Morgunblaðið - 30.07.2003, Síða 33

Morgunblaðið - 30.07.2003, Síða 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 33 Hrefna er dáin. Hún var ein af tengda- mæðrum mínum, ég fékk þrjár þegar ég giftist Edda. Hann hafði alist upp hjá ömmu sinni og móðursystrum frá barnsaldri fram á unglingsár er hann fluttist aftur til foreldra sinna. Þær héldu þó áfram systurnar Hrefna og Sigga að ala hann upp, sáu um að hann gengi almennilega til fara og væri hreinn um hárið, klipptur og hefði vel burstaða skó. Og peninga fékk hann fyrir klippingu þegar þeim blöskraði háralengdin. Um hverja helgi var farið í mat til Siggu og HREFNA NÍELSDÓTTIR ✝ Hrefna Níels-dóttir fæddist á Balaskarði í Laxár- dal í Austur-Húna- vatnssýslu 21. janúar 1924. Hún lést á Landakoti 6. júlí síð- astliðinn og fór bál- för hennar fram 21. júlí, í kyrrþey að hennar ósk. Hrefnu og þvílíkur matur. Elsti sonur okkar Sigurður Hrafn var skírður í höfuðið á þeim systrum og hann lærði fljótt að meta matinn hjá þeim, það er til upptaka af hon- um 3 ára þar sem hann er að biðja okkur um að fara í mat til Siggu og Hrefnu því þær búi til svo góðan mat. Það er erfitt að skilja þær að, systurn- ar, því alltaf voru þær saman, gerðu flest saman, stelpurnar voru þær kall- aðar. Þegar við fluttum í íbúðina okkar í Breiðholtinu þá buðust þær til að mála gluggana, það gerðu þær af natni, það var þeirra verkefni, fannst þeim. Þær kenndu mér að tína svartsfuglsegg. Þær fóru í berjamó og komu heim með fullar fötur þaðan sem enginn annar sá ber. Kóngulóin var þeim vinveitt. Hrefna fann myndefni allstaðar og eru margar fallegar myndir til af berjalyngi, mosa, steinum og blóm- um og öllum öðrum nema henni sjálfri. Strákarnir mínir voru svo hamingjusamir á myndunum henn- ar Hrefnu, mér tókst aldrei að fá svona fallegan svip á þá á mínum myndum. Það var eitthvað með hana Hrefnu sem gerði allt svo fal- legt nálægt henni. Við bjuggum í Svíþjóð í 9 ár og komu þær systur nokkrum sinnum í heimsókn, seinasta heimsóknin þangað var um páska til að fara á skíði með okkur, þar sem þær flugu á undan mér á gönguskíðunum sín- um, Hrefna í essinu sínu með myndavélina um hálsinn. Það hefur ekki verið slæmt að eiga þrjár tengdamæður og nú er ein af þeim farin. Ég held hún hafi verið fegin, henni var farið að leið- ast þetta, var búin að vera svo lengi kvalin, eins og fangi í sínum eigin líkama. Hrefna var lífsglöð og lif- andi kona sem hafði unun af úti- veru, ferðalögum, listum og öllu því sem fagurt var. Fannst svo margt spennandi og skemmtilegt, líkam- inn var bara ekki alltaf sammála. Hún hafði andlegan styrk sem var aðdáunarverður og bar ég mikla virðingu fyrir henni, hún var frá- bær tengdamamma. Guðrún H. Bjarnadóttir. Í dag kveðjum við okkar gamla félaga úr sviffluginu, Gísla Sig- urðsson flugvélasmið. Gísli var að mörgu leyti mjög sérstæður per- sónuleiki og í reynd þjóðsagnaper- sóna í íslensku flugi. Hann var upp- runninn úr íslensku bændasamfélagi og átti rammar taugar til heimahag- anna í Borgarfirði. Á hinn bóginn var hann heimsmaður, sem var vel að sér í erlendum tungumálum og á heima- velli á erlendri grund. Hann var um áratuga skeið einn af burðarásum í starfsemi Svifflugfélags Íslands á Sandskeiði og gegndi því mikilvæga hlutverki að halda við og stundum endursmíða flugflota Svifflugfélags Íslands. Gísli er okkur mjög minnisstæður frá okkar fyrstu árum á Sandskeiði á sjötta áratugnum. Þótt hann ætti til að vera nokkuð hrjúfur í tilsvörum komumst við fljótt að því að mað- urinn hafði ánægju af því að upp- fræða okkur unglingana og miðla okkur úr þeim hafsjó af þekkingu, sem hann hafði á byggingu sviffluga og eiginleikum þeirra. Gísli var að mestu sjálfmenntaður. Hann fékk ungur áhuga á öllu, sem laut að flugi, en hans fyrstu kynni af því munu hafa verið í Flugmódelfélaginu á ár- unum fyrir síðari heimsstyrjöldina. Þaðan lá leiðin í Svifflugfélagið og stuttu síðar var hann orðinn aðalspil- maður á Sandskeiði, sem átti eftir að verða starfsvettvangur hans um nær fjögurra áratuga skeið. Eftir að heimsstyrjöldinni lauk hófst mikil uppbygging svifflug- íþróttarinnar á Íslandi. Keyptar voru tvær svifflugur af fullkomnustu gerð í hlutum frá Svíþjóð og kom sænskur svifflugusmiður til Íslands til að stjórna smíði þeirra. Gísli varð hans hægri hönd og var fljótur að ná tökum á handverkinu. Hann var einnig fljótur að ná tökum á sænskri tungu þótt formleg menntun í tungu- málum væri ekki mikil. En Gísli gerði meira en að læra handverkið. Hann aflaði sér og las bækur um svifflugusmíði og flugeðlisfræði og varð því fljótt mjög vel að sér um allt GÍSLI SIGURÐSSON ✝ Gísli Sigurðssonfæddist í Hrauns- ási í Hálsasveit í Borgarfirði 26. jan- úar 1919. Hann lést á Elli- og dvalarheim- ilinu Grund 19. júlí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fossvogskirkju 29. júlí. Jarðsett verður frá Stóra-Ási í dag klukkan 16. sem laut að flugi. Í þessu skyni lærði hann af eigin rammleik þýsku, enda átti svif- flugið uppruna sinn í Þýskalandi á árunum eftir fyrri heimsstyrj- öldina, þegar Þjóðverj- ar máttu ekki framleiða eða eiga hreyfilknúnar flugvélar. Hér kom einnig til að samband Svifflugfélags Íslands við Þýskaland var jafn- an náið á þeim tímum sem Helgi Filippusson var í forystu fyrir ís- lenskum svifflugmönnum. Þótt Gísli færi ekki oft til annarra landa á mælikvarða nútímans dvaldi hann um nokkurn tíma í Svíþjóð og Þýskalandi til að kynna sér betur svifflugusmíði. Þá var hann nokkrum sinnum liðsmaður og fararstjóri þeg- ar íslenskir svifflugmenn tóku þátt í erlendum svifflugmótum. Eftir- minnileg er ferð á heimsmeistara- mótið í Þýskalandi árið 1960, þegar Þórhallur Filippusson var þátttak- andi fyrir hönd Íslands. Í þessari ferð lék Gísli á als oddi, enda gafst honum tækifæri til að kynna sér all- ar helstu nýjungar í svifflugtækninni og blanda geði við helstu svifflug- frömuði heimsins. Þetta tækifæri nýtti hann til hins ýtrasta, enda átti hann ekki í neinum erfiðleikum með að tjá sig, hvort heldur var á þýsku, ensku eða norðurlandamálum. En hann var einnig góður ferðafélagi. Á kvöldin sagði hann okkur gjarnan skemmtisögur af mönnum og mál- efnum að íslenskum sveitasið og naut hans mikla kímnigáfa sín vel á þessum stundum. Sögurnar snerust flestar um flug en hann var einnig vel að sér um mörg önnur málefni og hafði þekkingu og skoðanir á gangi heimsmála ekki síður en þjóðmála. Ekki sakaði að Gísli bjó yfir stál- minni, sem hann naut til síðasta dags. Gísli var einhleypur, en átti ara- grúa góðra vina og kunningja innan flugsins, sem hann hafði eignast á langri starfsævi. Hann lét sig aldrei vanta þar sem flugáhugamenn eða gamlir starfsfélagar gerðu sér glað- an dag, hvort sem var á árshátíð Flugmálafélagsins eða starfsmanna- samkomum hjá Flugmálastjórn. Síð- ustu árin dvaldi Gísli í góðu yfirlæti á öldrunarheimilinu Grund, en hélt þó áfram að vera virkur í smíði tréflug- véla til æviloka. Hann tók t.a.m. mik- inn þátt í starfi Flugsögufélagsins. Hans aðalverkefni var að endur- byggja Olympíuna, sviffluguna, sem hann hafði byggt úr hlutum árið 1946 og hafði verið förunautur hans með hléum í tæp sextíu ár. Áður hafði hann lokið endurbyggingu Klemm- flugvélarinnar, sem þýski svifflug- leiðangurinn kom með til landsins árið 1938, þegar hann var starfsmað- ur Flugmálastjórnar um átta ára skeið á níunda áratugnum. Auk þess að halda sviffluguflota Svifflug- félagsins við um áratuga skeið og leggja með því drjúgan skerf til upp- byggingar og framgangs svifflugs á Íslandi lagði Gísli því gjörva hönd á margt sem verður til þess að varð- veita íslenska flugsögu um ókomna framtíð. Á þessum tímamótum viljum við félagarnir þakka honum langa og góða samferð við iðkun svifflugs, bæði hérlendis og erlendis, og mikið og gott framlag til grasrótar flugsins á Íslandi. Með honum hverfur á braut mikill áhugamaður um ís- lenskt flug og góður drengur. Þorgeir Pálsson, Sverrir Þóroddsson og Þórhallur Filippusson. Nú er látinn vinur okkar Gísli Sig- urðsson flugvélasmiður. Það eru á milli 40 og 50 ár síðan við sáumst fyrst. Árið 1953 gekk ég í Svifflug- félag Íslands og kynntist Gísla þá fljótlega, hann varð í raun hluti af tengdafjölskyldu minni þar sem bræður konunnar minnar voru allir á bólakafi í sviffluginu og Gísli, ásamt fleirri svifflugáhugamönnum, var tíður gestur á heimili tengdaforeldra minna. Segja má að vagga svifflugs- ins hafi að hluta til staðið í Selásnum þar sem þau bjuggu. Þegar fram liðu stundir fór ég að taka þátt í málum félagsins, varð þá samstarf okkar Gísla nánara og unn- um við fjölda ára saman í stjórn fé- lagsins. Gísli dvaldi mörg sumur á Sandskeiði, sem starfsmaður félags- ins, og sá um viðhald vélanna og var einnig langtímum saman á dráttar- spilinu og dró okkur hina á loft, segja má að hans starf hafi verið að stuðla að því að félagarnir gætu flogið. Gísli var víðlesinn og fróður um ótal hluti aðra en þá er sneru að flugi, hann var mikill tungumálamaður og til marks um það dundaði hann sér á kvöldin, ef ekki var flugveður, við að ráða krossgátur á ýmsum tungumálum og hætti ekki fyrr en allt var ráðið. Ef farið var í heimsókn á Sandskeiðið á slíkum kvöldum átti hann til að hella á könnuna og baka pönnukökur. Gísli var ekki allra og hafði sína skoðun á hlutunum en þrátt fyrir að við værum ekki alltaf sammála skyggði aldrei á vináttuna. Nú er genginn góður drengur og með honum horfin ýmis vitneskja um frumkvöðla svifflugsins á Íslandi. Við hjónin sendum aðstandendum Gísla okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Þóra og Þórmundur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, AUÐUR JÓNSDÓTTIR COLOT, Alexandríu, Virginíu, USA, lést laugardaginn 26. júlí sl. Minningarathöfn í Bandaríkjunum mun fara fram 31. júlí nk. Sérstök athöfn mun fara fram á Íslandi og verður hún auglýst síðar. Hildur Vigmo Colot, Karen Hansen, Gerður Vigmo Colot, Guðmundur Ásgeirsson, Þóra Sesselja Rose Colot, Freyja Valerie Lynn, Peter Adrien Brooks Colot, Courtney Boissonault, Freyr Guðmundsson, Úlfhildur Guðmundsdóttir, Manuel Fernandez Ortiz, Finnbogi Darri Guðmundsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐLAUG STEFÁNSDÓTTIR frá Siglufirði, verður jarðsungin frá Útskálakirkju, Garði, föstudaginn 1. ágúst Jón Kr. Jónsson, Herdís Ellertsdóttir, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Guðmundur Frímannsson, Hjalti Guðmundsson, Erla María Andrésdóttir, Kolbrún Guðmundsdóttir, Gunnar Hersir, Kristín Erla Guðmundsdóttir, Sigurður Ingvarsson, Svandís Guðmundsdóttir, Helgi Gamalíelsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA ÓLAFÍA JAKOBSDÓTTIR, áður Norðurbraut 25, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 31. júlí kl. 13.30. Kristín Engiljónsdóttir, Lonny Duchien, Jón Rafn Bjarnason, Anna Kristín Bjarnadóttir, Guðbjörn Sigurþórsson, Hörður Bjarnason, Guðbjörg Ása Gylfadóttir, Thelma Rós Harðardóttir, Fannar Smári Harðarson, Engiljón Aron Guðbjörnsson. Frændi okkar og kær vinur okkar, HALLDÓR HANSEN fyrrv. yfirlæknir, Laufásvegi 24, sem lést á líknardeild Landspítalans Landakoti mánudaginn 21. júlí, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 31. júlí kl. 13.30. Honum hefði þótt vænt um að þeir, sem vildu minnast hans, létu Barna- spítalasjóð kvenfélagsins Hringsins njóta þess. Agla Marta Marteinsdóttir, Ragnheiður M. Ásgrímsdóttir og aðrir ættingjar og vinir hans. Elskulegur eignmaður minn og faðir okkar, JÓN ÓLAFSSON, Árskógum 8, verður jarðsunginn frá Garðakirkju, Álftanesi, föstudaginn 1. ágúst kl. 10.30. Ingigerður Runólfsdóttir, Sirrý Laufdal Jónsdóttir, Ólafur Laufdal Jónsson, Trausti Laufdal Jónsson, Hafdís Laufdal Jónsdóttir, Erling Laufdal Jónsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.