Morgunblaðið - 05.08.2003, Qupperneq 25
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 25
✝ Elinborg Sig-urðsson fæddist í
Reykjavík 16. sept-
ember 1920. Hún lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Sóltúni 27. júlí
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Jak-
ob Thorarensen, rit-
höfundur og skáld, f.
18. maí 1886, d. 26.
apríl 1972, og Borg-
hildur Thorarensen
húsmóðir, f. 24. júlí
1897, d. 23. janúar
1996. Elinborg átti
eina systur, Lauf-
eyju, f. 20. ágúst 1917, d. 11. febr-
úar 2000.
Elinborg giftist hinn 15. janúar
1944 Gunnari Sigurðssyni, f. á Ak-
ureyri 4. sept. 1916, fyrrverandi
flugvallarstjóra Reykjavíkurflug-
vallar. Foreldrar Gunnars voru
Sigurður Sigurðsson bóksali, f.
23. júlí 1874, d. 23. maí 1923, og
Soffía Stefánsdóttir, f. 9. nóvem-
ber 1891, d. 26. febrúar 1973. El-
inborg og Gunnar eignuðust þrjú
börn: 1) Borghildur húsmóðir, f. 7.
desember 1945, maki Jón Aðils
sem nýlega lét af störfum sem sér-
fræðingur hjá Landsvirkjun. Börn
þeirra eru Elinborg fulltrúi, f. 2.
sept. 1965, Jón Gunnar rekstrar-
hagfræðingur, f. 30. okt. 1966, og
Jakob landfræðingur, f. 14. maí
1970. 2) Gunnhildur, f. 28. október
1949. Barnsfaðir
Gunnhildar er Jónas
Hermannsson og
barn þeirra Soffía
Guðrún barnalækn-
ir, f. 30. ágúst 1966.
Maki Gunnhildar var
Sigurður Jónsson
sjómaður, þau
skildu. Börn þeirra
eru Gunnar bygg-
ingatæknifræðing-
ur, f. 24. júlí 1970,
Ingibjörg Salóme
viðskiptafræðingur,
f. 18. apríl 1973, Jón,
nemi í Tækniskóla
Íslands, f. 7. des. 1977, og Andri
Björn, f. 14. ágúst 1989. 3) Jakob,
umhverfisfræðingur hjá Skipu-
lagsstofnun, f. 19. nóvember 1954,
maki Þuríður Árnadóttir skrif-
stofumaður. Barn þeirra er Íris
Björk, f. 11. maí 1989. Elinborgu
og Gunnari varð 13 barnabarna-
barna auðið.
Elinborg ólst upp í Reykjavík,
lauk námi frá Kvennaskólanum í
Reykjavík og bjó um nokkurra
ára skeið í Bandaríkjunum þar
sem hún kynntist eftirlifandi eig-
inmanni sínum, Gunnari. Þau áttu
síðan heimili í Reykjavík og
bjuggu lengst af á Ljósvallagötu
10.
Útför Elinborgar fer fram frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Í dag ætla ég að kveðja ömmu
mína og nöfnu – Elínborgu.
Amma Ella var alltaf kölluð Ella
stóra en ég var kölluð Ella litla. Ég
fékk oft að sofa heima hjá ömmu
Ellu; ekki var til aukarúm, þannig
að afi setti saman tvo hægindastóla
og þannig var komið rúm og þar
svaf ég oft hjá þeim, alveg þangað
til ég varð of stór til þess að hæg-
indastólarnir dygðu fyrir mig.
Það var alltaf sunnudagskaffi hjá
„ömmu B“ á hæðinni fyrir ofan afa
og ömmu Ellu en þau bjuggu öll í
sama húsinu. Því hitti ég ömmu
Ellu á hverjum sunnudegi þegar ég
var barn og langt fram á unglings-
árin.
Amma Ella hafði ferðast mikið og
hafði margar ævintýrasögur í poka-
horninu og hún þreyttist aldrei á að
segja mér frá ferðalögum sínum.
Amma Ella lagði mikla áherslu á
að hafa betri stofuna fallega og á
jólunum var hún alltaf með stærsta
og fallegasta jólatréð í Reykjavík,
enda bæði jólaljósin og jólaskrautið
fengið frá Ameríku og fékkst ekki
hér heima á þeim tíma svo fallegt
og sérstakt jólaskraut.
Það sem ég minnist sérstaklega
um ömmu Ellu er hvað hún gat allt-
af hlegið og verið skemmtileg, sama
á hverju gekk.
Amma Ella var eitilhörð og með
bein í nefinu, eins og þegar hún
ákvað það með sjálfri sér að hætta
að reykja eftir 40 ár. Þá hætti hún
strax, án nokkurra hjálparlyfja, og
reykti aldrei eftir það.
Síðustu ár eyddi ég miklum tíma
með ömmu Ellu þar sem hún var
talsvert veik og ég var hjá henni
sem selskapsdama og einnig henni
til aðstoðar. Ég sat hjá henni
tvisvar í viku um árabil meðan hún
og afi bjuggu ennþá á Ljósvallagöt-
unni. Við töluðum mikið, borðuðum
alltaf morgunverð og hádegisverð
saman, fórum stundum í bíltúr og
fengum okkur ís ef veðrið var gott
og settumst út á svalirnar og nutum
góða veðursins. Og eftir að yngsti
sonur minn fæddist þá fór ég til
ömmu Ellu að minnsta kosti einu
sinni í viku með litla angann með
mér.
Síðasta ár bjuggu amma Ella og
afi Gunnar á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni, þar sem þau fengu að-
hlynningu og hlýju frá hjúkrunar-
fræðingum og starfsfólki sem voru
alveg sérstök, svo mikla þolinmæði
og hlýju sem þau veittu ömmu Ellu
síðustu mánuðina sem hún barðist
við veikindi sín.
Síðustu vikurnar fór ég reglulega
til ömmu Ellu og fylgdist með henni
þar sem hún barðist við veikindi sín
af miklum baráttuhug og lífsvilja –
það er í rauninni kraftaverk að hún
skyldi fá að vera eins lengi hjá okk-
ur og raun ber vitni.
Ég var hjá henni þegar hún skildi
við þennan heim og þrátt fyrir
söknuð yfir að hún væri farin gladd-
ist ég þegar ég sá friðinn sem færð-
ist yfir hana; hún var orðin þreytt á
þessari baráttu og þurfti hvíldina.
Far þú í friði, amma mín, ég
sakna þín en þú ert komin á betri
stað þar sem þér líður vel.
Þín dótturdóttir og nafna,
Elínborg.
Það er með sárum söknuði og
þakklæti að ég kveð ömmu mína,
Elínborgu Sigurðsson, söknuði yfir
því að kveðja hana svo snögglega og
þakklæti að hafa átt slíka ástkæra,
umhyggjusama og umfram allt
skemmtilega ömmu.
Mínar fyrstu minningar eru
tengdar heimili afa og ömmu, þar
sem ég ólst upp að hluta hjá þeim
mín fyrstu æviár. Þar naut ég
óspilltrar athygli og ástríkis og alla
tíð hef ég átt mjög náið samband
við ömmu. Æskuminningarnar eru
umvafðar umhyggju, gleði og ást-
ríki ömmu, skemmtilegum frásögn-
um um atburði úr ferðum hennar í
framandi löndum, göngutúrum um
Vesturbæinn að ógleymdum kvöld-
stundum með tónlist frá 5. áratugn-
um, þar sem afi og amma tóku oft
nokkur danspor. Göngutúrarnir
voru ómissandi hluti af daglegu lífi
hjá ömmu, og átti hún sér nokkra
uppáhaldsstaði og oft var það þegar
ég kom í heimsókn á Ljósvallagöt-
una og fann hana ekki inni að þá
var bara að leita úti á einhverjum af
þessum uppáhaldstöðum. Gamli
kirkjugarðurinn var þeirra vinsæl-
astur og voru það ófáar stundirnar
sem amma sat þar, naut sólarinnar,
blómanna og las blöð og tímarit. Í
minningunni leit ég alltaf svo á að
garðurinn væri hinn fallegasti
skrúðgarður en ekki kirkjugarður.
Þau voru líka ófá ferðalögin um
hringveg Íslands sem ég fór með
afa og ömmu en upp úr stendur þó
ferðin til Bretlands þegar ég var 11
ára. Ég man enn þann dag þegar
þau kölluðu mig inn í eldhús og
sögðu mér frá því, þetta var mín
fyrsta ferð til útlanda og því mikil
ævintýraferð.
Amma var mjög skemmtileg kona
með ríka kímnigáfu og var alltaf
mikið hlegið í návist hennar. Hún
var víðlesin og fylgdist mjög vel
með nýjungum á hinum ýmsu svið-
um og hafði gaman að „diskútera“,
sérstaklega nýjungar í læknisfæði
og kom mér oft á óvart með vitn-
eskju um nýjar tækniframfarir eins
og líffæraígræðslu á sama tíma og
ég var fyrst að læra um það í lækn-
isfræði.
Amma hafði alla tíð unun af því
að ferðast og strax um 18 ára aldur
hafði hún ferðast til Bretlands til
enskunáms og, eins og hún sagði
sjálf, sem selskapsdama hjá heldri
konu. Nokkrum árum síðar lagði
hún í öllu meiri ferð þegar hún
sigldi til Bandaríkjanna – undir lok
seinni heimsstyrjaldarinnar. Sú
sigling yfir Atlantshafið í skipalest,
þar sem vofði yfir stöðugur ótti um
að verða fyrir skotárás og upplifa
það að horfa á fólk ósjálfbjarga í
sjónum eftir að skipi þeirra var
sökkt, var lífsreynsla sem hafði
djúptæk áhrif á hana. Eftir að hún
kom til Bandaríkjanna dvaldi hún
um hríð á austurströndinni en flutt-
ist síðar yfir á vesturströndina, til
Kaliforníu. Þar lágu svo saman leið-
ir afa og ömmu og giftu þau sig þar
í Glendale sem er hluti af Los Ang-
eles. Það er skemmtilegt til þess að
hugsa að rætur fjölskyldunnar
liggja að hluta í Kaliforníu, þar sem
ég bý þar núna og átti ég þess kost
í fyrra að keyra ásamt fjölskyldu
minni til Glendale.
Hin síðari ár þurfti amma að
glíma við ýmis heilsuvandamál og í
þeirri glímu sýndi hún ótrúlegan
viljastyrk og baráttugleði en í þess-
ari síðustu glímu varð hún að lúta
æðra valdi en ég veit að hún stígur
nú staðföst í báða fætur.
Við kveðjum ömmu og vottum öll-
um aðstandendum, þá sérstaklega
elsku afa, alla okkar samúð. Elsku
amma, far þú í friði.
Soffía og Ágúst, Egill Al-
mar, Kjartan Logi, Stefán
Snær, Gunnar Jökull, Alma
Hildur og Ágúst Bjarki.
Það eru ekki nema nokkrir mán-
uðir í sextíu ára brúðkaupsafmæli
ömmu og afa, demantsbrúðkaups-
afmæli. Eftir situr afi með minn-
ingar um viðburðarík sextíu ár.
Frá því að ég man eftir mér
bjuggu amma og afi á Ljósvallagöt-
unni. Á neðri hæðinni voru amma
og afi og á efri hæðinni langamma
Borghildur. Áður fyrr kom fjöl-
skyldan alltaf saman á sunnudögum
í eftirmiðdagskaffi hjá langömmu á
efri hæðinni. Þar var oft líf og fjör
og ýmislegt brallað. Fyrir unga
drengi var svæðið í kringum Ljós-
vallagötu spennandi og þegar inn
var komið eftir útiveruna var ávallt
fullt borð af heimabökuðu góðgæti
sem dugði vel ofan í allan krakka-
skarann.
Amma og afi kynntust á stríðs-
árunum í Kaliforníu. Afi var þar við
nám, flugið átti hug hans allan, en
amma var í ævintýraleit og fann þá
íslenskan draumaprins. Í starfi sínu
sem flugvallarstjóri Reykjavíkur-
flugvallar ferðaðist afi víðsvegar um
heiminn og amma var ávallt með
honum í för. Þegar heim var komið
fengum við barnabörnin gjarnan
nýstárlegt gotterí sem ekki var til á
Íslandi á þeim tíma og þótti spenn-
andi. Hin síðari ár var gaman að
heyra sögur þeirra af ferðalögum til
hinna ýmsu landa og ávallt var
amma mjög spennt að heyra um
hagi mína og þá sérstaklega ef ég
var á flakki í útlöndum. Amma var
um margt sérstök, ákveðin, fjörug
og forvitin.
Lífsviljinn var mikill hjá ömmu
og náði hún sér jafnharðan aftur
eftir veikindi á síðustu árum. Þegar
amma veiktist fyrir þremur vikum
var kallið komið. Hún náði sér ekki
aftur eftir aðgerð þrátt fyrir ríkan
lífsvilja.
Fyrir einu og hálfu ári fluttu
amma og afi á hjúkrunarheimilið
Sóltún. Þar nutu þau framúrskar-
andi umönnunar góðs starfsfólks
Sóltúns. Elsku afi, hugur minn er
hjá þér. Ég hef oft sagt á und-
anförnum árum að það sé óvenju-
legt að afi skuli ennþá vera svona
mikið skotinn í ömmu eftir sextíu
ára sambúð.
Jón Gunnar.
Elsku amma mín.
Nú er komið að kveðjustund og
það er svo ólýsanlega erfitt að
hugsa til þess að ég eigi ekki eftir
að hitta þig aftur.
Á stundu sem þessari rifjast upp
margar góðar minningar. Þegar ég
var lítil fannst mér þið framandi
fólk. Þið ferðuðust um allan heim og
dvölduð oft erlendis. Svo komuð þið
heim færandi hendi með allskonar
útlenskt sælgæti sem okkur syst-
kinunum þótti fengur í. Eitt árið
fengum við útlensk páskaegg, sem
voru allt öðruvísi en þau íslensku og
miklu flottari.
Mér er minnisstæður veturinn
þegar ég var sextán ára. Þá um
haustið hafði ég hafið nám í MR og
þá var stutt að skjótast til afa og
ömmu á Ljósvallagötunni. Ævinlega
tókstu vel á móti mér og áttum við
margar skemmtilegar stundir. Mér
fannst svo gaman að sitja og spjalla,
því þú varst svo ung í anda að sam-
ræðurnar snerust jafnmikið um
hugðarefni sextán ára stúlku og
fullorðinnar konu.
Sem ung kona dvaldist þú í Am-
eríku þar sem þú kynntist afa. Og
Ameríkuáhrifin leyndu sér ekki.
Mér er sérstaklega minnisstætt
stóra flotta jólatréð með ameríska
jólaskrautinu. Ár eftir ár dáðist ég
að þessu kraftaverki og var sann-
færð um að þetta væri fallegasta
jólatréð í öllum bænum.
Elsku afi minn. Megi góður guð
vera með þér og styrkja þig á þess-
ari erfiðu stundu.
Það eru svo margar minningar
sem ylja mér um hjartarætur núna,
elsku amma mín. Takk fyrir allt og
allt.
Þín
Ingibjörg Salóme.
Látin er í Reykjavík æskuvin-
kona mín, Elínborg Sigurðsson,
kölluð Ella. Við vorum báðar aldar
upp við Tjörnina, fegursta staðnum
í Reykjavík. Þegar ég var 6 ára
byggði Jakob Thorarensen skáld
hús við Skálholtsstíg 2a, beint fyrir
ofan Fríkirkjuna. Hann átti tvær
dætur, Laufeyju, sem var jafnaldra
mín og Elínborgu, sem var þremur
árum yngri.
Við Laufey urðum strax miklar
vinkonur, byrjuðum saman í Mið-
bæjarbarnaskólanum og sátum
saman alla okkar skólatíð.
Fyrst framan af var Ella ekki
mikið með okkur, þar sem hún var
svo mikið yngri. En þetta breyttist
með árunum og á unglingsárum
vorum við allar orðnar jafn miklar
vinkonur. Heimili þeirra varð sem
mitt annað heimili og var það ekki
síst að þakka Borghildi, móður
þeirra, sem var dásamleg kona og
tók mér alltaf opnum örmum.
Ella stundaði nám í Kvennaskól-
anum í Reykjavík en að því loknu
fór hún til Englands í enskunám.
Þegar heim kom afgreiddi hún lengi
í ritfangaverslun Pennans, sem var
til húsa í Ingólfshvoli. Var hún mjög
vinsæl við afgreiðslustörfin og mik-
ið til hennar leitað þegar afgreiða
þurfti útlendinga því hún talaði svo
vel ensku. Ella var líka mjög glæsi-
leg stúlka, svo eftir henni var tekið.
Árið 1942 ákvað Ella að fara til
Bandaríkjanna því þar átti hún vini.
Sigldi hún með Goðafossi í skipalest
til New York. Ég starfaði þá í New
York og kom það í minn hlut að
taka á móti henni. Urðu það miklir
fagnaðarfundir. Varð það úr að hún
dvaldi hjá mér og vinkonu minni í
tvo mánuði áður en hún hélt förinni
áfram til Los Angeles en þangað
var förinni heitið.
Ella var margoft búin að biðja
mig að heimsækja sig en í fyrstu
fannst mér það fjarstæða. En svo
var það í júlí 1943 að ég ákvað að
segja starfi mínu lausu og snúa aft-
ur heim til Íslands. Mig langaði að
sjá meira af Bandaríkjunum áður
en ég færi heim, svo ég ákvað að
skella mér með „Greyhound bus“ til
Los Angeles og heimsækja Ellu. Sú
heimsókn stóð í meira en fimm
mánuði, því mér bauðst starf þar og
bjuggum við Ella saman. Það var
dásamlegur tími og þá tengdumst
við enn sterkari vináttuböndum,
sem stóðu til æviloka.
Þar réðust líka örlög Ellu. Við
rákumst á smáfrétt í dagblaði um
að þrír Íslendingar frá Akureyri
hefðu innritast á flugskóla í LA. Við
veltum fyrir okkur hvort við ættum
að reyna að komast í samband við
þessa landa okkar en það varð úr
og við ákváðum að hittast. Þeir
urðu mjög góðir vinir okkar og einn
af þeim var Gunnar Sigurðsson,
mikill mannkostamaður, sem varð
eiginmaður Ellu fjórum mánuðum
seinna.
Þau giftu sig 15. janúar 1944 og
hefðu þau átt 60 ára brúðkaups-
afmæli í byrjun næsta árs. Þau
fluttu til Íslands eftir að Gunnar
lauk námi og var hann flugvallar-
stjóri Reykjavíkurflugvallar þar til
hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir.
Ella og Gunnar voru mjög sam-
rýnd og máttu ekki af hvort öðru
sjá og voru alltaf nefnd í sömu and-
ránni. Þau eignuðust þrjú mann-
vænleg börn og mörg barna- og
barnabarnabörn, allt hið gjörvuleg-
asta fólk.
Ella var mjög skemmtileg, sér-
staklega orðheppin og fljót að sjá
skoplegu hliðarnar á hlutunum. Það
sem ég mat þó mest við hana var
hve hún var hrein og bein og trygg-
lynd, mikill vinur vina sinna, mátti
ekki heyra á þá orði hallað.
Elínborg og Gunnar hafa bæði
átt við heilsubrest að stríða á síð-
ustu árum og voru flutt af Ljós-
vallagötu 10, þar sem þau höfðu bú-
ið mikinn hluta ævinnar og á
Hjúkrunarheimilið Sóltún, þar sem
Ella lést.
Elsku Gunnar, ég veit að þér er
mikill söknuður í huga eftir að hafa
misst Ellu eftir nærri 60 ára hjóna-
band en jafnframt þakklæti fyrir að
hafa fengið að njóta samvista svo
lengi.
Ég votta þér og fjölskyldu þinni
innilega samúð.
Margrét Thoroddsen.
ELINBORG
SIGURÐSSON
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.