Morgunblaðið - 30.07.2003, Síða 16
ERLENT
16 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ferðalag út úr bænum (þ.á.m. sundlaugarferð) í lok hvers námskeiðs.
Ferðin er frá kl. 09.30 - 17.00.
Kennarar eru m.a. Broddi Kristjánsson íþróttakennari,
Írena Óskarsdóttir íþróttafræðingur,
Jónas Huang badmintonþjálfari,
Skúli Sigurðsson badmintonþjálfari,
Árni Þór Hallgrímsson badmintonþjálfari o.fl.
Innanhúss: Badmintonkennsla, borðtennis, minni tennis, körfubolti, bandý
og leikir
Úti (við TBR-hús og í Laugardalnum): Knattspyrna, sund, frjálsar íþróttir
á Laugardalsvelli, t.d. spretthlaup, langstökk, spjótkast, kúluvarp og hástökk.
Leikir, svo sem hafnabolti, ratleikur o.fl.
Farið er í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardal
Upplýsingar og innritun í TBR húsinu Gnoðavogi 1 og í síma 581 22 66.
Sumarskóli TBR 2003
Íþróttaskóli fyrir 6 - 13 ára börn í sumar
Námskeiðin eru virka daga kl. 9-13 eða kl. 13-17.
Fjölbreytt íþróttakennsla á dagskrá með áherslu á badminton.
5. ágúst - 18. ágúst
Námskeiðin eru 10 virka daga í senn sem hér segir:
Verð er kr. 7400. Skipt er í hópa eftir aldri.
Veittur er systkinaafsláttur.
Einnig er veittur afsláttur ef farið er á fleiri
en eitt námskeið.
VÆNTINGAVÍSITALA
bandarísku stofnunarinnar
Conference Board lækkaði
óvænt í júlí en sérfræðingar
höfðu almennt búist við hækkun
vísitölunnar. Svo virðist sem
neytendur telji nú að efnahags-
batinn muni láta á sér standa og
ástandið á vinnumarkaði skáni
ekki í bráð. Segja sérfræðingar
að væntingar neytenda muni
ekki aukast fyrr en atvinnutæki-
færum fer að fjölga að marki.
Elsta
manneskjan
124 ára
TÉTSENSK kona, sem varð
124 ára gömul á þessu ári, er nú
talin vera elsta manneskja
heims en hingað til hefur hin
japanska 115 ára gamla Kamato
Hongo verið talin elst núlifandi
manna. Konan, Zabani Khach-
ukayeva, er frá litlu fjallahéraði
og eignaðist sex börn en fjögur
þeirra dóu ung. Hún á 24 barna-
börn, 38 barnabarnabörn og er
langalangamma sjö barna. Þrátt
fyrir háan aldur sér hún enn um
heimilið, gætir barnaskarans og
biður fimm sinnum á dag.
Alnæmi aftur
að aukast
ALNÆMISTILFELLUM
fjölgaði í Bandaríkjunum í fyrra,
í fyrsta skipti í áratug, sam-
kvæmt nýrri skýrslu heilbrigð-
isyfirvalda. Aukningin er 2,2%.
HIV-smituðum körlum fjölgaði
einnig líkt og síðustu ár en þar
var aukningin 7,1%. Karlar virð-
ast vera sá hópur sem á helst á
hættu að smitast en hjá þeim
hefur HIV-smittilfellum fjölgað
um 17,7% síðan árið 1999.
STUTT
Væntingar
neytenda
minnka
FEÐGAR virða fyrir sér rústir hjól-
hýsisins sem þeir dvöldu í á Colomb-
ier-tjaldstæðinu í bænum Frejus í
suðurhluta Frakklands í gærmorg-
un. Skógareldar eyðilögðu tjald-
stæðið í fyrrakvöld en 1.700 franskir
slökkviliðsmenn börðust enn við eld-
ana í gær. Talið er mögulegt að þeir
hafi verið kveiktir vísvitandi þar
sem eldur braust út á 30 stöðum
samtímis á mánudagskvöld.
Fjórir hafa farist í eldsvoðunum
og þúsundir manna voru í fyrra-
kvöld fluttar á brott frá sumarleyf-
isstöðum á frönsku Rívíerunni auk
þess sem eldarnir hafa valdið mikl-
um skemmdum á skóglendi ofan við
Miðjarðarhafsstrandlengjuna.
Jacques Chirac Frakklands-
forseti, sem staddur er í frönsku
Pólynesíu, sagði í gær að hverjum
þeim sem fyndist sekur um íkveikju
á svæðinu yrði „refsað af sérstakri
hörku“.
Fjórir látnir
í skógar-
eldum í
Frakklandi
AP
PAUL Wolfowitz, aðstoðarvarnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, tilkynnti í gær, að varnarmálaráðu-
neytið hefði hætt við að koma upp á Netinu markaði
þar sem menn geta gert „framvirka samninga“ eða
veðjað um líkurnar fyrir hryðjuverkum, einkum í
Mið-Austurlöndum, til dæmis um það hvort Yasser
Arafat yrði ráðinn af dögum eða Abdullah Jórd-
aníukonungi steypt. Taldi ráðuneytið, að þetta gæti
komið að gagni fyrir leyniþjónustuna en demókrat-
ar, sem gagnrýndu uppátækið harðlega, lýstu því
sem „ótrúlegum og ruddalegum fíflaskap“.
„Hryðjuverkamarkaður“ varnarmálaráðuneytis-
ins hafði fengið heitið FutureMAP og var sniðinn að
markaðinum með framvirka samninga. Sögðu tals-
menn DARPA, stofnunar, sem fjármagnar rann-
sóknastarf varnarmálaráðuneytisins, að þessi
markaður hefði reynst mjög vel við að spá fyrir um
ýmsa hluti, til dæmis kosningaúrslit, og oft farið
miklu nær raunverulegri niðurstöðu en sérfræðing-
ar. FutureMAP virkar þannig, að menn kaupa
framvirkan samning um eitthvert hryðjuverk eða
annan ófarnað og þeir, sem eru svo „heppnir“ að
veðja rétt, græða en hinir tapa.
Demókratarnir Ron Wyden og Byron Dorgan,
öldungadeildarþingmenn fyrir Oregon og Norður-
Dakóta, sögðu á fréttamannafundi í fyrradag, að
það væri yfirgengilegt hneyksli, að ríkið skyldi ætla
að standa að veðmálum um ódæði og hryðjuverk og
hvöttu til, að þessi „ótrúlegi og ruddalegi fíflaskap-
ur“ yrði stöðvaður strax en til stóð að fara að skrá
þátttakendur í hryðjuverkamarkaðnum á föstudag,
1. ágúst, en starfsemin átti að hefjast 1. október.
„Hvernig liði ykkur sem konungi Jórdaníu ef þið
kæmust að því, að bandaríska varnarmálaráðuneyt-
ið væri með veðmál í gangi um það hvort ykkur yrði
steypt af stóli?“ spurði Dorgan og bætti við: „Getið
þið ímyndað ykkur, að annað ríki beiti sér fyrir veð-
málum um það hvort einhver bandarískur ráðamað-
ur verði myrtur eða þessi eða hin stofnunin eyði-
lögð?“
Eins og fyrr segir var FutureMAP ætlað að spá
fyrir um framvinduna í arabaríkjunum og í Íran en
fyrsta grafíkin gaf einnig kost á eldflaugaárás frá
Norður-Kóreu. Hún var hins vegar fjarlægð strax
eftir fréttamannafund þeirra Wydens og Dorgans.
Pentagon hættir við umdeilda áætlun eftir harða gagnrýni
Átti að veðja um lík-
urnar á hryðjuverkum
Washington. AFP.
BRESKIR lögreglumenn, sem rann-
saka morð á nígerískum dreng,
handtóku 21 mann í gær er 200 lög-
reglumenn gerðu áhlaup á níu íbúðir
í Lundúnum. Hinir handteknu eru
grunaðir um mansal þar sem
„hundruð jafnvel þúsundir“ barna,
aðallega frá Afríku, hafa verið flutt
ólöglega til Englands til þrælavinnu.
Talið er að fólkið tengist hugsan-
lega einu óhugnanlegasta morðmáli
síðustu ára í London. Höfuð- og út-
limalaust lík drengs fannst í Tham-
esá nálægt Tower Bridge í septem-
ber 2001 og grunar bresku
lögregluna að drengurinn hafi verið
myrtur í trúarathöfn eftir að hann
var fluttur með ólöglegum hætti frá
borginni Benin í Nígeríu. Ekki er
vitað hver drengurinn er, en lögregla
hefur nefnt hann Adam og málið er
kallað Adam-málið.
BBC segir að 13 þeirra, sem hand-
teknir voru í morgun, séu upprunnir
frá þessu svæði í Nígeríu og að lög-
reglan vilji gera DNA-rannsóknir á
þeim til að kanna hvort þeir séu
skyldir Adam. Var um að ræða 10
karla og 11 konur.
Við húsleitina fundust „áhuga-
verðir munir“, að sögn lögreglunnar,
eins og hauskúpa af dýri sem nagli
hafði verið keyrður gegnum. „Hlutir
af þessu tagi hafa augljóslega trúar-
lega þýðingu,“ sagði stjórnandi
rannsóknarinnar.
Handtökur í níu
íbúðum í London
Lundúnum. AFP.
Gamalt morðmál í Bretlandi
KOFI Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna (SÞ), hefur skip-
að Harri Holkeri sem sér-
legan fulltrúa sinn og
æðsta embættismann SÞ í
Kosovo. Holkeri tekur við
af Þjóðverjanum Michael
Steiner sem gegndi starf-
inu um átján mánaða skeið.
Holkeri er fyrrverandi
forsætisráðherra Finn-
lands. Hann verður fjórði
maðurinn til að gegna
starfi æðsta embættis-
manns SÞ í Kosovo, sem í
raun er landstjóri héraðs-
ins, en áður hafa Frakkinn
Bernard Kouchner og
Daninn Hans Hækkerup
gegnt starfinu, auk Stein-
ers.
Holkeri tekur við í Kosovo
Sameinuðu þjóðunum. AFP.
Harri Holkeri