Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B i. 16.
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12ára
with english subtitles
Sýnd kl. 6. Ensk. texti
Fyndnasta Woody Allen myndin
til þessa.
Sjáið hvernig meistarinn
leikstýrir stórmynd frá
Hollywood blindandi.
GH
KVIKMYNDIR.COM
"Besta hasarmynd
sumarsins það
sem af er"
t r
r i
f r"
„Líklegast best heppnasta
ofurhetjumynd allra tíma!
Sá græni rokkar.“
B.Ö.S. Fréttablaðið
í l
j ll í !
i .
. . . l i
KVIKMYNDIR.IS
SG. DV
Sýnd kl. 5.50 og 10.. B i. 12
X-IÐ 97.7
DV
HL MBL
SG DVRoger Ebert
Miðaverð kr. 800.
Sýnd kl. 8. Bi.14.
Sýnd kl. 6.10 og 10.10. B i. 12
JOHN TRAVOLTA OG SAMUEL JACKSON I FYRSTA
SINN SAMAN SIÐAN PULP FICTION
Í ÞESSARI MÖGNUÐU SPENNUMYND.
FRUMSÝNING
ERIC
BANA
JENNIFER
CONNELLY
NICK
NOLTE
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8, 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10.10.
SG. DV
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
SG. DVÓ.H.T Rás2
Í sumar skaltu
sleppa útilegunni.
Frábær spennuhrollur sem sýnir að það getur
reynst dýrkeypt að taka ranga beygju.
FRUMSÝNING
Stranglega bönnuð börnun innan 16 ára.
Á SUNNUDAGINN birtist veglegt
viðtal við John Travolta vegna spennu-
myndarinnar Grundvallaratriði (Basic)
sem frumsýnd var um helgina. Í spjalli
Travolta við blaðamann kom fram að
hann hafði séð Grease-sýningu hér á
landi og voru áhöld um hvort það hefði
verið uppfærsla frá ’94 eða ’98. Í ljós
hefur hins vegar komið að um var að
ræða sýninguna Allt vitlaust, sem sett
var upp í Broadway árið 1987 er veit-
ingahúsið hafði aðsetur í Mjóddinni.
Sýningin var sett upp af þeim Birni
Björnssyni og Agli Eðvarðssyni og þar
sungu Björgvin Halldórsson, Eyjólfur
Kristjánsson, Eiríkur Hauksson og
Sigríður Beinteinsdóttir þekkt lög frá
rokktímabilinu ásamt sautján dönsur-
um. Björgvin bauð Travolta á sýninguna og mætti hann þar ásamt konu sinni
og fleiri fjölskyldumeðlimum og skemmti sér konunglega að sögn Björgvins,
heilsaði fólki baksviðs að lokinni sýningu og var hinn alúðlegasti.
Travolta á Broadway árið 1987
ásamt dönsurunum Ylfu, Önnu,
Guðbjörgu, Siggu og Írisi.
Kíkti á Broadway ’87
Enn af John Travolta
Ljósmynd/Björn Björnsson
ALLT síðan Korn gerði hið svo-
kallaða nýþungarokk að stofustássi
fyrir um tíu árum hafa Deftones ver-
ið í framlínu stefnunnar, þá sérstak-
lega hvað listræna inneign varðar.
Þrjár plötur þeirra til þessa eru allar
frábærar, hver á sinn hátt. Tvær
fyrstu þrusurokkarar og á þeirri síð-
ustu, White Pony, fór að gæta vel út-
færðrar tilraunamennsku. Sú plata
kom út fyrir meira en þremur árum
og ýmislegt gerst í rokkheimum síð-
an. Sem gerir það að verkum að það
er einhver óþægileg stöðnunarára
sem leikur um plötuna. Deftones
halda fast í einkennishljóm sinn,
rokka feitt og Moreno jafnástríðu-
fullur og alltaf. En…ég bjóst við því
betra verð ég að viðurkenna. Ein-
faldlega af því að þetta eru Deftones.
Nýþungarokkið er fullunnið og á
vissan hátt eru Deftones hér eins og
risaeðlur. Maður
bjóst t.d. við
meiri ævintýra-
mennsku, sér-
staklega með til-
liti til síðustu
plötu. Deftones
er of hefðbundin og veldur að því
leytinu til vonbrigðum. Og ég veit að
Moreno og félagar væru til í að vera
þekktari fyrir annað…eða hvað?
Deftones er fín Deftones-plata.
Um leið er hún heldur neistalaus og
venjubundin nýþungarokksplata. Og
það er bara ekki nógu gott.
Lykillög: „Hexagram“, „When
Girls Telephone Boys“
Tónlist
Deftones
Deftones
Maverick
Fjórða Deftones-platan. Meira af því
sama. Fín plata…en formúlan pínu
þreytt.
Gamla góða
nýþunga-
rokkið…
Arnar Eggert Thoroddsen
Timoleon Vieta Come Home: A Senti-
mental Journey eftir Dan Rhodes. Canon-
gate gefur út 2003. 240 síðna kilja.
FÁTT er mönnum meira til ama en
ástin, en að sama skapi veitir ekkert
annan eins unað. Ástin er uppbyggi-
leg og fögur en hún er líka grimm og
miskunnarlaus þegar sá gállinn er á
henni. Þannig birtist hún að minnsta
kosti í bókinni Timoleon Vieta Come
Home: A Sentimental Journey eftir
Dan Rhodes. Bókin segir frá mis-
heppnuðu samkynhneigðu tónskáldi,
Cockroft, sem er búið að drekka sig
út úr samfélagi listamanna í Bretlandi
og býr í einskonar útlegð á Ítalíu.
Cockroft er sjálfselskur og tilætlun-
arsamur, drykkfelldur dóni, sem eng-
um þykir vænt um nema hundinum
hans, Timoleon Vieta, blendingi með
óvenjufalleg augu, sem elskar hann
líka skilyrðislaust. Vesalings Timol-
eon þarf að gjalda fyrir þá ást eins og
flestir þeir sem
koma við sögu í
þessari listavel
skrifuðu bók.
Dan Rhodes
vakti mikla athygli
fyrir smásagnasafn
sitt Anthropology:
and a Hundred
Other Stories sem
kom út fyrir þrem-
ur árum, en í því safni voru 101 saga
og fjölluðu allar um samband milli
karls og konu, misskilninginn sem
sambönd byggjast almennt á, ekki
síst misskilninginn um ástina. Anthr-
opology var ótrúlega fjörlega skrifuð
og skemmtileg og þótt ekki sé sama
flugeldasýning í sögunni af Timoleon
Vieta er innsæi Rhodes ekki minna og
kaldhæðnisleg krufning hans á ást-
inni og þeim ógöngum sem hún leiðir
okkur einatt í, ekki síst ef hún er
fölskvalaus, skilyrðislaus og sönn, æv-
intýraást, eins og sú sem Timoleon
Vieta ber til húsbónda síns.
Heimur þeirra Cockrofts og Timol-
eons Vietas breytist fyrir fullt og fast
þegar Bosníumaðurinn birtist, þ.e.
maður sem lætur sem hann sé frá
Bosníu, eins og kemur í ljós síðar í
sögunni. Timoleon sér strax að þar er
illmenni á ferð en Cockroft er heill-
aður af karlmannlegri hörkunni sem
geislar af Bosníumanninum og fellst á
að aka með hundinn til Rómar og
skilja hann þar eftir. Þá hefst hið eig-
inlega ævintýri því að í leit sinni að
húsbóndanum sem hann elskar svo
heitt verður Timoleon aukapersóna í
fjölda beiskra ástarævintýra. Frábær
bók.
Erlendar bækur
Ástin er
grimm
Árni Matthíasson
BÖRKUR Gunnarsson, rithöfundur
og leikstjóri, fékk úthlutað styrk
úr Tékkneska kvikmyndasjóðnum
til að ljúka kvikmynd sinni Aftur.
Þetta er í fyrsta skipti í 8 ár sem
útlendingi er veittur styrkur úr
sjóðnum en Börkur var í hópi tékk-
neskra stórrisa í umsækjenda-
hópnum. Sjóðurinn hafði sem jafn-
gildir um 60 milljónum íslenskra
króna til ráðstöfunar og fór þorr-
inn af þeirri upphæð til óskars-
verðlaunahafans Jan Sverák sem
leikstýrði Kolya, Hynek Bocan sem
hlaut aðalverðlaun Rotterdam-
kvikmyndahátíðarinnar fyrir
tveimur árum og Jan Hrebejk sem
hlaut tilnefningu til óskars-
verðlauna fyrir mynd sína Samein-
aðir föllum vér árið 2000.
Verkefni Barkar hlaut 2 milljóna
króna styrk sem notaður verður til
að fjármagna lokafrágang mynd-
arinnar en tökum er þegar lokið.
Myndin var tekin upp fyrr á
árinu og settu mikil flóð í Tékk-
landi strik í reikninginn við gerð
myndarinnar. Þannig flæddi Moldá
inn á skrifstofu framleiðanda
myndarinnar og aðalleikonan
missti heimili sitt.
Kvikmyndin segir frá tveimur
vinkonum sem fyrir tilviljun hittast
í Prag og fara í örlagaríkt sum-
arfrí til æskuslóða þeirra úti í
sveit.
Börkur Gunnarsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Aftur, ásamt Petru Cicak-
ovu, einni af leikurum myndarinnar.
Börkur
fær tékk-
neskan
styrk