Morgunblaðið - 05.08.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 210. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Baulaðu nú
Búkolla mín
Dögg Árnadóttir fer fyrir hand-
verkshátíð á Hrafnagili 8
Prýðisárangur á heimsmeistaramóti
íslenska hestsins Hestar 18
Umdeilt
biskupskjör
Velur bandaríska biskupakirkjan
samkynhneigðan biskup? 14
SAMKEPPNISSTOFNUN telur að
gögn sem fram komu við rannsókn
hennar á meintu samráði trygginga-
félaganna sýni að Samband íslenskra
tryggingafélaga (SÍT) og aðildarfélög
þess hafi gripið til samstilltra aðgerða
til að hindra innkomu nýs keppinaut-
ar á markaðinn fyrir fiskiskipatrygg-
ingar og brotið gegn samkeppnislög-
um.
Í andmælum SÍT og trygginga-
félaganna er niðurstöðum í frum-
skýrslu Samkeppnisstofnunar mót-
mælt. Í svari TM segir m.a. að það
geti tæpast talist óeðlilegt að inn-
koma nýs félags yrði eitthvað rædd
og skoðuð innan SÍT. VÍS bendir á að
upplýsingaskipti tryggingafélaganna
sem vitnað er til í frumskýrslunni séu
hvorki byggð á samningi, samþykkt-
um né samstilltum aðgerðum fyrir-
tækjanna og þau geti ekki falið í sér
brot á samkeppnislögum.
Óheimilt að miðla upplýsingum
Í umfjöllun Samkeppnisstofnunar
um meintar aðgerðir SÍT segir að
tryggingafélögin hafi neitað Alþjóð-
legri miðlun ehf. um upplýsingar um
fyrri tjón væntanlegra viðskiptavina
er hún hóf að bjóða fiskiskipatrygg-
ingar í umboði erlenda trygginga-
félagsins COX at Lloyd’s. Jafnframt
er sagt að félögin innan SÍT hafi miðl-
að milli sín sams konar upplýsingum.
Félögin segja að miðlun persónu-
upplýsinga hafi verið óheimil og í
svari SÍT og Sjóvár-Almennra er
vitnað til bréfs viðskiptaráðuneytisins
frá 1997 því til staðfestingar. Félögin
neita því alfarið að þau hafi miðlað sín
í milli sambærilegum upplýsingum.
Í frumskýrslu Samkeppnisstofnun-
ar segir að bréf SÍT til trygginga-
félaganna og fleiri gögn sýni að sam-
tökin hafi gegnt lykilhlutverki við að
útiloka upplýsingagjöf til Alþjóðlegr-
ar miðlunar. Aðildarfélögin hafi feng-
ið bein fyrirmæli um hvernig svara
bæri umleitunum félagsins. Telur
stofnunin ekki unnt að líta öðruvísi á
en að markmið aðgerðanna hafi verið
að halda markaðnum fyrir aðildarfyr-
irtæki SÍT og vinna gegn því að nýr
keppinautur myndi t.d. lækka verð
eða auka samkeppni. Því séu þær al-
varlegt brot á samkeppnislögum.
Frumskýrsla Samkeppnisstofnunar um meint samráð í fiskiskipatryggingum
Sakaðir um samstilltar að-
gerðir gegn nýjum keppinaut
Tryggingafélögin neita því að hafa
brotið gegn samkeppnislögum
Úr frumskýrslu
og andmælum/10
UM 200 friðargæsluliðum frá Nígeríu var
ákaft fagnað er þeir lentu á flugvelli Mon-
róvíu, höfuðborgar Líberíu, í gær. Alls er
ráðgert að senda rúmlega 3.000 friðargæslu-
liða til landsins þar sem blóðug borgara-
styrjöld hefur geisað með hléum í 14 ár. Von-
ast er til að takast muni að binda enda á
stríðið sem kostað hefur 200.000 manns lífið.
Þá voru 66 fórnarlömb stríðsins, þar af fimm
börn, greftruð rétt við Monróvíu í gær.
Fólkið fagnaði ákaft er flutningavélar með
hjálpargögn, matvæli og lyf, lentu á flugvell-
inum en 1.000 manns hafa látið lífið í bardög-
unum síðustu tvo mánuði, margir hafa þurft
að flýja heimili sín og matur og vatn verið af
skornum skammti. „Við viljum frið, ekki
meira stríð,“ hrópuðu hundruð manna á
flugvellinum.
Bíða skipana frá Bush
Tvö bandarísk herskip bíða nú undan
ströndum Líberíu og er hið þriðja á leiðinni.
2.000 landgönguliðar eru viðbúnir því að að-
stoða afrísku friðargæsluliðana. Þeir bíða
skipana frá George W. Bush Bandaríkjafor-
seta sem hefur ekki ákveðið hvort þeir skuli
halda inn í landið og hefja aðgerðir.
Bæði stjórn landsins og uppreisnarhópar
fögnuðu komu friðargæsluliðanna og sögð-
ust vonast til að friður kæmist á. Þó mátti
enn heyra skothvelli í höfuðborginni sjálfri í
gær þrátt fyrir að ekki bæri á jafnhörðum
bardögum og verið hafa undanfarna daga.
AP
Onwuama Egbu Emeka, nígerískur hers-
höfðingi, var borinn á gullstól af borg-
urum sem fögnuðu komu friðargæsluliða á
flugvelli Monróvíuborgar.
Friðargæslu-
lið komið til
Líberíu
Monróvíu. AP.
Gullin á elleftu
stundu
GÍFURLEGIR hitar eru víða í
Evrópu og hafa þeir valdið skógar-
eldum, neyðarástandi í landbúnaði
og hættulega miklu ósonmagni í
lofti. Í Bretlandi búast margir við,
að fyrra hitamet þar í landi, 37,1
gráða á celsíus, falli um miðja vik-
una.
Í Portúgal hefur verið lýst yfir
neyðarástandi vegna mestu skóg-
arelda þar á síðari tímum en þeir
hafa nú kostað níu manns lífið.
Tekist hefur að slökkva eldana,
sem urðu fimm manns að fjörtjóni í
Frakklandi, en eldar geisa einnig á
Suður- og Mið-Spáni. Í Frakklandi
hefur verið gripið til vatnsskömmt-
unar í stórum hlutum landsins en
þar og í mörgum öðrum Evrópu-
ríkjum sjá bændur fram á mikinn
uppskerubrest og litla mjólkur-
framleiðslu.
Á Spáni hefur verð á kjúklingum
rokið upp um 35% vegna hitanna
en þeir hafa drepið meira en millj-
ón fugla og þeir, sem lifa, þrífast
illa vegna svækjunnar. Sjö hafa lát-
ist vegna hita á Spáni undanfarið.
Versnar á næstu dögum
Hitinn fór víða yfir 40 stig í
Frakklandi og Þýskalandi í gær og
á mörgum skrifstofum og öðrum
vinnustöðum í Berlín var svækjan
orðin svo mikil, að fólki var gefið
frí. Í löndunum báðum er búist við,
að ástandið muni versna á næstu
dögum, en í Þýskalandi eru fimm
dauðsföll um helgina rakin til hit-
ans.
Í ágúst 1990 mældist 37,1 gráðu
hiti í Cheltenham í Englandi en bú-
ist er við, að það met falli um miðja
vikuna. Þar í landi hefur lestar-
stjórum verið skipað að hægja
verulega á ferðinni af ótta við, að
teinarnir séu ekki nógu stöðugir í
hitanum.
Dýrum gefnir frostpinnar
Mengun, einkum ósonmengun, í
mörgum evrópskum borgum er
orðin svo mikil, að fólk hefur verið
varað við að skokka eða reyna
verulega á sig. Í París fyrirskipuðu
yfirvöld hraðatakmarkanir og
fækkuðu strætisvagnaferðum til að
reyna að draga úr mengun.
Í dýragörðum í Englandi gripu
starfsmenn til ýmissa ráða til að
reyna að vernda dýrin í kæfandi
sumarhitanum og gæta þess að þau
fengju nægan vökva. Mörgæsir í
Lundúnadýragarðinum fengu fisk-
frostpinna, ljón og tígrisdýr
gleyptu í sig blóð- og rósmarín-
frostpinna og birnir og apar fengu
ávaxtaís. Þá voru svínin vandlega
borin sólaráburði.
Deilt er um hvort hitabylgjan
geti tengst langvarandi loftslags-
breytingum vegna gróðurhúsa-
áhrifa en sumir telja að svo sé.
Neyð vegna hita í Evrópu
París. AFP.
Reuters
Íbúar í Macao-þorpi, um 100 km norður af Lissabon, skvetta vatni á skógarelda. Neyðarástand er í landinu og
hafa yfirvöld beðið aðrar þjóðir um hjálp. Sextán manns hafa látist vegna hitabylgju á Spáni og í Portúgal.
Fólk reynir að kæla sig í gosbrunni á Concorde-torgi í París í gær þar
sem hiti fór upp í 35 gráður annan daginn í röð eins og víðar í Evrópu.
EPA