Morgunblaðið - 30.07.2003, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
RUSLPÓSTUR er að verða að miklu
vandamáli í netheimum, og raunar í raun-
heimi líka þar sem mikill kostnaður hlýst
af misnotkun fólks á þessari samskipta-
leið. Áætlað er að á hverjum degi séu í
heiminum sendir út um 13 milljarðar
óumbeðinna tölvuskeyta. Þetta mikla
umfang veldur álagi bæði á gagnaflutn-
ingsleiðir og á vefþjóna víða um heim.
Að sögn Friðriks Skúlasonar, forstjóra
Friðriks Skúlasonar hf., hafa kræfir rusl-
póstssendendur notast við fjölmargar að-
ferðir til þess að komast yfir netföng.
Þegar netfang er komið á slíkan lista geti
verið erfitt að losna undan flóði óumbeð-
ins pósts.
Í mörgum óumbeðnum póstsendingum
eru viðtakendur hvattir til þess að láta
vita ef þeir hafi ekki áhuga á að fá slíkan
póst. Friðrik segir þetta vera brellu sem
ruslpóstssendendur noti til þess að kom-
ast að því hvort ruslpósturinn sé lesinn af
viðkomandi móttakenda. Mikilvægast sé
þó að svara aldrei svona pósti því með því
staðfesti þeir að netfangið sé í notkun. Í
kjölfarið megi búast við því að fá miklu
meira af ruslpósti.
Ruslpóstur
vaxandi
vandamál
Getur/26
DORGVEIÐAR eru sígilt tómstundagaman þó að oft
þurfi mikla þolinmæði til. Þessir piltar lönduðu mynd-
arlegum fiski í Hafnarfjarðarhöfn og veiðistöngin
bognaði mikið við átökin. Eflaust hafa þeir farið með
veiðina heim í soðið en það er víst ekki svo algengt að
ætir fiskar rati á beitu dorgveiðimanna við bryggju.
Morgunblaðið/Golli
Myndarleg veiði
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í hesta-
íþróttum verður sett í dag í Herning
í Danmörku. Öll aðstaða á móts-
staðnum þykir afar góð, svæðið afar
rúmt og vel að allri skipulagningu
og undirbúningi staðið. Athygli vek-
ur að öll gæsla á svæðinu er mikil en
þar eru um 500 sjálfboðaliðar úr
röðum aðdáenda íslenska hestsins í
Danmörku. Í fréttablaði mótsins,
sem ætlunin er að gefa út daglega á
meðan á móti stendur, segir að 3,8
starfsmenn séu á hvern hest sem
þátt tekur í mótinu.
Mikill fjöldi Íslendinga er nú þeg-
ar kominn á staðinn og kom fram á
blaðamannafundi að nú þegar væri
komið talsvert fleira fólk á svæðið
en mótshaldarar höfðu reiknað með
á fyrsta degi mótsins. Búist er við að
yfir 15 þúsund manns muni sækja
mótið. Í dag verður formleg opnun
mótsins en áður en hún hefst verður
keppt í gæðingaskeiði og eftir há-
degið fer fram forkeppni í fjórgangi.
Í Herning ríkir góður andi og velkj-
ast menn ekki í vafa um að í uppsigl-
ingu er eitt besta heimsmeistaramót
sem haldið hefur verið til þessa.
Frásögn af kynbótasýningu á
mótinu frá í gærdag má sjá á
www.mbl.is.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Benedikt Líndal kynnir hnakka þá
sem hann hefur hannað og söðla-
meistari Stubben-hnakkaframleið-
andans fylgist með.
Fjöldi Ís-
lendinga á
HM í hesta-
íþróttum
Herning. Morgunblaðið.
VERSLANAKEÐJAN Bonus Stor-
es, dótturfélag Baugs Group í
Bandaríkjunum, sótti fyrir helgi um
að vera tekin
til gjald-
þrotameð-
ferðar (svo-
kallað
Chapter 11)
á meðan á víðtækri endurskipulagn-
ingu fyrirtækisins stendur. Sam-
þykkt var fyrir rétti í Delaware-
fylki á mánudag að heimila gjald-
þrotameðferðina.
Bonus Stores, sem rekur 336
verslanir í Bandaríkjunum, tilkynnti
nýverið að ákveðið hefði verið að
selja 214 af verslunum keðjunnar
auk þess sem dreifingarmiðstöð
hefði verið lokað. Áður hafði verið
ákveðið að selja 25 verslanir og ger-
ir það samtals 239 verslanir sem
áætlað er að verði seldar. Eftir
standa þá 97 verslanir sem stefnt er
að að verði áfram í eigu félagsins.
Í fréttatilkynningu, sem félagið
sendi frá sér sl. föstudag, segir að
til standi að fara með félagið í gegn-
um mikla endurskipulagningu. Þess
vegna hafi verið lögð inn beiðni um
gjaldþrotameðferð, en slíkt mun
vera vanalegt í Bandaríkjunum þeg-
ar um víðtækar björgunaraðgerðir
fyrirtækis er að ræða og skapa þarf
svigrúm til þeirra fyrir kröfuhöfum.
Dreifingarkostnaður lækkaður
Verslanir Bonus Stores eru í 12
fylkjum Bandaríkjanna og miðar
endurskipulagningin að því að
stytta vegalengdir á milli verslana
og ná þannig fram hagræðingu m.a.
með lækkun dreifingarkostnaðar.
Samkvæmt upplýsingum frá Baugi
Group eru þær 97 verslanir sem
fyrirtækið heldur eftir í fylkjunum
Mississippi, Louisiana og Alabama.
Þær verslanir sem á að selja eru
hins vegar í öðrum fylkjum og eins
og fram hefur komið standa við-
ræður yfir við 5 verslanakeðjur um
kaup á þeim. Ekki fæst uppgefið að
svo stöddu um hvaða keðjur er að
ræða.
Baugur Group á 65% hlut í Bonus
Stores en aðrir hluthafar eru Kaup-
þing ásamt innlendum og erlendum
fjárfestum. Félagið hefur verið rek-
ið með miklu tapi og svo virðist sem
endurfjármögnun þess sl. haust hafi
ekki skilað sér. Þá lánaði Fleet
Bank of Boston allt að 3,5 milljarða
króna til rekstursins auk þess sem
Baugur lagði til um 800 milljónir
króna í nýtt hlutafé í nóvember.
Baugur hefur þegar lýst því yfir
að það muni ekki setja meira fjár-
magn til reksturs Bonus Stores og
áformi að draga sig út af Banda-
ríkjamarkaði en einbeita sér að
Bretlandsmarkaði. Lýsti forstjóri
Baugs, Jón Ásgeir Jóhannesson, því
yfir á fundi með fjárfestum í maí sl.
að áhætta Baugs af þessari fjárfest-
ingu næmi tveimur milljörðum
króna.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að hópur stjórnenda hjá Bonus
Stores með framkvæmdastjórann
Jack Koegel í fararbroddi muni
kaupa þær 97 verslanir sem félagið
ætlar að halda eftir. Ekki náðist í
Koegel í gær vegna þessa máls eða
Jón Ásgeir Jóhannesson.
Fallist á beiðni Bonus Stor-
es um gjaldþrotameðferð
REKSTUR Íslandsbanka skilaði 2,4
milljarða króna hagnaði á fyrri hluta
ársins, sem er 46% aukning frá sama
tíma í fyrra og er það talsvert um-
fram væntingar á markaði.
Gengishagnaður bankans af ann-
arri fjármálastarfsemi nam 1.163
milljónum króna á tímabilinu og er
það 1.100 milljóna króna aukning frá
fyrra ári. Sú aukning er fyrst og
fremst til komin vegna hagnaðar af
hluta- og skuldabréfum.
Forstjóri bankans, Bjarni Ár-
mannsson, segir aukin umsvif og
hagstæða verðþróun á hluta- og
skuldabréfamarkaði hafa einkennt
tímabilið. Enn fremur segir hann að
staða ýmissa viðskiptamanna bank-
ans hafi farið batnandi og að ný útlán
bankans séu að meðaltali betri en
þau útlán sem fyrir voru.
Aukning útlána Íslandsbanka til
viðskiptavina nam 20 milljörðum
króna og var 259 milljarðar króna,
en um 60% nýrra útlána voru til er-
lendra viðskiptavina.
Íslands-
banki hagn-
ast um 2,4
milljarða
Hagnaður Íslandsbanka /14
FJÖLVEIÐISKIP Samherja, Vil-
helm Þorsteinsson og Þorsteinn,
hafa mokveitt síld inni á verndar-
svæðinu við Svalbarða. Skipin hafa
landað fullfermi með nokkurra daga
millibili í Sortland í Noregi. Áhafnir
beggja skipanna flaka og frysta síld-
ina um borð og ná þannig að þre- til
fjórfalda aflaverðmætið miðað við að
landað sé til bræðslu.
Þorsteinn landaði síðustu nótt
frystum flökum sem svaraði til 800
tonna afla úr sjó og Vilhelm var í
Sortland á laugardag með 590 tonn
af flökum, sem svarar til 1.200 tonna
af síld upp úr sjó. Í gær var Vilhelm
svo kominn með 150 til 170 tonn af
flökum, en um sólarhrings sigling er
af miðunum í land. Þessi skip eru
þau einu nú sem stunda veiðar úr
norsk-íslenzka síldarstofninum,
enda er heildarkvótinn nánast bú-
inn. Þessi tvö skip Samherja eiga
eftir tvo til þrjá túra á síldinni, en þá
tekur kolmunninn við.
Norska sjávarútvesgblaðið Fisk-
eribladet hafði það eftir Guðmundi
Jónssyni, skipstjóra á Vilhelm Þor-
steinssyni, að þeir hafi aðeins verið 5
daga að veiða og vinna þessi 1.200
tonn af síld, síldin sé frekar smá og
því sé verðið lægra en áður.
Kvóti íslenzku skipanna var um
103.000 tonn á þessari vertíð og þar
af var leyfilegt að taka 12.000 innan
lögsögu Noregs. Ekkert íslenzkt
skip hefur veitt innan norsku lögsög-
unnar og bendir allt til þess að þau
ljúki kvótanum án þess að sækja
þangað. Kristján Vilhelmsson, einn
stjórnenda Samherja, segir það
styrkja samningsstöðu um hlutdeild
úr síldinni að hafa ekki veitt innan
norsku lögsögunnar. Veiðin gangi
mjög vel og að kvóta loknum fari
skipin á kolmunna.
Moka upp síld við Svalbarða
Fjölveiðiskipin fjórfalda aflaverðmæti
með flökun og frystingu um borð
Morgunblaðið/Kristján
Fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA mokar nú upp síld við Svalbarða.
♦ ♦ ♦