Morgunblaðið - 05.08.2003, Side 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
UM TÓLF þúsund manns voru á fjöl-
skylduhátíðinni Ein með öllu á Ak-
ureyri um helgina. Mikið var um eft-
irlitslausa unglinga og ölvun í bænum
var mikil að sögn lögreglunnar á Ak-
ureyri. Hún var að eigin sögn of fálið-
uð þegar hvað mest var um að vera á
föstudags- og laugardagskvöldið
þrátt fyrir aukaviðbúnað.
Aðfaranótt laugardags var maður
skorinn á háls með brotinni bjór-
flösku og mikil mildi að maðurinn
slasaðist ekki alvarlega. Ráðist var á
tvo lögreglumenn sem höfðu haft af-
skipti af ölvuðum ökumanni og annar
lögreglumaðurinn skallaður en
sparkað í hinn.
Talsvert var um ölvunarakstur og
þurfti lögreglan að hafa afskipti af
mörgum ökumönnum, sérstaklega í
gærmorgun þegar gestir fóru að
halda heim á leið. Lögreglan var um
miðjan dag í gær búin að stöðva á
annan tug bíla.
Jakob Björnsson, starfandi bæjar-
stjóri á Akureyri, segir í samtali við
Morgunblaðið að hátíðin í ár sé skref
til baka miðað við það sem verið hefur
undanfarin tvö ár.
Jakob segist eiga von á því að yfir-
völd og mótshaldarar ræði saman á
næstunni og reyni að fara yfir það
sem betur hefði mátt fara. Ljóst væri
að íbúar á Akureyri væru ekki
ánægðir með ástandið eins og það var
um helgina.
Mikil ölvun á Akureyri
TALSVERÐUR erill var í umdæmi
lögreglunnar á Hvolsvelli um
helgina. Þrír gestir af bindindis-
mótinu í Galtalæk gistu fanga-
geymslur vegna ölvunar og óláta, en
eitthvað bar á ölvun á svæðinu að
sögn lögreglu.
Nokkur fíkniefnamál komu upp í
Galtalæk, gerð voru upptæk rúm-
lega tíu grömm af hassi og tvær e-
pillur, og segir lögregla ljóst að efnin
hafi verið ætluð til eigin neyslu. Eitt-
hvað var um pústra en engar kærur
hafa borist til lögreglu vegna líkams-
árása.
Bifreið valt rétt fyrir miðnætti að-
faranótt mánudags á Landvegi. Öku-
maður var fluttur á slysadeild á
Hellu, en áverkar hans reyndust
óverulegir. Hann er grunaður um
ölvun við akstur. Bíllinn er mikið
skemmdur.
Tveir voru í bíl sem valt rétt eftir
miðnætti aðfaranótt mánudags á
Hagabraut. Óhappið átti sér stað í
beygju á malarvegi í myrkri og mun
ökumaður hafa misreiknað aðstæður
með þeim afleiðingum að bíllinn fór
út af og valt. Báðir mennirnir voru í
beltum og sluppu með óveruleg
meiðsli, en bíllinn er talsvert
skemmdur.
Nokkuð um ölvun í
Galtalæk um helgina
VIÐ upphaf brekkusöngs á
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum á
sunnudagskvöldið las Birgir Guð-
jónsson, formaður þjóðhátíðar-
nefndar, bréf frá Árna Johnsen.
Hann tók fram í upphafi lestrarins
að skoðanir sem fram kæmu í
bréfinu væru Árna en ekki nefnd-
arinnar.
Árni sagði í bréfinu að það biti
harkalega að geta ekki fengið að
taka þátt í brekkusöngnum og
sagði að allt fram á síðustu stundu
hefði þyrla verið til taks að flytja
hann til Vestmannaeyja. Hann
fékk þó ekki leyfi hjá fangelsis-
málastofnun og dómsmálaráðu-
neytinu og komst ekki til Vest-
mannaeyja. Í bréfi sínu sagði Árni
m.a. að allt hefði verið gert til þess
að tryggja að hann gæti komið á
þjóðhátíð. „[E]n við höfum þurft
að glíma við menn sem fyrirlíta
fólk og gera allt sem í þeirra valdi
stendur til þess að gera lífið leið-
inlegt,“ sagði í bréfinu. Þá lofaði
Árni því að vera við brekkusöng á
næstu þjóðhátíð.
Vestmanneyingurinn Róbert
Marshall fréttamaður hljóp í
skarðið fyrir Árna og stjórnaði
brekkusöngnum.
Fíkniefni gerð upptæk
Að sögn Birgis Guðjónssonar,
formanns þjóðhátíðarnefndar, voru
á milli átta og níu þúsund manns á
þjóðhátíð á sunnudag og voru þeir
ánægðir með hátíðina. Nokkuð bar
á fíkniefnanotkum og voru gerð
upptæk fíkniefni hjá á fjórða tug
manna. Lögreglan gerði upptæk
um 30 grömm af amfetamíni og
kókaíni, rúm 20 grömm af hassi og
um 20 e-töflur. Að sögn lögreglu
virtist sem efnin væru til einka-
nota, enda lítið gert upptækt hjá
hverjum um sig.
Eitthvað var um átök og pústra
á þjóðhátíð og voru fimm líkams-
árásir kærðar til lögreglu. Ekki
urðu alvarleg meiðsl á fólki.
Róbert stjórnaði brekku-
söng í fjarveru Árna
UM FJÖGUR þúsund manns voru á
Síldarævintýri á Siglufirði um
helgina og var stærstur hluti gesta
fjölskyldufólk. Veður var gott alla
helgina, sólskin og blíðviðri, en smá-
skúr gerði á laugardagskvöldið. Að
sögn lögreglunnar á Siglufirði gekk
helgin rólega fyrir sig, eitthvað var
um pústra milli manna en engin al-
varleg slagsmál urðu og fanga-
geymslur stóðu að mestu leyti auðar
yfir helgina.
Umferð um svæðið gekk vel og
mikið var um húsbíla og fellihýsi og
allur útbúnaður þeim tengdur var í
lagi hjá ökumönnum að sögn lögregl-
unnar á Siglufirði. Þegar gestir fóru
að fara í gærmorgun var nokkuð um
að ökumenn kæmu að fyrra bragði á
lögreglustöðina og létu taka öndun-
arsýni til að athuga hvort þeir væru
ökufærir.
Nostalgían sveif yfir vötnum
Theodór Júlíusson mótshaldari
segist vera afar ánægður með hvern-
ig til hefur tekist, gestahópurinn hafi
aðallega verið fjölskyldufólk og allt
hafi farið friðsamlega fram, engir
árekstrar eða læti. Hljómsveitirnar
Hljómar, The Hefners, Von og Mið-
aldamenn léku fyrir dansi um
helgina og síldarstemmning var í
bænum. Margir heimsóttu Síldar-
minjasafn Siglufjarðar um helgina
og sett var aðsóknarmet á safnið á
laugardaginn.
Húsfyllir var í Nýja bíói öll þrjú
kvöldin sem Hljómar léku þar. Theo-
dór segir að nostalgían hafi svifið yf-
ir vötnum á hátíðinni og hátíðargest-
ir allt upp í áttrætt hafi dansað á
böllunum. Hljómar spiluðu fyrst á
Siglufirði fyrir fjörutíu árum, árið
1963, þegar þeir léku með Gautum
frá Siglufirði.
Í Kantrýbæ var hljómsveitin
Brimkló með sína fyrstu tónleika í
fimmtán ár á laugardagskvöldið og
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu voru á bilinu 300-500 manns á
staðnum.
Um fjögur þúsund
manns á Síldaræv-
intýri á Siglufirði
UNGLINGAMÓT UMFÍ fór
fram á Ísafirði um helgina og
áætlar lögregla að um 8.000
manns hafi verið á svæðinu
þegar mest var. Mótshaldið
gekk stórslysalaust fyrir sig, og
fór allt vel fram að sögn lög-
reglu.
Talsvert bar á ölvun í Ísa-
fjarðarbæ, utan svæðis UMFÍ,
aðfaranótt sunnudags. Til-
kynnt var um tvær minniháttar
líkamsárárásir en engar kærur
höfðu verið lagðar fram seint í
gær. Lítilræði af hassi var gert
upptækt á föstudagskvöldið við
reglubundið eftirlit. Að öðru
leyti fóru skemmtanahöld vel
fram á Ísafirði þó mikið hafi
verið af fólki í bænum.
Bifreið fór út af Suðureyrar-
vegi í Súgandafirði um klukkan
17 á sunnudag og endaði bif-
reiðin í fjörunni. Þrennt var í
bílnum og slasaðist enginn al-
varlega, en fólkið var flutt á
sjúkrahúsið á Ísafirði til að-
hlynningar.
Talsvert
um ölvun
á Ísafirði
ÞAÐ var mikið fjör á leiksvæðinu í Galtalæk um
helgina. Þessir hressu krakkar skemmtu sér hið besta
við að renna sér eftir vírnum og voru farnar æði marg-
ar salíbunur í þessum skemmtilegu leiktækjum.
Morgunblaðið/Kristinn
Fjör á fjölskylduhátíð
LÖGREGLAN á Neskaupstað
hafði mikil afskipti af hátíðar-
gestum á Neistaflugi um
helgina en um fjögur þúsund
gestir voru á hátíðinni þegar
mest var.
Að sögn lögreglu var mikið
um ölvun, einkum fyrstu nótt-
ina og þrjár líkamsárásir voru
kærðar þá nótt en meiðsli voru
ekki alvarleg. Eitt fíkniefnamál
kom upp en engin kynferðis-
brot voru tilkynnt.
Mikil umferð hefur verið á
Austurlandi um helgina en lítið
hefur verið um ölvunarakstur.
Þrjár lík-
amsárásir
á Neista-
flugi
FÉLAGARNIR Anton, Bjarki og
Alex voru á fluhátíð við Múlakot í
Fljótshlíð en nenntu ekki að fylgj-
ast lengur með flugvélunum.
Morgunblaðið/Kristinn
Sullað á flughátíð
FJÖLDI kom saman á fjöl-
skylduhátíð í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum á frídegi versl-
unarmanna í gær, en þá bauð
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
félagsmönnum sínum og öðrum í
garðinn, eins og undanfarin ár.
Leiktæki fyrir alla aldurshópa
voru óspart notuð, boðið var upp á
andlitsmálun, trúðar voru á rölti
um garðinn, svo dæmi séu nefnd.
Morgunblaðið/Kristinn
Í boði versl-
unarmanna