Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 24
LISTIR 24 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Mokkakaffi Aðalheiður S. Ey- steinsdóttir opnar sýningu sem er liður í verkinu „40 sýningar á 40 dögum“. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Á TÓNLEIKUM Bláu Kirkjunnar á Seyðisfirði í kvöld verða sönglög Ellýjar og Vilhjálms Vilhjálmssonar flutt af austfirskum tónlistarmönn- um með söngkonuna Aðalheiði Borg- þórsdóttur í fararbroddi. Flytjendur með henni eru Ágúst Ármann Þórláksson hljómborð, Bjarni Freyr Ágústsson söngur og gítar, Einar Bragi Bragason saxó- fónn og flauta, Jón Hilmar Kárason gítar, mandolín og bassi, og Marías B. Kristjánsson trommur. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og er aðgangseyrir kr. 1.000 fyrir full- orðna en frítt fyrir 16 ára og yngri. Bláa kirkjan Lögin þeirra Ellýjar og Vilhjálms SÝNING á ljósmyndum Ragnars Ax- elssonar, ljósmyndara Morgun- blaðsins, stendur um þessar mundir yfir á Photowork-hátíðinni á Val d’Orcia í Toskanahéraði á Ítalíu. Á sýningunni, sem nefnist Ljósbrigði norðursins mikla, eru um 40 ljós- myndir sem Ragnar hefur tekið á Ís- landi, í Færeyjum og á Grænlandi á síðastliðnum 15 árum. Eru þær hluti af verkefni sem hann vinnur að um lífshætti sem eru að hverfa í Norður- Atlantshafinu. Ragnar var heiðursgestur hátíð- arinnar, en sýningin á myndum hans var sett upp í kastala frá 13. öld. Úr honum sér vítt yfir Toskanahérað og er hann vinsæll viðkomustaður ferðamanna. Tvær aðrar ljós- myndasýningar voru settar upp á hátíðinni að þessu sinni, í nálægum kirkjum. Þar eru sýnd verk tveggja ítalskra ljósmyndara, Coletti og Turetta. Annar hefur myndað trúarhátíðir á Ítalíu en hinn fylgdi lögreglumönnum eftir og myndaði mannlífið sem þeir upplifðu. Samhliða sýningunum eru haldin námskeið fyrir starfandi ljósmynd- ara í bænum við kastalann, Castigl- ione d’Orcia, en kennararnir koma úr listaháskóla í Rómaborg. Photo- work-hátíðin er hluti af Val d’Orcia- listahátíðinni sem er kunn á Ítalíu fyrir fjölbreytilegar listrænar uppá- komur. Frá ljósmyndasýningu Ragnars Axelssonar á Photowork-hátíðinni á Val d’Orcia í Toskana-héraði á Ítalíu. Ljósmyndir Ragnars Axelssonar í Toskana Ljósmynd/ Björk Hreiðarsdóttir Kastalaturninn þar sem sýning Ragnars er. Þaðan sér vítt yfir Toskana. ÞAÐ á við um tónlistina eins og ýmislegt annað, að það sem við fáum að heyra og sjá, er aðeins eins konar lokaniðurstaða – afrakstur ómældrar vinnu tónlistarmannanna – vinnu sem við vitum að hefur skipt vikum, mánuðum, árum og áratugum – í flestum tilfellum frá blautu barns- beini. Þarna spilar upplag líka inní dæmið, músíkalskir hæfileikar, agi og einbeiting til að stunda þessa kröfuhörðu vinnu. Enn aðrir þættir sem hafa áhrif á lokaniðurstöðuna eru tilviljanakenndari, tónleikagest- ir, umhverfi, andrúmsloft og þess háttar – jafnvel svolítil heppni. Þegar allir þessir þættir eru í sínu hásuðri, allt gengur eins og best verður á kos- ið, verða óskastundirnar til, og mað- ur óskar þess að tíminn líði ekki al- veg svona hratt. Sjöunda Reykholtshátíðin var haldin um helgina, með þátttöku frábærs tón- listarfólks, flutningi úrvals tónlistar, við einstakar kringumstæður – allt lagðist á eitt og óskastundirnar urðu til. Listrænn stjórnandi Reykholtshá- tíðarinnar er Steinunn Birna Ragn- arsdóttir píanóleikari, og hefur henni tekist að skapa hátíðinni bæði vel heppnað form og innihald. Hátíðin hefst á föstudagskvöldi, með tónleik- um sem helgaðir eru einhverju einu tónskáldi að þessu sinni Franz Schu- bert. Á laugardagseftirmiðdegi eru ljóðatónleikar, kammertónleikar með lengri verkum á laugardags- kvöldi, og á sunnudagseftirmiðdegi eru lokatónleikar með blandaðri dag- skrá. Efnisskráin er ætíð hlaðin önd- vegisverkum tónbókmenntanna, - þar hefur ekki verið um neinar mála- miðlanir að ræða. Oftast hafa nor- rænir gestir komið fram á hátíðinni – að þessu sinni danski tenórsöngvar- inn Jens Kroggaard, en auk hans komu frá Englandi Ásdís Valdimars- dóttir víóluleikari og Brindisi tríóið. Íslensku þátttakendurnir voru svo auk Steinunnar Birnu, Eþos kvart- ettinn og Hulda Björk Garðarsdóttir sópran. Schuberttónleikar á föstudags- kvöldinu hófust með söng, þegar Hulda Björk og Steinunn Birna fluttu tvo ljóðasöngva, An die Musik og Liebesbotschaft, og aríu í ítölsk- um stíl, La pastorella. Flutningur þeirra var mjög stílhreinn – landslag ljóðanna þaulhugsað og einstaklega fallega mótað. Steinunn Birna og Bryndís Halla léku Litaníu Schu- berts listilega vel, og Ásdís Valdi- marsdóttir lék með Steinunni Birnu Arpeggione sónötuna, sem í dag heyrist oftar leikin á selló og píanó. Ég er ekki frá því að víólan fari þessu vinsæla verki betur en sellóið. Að vísu missir það nokkuð af sínum virtúósíska blæ, sem helgast af því að það er erfiðara að spila það á selló en víólu en fyrir vikið öðlast það meiri mýkt og þokka, sem Ásdís kom afar fallega til skila. Flutningur Eþos á Strengjakvartett í a-moll ópus 29 var óhemjufallegur. Auður Hafsteins- dóttir er firnagóður leiðari og með einstakri samstillingu hópsins skap- aðist mikil músíkölsk spenna. And- antekaflinn var sérstaklega vel leik- inn, með sínu þokkafulla upphafsstefi, uppáhaldsmótívi Schu- berts, hnígandi stórri þríund (mí – mímí – do – do), sem Schubert notaði bæði í Impromptuunum, Rósa- mundu, ljóðasöngvum og víðar. Í ländlerdansinum í þriðja þættinum var inngangurinn líka fallega útfærð- ur, hvernig Schubert eins og hikar og stígur varlega til jarðar áður en hann sleppir sér í dansinn. Þetta var frá- bærlega músíkalskt og fallega gert. Ljóðatónleikar Jens Krogsgaard og Steinunnar Birnu voru það sem kom ánægjulegast á óvart á Reyk- holtshátíðinni nú. Á fyrri hluta efnis- skrárinnar voru eingöngu lög eftir Peter Heise, þann danska rómantík- er sem söngvarinn kveðst hafa mest- ar mætur á. Þessi lög eru lítið þekkt hér, því miður, því þær reyndust sannkallaðar perlur og mikið lán að fá að kynnast í frábærum flutningi. Reyndar fór Jens Krogsgaard nokk- uð varlega af stað, en eftir tvö lög var hann kominn í gott form og söng dásamlega fallega, með bjartri lýr- ískri rödd. Lögin úr flokknum „Farlige dr¢mme voru best, sérstak- lega Så lad sangen I salene bruse, og Det blinker með perler, þar sem heyra má að Heise þekkti til Schu- berts, lagið minnir á söng hans Die junge Nonne. Flokkurinn An die ferne Geliebte eftir Beethoven var fremur daufur. Þessi fyrsti rómantíski söngvasveig- ur geldur þess hve þeir sem á eftir komu – eftir Schumann og Schubert hafa tekið honum fram í vinsældum. Hér er Beethoven þó upp á sitt besta, en það hefði þurft að vera meiri kraftur í söngnum. Jens Krogsgaard fann sig hins vegar afar vel í söngv- um Richards Strauss sem hann söng með eindæmum vel. Þau Steinunn Birna sköpuðu margar sterkar stemmningar, til dæmis í Die Nacht, þar sem þau byggðu upp myndarlegt crescendo þar til í undurveiku loka- ljóðinu, í Ruhe, meine Seele, þar sem tært eftirspilið undirstrikaði við- kvæma dýpt ljóðsins, og í Heimliche Aufforderung, þar sem leynilegt stefnumót elskenda var túlkað með erótískum innileik og mýkt. Brindisi tríóið var í aðalhlutverki á laugardagskvöldið, og lék Tríó í G- dúr K 564 eftir Mozart, Tríó í d-moll op. 120 eftir Fauré og Tríó í B-dúr op. 8 eftir Brahms. Hljóðfæraleikar- arnir koma úr röðum fremstu lista- manna Breta og hafa unnið til marg- háttaðra viðurkenninga og verðlauna fyrir leik sinn. Sjaldan hefur gagn- rýnandi verið jafnorðlaus um leik kammerhóps á Íslandi. Hér var ekki efni til að dæma eða segja eitt öðru betra í flutningi hópsins. Svo full- komlega agaður og músíkalskur hljóðfæraleikur getur varla gleymst nokkrum þeim sem á hlýðir – full- komlega hafinn yfir stað og stund. Á endanum er það í mesta lagi spurn- ingin um hvaða tónskáld hugnast hlustandanum umfram annað, svo heilsteyptur og stílhreinn var leikur tríósins í öllum verkunum þrem – tærleikanum hjá Mozart, ljóðræn- unni hjá Fauré og eldinum og ástríð- unum hjá Brahms. Óskandi að þessi hópur kæmi hingað oftar og mikið lán að Ríkisútvarpið skyldi vera á staðnum til að fanga augnablikið. Á lokatónleikum á sunnudag voru fjögur verk. Steinunn Birna, Auður og Bryndís Halla léku tríó í G-dúr eftir Haydn, sem þekktast er fyrir frábæran lokakafla, bráðfjörugt ung- verskt rondó. Píanóið og fiðlan eru í aðalhlutverki hér, og „dobla“ hvort annað eftir atvikum, meðan sellóið sér um bassarödd og hefur ekki mik- ið umleikis þess utan. Fantagóður leikur kvennanna, ekki síst í kraft- miklum lokaþættinum gerði þetta þokkafulla verk sérdeilis áhrifamik- ið. Hulda Björk, Steinunn Birna og Bryndís Halla frumfluttu Höfund aldar, nýtt verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur við texta Snorra Sturlusonar. Verkið var á margan hátt, en þó í bestu merkingu gamal- dags, minnti um margt á elstu verk Jóns Leifs og Sigurðar Þórðarsonar. Þar var þjóðlegur tónn sleginn af miklum krafti. Hildigunni lætur ein- staklega vel að semja fyrir söngrödd- ina og tók Hulda Björk þennan nýja rammaslag með trompi í glæsilegum söng. Aftast í kirkjunni heyrðust orðaskil þó ekki með besta móti, en textablöð auðvelduðu hlustendum að fylgjast með. Þetta var flott og vel samið verk, og spennandi að fylgjast með því hver örlög þess verða. Jacqueline Shave, Ásdís og Mich- ael Sterling léku sjaldheyrt tríó op. 10 eftir Dohnány – þrælerfitt og kraftmikið verk með þjóðlegum und- irtóni. Sérstaka athygli vakti gríðar- lega fallegt sóló Ásdísar í rómönsu- þættinum, angurvært og blítt og annað sóló hennar í tilbrigðaþættin- um. Saman var hópurinn frábært tríó og leikurinn eins fullkominn og hægt er að hugsa sér. Lokaverkið, Píanókvartett op. 60 nr. 3 eftir Brahms er ekki síður erfitt í flutningi, en þar lék Ásdís víóluhlut- verkið með Brindisi tríóinu. Kvart- ettinn er meðal mestu meistaraverka Brahms, og þar takast á eldfimar ást- ríður og undurblíðar tilfinningar í kynngimögnuðum galdri. Leikur hópsins var þéttur og fullkomlega músíkalskur og sellósóló Michaels Stirlings í hæga þættinum hreinn un- aður. Þetta var aldeilis frábært nið- urlag á frábærri tónlistarhelgi í Reykholti. Það hefur alltaf verið einskær ánægja að sækja Reykholtshátíð. Þó fullyrði ég að aldrei hafi tekist jafnvel til og í þetta sinn hvað listrænt gildi snertir. Koma Brindisi-tríósins og Ásdísar Valdimarsdóttur skipti þar sköpum og sömuleiðis einstakt tæki- færi til að heyra Jens Krogsgaard syngja sönglög Heises. Hitt er þó ekki síst gaman, að heyra okkar frá- bæra listafólk í samanburði við þá allrabestu, og finna að íslenskir tón- listarmenn eiga vel heima við þeirra hlið. Andrúmsloftið í Reykholti skipt- ir líka sköpum. Þangað sækir stór hópur fastagesta ár eftir ár, og þar myndast tengsl og kunningsskapur sem vissulega hafa áhrif á þá stemmningu sem þar skapast. Reykholt í listrænu öndvegi TÓNLIST Reykholtshátíð Eþos kvartettinn: Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Greta Guðnadóttir fiðluleik- ari, Guðmundur Kristmundsson víóluleik- ari og Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleik- ari, Brindisi tríóið: Caroline Palmer píanóleikari, Jacqueline Shave fiðluleik- ari og Michael Stirling sellóleikari; Ásdís Valdimarsdóttir víóluleikari, Jens Krogsgaard tenór, Hulda Björk Garð- arsdóttir sópran og Steinunn Birna Ragn- arsdóttir píanóleikari fluttu verk eftir Schubert, Mozart, Haydn, Fauré, Brahms, Dohnany, Heise, Beethoven, Richard Strauss og nýtt verk eftir Hildi- gunni Rúnarsdóttur. FERNIR KAMMER- OG LJÓÐATÓNLEIKAR HELGINA 25.–27. JÚLÍ Bergþóra Jónsdóttir Í GALLERÍI Dvergi opnar Geir- þrúður Finnbogadóttir Hjörvar myndlistarsýningu sem ber heitið „The weight of significance“ á morg- un fimmtudaginn 31. júlí klukkan 18–21. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnudaga klukkan 17–19 til 17. ágúst. Sýningarhúsnæðið er í kjall- ara á Grundarstíg 21, 101 Reykjavík. Sýning í Galleríi Dvergi ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.