Morgunblaðið - 05.08.2003, Page 11
SAMKEPPNISSTOFNUN OG TRYGGINGAFÉLÖGIN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 11
miðlun óskaði eftir tilteknum upp-
lýsingum hjá sjótryggjendum innan
Sambands íslenskra trygginga
(SÍT) en fékk ekki. Telur Sam-
keppnisstofnun að gögn málsins
sýni að SÍT og aðildarfyrirtæki hafi
gripið til samstilltra aðgerða til að
hindra innkomu nýs keppinautar á
markaðinn fyrir fiskiskipatrygg-
ingar og brotið gegn 10. og 12.
grein samkeppnislaga.
Stofnunin vísar til fundargerða
stjórnar SÍT og minnisblaðs um
fund fyrirsvarsmanna sambandsins
með fulltrúum Vátryggingaeftirlits-
ins. Gögnin gefi skýrlega til kynna
að SÍT og aðildarfyrirtæki hafi
brugðist sameiginlega við innkomu
þessa nýja keppinautar og að SÍT
hafi haft með höndum miðlun upp-
lýsinga vegna þessa. Sagt er frá
því að SÍT hafi sent trygginga-
félögunum afrit af tilboði Alþjóð-
legrar miðlunar um tryggingu á
báti. Þar komi fram hvaða iðgjöld
og bónus fyrirtækið hafi boðið.
„Upplýsingar af þessum toga geta
talist til viðskiptaleyndarmála. Bréf
þetta sýnir hversu óeðlilegu hlut-
verki SÍT hefur gegnt í tengslum
við innkomu nýs keppinautar á
þennan markað. Sambandið aflar
og miðlar upplýsingum til þess að
auðvelda aðildarfyrirtækjunum að
bregðast við nýjum keppinaut og
þar með gera honum erfiðara að ná
fótfestu á markaðnum,“ segir í
skýrslunni.
Stofnunin telur að SÍT hafi grip-
ið til sérstakra aðgerða til að
hindra að Alþjóðleg miðlun fengi
upplýsingar frá tryggingafélög-
unum um tjónabætur sem þau hafi
greitt vegna tiltekinna báta. Í bréfi
SÍT sem sent var út strax eftir að
beiðni Alþjóðlegrar miðlunar var
send félögunum var ítrekuð sú
skoðun að félögunum væri í senn
óskylt og óheimilt að gefa utan-
aðkomandi aðila upplýsingar af
þessu tagi. Um væri að ræða upp-
lýsingar um einkamálefni sem ekki
yrðu veittar nema vátryggingartak-
anum sjálfum. Telur stofnunin að í
bréfi þessu felist skýrt brot á sam-
keppnislögum enda miðist það að
því að vinna gegn því að nýjum
keppinaut séu veittar mikilvægar
upplýsingar og þar með torvelda
innkomu hans á markaðinn. Það sé
bersýnilega ekki hlutverk SÍT að
hafa afskipti af því hvort einstök
aðildarfélög veiti keppinauti sínum
tilteknar upplýsingar.
Í þessu sambandi er sagt frá því
að við leit í húsakynnum SÍT hafi
fundist í tölvu ritara bréf Sam-
ábyrgðar Íslands til Alþjóðlegrar
miðlunar þar sem fram kemur það
viðhorf að óskylt og óheimilt sé að
veita utanaðkomandi aðila upplýs-
ingar um tjónareynslu, án þess að
samþykki vátryggingataka liggi
fyrir. Það telur stofnunin að sýni
að SÍT hafi undirbúið svar eins að-
ildarfyrirtækisins til Alþjóðlegrar
miðlunar og bendi ótvírætt til sam-
stilltra aðgerða innan SÍT gegn
nýjum keppinaut.
Samkeppnisstofnun telur að
gögn sem fyrir liggja sýni að aðild-
arfélög SÍT hafi skipst á upplýs-
ingum um tjónareynslu vátrygg-
ingataka sín í milli, enda þótt
afstaða samtakanna út á við hafi
verið sú að slík upplýsingagjöf væri
óheimil nema með samþykki vá-
tryggingataka. Því verði ekki séð
að málefnalegar ástæður hafi legið
að baki neitun félaganna um að
veita Alþjóðlegri miðlun sambæri-
legar upplýsingar um tjónareynslu
og félögin miðluðu milli sín. Neitun
um þessar upplýsingar hafi því,
eins og málum var háttað, verið til
þess fallin að gera nýjum aðilum
erfitt fyrir að hasla sér völl á
markaðnum þar sem iðgjaldaákv-
arðanir þeirra gagnvart einstökum
viðskiptamönnum hafi ekki getað
byggst á jafntraustum stað-
reyndalegum grunni og hjá þeim
sem fyrir voru á markaðnum. Að
þessu leyti hafi neitunin verið til
þess fallin að hafa mjög skaðleg
áhrif á samkeppni.
Samkeppnisstofnun telur að bréf
SÍT til sjótryggjenda og fleira sýni
að samtökin hafi gegnt lykilhlut-
verki við að útiloka upplýsingagjöf
til Alþjóðlegrar miðlunar. Aðildar-
félögunum hafi verið gefin bein fyr-
irmæli um það hvernig svara bæri
umleitunum félagsins. Þetta hafi
því verið samtillt aðgerð SÍT og að-
ildarfélaga þess, fremur en að
byggjast á eigin vinnureglum hvers
vátryggingafélags fyrir sig. Ekki sé
unnt að líta öðruvísi á þessar að-
gerðir en að þær hafi haft það
markmið að halda þessum markaði
fyrir aðildarfyrirtæki SÍT og vinna
gegn því að nýr keppinautur myndi
til dæmis lækka verð eða auka
ndi fiskiskipatryggingar, vátryggingamiðlara og starfsábyrgðartryggingar
SJÁ NÆSTU SÍÐU
’ Telja að SÍT og aðildarfyrirtæki hafi gripið til samstilltra aðgerða til að hindra innkomu nýs keppinautar á markaðinn. ‘