Morgunblaðið - 05.08.2003, Síða 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 15
SAMKVÆMT frumdrögum áætlun-
ar um þróun sjávarútvegsins í Rúss-
landi fram til 2020 er stefnt að því að
hætta uppboðum á kvóta, sem hafa
verið mjög óvinsæl. Í staðinn komi
aðrar aðgerðir til þess að stjórna
fiskveiðunum.
Í drögunum stendur að kvóti eigi
að vera til fimm ára og úthlutun ráð-
ist af fenginni reynslu umsækjenda
og hvernig viðkomandi hafi staðið að
veiðunum. Fyrirtækjunum verður
einnig heimilt að selja og kaupa
kvóta. Yfirvöld munu innheimta
kvótagjald sem verður eitthvað
lægra en meðalverð kvótauppboð-
anna.
Minni spilling
Efnahagsmálaráðherra Rúss-
lands, German Gref, segir að úthlut-
un kvótans komi til framkvæmda
seinni hluta þessa árs og muni hafa
þau áhrif að hin betur reknu sjávar-
útvegsfyrirtæki muni hafa hag af.
Sjávarútvegur er lífsnauðsynlegur á
sumum svæðum Rússlands en mikil
spilling er innan hans og óspillt kerfi
við úthlutun fiskveiðikvóta ætti að
vera fagnaðarefni, segir í tilkynn-
ingu frá World Markets Research
Centre.
Reiknað er með að hið nýja kvóta-
gjald verði lægra en uppboðsverðið
sem að mati sjómanna var óheyri-
lega hátt og hafði í för með sér að
menn freistuðust til að veiða í óleyfi,
segir í frétt í Moscow Times. En yfir-
völd hafa enn ekki greint frá hve
mikið þau eru til í að koma til móts
við sjómenn til þess að lækka kostn-
aðinn við kvótaúthlutunina.
Ójóst er hvernig erlendar útgerðir
muni geta haldið áfram veiðum í
rússneskri lögsögu, segir Sergei
Samatov, talsmaður opinberrar
nefndar um fiskveiðar.
Ekki á eitt sáttir
Eins og við var að búast eru skipt-
ar skoðanir um hið nýja kerfi. Tals-
maður efnahags- og viðskiptaráðu-
neytisins ver t.d. kvótauppboðin,
sem komið var á árið 2001, og segir
þau hafa verið „einu mögulegu leið-
ina til þess að útfæra kvótaleiguna á
sínum tíma“. Uppboðin hafi verið
nauðsynlegt tæki til að koma á „heil-
brigðara“ sambandi milli fyrirtækj-
anna og svæðisstjórnanna sem hafi
„stundum jaðrað við að vera ólög-
legt“. Ástandð hafi batnað verulega,
segir talsmaðurinn. Löggæsla á mið-
unum hafi batnað til mikilla muna og
allt skipulag fiskveiðistjórnunarinn-
ar. Kvótauppboðin hafi einnig hjálp-
að til við að auka kostnaðarvitund
sjávarútvegsfyrirtækjanna og bætt
þekkingu manna á rekstri slíkra fyr-
irtækja.
Reiknað er með að hið nýja fyrir-
komulag hafi skilað tvöföldun afla
árið 2020.
Rússar hætta upp-
boðum á kvóta
Rússar eru nú að hverfa frá upp-
boðum á veiðiheimildum, en áfram
mun þurfa að greiða fyrir þær.
SKEMMTIGARÐURINN Euro
Disney í París hefur sent frá sér að-
vörun þess efnis að hann gæti lent í
erfiðleikum með að greiða skuldir
sínar. Verð hlutabréfa í félaginu
sem rekur garðinn hrapaði í kjölfar
þessara frétta um 23%.
Félagið rekur slæmt gengi
rekstrarins til nýlegra verkfalla í
Frakklandi og tregðu fólks í Evr-
ópu til að ferðast. Hins telja verð-
bréfamiðlarar að nýjungar í garð-
inum hafi misst marks og dragi
ekki að gesti í stórum stíl, eins og
áætlað var.
Félagið segist eiga í viðræðum
um endurskoðun samninga við lán-
ardrottna og varaði við því að ef
þær viðræður skiluðu ekki árangri,
gæti félagið ekki staðið undir
skuldbindingum sínum.
Líklegt þykir að Euro Disney nái
samningum við sinn helsta lánar-
drottin, CDC, vegna þeirra fjöl-
mörgu starfsmanna sem starfa hjá
fyrirtækinu. CDC er svo gott sem
ríkisfyrirtæki í Frakklandi og
starfar m.a. við fjármögnun verk-
efna sem tengjast þróun ákveðinna
svæða.
Skemmtigarðurinn Euro Disney
var opnaður austan við París árið
1992 með talsverðum stuðningi
franskra stjórnvalda. Frá upphafi
átti hann í vandræðum vegna
árekstra á milli franskrar menning-
ar og bandarískra viðskiptahátta.
Árið 1994 varð félagið að fara í
björgunaraðgerðir á rekstrinum
með endurskipulagningu fjármála
og undanþágum frá höfundar-
réttargreiðslum til móðurfélagsins
Walt Disney í Bandaríkjunum.
Nýjungar hjá Euro Disney hafa
misst marks og draga ekki að gesti,
að mati markaðsaðila.
Euro
Disney í
skuldafeni
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111