Morgunblaðið - 05.08.2003, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
SAMTÖK banka og verðbréfafyrirtækja
(SBV) vilja sameinast Sambandi íslenskra
tryggingarfélaga (SÍT) og Sambandi ís-
lenskra sparisjóða, og telur formaður SBV
að sameining í ein samtök fjármálafyrir-
tækja sé vel möguleg þegar í haust.
Halldór J. Kristjánsson, formaður SBV,
skrifaði formanni SÍT bréf 24. júní sl. þar
sem hann óskar eftir viðræðum um samein-
ingu SBV, SÍT og Sambands íslenskra
sparisjóða í ein samtök fjármálafyrirtækja.
„Samtök fjármálafyrirtækja sem eru við
lýði í dag eru samtök þrennra samtaka. Við
viljum leggja niður þessi þrenn samtök og
koma á einum nýjum samtökum þar sem
hvert fyrirtæki á markaðnum ætti beina að-
ild að samtökum fjármálafyrirtækja,“ segir
Halldór.
Hann segir að eins og staðan er í dag sé
hugsanlegt að hagsmunasamtökin séu of lít-
il og of sérhæfð: „Það væri meiri slagkraft-
ur í stærri samtökum, og það er í takt við
samrunaþróunina sem hefur orðið á þessum
markaði þar sem mörkin milli banka og
tryggingafélaga og verðbréfafyrirtækja eru
að minnka.“
Halldór segir að SÍT hafi enn ekki svarað
erindinu formlega, en fundað hafi verið um
málið. Vonir standa til að þessi sameining
geti orðið fyrir haustið. Hann segir þetta vel
mögulegt á þessum skamma tíma ef sam-
staða næst um málið, sem hann telur líklegt.
Sameining
fjármálasam-
taka hugs-
anleg í haust
Fraktflugfélagið
Cargolux, sem hefur
aðalstöðvar í Lúx-
emborg, rekur nú 12
Boeing 747-400 frakt-
þotur og sú þrettánda
á að bætast í flotann í
apríl á næsta ári. Milli
330 og 340 flugmenn
starfa nú hjá Cargolux og eru yfir 70 þeirra
Íslendingar.
Eyjólfur Örn Hauksson, flugrekstrar-
stjóri Cargolux, segir í samtali við Morgun-
blaðið að bæta þurfi við allt að 8-10 áhöfn-
um þegar nýja vélin kemur eða allt að 20
flugmönnum. Hann segist þegar hafa
fengið umsóknir frá íslenskum flug-
mönnum.
Cargolux
fjölgar flug-
mönnum
Aukið samstarf/20
SKEMMTANIR fóru vel fram um
allt land um verslunarmannahelg-
ina. Mestur fjöldi var á Akureyri,
og er talið að um 12 þúsund gestir
hafi verið í bænum í tengslum við
hátíðina Ein með öllu. Lögregla
segir að mikið hafi verið um eftir-
litslausa unglinga og mikið um
ölvun í bænum.
Þjóðhátíð í Eyjum var sem fyrr
ein af vinsælli hátíðunum og áætla
forsvarsmenn þjóðhátíðar að á
milli 8 og 9 þúsund manns hafi
verið á svæðinu þegar mest var.
Um 7 þúsund manns voru sam-
ankomin á bindindismóti í Galta-
læk. Eitthvað bar á ölvun en al-
mennt virtust gestir skemmta sér
vel í ágætis veðri. Unglingalands-
mót UMFÍ fór fram á Ísafirði um
helgina, og áætlaði lögregla að
um 8 þúsund gestir hefðu verið á
svæðinu um helgina.
Á Neistaflugi á Neskaupstað
voru um 4 þúsund gestir.
Ljósmynd/Þorsteinn J. TómassonForseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heimsótti unglingalandsmót UMFÍ á Ísafirði um helgina.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Þjóðlegur hópur í veðurblíðu á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum,
en talið er að yfir átta þúsund manns hafi verið í Herjólfsdal.
Morgunblaðið/Kristinn
Háir sem lágir nýttu sér opið hús í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum í boði VR í gær.
Fjölmennt á útihátíðum um allt land
Mikil ölvun/4
Gleði í veðurblíðu/34
„ÉG taldi þetta mitt síðasta og sá ekki ljós
sem gæti gefið mér von um að ég kæmist lif-
andi frá slysinu.“ Þetta segir bílstjóri rút-
unnar sem valt á Dragavegi svokölluðum, á
Geldingadraga í Borgarfirði, á laugardags-
morgun. Í rútunni voru 28 tékkneskir farþeg-
ar auk tveggja leiðsögumanna og Friðbjörns
Óskarssonar bílstjóra. 20 manns voru fluttir á
sjúkrahús og voru átta manns enn á sjúkra-
húsum í gærkvöld, þar af þrír á gjörgæslu-
deild.
„Fyrsti kosturinn sem ég hafði eftir að ég
vék fyrir jeppanum sem kom á móti, var að
koma mér upp á veginn aftur,“ segir Frið-
björn í samtali við Morgunblaðið. „Kanturinn
gaf sig það mikið að ég hafði ekki örugga
stjórn á bílnum.“ Vegkanturinn gaf sig einnig
vinstra megin og tókst Friðbirni að koma rút-
unni aftur upp á veginn, en þá var rútan farin
að vagga mjög til hliðanna.
„Þegar ég var kominn aftur upp á veginn
blasti við mér brött stórgrýtisbrekka. Annað
hvort var að fara þar fram af eða láta bílinn
fara í götuna. Ég vissi á þeirri stundu að bíll-
inn færi á hliðina en vissi jafnframt að með
þessari ákvörðun gæti ég kannski bjargað
miklum vonbrigðum. „Mér fannst það mjög
erfitt og óþægilegt samtal. Eftir að ég lauk
fyrsta samtalinu kom sú tilfinning að ég gæti
ekki reitt mig á aðstoð Neyðarlínunnar. Ég
óskaði þar eftir þyrlu vegna slasaðrar konu
sem hrakaði stöðugt. Ég hringdi þá aftur í
Neyðarlínuna og spurði hvort þyrlan væri
ekki að koma. Mér var sagt að þyrlan væri á
leiðinni og nokkrum mínútum síðar kom
sjúkrabíll með lækni sem skoðaði konuna. Ég
varð skelfingu lostinn þegar hann tók upp
símann að lokinni skoðun og sagði að þyrlan
mætti koma. Þarna var ég búinn að standa í
þeirri trú í 25 mínútur að þyrlan væri að koma
með þaulvana menn. Þá bíður hún í Reykjavík
eftir því að læknir úrskurði að hennar sé þörf.
Til hvers er verið að kenna bifreiðarstjórum á
meiraprófsnámskeiðum að hiklaust eigi að
biðja um þyrlu í rútuslysum ef menn telja
ástæðu til? Það er sagt við nemendur að þeir
eigi ekki að hika við að óska eftir þyrlu ef tal-
in er þörf á því vegna þess að það séu allar lík-
ur á að í stórslysi séu 1–3 sjúklingar sem þurfi
snögga aðstoð og flýtimeðferð á sjúkrahús.“
einhverjum mannslífum.“ Friðbjörn telur
öruggt að hefði rútan farið fram af brekku-
brúninni, hefði hún lent á stóru bjargi fyrir
neðan. „Ég taldi að það eina sem ég gæti gert
væri að setja bílinn á hliðina.“
Gekk um í losti margbrotinn
Fólk í rútunni varð fyrir miklu áfalli við at-
vikið en róaðist þegar rútan stöðvaðist.
„Læknir sagði mér að fólkið hefði verið í því-
líku losti að það hefði ekki áttað sig á
meiðslum sínum og gengið út úr bílnum. Ég
trúði því ekki að allir væru á fótum. Skömmu
síðar hneig hver farþeginn af öðrum niður í
götuna. Þarna gekk karlmaður út, sem reynd-
ist margbrotinn og allt í einu datt hann nið-
ur.“
Rétt eftir slysið ætlaði Friðbjörn að biðja
ökumann jeppans um aðstoð við að hringja í
Neyðarlínuna og hélt e.t.v. að jeppinn hefði
lent utan vegar, þegar ekki sást tangur eða
tetur af honum. Segir Friðbjörn að það síð-
asta sem honum hafi dottið í hug hafi verið að
ökumaðurinn hefði ekið af vettvangi.
Þegar Friðbjörn fékk síðan samband við
Neyðarlínuna ollu viðbrögðin þar honum
Bifreiðarstjóri með 28 tékkneska rútufarþega vildi koma í veg fyrir að
rútan færi niður bratta stórgrýtisbrekku við Geldingadraga
Velti rútunni viljandi til
að bjarga mannslífum
Misvísandi upplýsingar/2
LÍTIL einkaflugvél með þremur mönnum
innanborðs missti afl og þurfti að nauðlenda
á Kjósarskarðsvegi við Stífludalsvatn á ní-
unda tímanum í gærkvöldi. Vélin var á leið
til Mosfellsbæjar.
Fjölmennt lið lögreglu og slökkviliðs var
kallað út og búið undir nauðlendingu, en var
snúið til baka klukkan 21:19. Þá hafði vélin,
sem var af gerðinni Cessna 180, lent á
einkaflugvelli í Stífludal án vandræða. Flug-
maður sagði flugturni að þar hefði hann lag-
að flæði milli tanka og tekið á loft skömmu
síðar. Vélin hélt svo áfram og lenti á Tungu-
bökkum í Mosfellsbæ um 20 mínútum síðar.
Rannsóknarnefnd flugslysa hefur verið
gert viðvart um atvikið.
Lítil flugvél nauð-
lenti eftir að hafa
misst afl í hreyfli
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦