Morgunblaðið - 30.07.2003, Qupperneq 42
ÍÞRÓTTIR
42 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
HERMANN Hreiðarsson, lands-
liðsmiðherji í knattspyrnu, og fé-
lagar í enska úrvalsdeildarliðinu
Charlton Athletic unnu stórsigur á
3. deildarliðinu Leyton Orient á
laugardaginn, 5:0. Hermann spilaði
allan leikinn en Shaun Bartlett
gerði þrjú markanna.
STUÐNINGSMÖNNUM Charlton
létti nokkuð við þessi úrslit því
Hermann og félagar voru ekki
sannfærandi í tveimur fyrstu æf-
ingaleikjum sínum. Þá gerði Charlt-
on jafntefli, 1:1, bæði við utan-
deildaliðið Welling og 2. deildarliðið
Colchester. Charlton var aftur á
ferðinni á sunnudag og vann þá 2.
deildarlið Peterborough, 2:1.
ATLETICO Madrid hefur fengið
Matias Lequi frá River Plate. Leq-
ui er varnarmaður og Argentínu-
maður en hann mun vera í láni hjá
Atletico á næstu leiktíð.
LEE Bowyer, leikmaður New-
castle, fékk kaldar kveðjur er hann
gekk af leikvelli eftir viðureign við
Chelsea um Malasíubikarinn í
Kuala Lumpur. 47 þús. áhorfendur
bauluðu á Bowyer, sem var í sviðs-
ljósinu fyrir tveimur árum, þegar
hann var fundinn sekur um að
ganga í skrokk á innflytjanda frá
Asíu í Leeds. Bowyer skoraði í
vítaspyrnukeppni, sem Chelsea
vann, 5:4.
PAUL Robinson, markvörður
enska knattspyrnufélagins Leeds
United, hefur greint frá því að
hann ætli að vera áfram hjá félag-
inu þó að forráðamenn liðsins hafi
reynt að selja hann Aston Villa fyrr
í sumar. Robinson er 23 ára gamall
enskur landsliðsmaður en hann hef-
ur verið hjá Leeds síðan hann var
14 ára.
CHRISTIAN Ziege, leikmaður
Tottenham, mun jafnvel aldrei
leika knattspyrnu framar. Ziege
lenti í alvarlegum meiðslum á síð-
asta tímabili og hefur ekki enn náð
sér eftir meiðslin. Hann hefur verið
að æfa með Tottenham á undirbún-
ingstímabilinu en læknir liðsins hef-
ur sagt honum að það geti farið svo
að hann geti ekki leikið framar.
MASSIMO Maccarone, ítalski
sóknarmaðurinn hjá Middles-
brough, meiddist illa á ökkla í æf-
ingaleik gegn Hull City um helgina
og missir líklega af fyrstu leikjum
liðsins í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu.
BLACKBURN Rovers hefur
gengið frá kaupunum á írska lands-
liðsmanninum Steven Reid frá 1.
deildarliðinu Millwall. Blackburn
greiddi Millwall þrjár milljónir
punda fyrir kappann. Miklar breyt-
ingar hafa verið á leikmannahópi
Blackburn í sumar. Auk Reids hafa
þeir Brett Emerton og Lorenzo
Amoruso gengið til liðs við Black-
burn en í staðinn hafa þeir Damien
Duff og David Dunn verið seldir
annað.
STEINAR Þór Guðgeirsson, þjálf-
ari knattspyrnuliðs Fram, segir
að að öllum líkindum verði ekki
fengnir nýir leikmenn í hóp sinn
fyrir lokabaráttuna, sem er að
hefjast. Framarar sitja nú í botn-
sæti efstu deildar, sex stigum á
eftir þriðja neðsta liði. Stuttur
tími er fyrir þau lið sem sækjast
eftir liðsstyrk fyrir lokaátökin,
því lokað er fyrir félagaskipti á
miðnætti annað kvöld.
Í samtali við Morgunblaðið
sagði Steinar að hann hygðist
treysta á þann hóp sem hann hef-
ur. „Það hafa verið töluverð
meiðsli hjá mínum mönnum, en
þeir eru nokkrir að koma til.
Baldur Bjarnason er búinn að ná
sér og þá vona ég að Ágúst
Gylfason geti leikið með gegn
Grindvíkingum. Aftur á móti er
óvíst með Eggert Stefánsson.
Þorbjörn Atli Sveinsson verður
lengur frá – er enn að jafna sig
eftir heilahimnubólgu,“ sagði
Steinar.
Hans menn mæta Grindvík-
ingum á Laugardalsvellinum ann-
að kvöld. Frömurum hefur geng-
ið afar erfiðlega gegn
Grindvíkingum undanfarin ár og
þeir hafa aðeins einu sinni sigrað
þá á heimavelli í efstu deild.
Steinar Þór treystir
á sína menn
spyrnu þegar Jóhann virtist felld-
ur í vítateig Keflvíkinga en mönn-
um til mikillar furðu áminnti hann
Jóhann fyrir leikaraskap.
Það var síðan nokkuð gegn
gangi leiksins þegar Keflvíkingar
komust yfir á lokamínútu fyrri
hálfleiks. Þórsurum mistókst að
hreinsa úr vítateignum og Þórar-
inn Kristjánsson refsaði þeim
Leikurinn fór rólega af stað enreyndist hin ágætasta
skemmtun er yfir lauk. Bæði liðin
léku vel og sýndu
oft skínandi tilþrif.
Fyrsta góða mark-
tækifærið kom á 23.
mínútu er Atli Már
Rúnarsson í marki Þórs varði
glæsilega skot frá Keflvíkingnum
Hólmari Erni Rúnarssyni og
skömmu síðar átti Jóhann Þór-
hallsson gott skot yfir mark Kefl-
víkinga. Hlynur Birgisson skeiðaði
upp allan völl á 32. mínútu og lét
vaða að marki en Ómar markvörð-
ur bjargaði í horn. Á 35. mínútu
hefði verið auðvelt fyrir Egil Má
Markússon dómara að dæma víta-
harðlega og skoraði af stuttu færi.
Seinni hálfleikur var enn fjör-
legri og byrjaði með því að Jóhann
Þórhallsson skaut í þverslá Kefla-
víkurmarksins eftir góða rispu
Hlyns Birgissonar. Þórður Hall-
dórsson jafnaði síðan metin fyrir
Þór á 63. mínútu, 1:1, en Keflvík-
ingar sóttu aftur í sig veðrið. Þór-
arinn Kristjánsson fékk sendingu
inn í teig á 71. mínútu og athafnaði
sig með glæsibrag áður en hann
þrykkti knettinum upp í þaknetið,
1:2. Annað mark hans í leiknum.
Keflvíkingar voru áfram sókn-
djarfir en Þórsarar jöfnuðu á 80.
mínútu. Orri Freyr Hjaltalín skaut
í stöng úr aukaspyrnu en Pétur
Kristjánsson fylgdi vel á eftir og
skoraði, 2:2. Heimamenn sóttu í
sig veðrið á lokamínútunum en
urðu að sætta sig við jafntefli.
„Jú, auðvitað hefðu þrjú stig
komið sér vel. Við spiluðum mjög
vel úti á vellinum og hefðum ef-
laust skapað okkur enn fleiri færi
gegn öðrum liðum en Keflvíking-
um en þeir eru mjög vel skipulagð-
ir. Mér fannst við heldur sterkari í
góðum leik og ef við höldum þess-
ari spilamennsku áfram og bætum
aðeins í tel ég að liðið eigi erindi í
efstu deild,“ sagði Jónas Baldurs-
son, þjálfari Þórs, við Morgunblað-
ið eftir leikinn.
Bæði liðin léku fína knatt-
spyrnu. Hlynur Birgisson var afar
sterkur í liði Þórs og Pétur Kristj-
ánsson, Þórður Halldórsson og Jó-
hann Þórhallsson gerðu marga
laglega hluti. Magnús S. Þor-
steinsson og Þórarinn Kristjáns-
son ollu oft usla í vörn Þórs og
þeir Zoran Daníel Ljubicic og
Haraldur F. Guðmundsson voru
traustir.
Maður leiksins: Þórarinn Kristj-
ánsson, ÍBK
Morgunblaðið/Kristján
Keflvíkingar fagna fyrra marki Þórarins Kristjánssonar á
Akureyrarvelli í gærkvöld.
KEFLVÍKINGAR færðust feti
nær sæti í efstu deild þegar þeir
náðu jafntefli við Þór á Akureyri
í gær. Reyndar eru enn sex um-
ferðir eftir en fátt virðist geta
stöðvað Keflvíkinga. Það eru
helst Þórsarar sem hafa staðið í
vegi fyrir þeim en Þórsarar
hefðu þurft að endurtaka leik-
inn frá því í Keflavík fyrr í sumar
og sigra til að festa sig í sessi í
öðru sæti deildarinnar. Úrslit
leiksins urðu 2:2. Fimm stig
skilja liðin að en nú geta Vík-
ingar laumað sér stigi uppfyrir
Þórsara og í annað sætið, takist
þeim að sigra Leiftur/Dalvík
annað kvöld.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
Keflvíkingar náðu
mikilvægu stigi
ELVAR Guðmundsson, hand-
knattleiksmarkvörður er
genginn til liðs við 1. deild-
arlið FH en frá því var
greint á heimasíðu félagsins
í gær. Elvar hefur undan-
farin fjögur ár leikið með
Ajax/Farum í Danmörku en
í vor spilaði hann nokkra
leiki með Barakaldo í
spænsku 1. deildinni. Hann
hefur áður leikið eitt tímabil
með FH-ingum, 1998-99, en
var til þess tíma í Breiða-
bliki. Elvar var kallaður til
æfinga með íslenska lands-
liðinu síðasta vetur þegar
það bjó sig undir heims-
meistarakeppnina í
Portúgal.
Elvar í
mark
FH-inga
Morgunblaðið/Kristján
Þórarinn Kristjánsson markaskorari Keflvíkinga sækir að Hlyni Birgissyni fyrirliða Þórs.