Morgunblaðið - 30.07.2003, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 39
EINN af öflugustu fé-
lagsmálamönnum sem
íslenska skákhreyfingin
hefur átt, Þráinn Guð-
mundsson, fyrrverandi
skólastjóri, varð sjötug-
ur 24. apríl sl. Ólíklegt er
að nokkur finnist sem
tekið hefur þátt í skák-
mótum eða starfi skák-
hreyfingarinnar síðustu
áratugi sem ekki þekkir
til Þráins Guðmunds-
sonar. Í nær 40 ár hefur
hann setið í stjórn Skák-
sambands Íslands eða á
annan hátt gegnt lykil-
hlutverki í framvindu skákmála í
landinu. Nú um stundir er hann rit-
stjóri tímaritsins SKÁK, sem SÍ hef-
ur gefið út eftir fráfall Jóhanns Þóris
Jónssonar. Mér er til efs að aðrar
áhugamannahreyfingar hafi átt svo
ötulan og traustan fylgismann sem
skákhreyfingin hefur átt í Þráni Guð-
mundssyni.
Þráinn fæddist á Siglufirði 24. apríl
1933. Faðir hans var Guðmundur
Þorleifsson, fyrrum bóndi á Syðsthóli
í Sléttuhlíð í Skagafirði en fluttist til
Siglufjarðar á síldarárunum. Móðir
Þráins var Ingibjörg Jónsdóttir frá
Sauðaneskoti á Upsaströnd við Dal-
vík. Þráinn kynntist ungur síldaræv-
intýrinu á Siglufirði og stúdentspróf
tók hann frá MA 1953. Hann tók
kennarapróf frá Kennaraskólanum
og nam síðan íslensk fræði við Há-
skóla Íslands. Hann var kennari við
Miðbæjarskólann en varð síðar yfir-
kennari og svo skólastjóri við Lauga-
lækjarskóla um 30 ára skeið eða 1963
til 1993.
Þráinn hefur verið gæfumaður í
einkalífi sínu. Kona Þráins er Mar-
grét Guðmundsdóttir
en foreldrar hennar
voru Guðmundur
Helgason, bakari í
Reykjavík, og kona
hans, Þuríður Þor-
steinsdóttir. Hafa þau
hjón verið samhent og
er ánægjulegt að koma
á heimili þeirra. Þau
Þráinn og Margrét
eiga fimm börn, Ingi-
björgu sem búsett er í
Bretlandi, Guðmund
Ómar aðstoðaryfirlög-
regluþjón, Huldu leik-
skólakennara, Mar-
gréti sem er kennari í Árósum og
Lúðvík sem er viðskiptafræðingur.
Þráinn var skólastjóri Námsflokka
Reykjavíkur um tíma og tímabundið
fræðslustjóri í Reykjavík. Starf Þrá-
ins að kennslu og fræðslumálum er
fjölbreytt og margþætt og hygg ég að
hann geti ánægður litið yfir starfs-
feril sinn á þessum tímamótum, yfir
farsælt starf og árangursríkt. Þó er
ótalið það sem ég gæti trúað að Þráni
þætti vænst um á löngum ferli í starfi.
Hann hafði með stofnun Kvöldskól-
ans í Reykjavík forystu um að komið
var á fót hér á landi fullorðinsfræðslu
sem með prófum veitti réttindi til
framhaldsskólanáms. Þótt við Náms-
flokka Reykjavíkur hafi áður verið
komið á fót fullorðinsfræðslu var hér
stigið nýtt skref í þróun fullorðins-
fræðslu á okkar landi. Síðustu ár hef-
ur Þráinn starfað í hlutastarfi hjá
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur en hef-
ur nýlega látið af störfum og fæst nú
við bókband í frístundum ásamt fjöl-
mörgum áhugamálum.
Þau ár sem ég starfaði að málefn-
um skákhreyfingarinnar vorum við
Þráinn nánir samstarfsmenn. Þegar
ég horfi aftur til þeirra ára verður
mér starsýnast á hversu traustur
Þráinn er. Það sem hann tók að sér
var í lagi, af því þurfti ekki að hafa
áhyggjur. Þar fór saman samvisku-
semi hans og það hversu úrræðagóð-
ur hann var og fylginn sér að leiða
mál til lykta. Þráinn er virtur innan
skákhreyfingarinnar vegna mann-
kosta sinna og á löngum ferli hans
hafa hlaðist á hann ýmis trúnaðar-
störf. Hann var forseti Skáksam-
bandsins 1986 til 1989. Mörg ár var
hann fulltrúi Íslands á þingum Al-
þjóðaskáksambandsins FIDE og sat
fundi þess en var þá oft einnig far-
arstjóri íslensku Ólympíuskáksveit-
arinnar. Þráinn var útnefndur af
FIDE alþjóðlegur skákdómari árið
1990 en þá höfðu að mig minnir að-
eins þrír Íslendingar náð því marki. Í
mörg ár vann Þráinn ásamt þeim
Ólafi H. Ólafssyni, Þorsteini Þor-
steinssyni og Kristni Þorsteinssyni
að þeim kunnu unglingaskákmótum
sem bandaríski skákáhugamaðurinn
Collins var frumkvöðull að. Þá fór
fram keppni íslenskra unglinga við
óopinbert unglingalandslið Banda-
ríkjanna og var mikill viðburður og
lyftistöng fyrir marga íslenska ung-
linga á fyrstu árum þeirra við skák-
borðið. Teflt var ýmist hér á landi eða
í Bandaríkjunum. Þetta unglinga-
starf var íslenskri skákhreyfingu
mikilvægt.
Mest hefur þó líklega reynt á Þráin
hjá skákhreyfingunni þegar hann
vann að heimsmeistaraeinvíginu í
skák sem hér fór fram árið 1972. Þrá-
inn var þá einn þeirra manna sem
höfðu tekið að sér að sitja í stjórn
Skáksambands Íslands en stóðu
skyndilega og óvænt með einn
stærsta skákviðburð sögunnar í fang-
inu með illleysanlegustu ágreinings-
efnum sem fram hafa komið á skák-
mótum. Nú eru horfnir af
sjónarsviðinu tveir menn sem tóku
þátt í þeim darraðardansi, þeir Ás-
geir Friðjónsson og Guðlaugur Guð-
mundsson. Eftir standa úr fremstu
víglínu Þráinn Guðmundsson, Hilmar
Viggósson og Guðjón Stefánsson auk
margra sem stóðu aftan sjálfrar eld-
línunnar. Ég hef áður sagt að það hafi
verið gæfa íslensku skákhreyfingar-
innar að á þessum örlagatímum höfðu
valist til starfa þessir menn sem voru
hæfir til þess að axla ábyrgð, áraun
og eril þessara mánaða. Þar var þátt-
ur Þráins Guðmundssonar stór. Í
huga minn koma margir erfiðir fund-
ir og flóknar ákvarðanatökur þar sem
tillagna hans og ráða naut við. Þeir
Þráinn og Guðlaugur Guðmundsson
áttu stóran þátt í því að einvígið
heppnaðist fjárhagslega og þegar
svitinn lak af enni þeirra í erfiðri
glímu við þær þrautir held ég að hafi
myndast grunnur að vináttu þessara
tveggja manna sem stóð traust með-
an Guðlaugur lifði.
Þráinn ritaði sögu Skáksambands
Íslands í tveim bindum. Er það mál
manna að þar hafi vel tekist til enda
fáir ef nokkrir kunnugri sögu skák-
hreyfingarinnar en hann. Ég er upp
með mér af því að hafa átt þátt í því að
hann var fenginn til þessara ritstarfa
enda hreyfingunni ómetanlegt að
eiga sögu sína skráða. Í því efni mun
framtíðin þakka honum.
Þráinn Guðmundsson hefur verið
útnefndur heiðursfélagi bæði Skák-
sambands Íslands og Taflfélags
Reykjavíkur og er mér ókunnugt um
að annar Íslendingur hafi náð því at-
hyglisverða marki. Hann er snarpur
skákmaður og teflir reglulega í hin-
um svonefnda VISA-skákklúbbi og
reynist þar hverjum sem er skeinu-
hættur.
Ólíklegt þykir mér að íslensk skák-
hreyfing eigi eftir að eignast marga
jafnoka Þráins Guðmundssonar í fé-
lagsmálum. Hygg ég að nafn hans og
nærfellt 40 ára starf muni lengi
gnæfa yfir þegar rætt er um fé-
lagsmál innan hreyfingarinnar.
Með þessari síðbúnu afmælis-
kveðju flyt ég þeim hjónum, Þráni og
Margréti, og fjölskyldu þeirra allri
innilegustu árnaðaróskir með vonum
um árangursrík ár fram undan.
Guðm. G. Þórarinsson.
ÞRÁINN
GUÐMUNDSSON
AFMÆLI
Steypusögun
Vegg- og gólfsögun
Múrbrot
Vikursögun
Malbikssögun
Kjarnaborun
Loftræsi- og lagnagöt
Hreinlæti og snyrtimennska
í umgengni
BT-sögun
Sími 567 7544
Gsm 892 7544
Útsala
Útsala
Útsala
COS
Undirfataverslun • Glæsibæ • S: 588 5575