3
Ólympíudagar æskunnar
17 ára landslið kvenna:
Ísland - Danmörk.................................... 0:1
Opna Norðurlandamót drengja
Drengjalandslið 17 ára og yngri:
Ísland - England ..................................... 0:3
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla, Landsbankadeild:
Akranes: ÍA – KR..................................19.15
2. deild karla:
Sauðárkrókur: Tindastóll – KFS..............19
3. deild karla B:
Selfoss: Árborg – Leiknir R. .....................20
Sandgerði: Reynir S. – Freyr....................20
3. deild karla C:
Árskógst.: Reynir Á. – Magni ...................20
Hofsós: Neisti H. – Vaskur........................20
3. deild karla D:
Fáskrúðsfj.: Leiknir F. – Huginn .............20
Vilhjálmsvöllur: Höttur – Neisti D...........20
1. deild kvenna B:
Vopnaf.: Einherji – Fjarðabyggð..............20
Í KVÖLD
FRANCO Baldini, framkvæmdastjóri ítalska knattspyrnu-
félagsins Roma, staðfesti í gær að félag hans hefði hafnað til-
boði Chelsea í Emerson, fyrirliða brasilíska landsliðsins. Til-
boðið hefði hljóðað upp á 17,5 milljónir punda, eða tæplega 2,2
milljarða íslenskra króna.
„Tilboð Chelsea er það alvarlegasta sem í hann hefur kom-
ið,“ sagði Baldini, sem jafnframt virðist vilja halda öllum dyr-
um opnum ef Chelsea myndi koma með hærra boð. Hann kvart-
aði jafnframt undan því að Chelsea hefði nálgast leikmanninn á
ólöglegan hátt eftir að Roma hafnaði fyrsta tilboðinu. „Það er
eðlilegt að leikmaðurinn sé á báðum áttum þessa dagana. Við
höfum sagt honum að við teljum hann ómissandi og að við vilj-
um gera við hann nýjan samning og greiða honum hærri laun.
Hann svaraði því til að Chelsea hefði augljóslega einnig mikla
trú á hæfileikum sínum. Við áttum okkur á því að hann sér
sannkallaðan gullvagn vera kominn til að ná í sig en nú er það
hans að taka rétta ákvörðun,“sagði Baldini. Netútgáfa enska
blaðsins The Independent sagði í gærkvöld að forráðamenn
Chelsea væru að velta fyrir sér að hækka boð sitt í Emerson.
Boði Chelsea
í Emerson hafnað
FJÓRIR leikmenn úr úrvalsdeild karla voru í
gær úrskurðaðir í eins leiks bann vegna fjög-
urra gulra spjalda. Allir taka þeir bannið út í
13. umferð deildarinnar sem leikin er dagana
9.–11. ágúst. Þetta eru þeir Tommy Nielsen,
FH, sem verður ekki með gegn Fylki, Gunn-
laugur Jónsson, fyrirliði ÍA, sem spilar ekki
gegn Fram, Atli Jóhannsson, ÍBV, sem verður
ekki með gegn Grindavík, og Bjarni Ólafur Ei-
ríksson, Val, sem spilar ekki gegn Þrótti.
Þá fékk Sinisa Kekic úr Grindavík eins leiks
bann vegna brottvísunar sem bætist við bann
vegna fjögurra gulra spjalda sem hann fékk í
síðustu viku og missir því af næstu tveimur
leikjum sinna manna.
Tveir leikmenn í neðri deildum fengu þriggja
leikja bann vegna brottvísana. Það eru Róbert
Haraldsson úr 2. deildarliði KS á Siglufirði og
Fouad Hourri úr 3. deildarliði Afríku.
Fjórir í banni í
13. umferðinni
Leikaðferð Fylkis virtist komaEyjamönnum á óvart, en hefði
auðvitað ekki átt að gera það. Þrír
voru í vörninni, fjór-
ir á miðjunni þar
sem Helgi Valur
Daníelsson hafði
talsverða varnar-
skyldu en tók virkan og skemmti-
legan þátt í sókninni. Besti maður
vallarins í gærkvöldi. Frammi var
síðan stórhættuleg þrenna, Ólafur
Páll Snorrason og hinir eldfljótu
Sævar Þór Gíslason og Haukur Ingi
Guðnason.
Einhverra hluta vegna virtust
Eyjamenn ekki viðbúnir hröðum
sóknum heimamanna og hvað eftir
annað munaði minnstu að illa færi
við mark ÍBV. Fyrsta markið kom
strax á níundu mínútu og var sér-
lega vel að því staðið. Hröð sókn,
gefið fyrir og mark þar sem varn-
armenn gestanna voru fáliðaðir í
vítateignum.
Eyjamenn áttu samt fínar sóknir
og nokkur þokkaleg færi framan af
leik og þurfti Kjartan Sturluson,
markvörður Fylkis, að taka á því
nokkrum sinnum.
Minnstu munaði að Fylkir kæm-
ist tveimur mörkum yfir skömmu
eftir fyrsta markið, en þá sendi
Sævar Þór laglega fyrir markið en
Haukur Ingi var aðeins of seinn og
náði ekki að teygja sig í boltann við
stöngina fjær. Gunnar Heiðar Þor-
valdsson fékk gott færi skömmu síð-
ar þegar hann og Steingrímur Jó-
hannesson komust inn fyrir vörn
Fylkis, en skot Gunnars Heiðars fór
framhjá.
Færin komu á færibandi, flest
fengu Fylkismenn en Eyjamenn
hefðu hæglega getað skorað. Gunn-
ar Heiðar átti langskot sem Kjartan
varði og hann átti einnig fínan
skalla að marki sem Kjartan sá við.
Hinum megin átti Haukur Ingi
fínt skot en Birkir varði mjög vel og
Sævar Þór fékk eitt besta færi
leiksins á 28. mínútu. Það var í
rauninni eins færi og þegar markið
kom, nema hvað Sævar var ennþá
meira aleinn, en skot hans fór
framhjá.
Það hlaut að koma að því að ann-
að mark liti dagsins ljós og það var
sérlega glæsilegt mark sem Haukur
Ingi gerði eftir flotta sendingu frá
Þórhalli Dan.
Fleira markvert gerðist ekki í
fyrri hálfleik, en áhorfendur
skemmtu sér konunglega enda trú-
lega einn sá líflegasti fyrri hálfleik-
ur í deildinni í sumar. Fylkismenn
voru mun betra liðið, fengu fleiri
færi og spiluðu betur. Boltinn gekk
hratt og nokkuð örugglega manna á
milli og sóknirnar voru snaggara-
legar þannig að Eyjamenn voru
hvað eftir annað berskjaldaðir í
vörninni. Sérstaklega þótti Fylkis-
mönnum gaman að sækja upp hægri
vænginn þar sem Helgi Valur fór á
kostum og naut sín virkilega vel.
Eyjamenn áttu í vök að verjast en
beittu skyndisóknum sem voru
hættulegar og hefðu hæglega getað
jafnað metin, en þrátt fyrir að vera
nokkuð ágengir í sóknum sínum
gættu heimamenn þess að huga
einnig að vörninni.
Miðað við hvernig fyrri hálfleikur
var leikinn var full ástæða til að búa
sig undir eldfjörugan síðari hálfleik.
Því miður var hann algjör andstaða
þess fyrri. Eyjamenn virtust
löngum stundum sáttir við stöðu
mála, sóttu á færri mönnum en fyrir
hlé og virtust bara þokkalega
ánægðir með gang mála. Fylkis-
menn tóku enga áhættu, voru
tveimur mörkum yfir og gerðu ekki
mikið til þess að ógna marki gest-
anna.
Finnur átti þó fínt skot að marki
Eyjamanna snemma í síðari hálfeik
en Birkir var vandanum vaxinn enn
sem fyrr. Atli Jóhannsson átti ágæt-
an skalla að marki Fylkis undir lok
leiks, en framhjá. Heimamenn nýttu
hins vegar leikinn til fulls og gerðu
þriðja markið á síðustu sekúndum
hans, Eyjamenn tóku miðju og leik-
urinn var búinn.
Sem fyrr segir léku Fylkismenn
vel í gærkvöldi, sérstaklega voru
miðjumennirnir sprækir, bæði við
uppbyggingu sókna og eins var
verkskipting þeirra góð, alltaf ein-
hver til taks til að taka þátt í vörn-
inni – þegar þess þurfti. Helgi Valur
var bestur heimamanna, spilaði
virkilega vel á hægri vængnum og
það sama má segja um félaga hans á
miðjunni, mikil barátta hjá þeim öll-
um.
Eyjamenn léku ágætlega á köfl-
um, en voru ekki undir það búnir að
mæta sóknarleik Fylkis. En þeir
áttu samt nokkur ágæt færi í fyrri
hálfleik. Birkir varði mjög vel og
kom í veg fyrir stærra tap – verður
ekki sakaður um mörkin þrjú.
FYLKISMENN áttu ekki í teljandi
erfiðleikum þegar þeir tóku á
móti Eyjamönnum í Árbænum í
gærkvöldi. Fylkir sigraði 3:0 og
Eyjamenn verða því að fagna
Þjóðhátíð í sjötta sæti deild-
arinnar en Fylkir er áfram í efsta
sæti deildarinnar og hefur tíu
mörk í plús. Leikurinn var dálít-
ið skrýtinn, eldfjörugur fyrri
hálfleikur en sá síðari með þeim
rólegri og leiðinlegri í sumar.
Átakalítið hjá
Fylki gegn ÍBV
SIGURINN á ÍBV í gærkvöld var
tímamótasigur fyrir Fylkismenn.
Þetta var 50. sigurleikur þeirra í
efstu deild frá því þeir spiluðu fyrst
í deildinni árið 1989. Nú hafa þeir
jafnframt í fyrsta skipti í sögunni
unnið fleiri leiki en þeir hafa tapað
á þessum vettvangi því tapleikir fé-
lagsins í efstu deild eru 49 talsins.
Fylkir féll í þremur fyrstu at-
rennum sínum að því að festa sig í
sessi í efstu deild, árin 1989, 1993
og 1996. Nú eru þeir hinsvegar að
leika sitt fjórða tímabil í röð í deild-
inni, hafa í öll skiptin verið í topp-
baráttu og eru búnir að vinna upp
tapleiki þriggja fyrstu áranna.
Með úrslitunum í gærkvöld hafa
Eyjamenn ekki náð að skora mark
á Fylkisvellinum frá árinu 2000. Þá
tókst þeim að sigra Fylki þar, 3:2,
en síðan hafa Árbæingar sigrað þrí-
vegis, 4:0, 1:0 og nú 3:0. Þeir eiga
hinsvegar enn nokkuð í land með
að jafna metin við Eyjamenn sem
hafa sigrað í sjö af 12 viðureignum
félaganna í efstu deild.
Tímamótasigur hjá Fylki
ÚRSLIT
Fylkir 3:0 ÍBV
Leikskipulag: 3-4-3 Landsbankadeildin,
12. umferð
Fylkisvöllur
Þriðjudaginn 29. júlí 2003
Aðstæður:
Logn, 12 stiga hiti og smá úði
um tíma. Fínn völlur.
Áhorfendur: 1.481
Dómari:
Jóhannes Valgeirsson,
KA, 5
Aðstoðardómarar:
Magnús Þórisson,
Gunnar Gylfason
Skot á mark: 16(10) - 17(6)
Hornspyrnur: 11 - 8
Rangstöður: 0 - 2
Leikskipulag: 4-4-2
Kjartan Sturluson M
Hrafnkell Helgason
Kjartan Antonsson
Þórhallur Dan Jóhannsson
Helgi Valur Daníelsson MM
Ólafur Ingi Skúlason M
Finnur Kolbeinsson M
(Arnar Þór Úlfarsson 69.)
Sverrir Sverrisson M
Sævar Þór Gíslason M
(Theódór Óskarsson 62.)
Haukur Ingi Guðnason M
(Björn Viðar Ásbjörnsson 81.)
Ólafur Páll Snorrason M
Birkir Kristinsson MM
Unnar Hólm Ólafsson M
(Ian Jeffs 46.)
Tom Betts
Tryggvi Bjarnason
Hjalti Jóhannesson
Andri Ólafsson
(Pétur Runólfsson 79.)
Bjarnólfur Lárusson M
Bjarni Geir Viðarsson M
Atli Jóhannsson
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Steingrímur Jóhannesson
(Ingi Sigurðsson 62.)
1:0 (9.) Eftir flotta sendingu Sævars Þórs Gíslasonar upp í hægra hornið sendi
Haukur Ingi Guðnason boltann fyrir markið þar sem Ólafur Páll Snorra-
son var lítt valdaður og sendi boltann í netið. Fallega að verki staðið
hjá Fylki.
2:0 (38.) Þórhallur Dan Jóhannsson sendi glæsilega sendingu inn fyrir vörn ÍBV
á vinstri vængnum, Haukur Ingi Guðnason stakk sér inn fyrir, náði
knettinum rétt utan vinstra markteigshornsins og setti hann við-
stöðulaust efst í hægra markhornið.
3:0 (90.) Helgi Valur Daníelsson komst upp að endamörkum hægra megin,
sendi fyrir markið þar sem Björn Viðar Ásbjörnsson náði skoti en Birk-
ir Kristinsson, sem kom vel út á móti, varði. Boltinn hrökk á ný í Björn
Viðar sem stóð allt í einu aleinn með boltann á markteignum, fyrir inn-
an alla Eyjamenn og skoraði auðveldlega. Síðasta spyrna Fylk-
ismanna í leiknum.
Gul spjöld: Atli Jóhannsson, ÍBV (34.) fyrir brot. Ian Jeffs, ÍBV (66.) fyrir brot. Arnar
Þór Úlfarsson, Fylkir (85.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Engin
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar